Morgunblaðið - 27.10.2017, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Einkarekið apótek í 60 ár
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið
Ný heimasíða og
glæsileg ný netverslun
Nú getur þú verslað á progastro.is hvenær sem er
Kíktu á netverslunina og skoðaðu
glæsilegt vöruúrval
27. október 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 105.48 105.98 105.73
Sterlingspund 139.68 140.36 140.02
Kanadadalur 83.11 83.59 83.35
Dönsk króna 16.68 16.778 16.729
Norsk króna 13.154 13.232 13.193
Sænsk króna 12.815 12.891 12.853
Svissn. franki 106.23 106.83 106.53
Japanskt jen 0.9236 0.929 0.9263
SDR 148.54 149.42 148.98
Evra 124.17 124.87 124.52
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.5049
Hrávöruverð
Gull 1278.0 ($/únsa)
Ál 2149.0 ($/tonn) LME
Hráolía 58.44 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Hagnaður Nýherja á þriðja ársfjórð-
ungi var 29 milljónir króna, en hann var
93 milljónir á sama fjórðungi í fyrra.
Sala á vöru og þjónustu nam 3,5 millj-
örðum króna á þriðja ársfjórðungi sem
er 2,5% tekjuaukning miðað við sama
fjórðung í fyrra. Framlegð nam 859
milljónum króna, eða 24,4%, og var
EBITDA 229 milljónir króna, saman-
borið við 247 milljónir króna á þriðja
ársfjórðungi í fyrra.
Á fyrstu 9 mánuðum ársins nam
hagnaður Nýherja 266 milljónum
króna, en til samanburðar var hann 204
milljónir króna yfir sama tímabil í fyrra.
Eiginfjárhlutfall var 45,2% í lok þriðja
ársfjórðungs.
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja,
segir í afkomutilkynningu til Kauphallar
að öflugur tekjuvöxtur sé áfram hjá
Tempo, sem nemi 34% í bandaríkjadöl-
um það sem af er ári. „Markmiðið er að
selja verulegan eignarhlut í Tempo og fá
að félaginu samstarfsaðila með reynslu
og þekkingu í uppbyggingu á alþjóðlegri
hugbúnaðarstarfsemi.“
Nýherji með 29 milljónir í
hagnað á 3. ársfjórðungi
Hagnaður Icelandair Group dróst
saman um 1% á milli ára og var 101,8
milljónir dollara á þriðja ársfjórð-
ungi, jafnvirði 10,7 milljarða króna.
Tekjurnar jukust um 10% á milli ára
og námu 536 milljónum dollara, jafn-
virði 56,5 milljarða króna. EBITDA
stóð í stað á milli ára og var 161 millj-
ón dollara.
„Reksturinn á þriðja ársfjórðungi
gekk vel. Afkoman er betri en gert
var ráð fyrir og eru helstu skýring-
arnar hærri farþegatekjur og hag-
stæð gengisþróun sem vegur þyngra
en neikvæð þróun olíuverðs. Þá eru
hagræðingaraðgerðir byrjaðar að
skila árangri. Afkoma af leiguflugs-
starfsemi og fraktflutningum var
einnig umfram væntingar,“ segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, í afkomutilkynn-
ingu til Kauphallar.
Í ljósi bættrar afkomu á þriðja
ársfjórðungi og betri horfa í rekstr-
inum á síðustu mánuðum ársins hef-
ur afkomuspá félagsins fyrir árið
verið hækkuð í 165-175 milljónir
dollara. Björgólfur segir að gert sé
ráð fyrir áframhaldandi vexti á
næsta ári í samræmi við stefnu fé-
lagsins um arðbæran innri vöxt fé-
lagsins og flugáætlun Icelandair fyr-
ir árið 2018 verður um 11%
umfangsmeiri en á þessu ári. „Horf-
ur í flugrekstri félagsins eru óbreytt-
ar. Samkeppni er áfram mikil á N-
Atlantshafinu og er gert ráð fyrir
áframhaldandi þrýstingi á meðalfar-
gjöld,“ segir hann.
Laun og annar starfsmannakostn-
aður hækkaði um 25% á milli ára og
telur 32% af heildarkostnaði. Skýrist
hækkunin af auknu umfangi og
styrkingu krónunnar gagnvart
bandaríkjadal á samanburðartíma-
bilinu, en stærstur hluti launakostn-
aðar félagsins er í krónum.
Styrking krónu á árinu hefur haft í
för með sér minnkandi framlegð af
ferðatengdri þjónustu þrátt fyrir
mikla fjölgun ferðamanna.
helgivifill@mbl.is
Icelandair hagnast
um 11 milljarða
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vöxtur Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir að flug-
áætlun Icelandair árið 2018 verði um 11% umfangsmeiri en á þessu ári.
