Morgunblaðið - 27.10.2017, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2017
Thor: Ragnarök
Hér þarf þrumuguðinn og félagar
hans að takast á við hina illu en
máttugu Hel sem Óðinn kastaði nið-
ur í Niflheima við fæðingu. Hún er
snúin aftur staðráðin að rústa Ás-
garði og útrýma goðunum ásamt
með mannkyni öllu. Leikstjóri er
Taika Waititi, en í helstu hlut-
verkum eru Chris Hemsworth, Tom
Hiddleston, Cate Blanchett og Bene-
dict Cumberbatch.
Rotten Tomatoes: 99%
The Foreigner
Byggist á bókinni The Chinaman
eftir Stephen Leather frá 1992. Eftir
að yngsta dóttir veitingamannsins
Quangs lætur lífið í sprengjuárás
Írska lýðveldishersins (IRA) í Lond-
on ákveður hann að leita hefnda.
Leikstjóri er Martin Campbell, en í
helstu hlutverkum eru Jackie Chan,
Pierce Brosnan og Charlie Murphy.
Rotten Tomatoes: 59%
Rökkur
Gunnar (Björn Stefánsson) og Einar
(Sigurður Þór Óskarsson) hittast í
afskekktum sumarbústað á Snæ-
fellsnesi til að gera upp samband
sitt. Fljótlega kemst Gunnar að því
að það er eitthvað verulega dul-
arfullt á seyði. Leikstjóri er Erlingur
Thoroddsen, en meðal annarra leik-
ara eru Aðalbjörg Árnadóttir og
Guðmundur Ólafsson.
The Party
Gamanleikur sem snýst upp í harm-
leik. Leikstjóri er Sally Potter, en í
helstu hlutverkum Patricia Clark-
son, Bruno Ganz og Cherry Jones.
Um er að ræða áttundu mynd Potter
í fullri lengd. Myndin keppti um að-
alverðlaun kvikmyndahátíðarinnar
Berlinale 2017 þar sem Potter hlaut
Guild Film Prize.
The Shining
Föstudagspartísýning Bíó Paradís í
kvöld kl. 20 er The Shining frá árinu
1980 í leikstjórn Stanley Kubrick
með Jack Nicholson í aðalhlutverki.
Rotten Tomatoes: 87%
Oldboy/Oldeuboi
Svartir sunnudagar heiðra Chan-
wook Park með því að sýna Oldboy
(Oldeuboi) frá 2003 í Bíó Paradís á
sunnudag kl. 20. Myndin fjallar um
Oh Dae-Su sem sleppur úr prísund
mannræningja eftir 15 ár. Hann hef-
ur aðeins fimm daga í að finna þann
sem stendur á bak við ránið.
Rotten Tomatoes: 80%
Bíófrumsýningar
Hefnd Cate Blanchett í hlutverki
sínu sem Hel í Thor: Ragnarök.
Heimsendir
og partístuð
Sýning á myndverkum eftir Bjarna
H. Þórarinsson og Margréti Jóns-
dóttur verður opnuð í Gallerí Lista-
menn, Skúlagötu 32, klukkan 17 í
dag, föstudag. Þau Margrét og
Bjarni voru í hópi listamannanna
sem komu á sínum tíma að sýn-
ingarýminu Suðurgötu 7. Þau voru
hjón um tíma og samstarfsmenn en
segjast ekki hafa sýnt saman í fjóra
áratugi. Í tilkynningu segir að á tíma
Suðurgötu 7, seint á áttunda ára-
tugnum, hafi verið „bannað að mála
á Íslandi. Málverkið var dautt og var
tákn um stöðnun“, en þau tókust á
við málverkið á sinn hátt og hafa
skapað persónulegan myndheim.
„Ég veit ekki hvort þeim Bjarna
og Margréti væri neinn greiði gerð-
ur með tilraun til að fella myndlist
þeirra undir einn hatt eða sjónhátt
(sjónhatt?). Allar götur frá því ég
hóf fyrst að gefa þeim gaum, seint á
áttunda áratugnum, hafa þau verið
sér á parti, sui generis, óháð því
hvernig vindar blésu í myndlistinni,“
skrifar Aðalsteinn Ingólfsson um
sýninguna nú. „Í víðasta skilningi
má segja að myndlist Margrétar sé
kvenlæg, snúist um vitundarlíf við-
kvæmrar hæfileikakonu í samfélagi
karlmanna. Og er ekki erfiðleikum
bundið að bera kennsl á konuna […]
Ef myndlist Margrétar grundvallast
á kvenlegu tilfinninganæmi, má
segja að verk Bjarna séu sér-
staklega karllægur samsetningur.
