Morgunblaðið - 10.10.2017, Side 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2017
Endurmenntun Háskóla Íslands og
lauk því námi árið 2010.
Einar starfaði á Vélaverkstæði
Haraldar Böðvarssonar á Akranesi
frá 1980 til 1982, var vélstjóri á bv.
Sigurfara 1982-83, verksmiðjustjóri
Fiskimjölsverksmiðju Grundar-
fjarðar 1983-86, framleiðslustjóri Ís-
tess hf. 1986-92, framleiðslustjóri
Fóðurverksmiðjunnar Laxár 1992-
97, stöðvarstjóri hjá Olíudreifingu
1997-2010, fyrst á Norðurlandi 1997-
98 og síðan í Reykjavík 1998-2010.
Hann var framkvæmdastjóri Þör-
ungaverksmiðjunnar á Reykhólum
2010-13 og hefur starfað sem fram-
kvæmdastjóri Íslenska kalkþörunga-
félagsins á Bíldudal frá 2013.
Einar var stjórnarformaður Hafn-
arsamlags Norðurlands, sat í hafn-
arstjórn Akureyrar 1987-97 og
stjórnarformaður 1994-97, hefur
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
framsóknarfélögin á Akureyri og í
Grundarfirði, sat í bygginganefnd
Grundarfjarðar og í kjördæma-
sambandi framsóknarfélaganna á
Norðurlandi eystra, sat í stjórn Mjöl-
verksmiðjunnar hf. á Hvammstanga,
í stjórn íþróttafélagsins Þórs og
Skíðafélags Grundarfjarðar, í stjórn
Héraðssambands Snæfells- og
Hnappadalssýslu og starfaði í Lions-
hreyfingunni um 20 ára skeið. Hann
er nú formaður stjórnar Samtaka at-
vinnurekenda á sunnanverðum Vest-
fjörðum.
Einar segist ekki hafa haft mikinn
tíma fyrir áhugamál á umliðnum ár-
um: „Ég var þó töluvert viðriðinn
íþróttamálin á Akureyrarárunum.
Ég hafði líka gaman af að renna fyrir
lax en eftir að ég fékk 26 punda lax-
inn hætti ég í laxveiðum og fór að
stunda sjóstangaveiði. Ég átti meira
að segja bát á tímabili. Menn afla
miklu meira í sjóstangaveiðinni. Geta
fengið allt upp í 900 kíló á tveimur
dögum. Nú sé ég hins vegar ekkert
annað en dóttursoninn sem er fyrsta
barnabarnið. Maður yngist óneit-
anlega upp við það að verða afi.“
Fjölskylda
Eiginkona Einars er Hafdís Gísla-
dóttir, f. 29.1. 1959, húsfreyja. Hún er
dóttir Gísla Kristjánssonar, fyrrv.
skipstjóra í Grundarfirði, og Lilju
Finnbogadóttur húsfreyju.
Börn Einars og Hafdísar eru tvö;
Sigurhanna Ágústa, f. 30.11. 1989,
starfsmaður við leikskóla í Grund-
arfirði, en sambýlismaður hennar er
Guðmundur Njáll Þórðarson mat-
sveinn á línubát og er sonur þeirra
Hallberg Helgi, f. 2016; og Guð-
mundur Grétar, f. 20.3. 1990, starfs-
maður hjá Olíudreifingu, búsettur í
Kópavogi.
Systkini Einars eru Sigríður Ólafs-
dóttir, f. 7.3. 1959, grunnskólakenn-
ari, búsett í Reykjavík; Bergsveinn
Jens Ólafsson, f. 5.8. 1960, fast-
eignasali, búsettur í Reykjavík; og
Óskar Ólafsson, f. 8.9. 1963, verktaki,
búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Einars eru Ólafur Valdi-
mar Oddsson, f. 8.9. 1935, fyrrv.
framkvæmdastjóri, búsettur í Kópa-
vogi, og k.h., Sigurhanna Ágústa Ein-
arsdóttir, f. 10.2. 1937, fyrrv. for-
stöðukona.