Tekjurnar aukast um 10% á milli ára
Hagnaður Landsbankans nam 4,2
milljörðum króna á þriðja ársfjórð-
ungi, samanborið við 5,1 milljarð á
sama fjórðungi 2016. Virðisbreyting-
ar útlána voru jákvæðar um 766
milljónir á fjórðungnum, samanborið
við 2,1 milljarð í fyrra.
Hreinar vaxtatekjur námu 8,9
milljörðum króna á fjórðungnum
sem er um 300 milljónum króna
meira en á sama tímabili í fyrra.
Hreinar þjónustutekjur námu 2,2
milljörðum króna, en þær voru 2,0
milljarðar króna á þriðja ársfjórð-
ungi 2016.
Á fyrstu níu mánuðum ársins var
hagnaður Landsbankans 16,8 millj-
arðar króna, samanborið við 16,4
milljarða á sama tímabili árið 2016.
Jákvæðar virðisbreytingar námu 2,1
milljarði, sem er 53% lægri fjárhæð
en á sama tímabili í fyrra. Arðsemi
eigin fjár var 9,4% á ársgrundvelli.
Vaxtamunur eigna og skulda nam
2,5% á fyrstu níu mánuðunum en var
2,3% á sama tímabili árið áður. Útlán
hafa aukist um 6,2% frá áramótum,
eða um rúma 52 milljarða króna.
Eigið fé Landsbankans var 243
milljarðar í lok september og eigin-
fjárhlutfallið 26,8%. Landsbankinn
greiddi 11,8 milljarða króna í arð á
þriðja ársfjórðungi og nema arð-
greiðslur bankans alls 24,8 milljörð-
um króna á þessu ári. Frá árinu 2013
hefur Landsbankinn alls greitt um
107 milljarða króna í arð.
„Aukin markaðshlutdeild á ein-
staklings- og fyrirtækjamarkaði,
hagstæðar aðstæður í efnahagslífinu
og aukin umsvif í þjóðfélaginu eiga
stærstan þátt í að afkoma bankans
var betri en áætlanir gerðu ráð fyr-
ir,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir
bankastjóri í afkomutilkynningu.
„Áframhaldandi aðhald í rekstri
veldur því að rekstrarkostnaður er
nánast sá sami á þriðja ársfjórðungi
og á sama tímabili í fyrra.“
Hagnaður Lands-
banka 4,2 milljarðar
Arðgreiðslur 107 milljarðar frá 2013
Morgunblaðið/Golli
Landsbanki Lilja segir afkomu
betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Hagnaður TM
dróst saman um
73% á milli ára á
þriðja ársfjórð-
ungi og var 217
milljónir króna.
„Afkoma TM á
þriðja ársfjórð-
ungi var vel við-
unandi í ljósi erf-
iðra aðstæðna á
fjármálamörk-
uðum,“ segir Sigurður Viðarsson,
forstjóri TM, í afkomutilkynningu.
„Afkoma af vátryggingastarfsemi
var góð þar sem samsett hlutfall var
92%. Ávöxtun fjárfestingaeigna var
jákvæð sem verður að teljast góður
árangur á sama tíma og innlendi
markaðurinn lækkaði nokkuð.“
Framlegð af vátryggingastarf-
semi dróst saman á milli ára um
39% og var 323 milljónir króna á
þriðja ársfjórðungi. Samsetta hlut-
fallið hækkaði í 92% á milli ára, úr
86,1%.
Fjárfestingatekjur 41 milljón
Fjárfestingartekjur voru 41 millj-
ón króna á fjórðungnum samanborið
við 546 milljónir króna fyrir ári. Það
er 92% samdráttur. Ávöxtun af fjár-
festingum var 0,1% á tímabilinu.
Markaðsvísitala Gamma lækkaði um
1,4% yfir sama tímabil en hluta-
bréfavísitala Gamma lækkaði um
6,2% yfir sama tímabil. Fram kemur
í kynningargögnum að trygginga-
félagið hafi hagnast um 122 milljónir
króna vegna veikingar krónunnar á
fjórðungnum.
Tjónakostnaður á þriðja ársfjórð-
ungi óx um 14,2% miðað við sama
tíma árið 2016 á meðan iðgjöld hafa
aukist um 6,1%. Rekstrarkostnaður
hækkaði um 9,2% á milli ára.
helgivifill@mbl.is
Hagnaður
dróst sam-
an um 73%
TM hagnaðist um
217 milljónir króna
Sigurður
Viðarsson