Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is Sendum frítt Skoðaðu úrvalið á www.th.is Dömulúffur Dömuhanskar með smellu Herrahanskar með loðflís Mokkahanskar fyrir herra 20% afsláttur Jólatilboð Nú 4.960 kr. Áður 6.200 kr. Nú 11.120 kr. Áður 13.900 kr. Nú 6.000 kr. Áður 7.500 kr. Nú 6.320 kr. Áður 7.900 kr. Það er ekki á hverjum degi sem Íslendingur hannar tannbursta sem risafyrir- tæki framleiðir og setur á markað um heim allan. Eða einhvern annan hlut ef því væri að skipta. Jordan, einn stærsti tannburstaframleið- andi heims, setti nýverið á markað einn slíkan, tann- burstann Fingerprint. Heið- urinn af hönnuninni á Guðný Magnúsdóttir, sem hannaði tannburstann fyrir alþjóðlegan Jordan- hönnunarleik, sem efnt var til hér á landi sem og víða um heim. Og sigraði með glæsibrag. „Mér datt í hug að nota fingrafar þar sem það er sérkenni okkar líkt og tenn- urnar okkar. En fingrafarið var einmitt það sem þeir hjá Jordan hrifust af,“ segir Guðný. Fingerprint- tannburstinn verður einn af þeim tannburstum sem framleiddir eru sem 15 ára afmælisútgáfa af Jordan Individual, mest selda tann- bursta á Norðurlöndunum að sögn Kristínar J. Rögn- valdsdóttur, viðskiptastjóra hjá Heildverslun John Lindsay. Guðný er að vonum ánægð með að tannburst- inn sem hún hannaði sé kominn á markað. „Ég tók eiginlega alveg óvart þátt í leiknum ef þannig má að orði komast og því var það reglulega óvænt ánægja þegar mér var tilkynnt að ég hefði unnið keppnina,“ segir Guðný, sem starfar sem sölustjóri hjá 1819.is. Heildverslunin John Lindsay stóð fyrir leiknum sem fólst í að almenningi var boðið að senda inn eig- in hönnun á tannburstum. Tíu þátttakendur voru vald- ir í úrslit af sérstakri dóm- nefnd, en í henni sat m.a. Hugleikur Dagsson. ,,Fingerprint-tannbursti Guðnýjar er kominn í versl- anir hér á landi og mun efa- lítið vekja mikla athygli þar sem hann er íslensk hönn- un. Skemmtileg hugsun býr að baki hönnuninni hjá Guðnýju og svo er tann- burstinn einfaldlega töff,“ segir Kristín. Guðný Magnúsdóttir hannaði Jordan-tannbursta sem kominn er á markað víða um heim Sigurvegari Guðný Magnúsdóttir t.h. hlaðin verðlaunum og viðurkenningarskjölum fyrir Fing- erprint-tannburstann, ásamt Kristínu J. Rögn- valdsdóttur, viðskiptastjóra hjá John Lindsay. Fingrafar Tannburstinn sem kenndur er við fingrafar fæst hér á landi sem og um veröld víða. Tannbursti með íslensku fingrafari Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Hann virðist með allt áhreinu. Á hverjum degifær hann til sín í sjón-varpssal fólk sem glím- ir við „venjuleg“ eða mjög „óvenjuleg“ vandamál í einkalífi sínu, fær það til að opinbera vandamálin og leggur svo á ráðin við lausn þeirra. En er Dr. Phil kannski ekki með allt á hreinu? Sumir gagnrýnendur segja hann í besta falli eldhúskrókasál- fræðing sem veitir einfeldnislegar lausnir við flóknum sálrænum og félagslegum vandamálum, nið- urlægi fólk og upp- hefji sjálfan sig með óábyrgum hætti, að- eins til að auka áhorf á þættina. McGraw, sem nú er 67 ára að aldri, er vissulega með þrjár gráð- ur í sálfræði, BA, MA og doktors- próf. Doktorsritgerðin fjallaði um hvernig klínísk sálfræði geti orðið gigtarsjúklingum að