Einar Sveinn
Ólafsson
Guðný Eyjólfsdóttir
húsfr. í Eyjum
Ólafur Sigurhansson
sjóm. í Eyjum
Sigríður Ólafsdóttir
húsfr. í Eyjum
Einar Sveinn Jóhannesson
skipstj. í Vestmannaeyjum
Sigurhanna Ágústa Einarsdóttir
fyrrv. forstöðum. Heimilishjálpar
Kópavogs
Elín Sveinsdóttir
frá Rauðafelli undir
Eyjafjöllum, af Presta-
Högnaætt
Jóhannes Sveinsson
úrsmiður á Seyðisfirði
Dr. Sigríður Klara
Hannesdóttir fyrrv.
landsbókavörður
Guðmundur
Guðmundsson
sóknarpr. í
Glerárkirkju
Guðmundur
Jóhannesson
kvensjúkdómalæknir
í Rvík
Sigríður
Jóhannesdóttir
húsfr. á Seyðisfirði
Ólafur
Jóhannesson
skipstj. á Hermóði
sem fórst 1959
Katrín Jónsdóttir
húsfr. á Vatni, systurdóttir Þórðar, langafa
Friðjóns Þórðarsonar, fyrrv. alþm. og ráðherra
Ólafur Brandsson
b. á Vatni í Haukadal
Valfríður Ólafsdóttir
húsfr. í Sælingsdal
Oddur Jensson
b. í Sælingsdal í Dölum
Elísabet Jónsdóttir
húsfr. á Harrastöðum, dóttir
Jóns Guðmundssonar
hreppstj., læknis og skálds á
Hellu og Fellsströnd
Jens Nikulásson
b. á Harrastöðum í Dölum, systursonur Steinunnar,
langömmu Gunnars, föður Árna, fyrrv. alþm.
Úr frændgarði Einars Sveins Ólafssonar
Ólafur Valdimar Oddsson
fyrrv. framkv.stj. í Kópavogi
90 ára
Svanfríður I. Arnkelsdóttir
85 ára
Gunnar Egill Sigurðsson
80 ára
Birna V. Jóhannesdóttir
Erlendur Jóhannesson
Grímhildur Bragadóttir
Ingibjörg Perla Pálmadóttir
Ingveldur Höskuldsdóttir
Logi Magnússon
Páll Albert Magnússon
Sólver Hafsteinn Guðnason
Una O. Guðmundsdóttir
75 ára
Ásgerður Geirarðsdóttir
Elva Ólafsdóttir
Guðríður Bjarnadóttir
Hermann K. Jóhannesson
70 ára
Björn Guðjónsson
Guðmundur B. Stefánsson
Guðmundur Guðmundsson
Guðrún Njálsdóttir
Guðrún R. Jóhannsdóttir
Gunnþóra Guðmundsdóttir
Helga Guðjónsdóttir
Jakob Hendriksson
Lech Stanislaw Mital
Sigurður Guðjónsson
Sigurlaug Hermannsdóttir
60 ára
Axel Þór Pálsson
Danute Naruseviciene
Einar Sveinn Ólafsson
Ellert Ellertsson
Freyja Valgeirsdóttir
Guðmundur Björnsson
Guðrún S. Bjarnadóttir
Gunnar Rúnar Sverrisson
Imants Klapers
Ingvar Marinósson
Jóna Guðrún Sigurðardóttir
Kristín Sverrisdóttir
Kristján Skarphéðinsson
Magnús Þorkelsson
Ólafur Árnason
Rögnvaldur Helgi Helgason
Vilhjálmur M. Manfreðsson
Wladyslawa Z. Wlodarczyk
Þorsteinn Ingólfsson
Þorsteinn M. Jakobsson
50 ára
Arnar Þorsteinsson
Berglind Helgadóttir
Dagbjört Lára Helgadóttir
Elín Rósa Sigurðardóttir
Eva Þórarinsdóttir
Helga Skjóldal
Helgi Esra Pétursson
Herdís Bragadóttir
Hólmgrímur E. Bragason
Hrafnhildur Friðriksdóttir
Kristrún Árnadóttir
Kristrún Helga Ingólfsdóttir
Magnea Gylfadóttir
Ramuné Sarguniené
Sigurður H. Erlendsson
Snorri Þorgeir Ingvarsson
Solveig H. Sigurðardóttir
Sædís Hlöðversdóttir
40 ára
Ananda G. Silva Sarmiento
Emma Gail Holt
Eydís Dögg Eiríksdóttir
Grazyna Kulinska
Helena K. Ragnarsdóttir
Helen Mariel Dioli Perez
Þórdís Edda Guðjónsdóttir
30 ára
Bjarni Kristjánsson
Ingibjörg J. Halldórsdóttir
Joanna Anna Soszynska
Kristín Elísabet Allison
Pétur Magnús Birgisson
Til hamingju með daginn
40 ára Anna Lísa býr í
Hafnarfirði og starfar við
dagdvöl á Ísafold.
Maki: Emil Örn Víðisson,
f. 1976, tölvusérfræðingur
við Landsbankann.
Börn: Bergdís Lea, f.
1996; Elín Birta, f. 2000;
Brynjar Smári, f. 2006, og
Hilmir Örn, f. 2012.
Stjúpbörn: Alma, f. 1999,
og Valdimar, f. 2001.
Foreldrar: Benedikt
Benediktsson, f. 1958, og
Elín Björnsdóttir, f. 1959.
