Morgunblaðið - 10.10.2017, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2017
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 7.900
Str: M-XXXL
Fleiri litir og gerðir
Mussur
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af þessum þætti sem fjallar m.a. um
árangurslausar rannsóknir og kærur Seðlabankans
á hendur Samherja hf. og viðtölum við fjölda
málsmetandi aðila.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.30
• Seðlabankinn kærði Samherja
fyrir 80 milljarða meint svik
en kærurnar skiluðu engu
• Seðlabankinn stakk áliti
Ríkissaksóknara undir stól
og hélt áfram að sekta
• Hljóðbrot úr samtölum
Seðlabankastjóra og
Þorsteins Más Baldvinssonar
• Ábyrgðin er hjá Má Guðmunds-
syni að sögnmálsmetandi aðila
Rannsóknir hjá Gjaldeyriseftirliti
Seðlabankans
Þorvaldur Þor-
valdsson tré-
smiður verður í
fyrsta sæti á
framboðslista Al-
þýðufylking-
arinnar í Reykja-
víkurkjördæmi
suður. Listinn
var gerður op-
inber í gær.
Í öðru sæti
listans verður Tamila Gamez Gar-
cell kennari, í því þriðja verður Val-
týr Kári Daníelsson nemi, í fjórða
sæti Sólveig Hauksdóttir hjúkr-
unarfræðingur, í fimmta sæti Skúli
Jón Unnarsson Kristinsson nemi og
í sjötta sæti verður Ragnar Sverr-
isson vélstjóri.
Samtals eru 22 á listanum og níu
þeirra eru ekki með lögheimili í
Reykjavík og 13 frambjóðendanna
eru 55 ára og eldri. agnes@mbl.is
Þorvaldur í 1. sæti
í Reykjavík suður
Þorvaldur
Þorvaldsson
Pálmey Gísladótt-
ir, formaður fram-
kvæmdaráðs Dög-
unar, segir að það
skýrist á föstudag-
inn, hinn 13. októ-
ber, hvort og þá
hversu marga lista
Dögun mun bjóða
fram í alþingis-
kosningunum 28.
október nk.
Hinn 13. október kl. 12 á hádegi
rennur framboðsfrestur út og 18.
október auglýsir landskjörstjórn
framboðslistana. Dögun hefur áður
sagt að hún bjóði ekki fram á lands-
vísu.
Skýrist með lista
Dögunar á föstudag
Pálmey
Gísladóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ef einhver vill að ég verði ráðherra
mun ég auðvitað hugsa málið en ég
er samt ekki að sækjast eftir því,“
segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Pírata.
Birgitta býður sig ekki fram í
komandi alþingiskosningum. Hins
vegar hefur því verið fleygt að hún
gæti tekið sæti í ríkisstjórn, enda sé
það stefna Pírata að sækja sér ráð-
herra út fyrir þingið. Þetta var til að
mynda fullyrt í dálkinum Hugin og
Munin í Viðskiptablaðinu í liðinni
viku. Þar sagði að Birgitta hefði rætt
við Katrínu Jakobsdóttur, formann
Vinstri-grænna, og lýst því yfir
hvaða ráðuneyti hún hefði hug á.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Birgitta að ekkert sé hæft í þessum
fregnum.
„Eini stóllinn sem ég er að máta
mig í er nýr skrifborðsstóll sem ég
ætla að sitja í þegar ég skrifa bók um
mömmu mína, sem hefði orðið sjötug
á næsta ári,“ segir Birgitta.
Erla Hlynsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjá Pírötum, staðfestir að það
sé stefna Pírata að þingmenn séu
ekki ráðherrar.
„Að því sögðu erum við ekki farin
að útfæra það hverjir væru möguleg
ráðherraefni fyrir hönd Pírata. Enda
er það ekki tímabært á nokkurn
hátt,“ segir hún.
Hún kannast heldur ekki við frétt-
ir um að Birgitta Jónsdóttir ætli sér
ráðherrastól í ríkisstjórn með VG.
„Það er ekkert sem hefur verið
rætt á okkar vegum.“
Birgitta segist ekki sækj-
ast eftir ráðherrastól
Stefna Pírata að ráðherrar flokksins séu ekki þingmenn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á útleið Birgitta Jónsdóttir kveðst
ekki ætla sér ráðherrastól.
Birgir Þórarinsson, sérfræðingur í
alþjóðasamskiptum og guðfræð-
ingur, mun leiða lista Miðflokksins í
Suðurkjördæmi í komandi alþing-
iskosningum. Í öðru sæti er Elvar
Eyvindsson, viðskiptafræðingur og
bóndi á Skíðbakka í Austur-
Landeyjum, en Elvar gegndi um
tíma starfi sveitarstjóra Rangár-
þings eystra og leiddi lista Sjálf-
stæðisflokksins í sveitarstjórn.
Birgir starfaði við yfirstjórn
UNRWA, flóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna fyrir Palestínu-
menn, í Mið-Austurlöndum. Hann
hefur sinnt verkefnum á vegum ut-
anríkisráðuneytisins, var varaþing-
maður fyrir Framsóknarflokkinn í
Suðurkjördæmi 2009-2013 og sat í
sveitarstjórn sveitarfélagsins Voga.
Auk þess hefur hann rekið ferða-
þjónustu um árabil.
Einnig hefur Birgir BA-próf í
guðfræði frá Háskóla Íslands og
próf í opinberri stjórnsýslu og
stjórnun frá EHÍ.
Í þriðja sæti á lita Miðflokksins er
Sólveig Guðjónsdóttir, bæjarstarfs-
maður í Árborg, Ásdís Bjarnadótt-
ir, garðyrkjubóndi í Hrunamanna-
hreppi, er í fjórða sæti og Bjarni
Gunnólfsson, hótel- og rekstrar-
fræðingur í Reykjanesbæ, í fimmta.
Birgir og Elvar leiða lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi
Birgir
Þórarinsson
Elvar
Eyvindsson
KOSNINGAR 2017
Atvinna