Morgunblaðið - 27.10.2017, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Þórarinn Svavarsson, skógarbóndi á Tungufelli í Lundar-reykjadal, á 50 ára afmæli í dag. Hann er úr Reykjavík en fluttií Tungufell í Borgarfirði árið 2000 ásamt konu sinni, Hjördísi
Geirdal, og tveimur dætrum, Katrínu, 19 ára, og Jasmín, 18 ára.
„Langamma mín bjó hérna á Tungufelli, en það vissi ég ekki fyrr en
eftir að við fluttum hingað. Það var skemmtileg tilviljun. Tengdafor-
eldrar mínir keyptu þessa jörð, hófu skógrækt og í kjölfarið líkaði
okkur svo vel hér að við keyptum af þeim jörðina og settumst hér að.
Við gerðum samning við Skógræktina, maður leggur fram land og
fær plöntur í staðinn. Við ræktum aðallega furu, lerki og greni og
svolítið af ösp. Fyrsta afurðin er tengd jólunum og svo fara ýmsar
grisjanir til dæmis í Járnblendið á Grundartanga.“ Þórarinn og Hjör-
dís seldu sín fyrstu jólatré í fyrra.
Þórarinn útskrifaðist sem grafíker frá Myndlistarskólanum en hef-
ur ekki mikið starfað við það, hins vegar hann hefur fengist við eld-
smíði og er í félaginu Íslenskum eldsmiðum. „Við erum með smiðju á
safnasvæðinu á Akranesi og höldum þar námskeið og sýningar.“
Í tilefni dagsins verður Þórarinn með teiti í félagsheimilinu Braut-
artungu í Lundarreykjadal í kvöld.
Á Tungufelli Þórarinn þar sem fyrstu jólatrén voru tekin upp í fyrra.
Skógarbóndi og eld-
smiður í Borgarfirði
Þórarinn Svavarsson er fimmtugur í dag
G
uðfinna Sesselja Bjarna-
dóttir fæddist í Keflavík
27.10. 1957: „Ég get
sagt með sanni að ég
hafi alist upp við mikið
ástríki dásamlegra foreldra og með
yndislegum systkinum, í nábýli við
fjölmennan hóp ættingja í þeim góða
bæ.“
Guðfinna lauk grunnskólanámi í
Keflavík, stúdentsprófi frá KÍ 1977,
BA-prófi í sálfræði frá HÍ 1986,
meistaraprófi frá West Virginia Uni-
versity í Bandaríkjunum og doktors-
próf í atferlisfræði með áherslu á
stjórnun, frá sama skóla 1991.
Guðfinna var grunnskólakennari í
Myllubakkaskóla í Keflavík með
hléum 1978-86, var ráðgjafi á sviði
stjórnunar samhliða meistara- og
doktorsnámi og síðar í eigin ráðgjaf-
arfyrirtæki, einkum í Bandaríkj-
unum 1986-99. Hún stofnaði LEAD
Consulting (LC) í Bandaríkjunum,
ráðgjafarfyrirtæki, ásamt eig-
inmanni, árið 1991, en fyrirtækið sér-
hæfði sig í stefnumótun fyrirtækja og
innleiðingu á stefnu og í stærri breyt-
ingaverkefnum.
Guðfinna varð fyrsti rektor
Háskólans í Reykjavík en hann var
settur 4.9. 1998 og varð hún þar með
fyrsti kvenrektor á háskólastigi á Ís-
landi: „Árin hjá HR voru viðburðarík
Guðfinna S. Bjarnadóttir, fyrrv. rektor og alþingismaður – 60 ára
Umvafin barnabörnum Guðfinna og Þorsteinn með Hólmfríði og Martin Sappia og öllum kátu barnabörnunum.
Að marka og fylgja stefnu
með góðu starfsfólki
Hólmfríður Jónsdóttir 80 ára Guðfinna með systkinum sínum og foreldrum.
Ágústa Vigdís Valdi-
marsdóttir hélt tom-
bólu fyrir utan heimili
sitt í Skriðustekk í
Reykjavík og safnaði
þar 4.405 kr. sem
hún gaf Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
RÓSIR
10STKBÚNT
Frábært verð!
1.990kr
3.490 kr
-47%