Anna Lísa
Benediktsdóttir
30 ára Andri ólst upp í
Garðabæ, býr þar, lauk
prófi í grasafræði í Skot-
landi, hefur stundað nám
í húsamálun og er húsa-
málari í dag.
Maki: Karen Ósk Finsen,
f. 1990, MSc-nemi í fjár-
málaverkfræði við Há-
skólann í Reykjavík.
Foreldrar: Sigurþór Haf-
steinsson, f. 1956, tækni-
fræðingur, og Valgerður
Hildibrandsdóttir, f. 1957,
næringarfræðingur.
Andri Heiðar
Sigurþórsson
40 ára Hafdís býr í
Reykjavík og starfar við
ferðaþjónustufyrirtæki.
Maki: Gylfi Sævarsson, f.
1974, starfar við ferða-
þjónustufyrirtæki.
Börn: Róbert Már, f.
2003; Anna Lára, f. 2007,
og Andrés Þór, f. 2011.
Foreldrar: Anna María
Hannesdóttir, f. 1955,
starfar hjá Birtu lífeyr-
issjóði, og Andrés Þór
Bridde, f. 1953, starfs-
maður hjá Vélaborg.
Hafdís
Bridde
Ásbjörg Ósk Snorradóttir hefur
varið doktorsritgerð sína í líf- og
læknavísindum við Læknadeild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið:
Meinafræði arfgengrar heilablæð-
ingar (The Pathology of Hereditary
Cystatin C Amyloid Angiopathy
(HCCAA)). Umsjónarkennari og leið-
beinandi var Ástríður Pálsdóttir, vís-
indamaður við Tilraunastöð Háskóla
Íslands að Keldum, og leiðbeinandi
með henni var Birkir Þór Bragason,
líffræðingur við Tilraunastöð Háskóla
Íslands að Keldum.
Arfgeng heilablæðing er sér-
íslenskur mýlildissjúkdómur, sem
stafar af stökkbreytingu í cystatin C
geninu. Í arfgengri heilablæðingu
myndar stökkbreytt cystatin C mý-
lildi í æðaveggjum heilaslagæða/
slagæðlinga sem leiðir til heilablæð-
inga og dauða. Einnig sjást mýlildis
útfellingar í öðrum líffærum, þó í
minna mæli.
Markmið rannsóknarinnar var að
fá betri skilning á meinafræði sjúk-
dómsins, sérstaklega innan æða-
veggjarins, og rannsaka millistig at-
burða í framvindu meingerðarinnar
með því að skoða líffæri utan mið-
taugakerfis. Í fyrri hluta rannsókn-
arinnar var meingerð heilaæða í sjúk-
lingum skoðuð.
Niðurstöðurnar
sýndu mikil, og
alvarleg, frávik í
byggingu æða-
veggja slag-
æða/slag-
æðlinga miðað
við eðlilegar
æðar ásamt
uppsöfnun á ut-
anfrumupró-
teinum. Athugun á dreifingu cystatin
C útfellinga innan heilans sýndi að
umfang útfellingarinnar í heilum allra
sjúklinganna var undantekning-
arlaust alvarleg óháð heilasvæðum. Í
seinni hluta rannsóknarinnar færðist
áherslan frá heila yfir á líffæri utan
miðtaugakerfis. Rannsóknin leiddi í
ljós cystatin C útfellingar í grunn-
himnu ýmissa svæða í húð arfbera.
Cystatin C útfellingin í arfberunum
var í nánum tengslum við uppsöfnun
á kollageni IV í grunnhimnunni.
Niðurstöðurnar benda til þess að
þykknun á grunnhimnu gerist
snemma í framvindu meingerð-
arinnar og sé mikilvægur hluti í fram-
gangi hennar, sem stuðlað getur að
útfellingu, og mýlildismyndun, stökk-
breytts cystatin C.
Ásbjörg Ósk Snorradóttir
Ásbjörg Ósk Snorradóttir er fædd árið 1979. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund árið 1999 og B.Sc. prófi í lífeindafræði árið 2005 frá HÍ. Ás-
björg er gift Bjarna Bjarnasyni og dætur þeirra eru Katla Steinunn, Jara Sóley
og Júlía Ósk. Ásbjörg vinnur á meinafræðideild Landspítalans og er aðjúnkt við
Háskóla Íslands.
Doktor
Ullarnærföt í útivistina
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is 30ÁRA
100% Merino ull
Góð og hlý heilsársföt fyrir karla og konur
Stærðir: S – XXL
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Verslunin Blossi, Grundafirði
Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Blómsturvellir, Hellissandi • Kaupfélag V-Húnvetninga • Eyjavík, Vestmannaeyjum
Þinn dagur, þín áskorun
OLYMPIA