Morgunblaðið - 27.10.2017, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Nokkrar breytingar hafa orðið á
milli vikna á því hverjir eru líklegir
til að taka sæti á nýju þingi sam-
kvæmt könnun Félagsvísindastofn-
unar fyrir Morgunblaðið. Verði
niðurstöður kosninga í samræmi við
þessa lokakönnun er ljóst að þrír
ráðherrar úr síðustu ríkisstjórn ná
ekki kjöri. Það eru þau Benedikt Jó-
hannesson, fyrrverandi formaður
Viðreisnar, í Norðausturkjördæmi,
Björt Ólafsdóttir í Suðvesturkjör-
dæmi og Óttarr Proppé, formaður
Bjartrar framtíðar, í Reykjavík norð-
ur.
Lilja ennþá úti
Þessi nýja könnun sýnir einnig að
Framsóknarflokkurinn nær ekki inn
manni í Reykjavíkurkjördæmunum
eða Suðvesturkjördæmi og mun því
ekki eiga fulltrúa á höfuðborgar-
svæðinu. Þar með er varaformaður
flokksins, Lilja Alfreðsdóttir, úti og
Willum Þór Þórsson nær ekki kjöri.
Miðflokksmaðurinn Þorsteinn Sæ-
mundsson, fyrrverandi framsóknar-
maður, nær hins vegar kjöri í
Reykjavík suður miðað við þessar
niðurstöður.
Í Reykjavík norður nær Guðfinna
Jóhanna Guðmundsdóttir ekki kjöri
fyrir Miðflokkinn en Samfylkingin
bætir við sig þriðja þingmanninum,
Evu H. Baldursdóttur. Píratinn Hall-
dóra Mogensen er aftur komin inn
en Vinstri-grænir hafa misst einn
mann frá síðustu könnun.
Í Norðvesturkjördæmi hefur sú
breyting orðið á milli kannana að
Teitur Björn Einarsson úr Sjálfstæð-
isflokki nær ekki kjöri en píratinn
Eva Pandóra Baldursdóttir er aftur
komin inn. Í Norðausturkjördæmi
nær framsóknarkonan Líneik Anna
Sævarsdóttir kjöri.
Staðan í Suðurkjördæmi er
óbreytt frá síðustu könnun. Þar
koma ný inn á þing miðflokksmað-
urinn Birgir Þórarinsson og Heiða
Guðný Ásgeirsdóttir bóndi fyrir
Vinstri-græna. Unnur Brá Konráðs-
dóttir, forseti Alþingis, næði ekki
kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
Jóna Sólveig Elínardóttir, varafor-
maður Viðreisnar, ekki heldur.
Tveir þingmenn halda sætum sín-
um í Suðvesturkjördæmi, öfugt við
niðurstöður síðustu könnunar. Þetta
eru þeir Vilhjálmur Bjarnason í
Sjálfstæðisflokki og Jón Steindór
Valdimarsson í Viðreisn. Þá er Will-
um Þór úti eins og áður sagði og
Samfylking missir þriðja mann sinn.
Jöfnunarmenn á ferðinni
Miðað við niðurstöður könnunar-
innar er Samfylkingin næst því að
bæta við sig þingmanni. Sjálfstæðis-
flokkurinn er næst því að missa
mann. Síðasti maður inn er Vilhjálm-
ur Bjarnason í 5. sæti Sjálfstæð-
isflokks í Suðvestur. Hann er þó með
minna fylgi á bak við sig en til að
mynda þriðja sæti Sjálfstæðisflokks í
Reykjavík norður og Norðvestur.
Samkvæmt sérfræðingum Félags-
vísindastofnunar sýnir þetta hvernig
litlar breytingar geta haft mikil áhrif
á það hverjir ná kjöri. Það er því
viðbúið að kosninganóttin verði löng
fyrir þá sem eru í jöfnunarþing-
sætum eða nálægt þeim.
18 ný andlit á þingi
Helstu breytingar í fjölda þing-
manna á landsvísu eru að Samfylk-
ingin hefur misst einn frá könnun-
inni sem kynnt var um síðustu helgi.
Fengi flokkurinn alls 10 þingmenn
samkvæmt könnuninni nú en hafði
11 síðast. Framsóknarflokkurinn er
með fimm þingmenn eins og síðast.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 17 menn
rétt eins og síðast en Vinstri-grænir
missa tvo þingmenn milli kannana,
fengju 14 nú en höfðu 16 síðast.
