Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
Fjallabyggð hefur ákveðið að setja
upp geislatæki við vatnstankinn í
Brimnesdal í Ólafsfirði í þeim til-
gangi að hreinsa gerla úr neyslu-
vatni Ólafsfirðinga. Frá því E.coli
gerlar fundust í vatnsbólum vatns-
veitunnar í byrjun mánaðarins hef-
ur íbúum verið ráðlagt að sjóða
neysluvatn í varúðarskyni og það
þurfa þeir að gera þar til geisla-
tækið kemst í notkun.
Vatnsveitan á Ólafsfirði fær
vatn úr tveimur vatnsbólum, úr
Múla og Brimnesdal. Vandinn var
bundinn við síðarnefnda vatnsbólið
og talið að vatnið sem íbúar nyrðri
hluta bæjarins nota sem og fisk-
vinnslurnar, væri í lagi. Ármann
V. Sigurðsson, deildarstjóri tækni-
deildar Fjallabyggðar, segir að
vatnsveitukerfið sé ein heild og
komið hafi í ljós að ekki væri hægt
að einangra vandamálið við hluta
þess með nægjanlega öruggum
hætti.
Kostar 5 milljónir
Búið er að festa kaup á geisla-
tæki og vonast Ármann til þess að
fá það í sínar hendur eftir um það
bil viku. Þegar sé byrjað að und-
irbúa uppsetningu þess. Áætlað er
að framkvæmdin kosti Fjallabyggð
um 5 milljónir kr.
Útfjólublátt ljós er notað til að
eyða örverum úr vatninu. Ármann
segir að sú hreinsitækni sé notuð
hjá vatnsveitum víða um land.
Bendir hann á að einstök matvæla-
fyrirtæki noti geislunartækni til að
geta sýnt fram á örugg gæði vatns
sem notað er við framleiðsluna.
helgi@mbl.is
Kaupa geislatæki til að
hreinsa neysluvatnið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ólafsfjörður Neysluvatn úr vatns-
bólum Ólafsfirðinga er mengað.
Ólafsfirðingar
sjóða vatnið
in nemur rúmum milljarði og rúmir
tveir milljarðar til viðbótar koma
vegna hækkunar á fasteignamati at-
vinnuhúsnæðis.
Af gögnum frá borginni má ráða
að hún skilar rúmlega 300 milljónum
til baka til eigenda íbúðarhúsnæðis
með lækkun prósentunnar um ára-
mót en engu til fyrirtækjanna.
Félag atvinnurekenda hefur í
nokkur ár gagnrýnt hækkanir á fast-
eignaskatti og undirbýr nú að láta
reyna á ákveðin atriði skattheimt-
unnar fyrir dómstólum. „Borgin sýn-
ir ákveðna sanngirni gagnvart eig-
endum íbúðarhúsnæðis. Við eigum
erfitt með að skilja af hverju eigend-
um atvinnuhúsnæðis er ekki sýnd
sama sanngirni,“ segir Ólafur Steph-
ensen, framkvæmdastjóri.
Skila hluta af
hækkun fast-
eignaskatts
Borgin lækkar álagningarprósentu
fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði
Morgunblaðið/Júlíus
Miðborg Áhrif hækkunar fast-
eignaverðs í Reykjavík eru milduð.
Afsláttur
» Afsláttur til lækkunar fast-
eignaskatts og fráveitugjalds
elli- og örorkulífeyrisþega
hækkar um 163 milljónir á milli
ára, fer úr 326 milljónum 2017
í 489 milljónir.
» Gjöldin eru felld niður ef við-
komandi hefur minna en 3,9
milljónir í árstekjur og hjón
minna en 5,5 milljónir.
» Afslátturinn minnkar eftir
því sem tekjurnar eru hærri.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áformuð lækkun álagningar-
prósentu fasteignaskatts á íbúðar-
húsnæði í Reykjavík er minna en
helmingur af þeim tekjuauka sem
borgin fær vegna hækkunar fast-
eignamats á næsta ári. Liggja þá
hækkanir síðustu ára óbættar hjá
garði. Þá skilar borgin ekki krónu til
baka af þeim miklu aukatekjum sem
hún fær vegna hækkunar fasteigna-
mats atvinnuhúsnæðis.
Stefnt er að lækkun álagning-
arprósentu fasteignaskatts af íbúð-
arhúsnæði í Reykjavík á næsta ári.
Tillaga borgarstjóra um lækkun pró-
sentunnar úr 0,20% af fasteignamati
í 0,18% var samþykkt í borgarráði í
gær. Jafnframt að auka afslætti af
fasteignaskatti og fráveitugjöldum
til eldri borgara. Borgarstjóri lagði
hinsvegar til að álagningarprósenta
útsvars yrði óbreytt á næsta ári,
14,52%.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
kynnti tillögu sína um lækkun fast-
eignaskatta með vísan til mikillar
hækkunar á fasteignaverði á undan-
förnum árum. Lækkunin mundi
milda áhrif fasteignaverðshækkana.
Ekki er gerð tillaga um lækkun
fasteignaskatts af atvinnuhúsnæði
sem einnig hefur hækkað mikið.
