Fréttablaðið - 19.05.2018, Blaðsíða 58
311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | bifrost@bifrost.is | bifrost.is
Við auglýsum eftir náms- og starfsráðgjafa tímabundið til eins
árs í fullt starf frá og með 1. ágúst nk. vegna afleysinga.
Náms- og starfsráðgjafi
Helstu verkefni og ábyrgð
Náms- og starfsráðgjafi stendur vörð um velferð nemenda, veitir
þeim stuðning, ráðgjöf og upplýsingar varðandi náms- og starfsval.
Hann veitir þeim einnig ýmis konar stuðning til að auka náms-
árangur auk þess að aðstoða og leiðbeina við gerð ferilskráa.
Sérstakt verkefni þar sem unnið er gegn brottfalli nemenda er
á höndum náms- og starfsráðgjafa. Hann heldur námskeið fyrir
nemendur sem snúa m.a. að námstækni og tímastjórnun.
Hæfni og menntunarkröfur
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur rétt til að kalla sig náms- og
starfsráðgjafi skv. lögum nr. 63/2006. Lögð er áhersla á sjálfstæð
vinnubrögð, frumkvæði í starfi, áhuga og áreiðanleika.
Með umsókn þarf að fylgja afrit prófskírteina og staðfesting á
starfsréttindum.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin. Búseta á
Bifröst eða í Borgarfirði er æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk. Umsóknir og fyrir-
spurnir um starfið skal senda á netfangið kennslustjori@bifrost.is.
Rafvirkjameistari
óskast til starfa
Áhugasamur og metnaðarfullur rafvirkjameistari óskast til
starfa hjá okkur á Grund og Mörk hjúkrunarheimili.
Megin starfssvið er viðhald og viðgerðir á tækjabúnaði auk
þess að hafa umsjón með rafkerfum heimilanna.
Hæfnikröfur
• Góð starfsreynsla á sviðinu er nauðsynleg.
• Tölvukunnátta er æskileg.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Góðir samskiptahæfileikar.
• Geta til að vinna skipulega og undir álagi.
Um er að ræða framtíðarstarf fyrir rétta aðilann.
Nánari upplýsingar um störfin veitir:
Íris Benediktsdóttir, mannauðsráðgjafi
irisb@grund.is
MÖRK
HJÚKRUNARHEIMILI
Myllan óskar að ráða starfsmann með vél-
virkjamenntun eða sambærilega þekkingu í
viðgerðardeild fyrirtækisins.s.
Meðal helstu verkefna:
· Viðhald og viðgerðir á framleiðsluvélum og búnaði.
· Bilanagreining
· Almenn viðgerðarvinna
· Samskipti við framleiðsludeildir
Hæfniskröfur:
· Sveinspróf eða sambærileg menntun/þekking æskileg
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Skipulögð vinnubrögð
· Almenn tölvuþekking
Nánari upplýsingar um starfið gefur Flóvent Sigurðsson
verkstjóri á flovent@myllan.is
Myllan er leiðandi fyrirtæki á íslenskum matvælamarkaði, sem sérhæfir
sig í markaðssetningu og framleiðslu á brauðum, kökum og skyldum
vörum fyrir neytendamarkað, hótel og veitingahús, mötuneyti og
stofnanir. Myllan stefnir að því að uppfylla fjölbreyttar þarfir viðskiptavina
sinna á sínu sviði með viðeigandi lausnum í hverju tilfelli
Viltu vera í öflugu teymi
mengunareftirlits?
Umhverfisstofnun leitar að starfsmanni í starf sérfræðings, sem hefur áhuga á að
vinna við eftirlit með mengandi starfsemi með hag almennings og verndun um-
hverfis að leiðarljósi. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem
áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu og samvinnu við aðrar sérfræðistofnanir.
Helstu verkefni
Helstu verkefni eru eftirlit með mengandi starfsemi en Umhverfisstofnun hefur
eftirlit með margvíslegri starfsemi sem getur haft í för með sér mengun, m.a. fisk-
eldi. Lögð er áhersla á upplýsingamiðlun og samskipti við ráðuneyti, stofnanir,
atvinnulíf og almenning. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi
með framúrskarandi samskiptahæfni. Ítarlegri upplýsingar um starfið, helstu verk-
efni og hæfniskröfur til starfsins er að finna á starfatorg.is og umhverfisstofnun.is/
storf_i_bodi.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2018.
Ný tækifæri,
nýjar áskoranir!
www.hagvangur.is
Frekari upplýsingar um störfin eru á heimasíðu Lyfjastofnunar: https://www.lyfjastofnun.is/Lyfjastofnun/Storf_i_bodi/
Við leitum að öflugum leiðtoga í starf sviðsstjóra á eftirlitssviði. Sviðsstjórinn stýrir starfsemi sviðsins og hefur
yfirumsjón með skipulagi þess og framkvæmd þeirra verkefna sem undir sviðið heyra. Eftirlitssviði er skipt upp í þrjár
deildir, markaðseftirlitsdeild, GxP og lækningatækjadeild og lyfjaöryggisdeild, og er sviðsstjóri næsti yfirmaður þriggja
deildarstjóra. Á eftirlitssviði starfa 15 starfsmenn. Sviðsstjóri eftirlitssviðs situr í framkvæmdaráði Lyfjastofnunar og
tekur hann þátt í stefnumótun stofnunarinnar og gerð rekstraráætlana. Starfið felur í sér alþjóðlegt samstarf. Starf
sviðsstjóra eftirlitssviðs heyrir undir forstjóra stofnunarinnar. Starfshlutfall er 100%.
Upplýsingar um starfið veita Sindri Kristjánsson, sviðsstjóri
eftirlitssviðs, sindri.kristjansson@lyfjastofnun.is, og Sigurlaug
Kristín Jóhannsdóttir, mannauðsstjóri, sigurlaug.kristin.
johannsdottir@lyfjastofnun.is, eða í síma: 520 2100.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir um starfið óskast sendar á netfangið atvinna@
lyfjastofnun.is, merkt í efnislínu: „Sviðsstjóri eftirlitssviðs“.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf með
rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Æskilegt er að
umsækjandinn geti hafið störf sem fyrst.
Lyfjastofnun hvetur bæði karla og konur til að sækja um starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum
umsóknarfrests.
Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í
samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og
öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna 62 starfsmenn. Stofnunin
var í 9. sæti í könnuninni Stofnun ársins 2018 yfir stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi
og starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta.
Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á www.lyfjastofnun.is
Sviðsstjóri á eftirlitssviði
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf á háskólastigi sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnunarstörfum og mannaforráðum
• Að lágmarki 3 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla af stefnumótun og gæðamálum
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og
rituðu máli
• Leiðtogahæfileikar
• Mjög góð samskiptahæfni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Skipulagshæfni og ögun í vinnubrögðum
18 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 9 . m A í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
A
-2
C
D
8
1
F
D
A
-2
B
9
C
1
F
D
A
-2
A
6
0
1
F
D
A
-2
9
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K