Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
✝ Hjördís ErlaPétursdóttir
fæddist í Reykjavík
6. júní 1934. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Skógar-
bæ 17. október
2017.
Foreldrar Hjör-
dísar voru þau Ein-
hildur Ingibjörg
Ágústa Guðjóns-
dóttir, f. 12.8. 1905,
d. 14.10. 2001, og Pétur Guð-
mundur Guðmundsson, f. 16.4.
1903, d. 17.6. 1971.
Alsystkini hennar voru
Guðný, f. 1933, d. 1989, og Ás-
geir, f. 1935, d. 2016. Hálfsystk-
ini hennar eru Sigrún Ásta Pét-
ursdóttir, f. 1941, d. 1996, Anna
Sigríður Pétursdóttir, f. 1942,
Eygerður Laufey Pétursdóttir,
f. 1942, d. 1989, Davíð Ingvi
Pétursson, f. 1944, d. 2017, og
börn. Guðný á tvö börn. Seinni
eiginmaður Hjördísar var
Magnús Guðmundsson, f. 1924,
d. 2008. Þau giftu sig hinn 29.
ágúst 1962 og bjuggu lengst af á
Löngubrekku 2 í Kópavogi. Þau
eiga tvö börn, Erlu Stefaníu, f.
1968, og Kjartan, f. 1962. Erla
og Kjartan eiga bæði þrjú börn.
Magnús átti fyrir Kristínu, f.
1954, sem ólst upp hjá þeim á
Löngubrekkunni en Kristín á
þrjú börn.
Barnabörnin eru orðin 21,
langömmubörnin 28 og eitt
langalangömmubarn.
Dísa sat í stjórn Sunnuhlíðar-
samtakanna á vegum Kven-
félags Kópavogs um árabil en
hún var virkur þátttakandi í
kvenfélaginu alla tíð. Einnig var
hún í Skógræktarfélagi Íslands
og var gerð að heiðursfélaga
2011.
Dísa var í sveit frá unga aldri.
Hún vann lengst við versl-
unarstörf hjá Jóhannesi Norð-
fjörð gullsmiði og í Gullkistunni
á Frakkastíg.
Útför Hjördísar fer fram frá
Lindakirkju í dag, 27. október
2017, klukkan 13.
Kristín Péturs-
dóttir, f. 1951.
Hjördís, eða Dísa
eins og hún var allt-
af kölluð, ólst upp á
Fálkagötu og Berg-
þórugötu í Reykja-
vík og eignaðist þar
sitt fyrsta barn,
Hörð Ágúst, f.
1951, með Oddgeiri
Halldórssyni, f.
1933, d. 2007. Hörð-
ur er kvæntur Kristínu Líndal
Hafsteinsdóttur og eiga þau
fjögur börn saman en fyrir átti
Hörður tvö börn.
Dísa giftist Reyni Hauki
Haukssyni, f. 1933, d. 2018, 31.
des. 1955 en þau bjuggu lengst
af á Lindargötu í Reykjavík.
Þau eignuðust tvö börn, Hauk, f.
1956, og Guðnýju Rannveigu, f.
1954. Haukur er kvæntur Ernu
Gísladóttur og eiga þau þrjú
Elsku mamma, takk fyrir að
hafa verið þú. Takk fyrir allt sem
þú gerðir til að ég gæti menntað
mig, þegar ég var að klára leik-
skólakennaranám mitt varð ég
ófrísk og átti að fara í fæðing-
arorlof á lokaárinu mínu. Hvað
gerðir þú? Sagðir upp þinni
vinnu og fórst að skúra á kvöldin
en fékkst fæðingarorlofið mitt
greitt enda var sonur minn að-
eins 10 daga gamall þegar þú
tókst við honum í vöggunni hans.
Vöggunni sem þú keyptir handa
frumburði mínum fjórum árum
áður.
Þegar ég gekk í gegnum
hremmingar fyrir tæpum tíu ár-
um varstu svo mikið til staðar.
Þá fór ég í meistaranám til Dan-
merkur. Það kom „hrun“ og ég
þurfti að taka tvöfalt nám þrátt
fyrir launað námsleyfi frá sveit-
arfélagi mínu. Þarna varstu eins
og klettur fyrir mig og mína.
