Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
Sjáðu betur
í vetur
Þú færð rúðuþurrkurnar og allar hinar
vetrarvörurnar fyrir bílinn hjá Olís.
Vinur við veginn
10%
afsláttur
af bílavörum
til lykil- og
korthafa
Fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðs-ins, Andrés Magnússon,
furðar sig á viðbrögðum sumra
fjölmiðla og fjölmiðlamanna við
birtingu Morgunblaðsins á endur-
riti símtals þáverandi seðla-
bankastjóra og forsætisráðherra
haustið 2008.
Andrés nefnir aðmargir þeir
sem hæst hafi kall-
að eftir birtingu
símtalsins á um-
liðnum árum hafi
umhverfst yfir því
að það hafi verið birt. Hann
minnir á að fjölmiðlar hafi árum
saman freistað þess að fá símtal-
ið í hendur, en án árangurs, en
„loks þegar fjölmiðill birtir árans
símtalið, þá er það ekki nógu
gott. Eftir því sem næst verður
komist stafar sú bræði af því að
það hafi verið Morgunblaðið, þar
sem Davíð Oddsson er ritstjóri,
sem hafi birt símtalið.“
Andrés bendir á ýmislegtskrýtið sem hafi verið skrif-
að og spurt um af þessu tilefni,
en ekkert sé það þó „hjá leiðar-
anum, sem Magnús Guðmundsson
skrifaði í Fréttablaðið um málið.
Hann taldi það fullkomlega hand-
an hins boðlega að Morgunblaðið
hefði birt endurritið, meðal ann-
ars vegna þess hvað vefmiðillinn
Kjarninn hefði sóst eftir frétt-
inni, „jafnvel með því að stefna
Seðlabankanum með tilheyrandi
kostnaði“, eins og Magnús segir
og bætir við: „Birting samtalsins
nú veldur Kjarnanum fjárhags-
tjóni …“
Þetta er mögulega kjánaleg-
asta setning, sem birst hefur í
forystugrein á Íslandi og er þá
langt til jafnað.“
En þó að ekki sé langt liðiðfrá því að þessi furðusetn-
ing var skrifuð í leiðara Frétta-
blaðsins er ekki útilokað að hún
hafi verið slegin út síðan á sama
stað.
Andrés
Magnússon
Furðuskrif
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 23.11., kl. 18.00
Reykjavík -2 skýjað
Bolungarvík -3 snjókoma
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk 2 snjókoma
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló 9 súld
Kaupmannahöfn 9 súld
Stokkhólmur 8 rigning
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 11 skýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 3 heiðskírt
London 10 skýjað
París 13 skúrir
Amsterdam 9 heiðskírt
Hamborg 12 skúrir
Berlín 12 heiðskírt
Vín 5 þoka
Moskva -3 alskýjað
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 16 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 17 léttskýjað
Aþena 14 heiðskírt
Winnipeg -6 skýjað
Montreal -4 alskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 2 léttskýjað
Orlando 22 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:26 16:04
ÍSAFJÖRÐUR 10:57 15:43
SIGLUFJÖRÐUR 10:40 15:25
DJÚPIVOGUR 10:02 15:27
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Með símalausum sunnudegi erum
við að vekja athygli á því hversu stór
hluti símarnir eru orðnir af lífi okkar.
Við eyðum oft dýrmætum tíma fjöl-
skyldunnar með símann á lofti,“ seg-
ir Erna Reynisdóttir, framkvæmda-
stjóri Barnaheilla, en samtökin hafa
boðað til átaksins, Símalaus sunnu-
dagur næstkomandi sunnudag. Erna
segir símalausan föstudag hafa verið
haldinn í Bretlandi af Safe the child-
ren í fyrra og tekist vel.
„Við ákváðum að einbeita okkur að
símanum í þetta skipti og hvetja fólk
til þess að setja símann ofan í skúffu
frá því kl. 9.00 til 21.00. Við hvetjum
fjölskyldur til þess að gera eitthvað
skemmtilegt saman á sunnudaginn.
Njóta samverustundanna og sleppa
öllum myndatökum.“
Erna segist finna það að ungt fólk
sé farið að velta of mikilli símanotk-
un fyrir sér og margir orðnir hugsi
yfir hversu mikið þeir nota símann.
„Það er tækifæri til þess á sunnu-
daginn að leggja frá sér símann í
einn dag og sleppa því að kíkja á net-
ið,“ segir Erna og bætir við að um kl.
14.00 í gær hafi 1.500 skráð sig í
áskorunina á fésbókarsíðu Barna-
heilla.
Símalaus sunnudagur Barnaheilla
Síminn í skúffuna í 12 tíma Dýr-
mæt fjölskyldusamvera án myndatöku
Getty Images
Tímaþjófur Símanotkun getur haft
áhrif á samskipti innan fjölskyldna.
Óttarr Proppé
heilbrigðis-
ráðherra hefur
skipað starfshóp
um seinkun
klukkunnar. Að
því er segir í til-
kynningu frá
velferðarráðu-
neytinu er hópn-
um falið að
kanna ávinning fyrir lýðheilsu og
vellíðan landsmanna af því að leið-
rétta klukkuna til samræmis við
gang sólar. Þá segir að miðað við
sólargang og legu landsins sé
klukkan á Íslandi of fljót. Á
starfshópurinn að skila ráðherra
niðurstöðum sínum fyrir 1. febr-
úar 2018. Formaður hópsins er
Ásthildur Knútsdóttir, sérfræð-
ingur í velferðarráðuneytinu. Aðr-
ir í hópnum eru Björg Þorleifs-
dóttir, lektor við læknadeild
Háskóla Íslands, Erla Björns-
dóttir sálfræðingur, stofnandi og
stjórnarformaður fyrirtækisins
Betri svefns, og Sveinbjörn Krist-
jánsson, verkefnastjóri hjá Emb-
ætti landlæknis. Árið 2015 var
lögð fram tillaga til þingsályktun-
ar um seinkun klukkunnar um
eina klukkustund sem hlaut ekki
efnislega umfjöllun.
Óttarr Proppé
Skoða seink-
un klukku
Kanna ávinning
fyrir lýðheilsuna