Meðan Margrét veitir áhorfendum
óhikað innsýn í afkima eigin tilfinn-
inga, smíðar Bjarni utan um vitund
sína hátimbrað og nánast ókleift
hugmyndakerfi, kerfi sem á engan
sinn líka í íslenskri myndlist.“
Næmi og hugmyndakerfi
Morgunblaðið/Einar Falur
Samspil Bjarni H. Þórarinsson og Margrét Jónsdóttir á sýningunni, mál-
verk hennar til vinstri og eitt verka hans, ein vísirósanna, til hægri.
Margrét Jónsdóttir og Bjarni H. Þórarinsson sýna
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Nort-
hern Wave verður haldin nú um
helgina, 27. til 29. október, í Frysti-
klefanum í Rifi. Verður þetta í tíunda
skipti sem hátíðin er haldin. Edda
Björgvinsdóttir leikkona og banda-
ríski kvikmyndaframleiðandinn og
leikkonan Monica Lee Bellais eru
heiðursgestir að þessu sinni. Þær
skipa líka dómnefnd hátíðarinnar
ásamt handritshöfundinum Ottó Geir
Borg.
Sýndar verða rúmlega sjötíu stutt-
ar kvikmyndir, íslenskar og frá fjölda
annarra landa; stuttmyndir, íslensk
tónlistarmyndbönd og blanda af ís-
lenskum og erlendum myndbands-
verkum.
Þá verður boðið upp á vinnustofu
fyrir kvikmyndagerðarfólk sem er að
undirbúa sitt fyrsta verkefni í fullri
lengd, með fyrirlestrum og ráðgjafa-
fundum, en hún er í samstarfi við
Wift Nordic og haldin í Grundarfirði.
Í samstarfi við albumm.is hefur
Northern Wave tilnefnt 14 íslensk
tónlistarmyndbönd til verðlauna og
skipuleggur hátíðin einnig tónleika í
tengslum við myndböndin.
Á laugardag kl. 16 verða heið-
ursgestirnir, Edda og Monica Lee
Bellais, með svokallað meistaraspjall.
Bellais hefur um árabil starfað með
ýmsum stjörnum vestanhafs, sem
leikkona í kvikmyndum og þáttum á
borð við The Flintstones, The Mask
og House of Cards, og handritshöf-
undur og framleiðandi en síðasta
mynd hennar sem framleiðandi,
Wakefield, skartaði Brian Canston í
aðalhlutverki. Þær munu ræða ýmis
málefni sem við koma kvikmynda-
gerð, svo sem Harvey Weinstein –
sem Bellais hefur haft mikil kynni af
og hvort Hollywood geti eitthvað lært
af Íslandi, og öfugt.
Northern Wave í tíu ár
Morgunblaðið/Ásdís
Heiðursgestur Edda Björgvins-
dóttir er heiðursgestur hátíðar-
innar ásamt Monica Lee Bellais.
Stuttmynda-
hátíðin haldin í Rifi
nú um helgina
Íslensk plötuumslög nefnist sýn-
ing sem verður opnuð í Hönn-
unarsafni Íslands í kvöld kl. 20.
Sýningarstjóri er Reynir Þór
Eggertsson og hönnuðir sýning-
arinnar eru Hreinn Bernharðs-
son og Friðrik Steinn Frið-
riksson.
„Hönnun hefur tengst útgáfu
hljóðupptakna frá upphafi en
ekki er þó hægt að tala um ís-
lenska hönnun í þessu sambandi
fyrr en um miðbik síðustu aldar
þegar Tage Ammendrup hjá
versluninni Drangey stofnaði út-
gáfufyrirtækið Íslenzka tóna og
lét hanna sérstaka plötumiða.
Stuttu síðar var svo farið að gefa
út hljómplötur í myndskreyttum
umslögum og þróaðist útlit plötu-
umslaga með tísku og tækni
næstu áratugina,“ segir í tilkynn-
ingu. Þar er þeirri spurningu
velt upp hvort umbúðir og vörur
úr plasti og öðrum gerviefnum
séu tímaskekkja í samfélagi sem
vill draga úr umbúðum og
minnka vistspor sitt eða hvort
þær séu órjúfanlegur hluti af tón-
listarupplifuninni og liður í því
að tónlistarfólk fái greitt fyrir
störf sín. Reynir Þór verður með
sýningarstjóraspjall á sunnudag
kl. 16. Viku síðar verður safn-
arinn Oddgeir Eysteinsson sér-
stakur gestur á leiðsögn um sýn-
inguna. Opið alla daga nema
mánudaga milli kl. 12 og 17.
Íslensk plötuumslög sýnd
Loftpressur - stórar sem smáar
SÝND KL. 8, 10.10SÝND KL. 8, 10.25
SÝND KL. 3.50, 6
SÝND KL. 10
SÝND KL. 3.50, 6, 8
SÝND KL. 3.50, 5.50
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM!