Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017 ✝ rðar fæddist íReykjavík 8. september 1924. Garðar andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða 20. október 2017. Foreldrar hans voru Ingibjörg María Björns- dóttir, f. á Hólum í Reykhólahreppi, og Halldór Loftsson, f. á Grís- hóli, Snæf. Garðar var elstur þriggja systkina. Hin eru Reyn- ir, f. 10. jan. 1926, hann bjó á Hríshóli, og Magnea Guðrún, f. 22. ágúst 1928, d. 18. júní 2011, hún bjó á Skorrastað. Kona Garðars var Kristín Sveins- dóttir, f. á Stórutungu í Bárð- ardal 9. apríl 1921, d. 18. sept- ember 2006. Þau kynntust á Hvanneyri þar sem Garðar var við nám og hún starfsstúlka. Þau opinberuðu trúlofun sína til Akraness. Samhliða bú- störfunum stundaði Garðar smíðar og ýmsa tilfallandi vinnu hjá kaupfélaginu. Á Akranesi starfaði hann í sút- unarverksmiðju til 1977 er hún var lögð niður. Þá hóf hann störf hjá Lífeyrissjóði Vest- urlands og vann þar til starfs- loka. Er Garðar bjó á Hríshóli II sat hann m.a. í hreppsnefnd og skattanefnd, var um skeið forðagæslumaður, lengi gjald- keri í stjórn Búnaðarfélags Reykhólahrepps, nokkur ár fulltrúi á aðalfundum Stéttar- sambands bænda, var for- stöðumaður Sjúkrasamlags Reykhólahrepps frá stofnun 1951-68 og annar endurskoð- andi Kaupfélags Króksfjarðar á tímabili. Á Akranesi sat hann í stjórn Verkalýðsfélags Akra- ness, fyrst sem formaður verka- mannadeildar og síðar ritari fé- lagsins um árabil. Hann orti töluvert um ævina en ljóð eftir hann birtust í rit- unum Íslensk alþýðuskáld og í Borgfirðingaljóðum. Garðar verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag, 27. október 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. sumardaginn fyrsta 1944. Börn þeirra eru: Gígja, f. 18.9. 1944; Gunnar Þór, f. 7.1. 1948; Alda, f. 26.11. 1949; Svavar, f. 27.1. 1952; Sveinn Vilberg, f. 20.5. 1954; Ingimar, f. 18.12. 1959; Hall- dór, f. 8.11. 1961. Garðar ólst upp á Hríshóli í Reykhólahreppi frá 1927 hjá móður sinni og móð- urbróður, Birni Ágústi Björns- syni, auk þess sem Garðar dvaldi á unglingsárunum nokk- ur misseri á Eyri í Mjóafirði við Djúp. Garðar stundaði nám við Héraðsskólann á Reykjanesi í tvö ár og lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri 1944. Að námi loknu stundaði Garðar bústörf í heimahögum en 1949 stofnaði hann nýbýlið Hríshól II þar sem hann bjó til 1968 er hann flutti Í dag kveð ég elsku föður minn, efst í huga er endalaust þakklæti fyrir allar samveru- stundirnar og allt sem hann var, kenndi mér og gaf, þakklæti fyr- ir að hafa hann svona lengi hjá mér. Þakklæti fyrir að vera til staðar fyrir hann þegar hann þurfti á mér að halda í erfiðum veikindum síðustu daga, en nú hefur hann fengið langþráða hvíld í örmum ástvina sinna sem farnir eru héðan til betri heima, megi hann hvíla í friði og hafa þökk fyrir allt. Hittumst síðar. Læt fylgja fallegt ljóð eftir hann sem ég held mikið upp á: Veist þú að skugginn er vinur minn? Hann verið hefur um nokkurt sinn, bundinn mér tryggðabandi. Hann kemur þá bjart er kringum mig, en hverfur ef mæta rökkvuð stig, eins og vina er vandi. Honum ég treysti af hjarta og sál. Honum ég segi mín leyndarmál og allt sem mér þykir miður. Því aldrei sá lestur lengra fer. Hann lepur það ekki í hvern sem er, eins og sumra er siður! Þótt lífið mér bindi fjötur um fót, er fýsir mig sækja upp í mót, svo þrek mitt og þróttur lamast, þá gerir hann ekki gys að mér né gleðst yfir því sem miður fer, eins og öðrum er tamast! Einmana göngu ætti ég án hans fylgdar um heimsins veg, þótt líti ég lönd og álfur. Því oftlega hefur það átt sér stað, að ei hef ég gjörla skynjað það, hvor okkar sé ég sjálfur! (Garðar Halldórsson.) Innilegar samúðarkveðjur til Reynis bróður hans. Sérstakar þakkir fær Lilja mágkona mín, sem kom annan hvern dag til pabba allan tímann sem hann bjó á Höfða. Stytti honum stundir með spjalli, lestri úr dagblöðum og ljóðabókum. Sat hjá honum fleiri klukkutíma síð- ustu dagana og hlúði að honum. Elsku Lilja, þú ert einstök, takk fyrir allt. Þakka ég einnig starfsfólki Höfða fyrir umönnun og hlýju. Alda Garðarsdóttir. Garðar Halldórsson ✝ RíkharðurHólm Sigurðs- son fæddist í Ólafs- firði 19. maí 1954. Hann lést 10. októ- ber 2017. Ríkharður var sonur hjónanna Sumarrósar Sig- urðardóttur, f. 5.12. 