Morgunblaðið - 27.10.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Mikið var talað um það sem mætti ekki og væri ekki hægt að gera í Icesave málinu.
En við settum skýra stefnu og stóðum í lappirnar, tókum slaginn og unnum.
Aftur og aftur var því haldið fram að leiðréttingin væri ómöguleg og óframkvæmanleg.
En við settum skýra stefnu og stóðum í lappirnar, tókum slaginn og unnum.
Ítrekað var fullyrt að ekki væri hægt að láta kröfuhafa greiða Íslendingum mörg hundruð milljarða króna
stöðugleikag jald og afnema fjármagnshöftin.
En við settum skýra stefnu og stóðum í lappirnar, tókum slaginn og unnum.
Nú fullyrða margir að það verði ekki hægt að endurskipulegg ja fjármálakerfið á Íslandi almenningi í hag
og losna við vogunarsjóðina úr bönkunum.
Við erum búin að setja skýra stefnu. Við ætlum að standa í lappirnar. Við ætlum að taka slaginn.
Nú sem fyrr ætlum við að vinna. Vinna fyrir Ísland.
Vinnum saman. Kjósum Miðflokkinn!
X –M
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins
Það er samhljómur í skrifumStyrmis Gunnarssonar og Páls
Vilhjálmssonar í aðdraganda kosn-
inga.
Styrmir: „Það verður æ ljósarameð hverri nýrri könnun sem
birtist, nú síðast í
Fréttablaðinu í
morgun, að veruleg
hætta er á ESB-
sinnaðri ríkisstjórn
eftir kosningar.
Samkvæmt hinni
nýju könnun gæti
orðið til ríkisstjórn
VG, Samfylkingar,
Viðreisnar og Fram-
sóknar. Það færi þá
eftir samsetningu
þingflokka VG og
Framsóknar hve
mikil andstaða yrði
innan slíkrar ríkis-
stjórnar gegn ESB-
aðild.
Þótt deilt sé á Sjálfstæðisflokkinnfyrir margt er þó ljóst að sá
flokkur endurspeglar allra flokka
bezt nú andstöðu meirihluta þjóð-
arinnar við aðild að ESB sem m.a.
mátti heyra á miklum undirtektum
við málflutning Bjarna Benedikts-
sonar í því máli á fundi eldri sjálf-
stæðismanna í Valhöll í gær. Þetta
er alvarlegt íhugunarefni fyrir and-
stæðinga aðildar í öllum flokkum.“
Páll: „Á laugardag verður kosiðum hvort vinstriflokkarnir fái
umboð til að etja þjóðinni á ESB-
foraðið á ný með tilheyrandi póli-
tískum skotgrafahernaði eða hvort
fullveldisflokkar fái stuðning þjóð-
arinnar til að stjórna landinu.
Vinstriflokkarnir Píratar, Sam-fylking, Vinstri grænir eru
ásamt Viðreisn þess albúnir að efna
til innanlandsófriðar fyrir ónýtan
málstað. Kjósendur ættu að halla
sér að hófsamari stjórnmálaflokk-
um.“
Styrmir
Gunnarsson
Varnaðarorð
STAKSTEINAR
Páll
Vilhjálmsson
Veður víða um heim 26.10., kl. 18.00
Reykjavík 7 alskýjað
Bolungarvík 10 alskýjað
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 5 súld
Þórshöfn 8 léttskýjað
Ósló 8 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 4 súld
Helsinki -1 snjókoma
Lúxemborg 11 léttskýjað
Brussel 15 súld
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 14 súld
París 14 þoka
Amsterdam 14 léttskýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 13 heiðskírt
Vín 15 skýjað
Moskva -1 snjókoma
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 23 heiðskírt
Róm 19 heiðskírt
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -1 snjókoma
Montreal 10 rigning
New York 12 rigning
Chicago 8 heiðskírt
Orlando 18 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:57 17:28
ÍSAFJÖRÐUR 9:12 17:22
SIGLUFJÖRÐUR 8:55 17:05
DJÚPIVOGUR 8:29 16:55