Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 24

Fréttablaðið - 19.05.2018, Side 24
háð nokkrum skilyrðum og var umgengni hans undir eftirliti barna- verndaryfirvalda. Fyrst þrjá tíma í senn aðra hverja helgi en síðar meir aftur frá laugardegi til sunnudags. Á þessum þremur árum tálmaði Hildur Björk umgengni við föður barnanna vegna meints ofbeldis af hans hálfu. Játning lá fyrir „[V]issulega sló ég drenginn og ég hef viðurkennt það bæði fyrir hildi og þér,“ skrifar líffræðilegur faðir barnanna í tölvupósti til lög- manns Hildar í júlí árið 2006. Þá hafði Hildur kvartað yfir umhirðu barnanna og áverkum sem hún taldi hafa verið á þeim eftir samveru með föður þeirra. Umgengni líffræðilegs föður barnanna við Auði og Markús hófst aftur í upphafi árs 2008 undir reglu- legu eftirliti barnaverndaryfirvalda þar sem fulltrúar yfirvaldanna voru viðstaddir. „Það fer umgengni aftur af stað undir eftirliti. Í gögnum málsins kemur fram mikill kvíði barnanna fyrir að hitta föður sinn. Ég þurfti að fara í gegnum þrjá dag- sektarúrskurði á þessum tíma og rétta þessum manni börnin mín,“ segir Hildur Björk. Auður man eftir þessum fundum við föður sinn undir eftirliti. „Já, þetta var einhver lítil stofa og það var alveg ekkert að gerast þar því þegar fólk var að fylgjast með þá gerðist ekkert. En um leið og við vorum hjá honum um helgar þá bara breyttist þetta,“ segir Auður. Í gögnum málsins kemur fram að umgengnin hafi farið vel fram. „Í fyrsta skipti voru börnin nokkuð skelkuð við komuna og þurfti starfs- maður að fullvissa þau um að faðir þeirra myndi ekki berja þau,“ segir í lýsingu barnaverndaryfirvalda af því þegar börnin komu í fyrsta skipti í umgengni eftir að Hildur stöðvaði alla umgengni, þann 13. ágúst 2006. „Ég man eftir því þegar við vorum að fara um helgar. Þá kom oft maður sem átti að vera með okkur alla helg- ina, en faðir okkar gat sagt honum bara að fara í kaffi og þá fór hann bara. Og þá byrjaði allt aftur,“ segir Auður. „Ég man einu sinni á leiðinni heim. Hann keyrði okkur alltaf úr vistinni og heim, þessi eftirlitsmað- ur. Markús var þá grátandi alla leið- ina og ég byrjaði að kenna þessum manni um og að hann væri aftur og aftur að taka okkur og meiða okkur. Þegar hann lagði síðan bílnum við heimili okkar þá öskraði hann á okkur og sagði okkur að hypja okkur út. Og þetta var manneskja sem átti að passa upp á okkur. Barnaverndar- fulltrúinn átti að hlusta á okkur, en það virkaði ekki einu sinni.“ „Mig langaði aldrei að fara“ Markús Páll á afar erfitt með að grafa í þessum minningum og það tekur á hann að segja frá því sem gerðist á þessum tíma. Hvernig voru samskiptin við líf- fræðilegan föður þinn? „Ekki mikil og slæm, hann var með mjög stuttan þráð og var fljótur að refsa.“ Í hverju fólust þessar refsingar? „Ofbeldi. Hann rassskellti mig og tók mig oft í bóndabeygju.“ Þrátt fyrir að beitt hafi verið ofbeldi þar sem lá fyrir játning föður fyrir því að hafa á einum tímapunkti slegið Markús úrskurðaði sýslu- maður að faðirinn hefði rétt til að umgangast börnin sín. Hvernig leið þér að fara til föður þíns? „Mig langaði aldrei að fara, lang- aði bara ekkert að vera með honum. Þetta er náttúrulega algjört bull sko. Maður átti ekki að vera í þessum aðstæðum. Ég reyni að gera eins lítið af því að hugsa til baka og ég get.“ Studdi mamma þín þig? „Já, hún studdi mig alltaf. Það var gaman að koma aftur heim.“ Er eitthvað í umhverfinu sem ýfir upp þessar minningar? „Já, ég til dæmis þoli ekki að sjá á skírteinum þegar föðurnafnið mitt er birt. Ég sá hann í leikfanga- verslun eitt skipti. Ég var eitthvað inni í búðinni og sneri mér við og þar var hann. Þá hljóp ég bara út,“ bætir Markús við. Auður minnist þess að síðasta skipti sem þau hafi hitt líffræði- legan föður sinn hafi verið fyrir um átta árum. „Síðast var það í upphafi árs 2010, þegar hann kom í viðtal heim til okkar þegar sálfræðingur og sáttamaður hjá sýslumanni voru á staðnum. Viðtalið byrjaði mjög vandræðalega. Stjúppabbi okkar var að reyna að róa Markús niður og ég sat í fanginu á mömmu. Síðan endaði það á því að ég snappaði á hann og sagði honum að drulla sér út. Við ætluðum ekki að fara aftur til hans því þetta væri ógeðslegt.