1918, d. 28.5. 2007, og Sigurðar Ringsted Ingi- mundarsonar, f. 2.5. 1912, d. 5.9. 2010. Ríkharður var næstyngstur 11 systkina en þau eru Kristinn Ríkharður ólst upp í Ólafs- firði og bjó þar lengstan hluta ævinnar. Á unga aldri var Rík- harður í sveit á Vermundar- stöðum í Ólafsfirði og síðar í Skagafirði. Eftir það fór hann að vinna hjá föður sínum á vinnuvélum. Um tvítugt fór hann til sjós í nokkur ár. Hann vann á vélum og tækjum bæði sjálfstætt og hjá öðrum. Rík- harður var virkur í félags- störfum, s.s. hjá Leikfélagi Ólafsfjarðar og Kiwanis. Hann var áhugasamur um pólitík og mikill jafnaðarmaður. Rík- harður var um tíma forseti bæjarstjórnar, sat í ýmsum nefndum á vegum Fjalla- byggðar og var í bæjarstjórn þegar hann lést. Útför Ríkharðar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 27. október 2017, klukkan 14. (látinn 2012), Halla, Björk, Sólveig, Bjarki, Þráinn, Lís- bet, Rögnvaldur, Sigurður og Hjörtur. Ríkharður kvæntist 31. maí 1986 Sigríði Tóm- asdóttur, f. 1. des. 1952. Sonur þeirra var Baldur Þór, f. 4. október 1986, d. 8. júlí 2012. Fyrir átti Sigríður börnin Hörpu og Tómas Waag- fjörð. Ríkharður og Sigríður slitu samvistir. Stórvinur minn og félagi, Ólafs- firðingurinn Ríkharður Hólm Sig- urðsson, bæjarfulltrúi í Fjalla- byggð, varð bráðkvaddur í lok bæjarráðsfundar hinn 10. októ- ber. Ríkharði kynntist ég í hinu póli- tíska vafstri mínu en við vorum báðir sannir jafnaðarmenn og uppaldir sem ungir drengir í Al- þýðuflokknum, ég á Siglufirði en hann í Ólafsfirði. Tiltölulega stutt er á milli fjarða en þó um langan veg að fara í þá daga. Við hittumst því oftast á vett- vangi flokksins á fundum í Reykjavík. Þetta átti hins vegar heldur betur eftir að breytast með til- komu Héðinsfjarðarganga sem við báðir höfðum alltaf mikinn áhuga á og vorum alltaf vissir um að kæmu, spurningin var bara hvaða ár. Við vorum líka alltaf vissir um að tilkoma ganganna myndi flýta fyrir sameiningu bæjanna okkar og verða þeim báðum til farsældar en Rikki var mikill talsmaður sameiningar og samvinnu, og allt- af viss um að til lengri tíma litið væri sameining eina rétta leiðin. Það urðu því miklir fagnaðar- fundir hjá okkur þegar við hitt- umst við fyrstu sprengingu Héð- insfjarðarganga og í mörg skipti þar á eftir á meðan Rikki vann við gerð ganganna, en það gerði hann á upphafstímanum. Hann hvarf frá því verki og hætti þar vinnu því honum líkaði ekki allt í sambandi við fram- kvæmdina og að ekki var alltaf hægt að treysta loforðum verk- takans. En þannig var Rikki, stál- heiðarlegur og sem verkstjóri og ábyrgðarmaður vildi hann að stað- ið væri við hvert orð og loforð og það á réttum tíma. Eins og áður sagði var Rikki mikill jafnaðar- og félagsmála- maður og áhugamaður um vöxt okkar svæðis. Það kom því ekki á óvart að hann var kosinn í bæjarstjórn við síðustu bæjarstjórnarkosningar, og það eina sem kom mér á óvart var að hann var kosinn fyrir annan lista en okkar jafnaðarmanna. Þetta ræddum við okkar á milli og Rikki var alltaf hreinn og beinn og ítrekaði það sem ég vissi reynd- ar að hann var, eins og svo margir aðrir, óánægður með margt sem gert var á ríkisstjórnarárunum eftir hrun. Hann fór því í raun og veru í pólitískt hlé frá flokki sínum en ítrekaði alltaf að hann væri jafn- aðarmaður og kæmi síðar til baka og við það stóð hann eins og allt sem hann sagðist ætla að gera. Við erfiðleika sem upp komu í bæjarstjórninni, og upplausn þess lista sem hann var kosinn fyrir, gekk hann aftur í raðir okkar jafn- aðarmanna og starfaði síðustu misserin sem bæjarfulltrúi jafnað- armanna í Fjallabyggð og gegndi þar ýmsum trúnaðarstöðum sem hann innti af hendi af mikill kost- gæfni og samviskusemi. Ég tók eftir því að Rikki tók sér oft frí frá vinnu sinni til að rækja skyldur sínar sem bæjarfulltrúi fyrir sveitarfélagið sem var hon- um svo hjartfólgið. Ég þakka Rikka fyrir ánægju- leg kynni og farsælt samstarf alla tíð og sendi ættingjum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur. Minning um góðan dreng, fé- laga og vin lifir. Kristján L. Möller, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. „Heyrðu bara í mér vinan ef það er eitthvað.