Ég gleymi aldrei og þegar sú
yngsta hjá mér eða „snúllan“ þín
fótbrotnaði á fimleikaæfingu á
Kastrup og við sátum á slysa-
varðstofunni á „Herlev sygehus“
og ég átti erfiða innilotu í meist-
aranáminu mínu fram undan.
Það kom ljós að elsku Ásdís
Birna var alvarlega fótbrotin. Ég
hringdi til Íslands og spurði þig:
„Mamma, hvað ertu að fara gera
á morgun?“ Og þú svaraðir: „Ég
er að fara í klippingu klukkan
9.00, ekki annað.“ Og þá sagði ég:
„Ertu til í að koma til Kaup-
mannahafnar og hugsa um fót-
brotið barnabarn svo ég geti
haldið áfram í náminu mínu?“
Svarið var já, að sjálfsögðu, og
kvöldið eftir varstu mætt. Þetta
segir allt sem segja þarf um þig,
elsku mamma.
Mér finnst ég svo einmana síð-
an ég þurfti að kveðja þig, elsku
mamma. Það er þyngra en tárum
taki að eiga ekki foreldri en hvíl í
fríði, elsku mamma.
Þín yngsta,
Erla Stefanía.
Mig langar í nokkrum orðum
að minnast tengdamóður minn-
ar.
Ég hef sjaldan kynnst jafn
duglegri og sterki konu og henni
Dísu P. Kona sem setti fjöl-
skyldu sína ávallt í fyrsta sæti,
sem fór með allan hópinn á
hverju ári í kræklingatínslu,
berjamó og fyrir jólin að sækja
jólatré inn að Fossá. Alltaf hafði
hún meðferðis heitt kakó í brúsa,
smurt brauð og kleinur sem
glöddu jafnan þreyttan og svang-
an hópinn.
Dísa var í stjórn Skógræktar-
félags Kópavogs og á vorin fór
hún oft á tíðum með hóp barna úr
grunnskólum Kópavogs að
gróðursetja hin ýmsu tré.
Þá er að minnast allra mat-
arboðanna sem Dísa hélt, svo og
jóla- og páskaboðanna, þá stjórn-
aði hún páskabingó og gladdi öll
barnabörnin með verðlaunum.
Við fjölskyldan tókum saman
slátur á hverju ári í mörg ár og
bökuðum saman laufabrauð er
líða fór að jólum.
Það verður tómlegt að hugsa
til jólanna án þín og allra jóla-
hefðanna sem þú skapaðir okkur
öllum.
Við fjölskyldan vorum svo lán-
söm að fá að búa í risinu hjá þér
og Magga á þeim tíma er við vor-
um að byggja í Ljósabergi.
Stelpurnar okkar minnast þess
tíma með mikilli hlýju en gott var
að koma niður til ömmu í dekur
og horfa á Tomma og Jenna.
Minningarnar eru margar og
það er erfitt að velja úr. Það sem
stendur þó upp úr er minningin
um sterka og góða konu sem stóð
hjarta mínu nærri og reyndist
börnunum okkar góð amma.
Þín verður sárt saknað.
Kertaljósin loga krossgátukona.
Fjallið okkar sefur, allt er orðið hljótt.
Við horfum yfir salinn, húmbláan dalinn.
Silungar vaka við sumarnótt.
klettur í hafi, ávallt sönn.
(Bubbi Morthens)
Þín tengdadóttir
Kristín Líndal.
Elsku amma.
Takk fyrir allt, takk fyrir allar
góðu stundirnar og minningarn-
ar sem við eigum saman.
Svo margt hefur rifjast upp
fyrir mér síðustu vikurnar en
það sem mér þykir vænst um er
tíminn okkar saman á Löngu-
brekku. Allar spilastundirnar
langt fram á kvöld þar sem þú
náðir alltaf að vinna mig í klepp-
ara, sama hversu oft við spiluð-
um.
Tommi & Jenni með kara-
mellujógúrt og hituðu brauði. Öll
skiptin sem ég fékk að gista hjá
þér og þú raðaðir stólum í kring-
um mína hlið á rúminu svo ég
myndi ekki detta fram úr.
Þú hugsaðir alltaf svo vel um
mig, elsku amma mín. Þú varst
sú besta og eins erfitt og það er
að kveðja þig þá sitja eftir ynd-
islegar minningar sem ég mun
aldrei gleyma. Sakna þín og
elska þig.