Viðreisn hefur aukið fylgi sitt og
fengi flokkurinn fimm þingmenn
samkvæmt könnuninni nú en rétt
skreið inn með þrjá síðast. Píratar
fengju nú sex þingmenn og bæta við
sig einum frá síðustu könnun. Mið-
flokkurinn fær sex eins og í síðustu
könnun.
Verði úrslit kosninganna á þessum
nótum myndu 18 nýir þingmenn taka
sæti á Alþingi; átta konur og 10 karl-
ar. Alls myndu þá 27 konur sitja á
þingi á móti 36 körlum. Það er fækk-
un frá nýafstöðnu þingi þegar 30
konur sátu á móti 33 körlum.
Þrír ráðherrar án þingsætis
Fá ekki þingsæti
skv. skoðanakönnun
Suðvesturkjördæmi – 13 þingsæti
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Jón Steindór
Valdimarsson
Bjarni
Benediktsson
Bryndís
Haraldsdóttir
Jón
Gunnarsson
Óli Björn
Kárason
Vilhjálmur
Bjarnason
Gunnar Bragi
Sveinsson
Jón Þór
Ólafsson
Guðmundur
Andri Thorsson
Margrét
Tryggvadóttir
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
Ólafur Þór
Gunnarsson
C C D D D D D M P S S V V
Reykjavíkurkjördæmi norður – 11 þingsæti
Þorsteinn
Víglundsson
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Áslaug Arna
Sigurbjörnsd.
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Halldóra
Mogensen
Helga Vala
Helgadóttir
Páll Valur
Björnsson
Eva H.
Baldursdóttir
Katrín
Jakobsdóttir
Steinunn Þóra
Árnadóttir
Andrés Ingi
Jónsson
C D D P P S S S V V V
Reykjavíkurkjördæmi suður – 11 þingsæti
Hanna Katrín
Friðriksson
Pawel
Bartoszek
Sigríður Á.
Andersen
Brynjar
Níelsson
Hildur
Sverrisdóttir
Þorsteinn B.
Sæmundsson
Þórhildur S.
Ævarsdóttir
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Jóhanna V.
Guðmundsd.
Svandís
Svavarsdóttir
KolbeinnÓttars-
sonProppé
C C D D D M P SS V V
Norðausturkjördæmi – 10 þingsæti
Þórunn Egils-
dóttir
Líneik Anna
Sævarsdóttir
Kristján Þór
Júlíusson
Njáll Trausti
Friðbertsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Anna Kolbrún
Árnadóttir
Logi
Einarsson
Steingrímur
J. Sigfússon
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
Ingibjörg
Þórðardóttir
D D M M S V V VB B
Norðvesturkjördæmi – 8 þingsæti
Ásmundur
Einar Daðason
Haraldur
Benediktsson
Þórdís Kolbrún
Reykfj. Gylfad.
Eva Pandóra
Baldursdóttir
Bergþór
Ólason
Guðjón S.
Brjánsson
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Bjarni
Jónsson
D D MP S V VB
Suðurkjördæmi – 10 þingsæti
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
Páll
Magnússon
Ásmundur
Friðriksson
Vilhjálmur
Árnason
Birgir
Þórarinsson
Smári
McCarthy
Oddný G.
Harðardóttir
Ari Trausti
Guðmundsson
Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir
D D D M P S V VB B
Norðvesturkjördæmi
D Teitur Björn Einarsson
Norðausturkjördæmi
C Benedikt Jóhannesson
D Valgerður Gunnarsdóttir
P Einar A. Brynjólfsson
Suðurkjördæmi
C Jóna Sólveig Elínardóttir
D Unnur Brá Konráðsdóttir
Suðvesturkjördæmi
A Björt Ólafsdóttir
Reykjavík suður
A Nichole Leigh Mosty
B Lilja Alfreðsdóttir
P Björn Leví Gunnarsson
Reykjavík norður
A Óttarr Proppé
D Birgir Ármannsson
P Gunnar Hrafn Jónsson
A Viðreisn
B Framsóknar-
flokkurinn
D Sjálfstæðis-
flokkurinn
M Miðflokkurinn
P Píratar
S Samfylkingin
V Vinstri-græn
Heimild: Skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands fyrir Morgunblaðið
● Nýr á þingi
● Jöfnunarsæti
Könnun sýnir nokkrar tilfærslur á þingmönnum milli vikna Benedikt Jóhannesson, Björt Ólafs-
dóttir og Óttarr Proppé á útleið Framsókn án manns á höfuðborgarsvæðinu 18 nýir þingmenn
Morgunblaðið/Golli
Alþingi Mörg ný andlit munu sjást í þingsal á næstunni, 18 alls ef marka má síðustu skoðanakönnun.