“ Þessi orð voru jafnan kveðjuorð Rikka til mín þegar við töluðum saman og þau lýsa honum svo vel. Við Rikki kynntumst vorið 2014 þegar ný bæjarstjórn tók við og áttum gott samstarf frá fyrsta degi. Virðing og vinátta einkenndi öll okkar samskipti og það var auðvelt að bera virðingu fyrir skoðunum Rikka sem ekki varð haggað enda mikill prinsippmaður. Hann hafði sterkar skoðanir á samfélagsmál- um og sinnti bæjarfulltrúastörfum sínum með miklum sóma. Hann var góður vinur og liðsfélagi; traustur, ráðagóður og jarðbund- inn, húmoristi og alltaf var stutt í hláturinn og hnyttin tilsvör. Með söknuði og þakklæti fyrir allt og allt kveð ég Rikka og votta fjölskyldu hans og öðrum aðstand- endum mína dýpstu samúð. Minn- ingin um góðan mann lifir. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Írsk bæn) Steinunn María Sveinsdóttir, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar. Ríkharður Hólm Sigurðsson Dugmikla konu, hver hlýtur hana? Hún er miklu dýrmætari en perlur. Hjarta manns treystir henni Og ekki er lát á hagsæld hans. Hún gerir honum gott en ekkert illt Alla ævidaga sína. Hún fer á fætur fyrir dögun, Skammtar heimilisfólki sínu. Hún finnur að starf hennar er ábatasamt, Á lampa hennar slokknar ekki um nætur. Hún er örlát við bágstadda. Oft réttir fram hendurnar móti snauðum. Valgerður J. Jónsdóttir ✝ Valgerður J.Jónsdóttir fæddist 19. febrúar 1930. Hún lést 13. október 2017. Út- förin fór fram 26. október 2017. Kraftur og tign er klæðnaður hennar Og hún fagnar komandi degi. Mál hennar er þrungið speki Og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar. Margar konur hafa sýnt dugnað En þú tekur þeim öllum fram. (Ok. 31:10-29.) Elsku besta móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma. Hvíl þú í friði, ástar þakkir fyr- ir allt og allt, við hittumst síðar ásamt öllum þeim sem nú um- lykja þig ástúð og umhyggju í Draumahöllinni. Sævar, Kristín Ósk og fjölskylda. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR KRISTINSDÓTTIR, til heimilis að Grundartanga 44, Mosfellsbæ, lést á hjartadeild Landspítalans 16. október. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ þann 30. október klukkan 13. Jón Sigurpáll Salvarsson Guðrún Auðunsdóttir Kristbjörg S. Salvarsdóttir Kristinn Rúnar Salvarsson Karen Lind Þrastardóttir Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ALFREÐ KRISTJÁNSSON frá Hrísey, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri 21. október. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 31. október klukkan 15. Sigurveig Alfreðsdóttir Gunnar H. Hall Ásta Herdís Hall Einar Guðfinnsson Alfreð Hall Thi Dar Mwe Gunnsteinn Hall Yanan Chen og langafabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR VIGFÚSDÓTTUR, fv. skrifstofustjóra Iðnskólans í Reykjavík, Hrafnistu í Reykjavík, áður Árskógum 6 í Reykjavík. Starfsfólki Hrafnistu eru færðar sérstakar þakkir fyrir umhyggju og umönnun. Svala Árnadóttir Laufey Aðalsteinsdóttir Sigurður Kristjánsson Kristinn Aðalsteinsson Christian Wammer Egill Aðalsteinsson Anna Margrét Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON blaðamaður, Kópavogstúni 5, lést á hjartadeild Landspítalans mánu- daginn 23. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 1. nóvember klukkan 13. Sigurrós Sigurðardóttir Kristjana Rós Þorbjörnsd. Örn Jóhannsson Guðmundur Þorbjörnsson Jóhanna Björk Briem barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA SIGURÐARDÓTTIR, Dista, lést mánudaginn 18. september. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Úlfar Sigurðsson Björn Úlfarsson Alda Úlfarsdóttir Sólveig Úlfarsdóttir Guðbjörg Erla Úlfarsdóttir Víðir Leósson barnabörn og langömmubörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.