Þín
Hrafnhildur.
Amma mín, helsta fyrirmynd
mín og vinkona, hefur nú kvatt
þennan heim. Ótrúlegur er sökn-
uðurinn. Það er erfitt að trúa því
hvað ein manneskja getur haft
mikil áhrif á líf annarra en henni
tókst ekki bara að breyta mínu
lífi, heldur allra þeirra sem fengu
að kynnast henni.
Þegar ég var lítil fékk ég þau
forréttindi að búa á Löngubrekk-
unni hjá ömmu Dís og afa Magn-
úsi. Minningar og sögur úr
Löngubrekkunni verða mér
ávallt ofarlega í huga eins og
góðu glansmyndabækurnar, öll
spilin sem við spiluðum og allar
kræsingarnar sem við bökuðum
saman. Ég man eftir því að þegar
ég var lítil og vinkonur mínar
spurðu mig hvort ég vildi koma
út að leika var svar mitt oftast:
„Nei, ég er upptekin, er að fara
að spila við Ömmu Dís.“ Það var
ekkert sem gladdi mig meira en
að koma heim úr skólanum þegar
afi hjálpaði mér með heimavinn-
una og síðan sátum við amma
langt fram eftir og spiluðum frá
okkur allt vit. Jafnvel þótt spilin
breyttust mörg með árunum, þá
var það allt í lagi því þetta voru
okkar reglur. Og svo voru auðvit-
að alltaf kaplar fyrir svefninn. Þá
gátum við setið saman heilu
kvöldin, borðað vanilluhringi og
lakkrístoppa með kaldri mjólk á
meðan við lögðum kvöldkaplana
góðu.
Ein af okkar stundum var
þegar ég valdi mér mokkabolla í
pakkann. Það var oft hápunktur
ársins og alltaf jafn spennandi að
opna pakkann um jólin eða á af-
mælinu, þótt ég vissi alltaf hvaða
bolla ég myndi fá. Amma þekkti
mig nefnilega svo vel að hún vissi
að ég vildi fá að velja bollana
sjálf. Önnur minning með ömmu
er þegar við sátum við sauma á
meðan við spjölluðum um lífið og
tilveruna. Alltaf var amma með
eitthvað nýtt til að segja mér frá
og kenna mér. Eftir því sem ég
varð eldri urðu ástarmál mín of-
arlega á lista yfir umræðuefni
okkar og hafði amma alltaf eitt-
hvað um þau að segja. Ég gæti
haldið endalaust áfram að telja
upp minningar tengdar ömmu,
en eitthvað verður áfram bara
okkar tveggja. Eins og amma
sagði oft, „það er í lagi að vera
sjálfselsk af og til“.
Elsku amma, frá því að ég
man eftir mér hefur þú átt stóran
þátt í því að móta mig sem ein-
stakling og hjálpa mér að greina
rétt frá röngu. Ef eitthvað bját-
aði á varst þú ein þeirra sem ég
leitaði til og ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt svona góða
ömmu sem vinkonu. Þú lést gott
af þér leiða og bættir líf allra
þeirra sem á vegi þínum urðu. Þú
varst gleðigjafi allt til æviloka.
Ég syrgi þig, elsku amma, en
góðu minningarnar og þakklætið
er yfirsterkara. Þú hefur breytt
lífi mínu á hátt sem enginn annar
hefur og það er Guðsgjöf. Takk
fyrir umhyggjuna, hlýjuna,
skilninginn og ekki síst gleðina
sem þú hefur gefið mér.
Ég læt fylgja litla vísu sem við
amma sungum oft þegar við
saumuðum.
Ein ég sit og sauma
inni í litlu húsi.
Enginn kemur að sjá mig
nema litla músin.
Hoppaðu upp og lokaðu augunum.
Bentu í austur,
bentu í vestur.
Bentu á þann sem að
þér þykir bestur.
(Höfundur ókunnur)
Ásdís Birna Jónasdóttir.
Amma Dísa var „don-inn“ í
föðurfjölskyldu minni, ættmóðir-
in sem hélt öllu gangandi og var
miðdepillinn, með stóru M-i. Hún
kom því til dæmis til leiðar að við
frænkurnar, allar á svipuðum
aldri, hittumst reglulega heima
hjá henni í Löngubrekkunni og
áttum góðar stundir saman. Af-
raksturinn af þessari fyrirhyggju
ömmu er að við frænkurnar erum
góðar vinkonur æ síðan.
Langabrekka 2 var aðal-
staðurinn. Þar voru haldin stór
og ógleymanleg fjölskylduboð.
Borðað, spilað og hlegið. Dyrnar
voru ávallt opnar og alltaf tekið
vel á móti manni. Skellt var í
skinkusalat og spilin tekin upp.
Það var alltaf jafnljúft að koma í
Löngubrekkuna enda var ég
fastagestur. Tommi og Jenni,
Strumparnir, bingó-lottó og
rommý.
Við amma Dísa vorum góðar
vinkonur; við gátum setið, slúðr-
að og spilað endalaust. Hún
þekkti allar vinkonur mínar og
mundi alltaf eftir þeim öllum
langt fram eftir aldri. Hún og
Snædís Eva, eldri dóttir mín,
áttu fallegt og sérstakt samband
sem var einstaklega gaman að
fylgjast með.
Horfinn er vinur handan yfir sundin,
hryggðin er sár, svo jafnvel tárast
grundin.
Þá er svo gott, um ævi megum muna
milda og fagra geymum kynninguna.
Óvæntust ætíð kemur kveðjustundin
kærast í hjarta geymum minninguna.
(Vilhjálmur S. V. Sigurjónsson)
Ég vil að leiðarlokum þakka
ömmu Dísu fyrir allar samveru-
stundirnar, ástina og umhyggj-
una. Erfitt er að kveðja en ég
kveð hana með virðingu og þakk-
læti.
Kristín Rut og fjölskylda.
Elsku amma mín. Mig langar
að senda þér nokkur orð nú þeg-
ar þú ert farin frá okkur og kom-
in til ömmu Gúst, tvær uppá-
haldsmanneskjurnar mínar á
einum stað.
Ég hef alltaf sagt að ég ætla að
vera eins og Dís amma þegar ég
verð amma. Þú ert besta amman,
allar minningarnar sem ég á frá
Löngubrekku eru svo dýrmætar
og dagsferðirnar með þér. Berja-
mó, ferðir til Grindavík, Bláa lón-
ið, tína kræklinga og alltaf með
heimasmurt nesti og kakó í
brúsa, já, þú hugsaðir fyrir öllu.
Nú þegar ég sit og skrifa þér
þessi orð og hugsa um tímann
okkar finn ég alla hlýjuna sem ég
fékk alltaf frá þér. Ég fékk aldrei
á tilfinninguna að ég væri að
trufla þig, bæði sem barn og full-
orðin, ég var alltaf velkomin og
þú gafst þér tíma til að tala við
mig.
Hvað ætli þú hafir setið lengi
og tekið upp Tomma og Jenna
fyrir okkur barnabörnin, það
voru alla vega til margar spólur
með teiknimyndum hjá þér,
Pony-hestarnir, kærleiksbirn-
irnir og gúmmíbirnirnir. Þegar
við systur gistum sátum við sam-
an í húsbóndastólnum fyrir
framan sjónvarpið á morgnanna,
horfðum á spólur og þú stjanaðir
við okkur. Vá, amma, þú ert sú
besta.
Ég var að taka til í kassa
heima og fann glansmyndabók-
ina mína sem ég safnaði hjá þér,
þú varst alltaf búin að undirbúa
allt þegar við komum í pössun,
glansmyndir, límmiðar, dúkku-
lísur og fleira.
Á sumrin fékk maður að
hjálpa þér í garðinum og svo að
dunda í skeljagarðinum sínum,
en þú gafst okkur barnabörnun-
um reit sem var skeljagarður og
það var metnaður að hafa falleg-
asta garðinn. Ég man eftir
bleiku lúpínunum í garðinum
fyrir utan eldhúsgluggann og þú
vissir allt um blóm.
Við erum rosalega líkar, elsku
amma, ég og þú. Við elskum að
tala og tölum mikið þó að öðrum
finnist það ekki alltaf gaman, við
erum báðar handavinnukonur og
með puttana í öllu. Við elskum að
halda boð og hafa fjölskyldurnar
hjá okkur og notum minnsta til-
efni til að slá upp veislu og bjóða
fólki. Ég man eftir sameiginlega
afmælinu okkar á Löngubrekku,
ég var rosalega stolt af því að
halda afmæli með þér en þú
varst nú dugleg á að minna mig á
að ég hefði nú geta beðið með
það í einn og hálfan klukkutíma
með að fæðast þannig að þú
hefðir fengið mig í afmælisgjöf.