“ Sr. Hildur Björk hefur á þessum tíma oft verið sökuð um að hafa heilaþvegið börnin til fylgilags við sig í erfiðri umgengnisdeilu við barnsföður sinn. Hún segir það af og frá og að gögn málsins séu skýr um það hvað gekk á. Hún hafi ein- faldlega verið að vernda börnin sín sem mest hún mátti. Auður segir ásakanirnar gegn móður sinni gera lítið úr ofbeldinu gegn sér og bróður sínum. „Þetta er erfitt. Þegar maður stendur upp og er að tala um svona og fær að heyra að maður hafi verið heilaþveginn af móður sinni. Það er bara eins og það sem kom fyrir okkur hafi ekki gerst,“ segir Auður. „Og það er búið að vera mjög erfitt. Og það koma alveg tímar þar sem við Markús upplifðum að það væri enginn að hlusta á okkur og þá hætt- ir maður bara að tala um þetta. Það var mjög erfitt að byrja svo aftur að tala um þetta. Þegar þetta þarf allt að byrja aftur. Þetta er allt bara eitt klúður á eftir öðru.“ Umtal á netinu Hildur segir einnig að umtal á net- inu hafi áhrif á börn hennar og það skiptir máli að það sem sagt er sé satt og rétt. Hún talar um að hópur einstaklinga hafi markvisst á síðustu árum reynt að koma óorði á hana með umtali á netinu. En hver er þessi hópur? „Þeir eru nánasta fjölskylda þessa manns, auk annarra sem telja sig vera að styðja hreyfingar feðra. Ein- hvers konar regluriddarar sem halda að þeir séu að taka göfugan málstað og berjast með honum,“ segir Hild- ur. „Auður og Markús eru bara orðin það stór að þau lesa allt. Þegar þeir fara svo að birta tilklippt málsskjöl úr Barnahúsi um þau, þar sem fram kemur að hún er spurð hver hafi í raun sagt henni að segja þessa hluti í Barnahúsi. Þá segir hún „mamma“, því ég hafði sagt henni að segja allan sannleikann. Lögfræðingurinn minn hafði sagt mér að minna börnin á að það væri mikilvægt að segja allan sannleikann. Þegar Auður les svo þetta þá hugsaði hún sem svo að það hafi þá eftir allt saman verið hún sem hafi spillt fyrir málinu.“ Nýtt áfall við prestsvígslu Hildur er sóknarprestur í Reykhóla- prestakalli. Í febrúar árið 2016 var hún vígð til prests. Hún lýsir vígsl- unni sem erfiðum tíma. „Það verður mikil uppákoma í vígslunni. Þau mættu auðvitað þangað, þau ætluðu ekki að láta mig vígjast. Fjölskylda hans sér börnin fyrir utan kirkjuna og sest svo fyrir aftan börnin. Markús og Auður höfðu verið að lesa á Facebo- ok fyrir vígsluna að ég skyldi passa mig hvar ég væri og aðrar alvar- legar hótanir. Markús var þá farinn að halda að mér væri raunveruleg hætta búin. Þau setjast þá fyrir aftan börnin og stjúppabbi þeirra biður fólkið um að færa sig þegar Markús byrjar að gráta og segir við stjúpföður sinn að að hann haldi að fólkið ætli bara að drepa mig,“ segir Hildur. „Svo þegar kirkjuvörðurinn biður fólkið um að færa sig aftar, þá bara tryllist allt. Þá er öskrað og æpt. Þetta gerist fyrir athöfnina sjálfa og Agnes biskup þurfti að beita sér til að fólkið settist niður eða færi út. Því, sem fór af stað um leið og ég fór að sækja um prestsembætti, er ekki lokið í dag. Eitthvað sem ég skil ekki,“ segir Hildur. „Ég hef oft hugsað til orða Agnesar biskups til mín á þessari stundu þegar hún sagði mér að það skipti ekki mestu máli hvað kemur fyrir okkur heldur hvernig við vinnum úr því.