3 milljarðar á tveimur árum
Fasteignaskattur er ákveðið hlut-
fall af fasteignamati sem Þjóðskrá
Íslands ákvarðar út frá þróun fast-
eignaverðs á markaðnum. Sem dæmi
um hækkanir sem orðið hafa má
nefna að fasteignamat íbúðarhús-
næðis á höfuðborgarsvæðinu hækk-
ar um 16,5% að meðaltali um áramót
og atvinnhúsnæði um 10,7%. Um síð-
ustu áramót hækkaði fasteignamat
íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæð-
inu um 9,2% og svipuð hækkun varð
á fasteignamati atvinnuhúsnæðis.
Þannig hefur fasteignamat íbúðar-
húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
hækkað um nálægt 25% á tveggja
ára tímabili og atvinnuhúsnæðis um
nærri 20%.
Þetta hefur skapað mikla tekju-
aukningu fyrir sveitarfélögin. Tekju-
auki borgarinnar vegna hækkunar
mats á íbúðarhúsnæði síðustu tvö ár-
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Rannveig Snorradóttir, eigandi
ferðaheildsölufyrirtækisins Obeo
Travel í Osló, segir sumarið hafa ver-
ið skelfilegt hjá fyrirtækinu; um 80%
bókaðra ferða til Íslands hafi verið
afbókuð. Stærsti markaður Obeo
Travel til Íslands er Asía og Írland
og komu langflestar afbókanirnar
frá Asíu. „Þeir voru viðkvæmari fyr-
ir verðbreytingunum út af genginu í
vor. Írarnir eru ekki eins viðkvæmir
fyrir verðinu enda eru þeir bara að
ferðast til Reykjavíkur í helgar-
ferðir,“ segir Rannveig.
Smeyk við að gera tilboð
Þrátt fyrir brösótt sumar lítur vet-
urinn vel út að sögn Rannveigar.
„Gengið hefur verið stöðugt núna í
frekar langan tíma, það hjálpar okk-
ur, og það að krónan veiktist smá-
vegis snemma í haust. Stöðugra
gengi og norðurljósin heilla en það er
auðvitað hræðsla út af vaskinum af
því að enginn veit hvað er að gerast.
Fyrir vikið erum við smeyk við að
gera tilboð fyrir næsta sumar, sem
lítur annars ágætlega út.“
Rannveig segir óstöðugleikann
fara illa með ferðaþjónustuna. „Við
vitum ekki hvaða gengi á að nota í til-
boðum, hvort það verða hækkanir á
virðisaukaskatti og svo er nýtt
vandamál sem eru bílastæðagjöldin
sem er verið að setja á með engum
fyrirvara.“
Góður gangur í hlutunum
Sævar Skaptason, framkvæmda-
stjóri Hey Iceland, áður Ferðaþjón-
ustu bænda, segir almennt góðan gang
í hlutunum núna. Árið í heild sé vel við-
unandi hjá fyrirtækinu og þá hjálpi
sérstaklega hvað seinnipartur sumars
og haustið komu vel út. „Það hefur
hægt mikið á núna. Vandamál, sem
snertir okkur kannski meira en aðra,
er að við erum dreifð um allt land og
vetrarferðamennskan er dálítið skipt á
milli landshluta,“ segir Sævar.
„Við sjáum að fólk er að spara við
sig og leita að ódýrustu möguleik-
unum. Það hefur aukist á þessu ári
með hækkandi verðlagi og breytingu á
gengisþróuninni. Það eru komin mörg
lággjaldaflugfélög til Íslands sem flytja
farþega sem hafa ekki eins mikinn
kaupkraft og þá skiptir krónan orðið
miklu máli, meira en fyrir tveimur til
þremur árum.“
Sævar segir stærsta vandamál
ferðaþjónustunnar tvíþætt. „Annars
vegar óklár stefna um gjöld og hugs-
anleg gjöld og svo gengissveiflunar,
sem eru okkur mjög erfiðar. Gengið er
ekki nýtt af nálinni en það eitt og sér er
næg áskorun í rekstri fyrirtækjanna
og svo þegar við fáum hitt til viðbótar,
þessar auknu skattahækkanir og
hækkun virðisaukaskatts, er það orðið
mjög alvarlegt mál.“
Morgunblaðið/Golli
Norðurljós Stöðugra gengi og norðurljós laða ferðamenn til Íslands í vetur. Ferðaþjónustufyrirtæki bera sig vel.
Stöðugra gengi og
norðurljósin laða að
Góður gangur í ferðaþjónustunni Óstöðugleiki vandamál
Hjá Iceland Travel er 40% aukn-
ing á leitarvélaumferð á vefsíðu
fyrirtækisins miðað við árið í
fyrra. „Það segir manni að það
sé heilmikill áhugi á Íslandi.
Aukningin kemur aðallega frá
Bandaríkjunum,“ segir Jón Heið-
ar Þorsteinsson markaðsstjóri.
Hann segir sumarið í ár hafa ver-
ið eilítið stærra en sumarið í
fyrra og september hafa verið
mjög góðan. Þá líti veturinn vel
út og þau séu byrjuð að fá fullt af
fyrirspurnum fyrir næsta sumar.
„Það rættist úr þessu að ein-
hverju leyti en gengisbreyting-
arnar hafa að sjálfsögðu áhrif
varðandi afkomu.“
Sindri Ragnarsson, jöklaleið-
sögumaður og einn eigenda Gla-
cier Trips, segir veturinn líta bet-
ur út núna en í fyrra. „Við höfum
alltaf verið stigvaxandi og þetta
lítur vel út eins og staðan er
núna,“ segir Sindri og telur enga
lægð vera á leiðinni í komu
ferðamanna til Íslands.
Lítur betur út
en í fyrra
BJARTSÝNIR