En við erum báðar sjálfstæðar
konur og þurftum að eiga hvor
sinn daginn. Það hefði ekki verið
pláss að hafa okkur báðar á ein-
um degi.
Strákarnir mínir gætu ekki
hafa átt betri langömmu en þig.
Það sem ég er rosalega ánægð er
að hafa farið með þér í þrjár ut-
anlandsferðir, tvær núna á síð-
ustu árum og strákarnir mínir
fengu að vera með. Dís amma að
svindla í póker, já því held ég að
allir muni eftir, alltaf.
Elsku amma mín, takk fyrir
allan frábæra tímann sem við
áttum saman, fyrir alla ástina og
umhyggjuna sem þú veitir mér.
Þín er sárt saknað, elska þig
amma mín.
Heiða Kristín Harðardóttir.
Elsku amma mín, nú ertu far-
in frá okkur. Minningarnar um
þig eru dýrmætar og munu
ávallt eiga stað í hjarta mínu.
Takk fyrir umhyggju þína og
góðvild. Amma, ég elska þig.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín
Heiðdís.
Ég veit ekki hvar ég á að
byrja. Það voru sko forréttindi
að fá að fæðast inn í hús ömmu
Dís og alast upp innan um öll
ættmennin og það fólk sem hún
laðaði að. Það er ekki að ástæðu-
lausu að hún fékk viðurnefnið
Don Dísa enda alltaf með putt-
ann á púlsinum í málum allra í
þessari stóru flóknu fjölskyldu.
Alltaf var hún til staðar. Þegar
ég fletti fjölskyldualbúmunum
mínum er hún á annarri hvorri
mynd enda dröslaðist hún með
okkur í flest frí ásamt því að taka
yfir heimilishald foreldranna á
námsárunum í Danmörku þegar
þannig lá á. Ekki sló hún slöku
við á seinni árum þegar ég sjálf
var haldin á vit ævintýranna, en
þá kom hún bæði til Þýskalands
og London að heimsækja mig og
ganga úr skugga um að ég væri
nú að lifa lífinu til hins ýtrasta.
Um ótal flóamarkaði um allan
heim höfum við þvælst um í leit
að hinu ódauðlega bláa blómi og
mokkabollum handa allri ætt-
inni. Eftirminnilegasta ferðin er
og verður alltaf rútuferðin til
Prag þegar við tvær, ég tólf ára,
sátum 16 klukkutíma í rútu frá
Kaupmannahöfn til Prag til þess
eins að túristast og auðvitað
kaupa desertskálar úr kristal í
leiðinni.
Minningarnar eru óteljandi og
efni í mörg bindi. Amma leið-
beindi mér og spjallaði um lífið
yfir Royal karamellubúðing og
kasínu. Áhugamálin hennar og
dundið var svo smitandi að ég
man að ég fór á margra vikna
jólaskreytinganámskeið í Blóma-
vali með henni þegar ég var á há-
punkti gelgjunnar. Ég sagði auð-
vitað engum af félögunum frá
enda aðeins of töff fyrir tilveruna
á þessum árum en aðventukrans-
inn er enn vafinn og föndraður
heima á hverju ári.
Ég er ekki alveg viss um
hvernig heimurinn snýst án
ömmu Dís en fyrirmyndin lifir
enn og ég vonast til að geta hald-
ið jafn vel utan um fjársjóðina í
lífi mínu eins og hún gerði.
Guðný Jónasdóttir.
Kæra systir.
Mig langar að kveðja þig með
þessu ljóði sem minnir mig alltaf
á hann pabba okkar.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þakka þér vináttuna sem við
höfum ávallt haldið í gegnum
árin.
Þín systir
Kristín.
Hjördís Erla
Pétursdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar end-
urgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar
eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu
efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar-
ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á
hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist,
enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur
út.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem
nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er
um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvað-
an og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einn-
ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini,
maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í
greinunum.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg-
unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er
unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálf-
krafa notuð með minningargrein nema beðið sé um
annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með
æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar
verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið
minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minning-
argreina vita.
Minningargreinar