“ „Mamma, nú er nóg komið“ Ég sagði upp prestakallinu mínu á Reykhólum í mars og sótti um stöðu hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur sem forstöðumaður Vistheimilis barna. Ég fæ þessa stöðu sem hæfasti einstaklingurinn. Svo þegar ég er búin að skrifa undir þá tjáir framkvæmdastjóri Barna- verndar mér að það berist til þeirra tölvupóstar þar sem þessir menn eru að senda henni óhroða um mig og þessa umgengnisdeilu. Þá hringi ég í lögfræðinginn minn og segi henni að útskýra mitt mál sem hún gerir. Svo ákveð ég að bakka út úr þessari stöðu þegar þessi huldu- her hótar stíft fjölmiðlaumfjöllun. Ég gat ekki látið Auði og Markús fara í gegnum það sama og síðast. Ég er eina konan sem hefur farið í meiðyrðamál og svo úrskurðar dómari við héraðsdóm að það megi kalla mig tálmunarmóður því ég hafi sannarlega tálmað umgengni. Því er ég í algjöru uppáhaldi hjá þeim því þeir hafa það skjalfest frá dómara,“ segir Hildur. „Þessi hópur á sviðið á meðan hinn hópurinn hefur ekki auka orkuna því öll auka orka fer í að tjasla börnunum manns saman. Þegar ég sagði Auði núna að ég hefði dregið til baka að taka við stöðu forstöðumanns Vistheim- ilis barna fyrir Barnaverndarnefnd Reykjavíkur, vegna þess að þeir voru byrjaðir að senda inn og hóta fjölmiðlaumfjöllun, núna viku áður en ég átti að hefja störf, þá er það Auður sem segir: Mamma, nú er nóg komið, lærðum við ekkert af #metoo?“ Nú tekur við nýr kafli í lífi þeirra þar sem séra Hildur hefur sagt upp prestsembætti sínu og ákveðið að taka ekki við nýju starfi hjá barna- verndarnefnd. En hvernig líður henni að vera kölluð tálmunarmóðir? „Það eru tveir ljósir punktar í þessu máli. Ég er búin að vera með sama sálfræðinginn og sama lög- fræðinginn allan þennan tíma. Sál- fræðingurinn minn, Andrés Ragn- arsson, segir stundum við mig að ég þurfi að fara að hugsa þetta orð sem einhvers konar orðu. En það er mjög erfitt þar sem þetta er notað sem hatursfullt orð. Ef það er svo það versta í þessu öllu saman að ég sé kölluð tálm- unarmóðir, þá er mér alveg sama. Það sem er svo merkilegt er að þrátt fyrir að vera með flottan starfsferil og sex háskólagráður, þá hefur þetta áhrif. Að mörgu leyti er þetta mikil fordæming, það er búið að ákveða einhverja afbakaða sýn í þessu máli og það er gert á sam- félagsmiðlum. Það er gert án stað- reynda, án okkar hliðar málsins og þess sem við höfum þurft að ganga í gegnum.“ Systkinin segjast ekki hafa viljað fara í umgengni til föður síns og að kerfið hafi brugðist þeim. Þeim hafi ekki verið trúað. Fréttablaðið/SigtryggUr ari Skýrslutaka í Barnahúsi: Starfsmaður: Og hvað finnst þér um að hafa ekki hitt hann í svo- lítið langan tíma? Markús: Ekki…, mér finnst það bara gott. Starfsmaður: Langar þig til að hitta hann? Markús: Nei. Starfsmaður: Af hverju ekki? Markús: Bara, hann er svo vondur við mig. Starfsmaður: Hvernig vondur við þig? Markús: Hann rassskellir mig og það er bannað og það er bannað að taka í bóndabeygju…, og ég vill ekki fara til hans. Starfsmaður: En hvernig líður þér að hitta hann ekki? Markús: Bara vel, mig langar að vera heima. Úr gögnum málsins: Álit doktors tryggva Sigurðs- sonar, barnasálfræðings „Lýsing Auðar á samskiptum hennar við föður hennar eru trúverðugar. Hún nánast skelfur þegar hún lýsir heimsóknum til hans og þolir illa langar umræður um þær.“ […] „Niðurstöður greindarprófunar sýna vitsmunaþroska á stigi af- burðagreindar hjá Auði. Námsleg staða hennar er mjög góð. […] Stúlkan lýsir miklum kvíða hjá sjálfri sér og í viðtölum lýsir hún ítrekað ofbeldi af hálfu föður síns. Mælt er með tilvísun til barna- taugalæknis […] með tímabundna lyfjagjöf í huga vegna þess alvar- lega kvíða sem Auður sýnir. Einn- ig er mælt með áframhaldandi sálfræðilegum stuðningi við Auði með það að markmiði að að- stoða hana við að ná betri tökum á kvíða og vanlíðan. Eindregið er varað við því að þvinga Auði til að hitta föður sinn, a.m.k. þar til hún sýnir betri líðan og er tilbúin að hitta hann sjálf.“ ↣ 1 9 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R24 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 1 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D A -1 9 1 8 1 F D A -1 7 D C 1 F D A -1 6 A 0 1 F D A -1 5 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.