liði. Hann hóf störf á sálfræðistofu föður síns í Texas og nokkrum árum síðar tóku þeir feðgar, í samvinnu við Thelmu Box, auðuga kaupsýslu- konu, að bjóða upp á lífsleikni- námskeið sem kölluðust Pathways. Græddi á tá og fingri Sagt er að Box hafi átt stóran þátt í þeirri hugmyndafræði sem síðar færði McGraw velgengni. Hann þakkaði fyrir sig með því að selja hlut sinn í Pathways átta ár- um síðar fyrir háar fjárhæðir og hafði um það hvorki samráð við Box né föður sinn. Árið 1990 stofnaði McGraw ásamt lögfræðingnum Gary Dobbs fyrirtæki sem einbeitti sér að ráð- gjöf á sviði réttarhalda og dóms- mála. Á því græddi hann á tá og fingri og þegar sjónvarpsdrottn- ingin Oprah Winfrey varð við- skiptavinur fyrirtækisins árið 1995 var framtíðin ráðin. Hún var svo ánægð með ráðgjöf McGraws að hún fékk hann til að koma reglu- lega fram með einkalífsráðgjöf í þáttum sínum. Framlag hans náði þvílíkum vinsældum að hann hóf jafn- framt að skrifa bækur um sálfræði hversdagslífsins sem sumar hafa náð metsölu. Árið 2002 stofnaði McGraw sitt eigið framleiðslufyrirtæki, hætti að starfa sem sálfræðingur og hóf gerð sjónvarpsþátta sem hann kallar Dr. Phil og flokkar undir skemmtun frekar en sál- fræði. Þeir hafa, sem fyrr segir, öðlast miklar vinsældir, en jafn- framt verið umdeildir á köflum eins og margt af því sem McGraw hefur tekið sér fyrir hendur, þ.á m. framleiðsla á megrunar- vörum sem voru að lokum teknar af markaði. Tveir blaðamenn rituðu ævi- sögu McGraws, The Making of Dr. Phil, sem kom út 2003, og halda því þar fram að hann hafi beitt ósiðlegum viðskiptaháttum á ferli sínum og komið illa fram við fyrri eiginkonu sína og starfsfólk. Inngrip í brogað einkalíf og fjölskylduvanda Það hefur gengið á ýmsu hjá Dr. Phil undanfarinn áratug. Hann gerði tilraunir með framleiðslu fleiri sjónvarpsþátta sem ekki gengu sem skyldi. Hann hefur ver- ið kærður nokkrum sinnum fyrir villandi og glannalega umfjöllun í þáttum sínum og ærumeiðingar. Hann hefur verið sakaður um að þættirnir hagræði viðtölum með vafasömum klippingum og fram- setningu og fjölskylda söngkon- unnar Britney Spears heldur því fram að afskipti hans af veikindum hennar í einum þáttanna hafi haft skaðleg áhrif á hana en ekki gagn- leg. En áfram heldur Dr. Phil. Enn fylgjast sjónvarpsáhorfendur spenntir með inngripum hans í brogað einkalíf og fjölskylduvanda bandarískrar alþýðu jafnt sem frægðarfólks. Kannski af góð- mennsku, en kannski til að vega upp á móti neikvæðu umtali, stofn- aði hann Dr. Phil Foundation sem safnar fé til baráttunnar gegn of- fituvanda barna. Umdeildur sjónvarpsdoktor Dr. Phil, fullu nafni Phillip Calvin McGraw, er einhver frægasti sjónvarpsmaður samtímans og orðinn einn sá auðugasti eftir um tvo áratugi í bransanum. Um ára- bil hafa Íslendingar getað fylgst með þessum sköllótta „besservisser“ með yfirskeggið veita gestum sínum mis- djúp hollráð, núna í Sjónvarpi Símans. Slagorð þátt- arins er: „Öruggur staður til að ræða erfið mál“. Ljósmynd/Wikipedia/Angela George Aðdáun Dr. Phil og seinni kona hans, Robin Jo Jameson, sem lætur sig ekki vanta í sjónvarpsþætti síns ektamaka og horfir einatt á hann með aðdáun. Reuters Skaðleg áhrif Fjölskylda Britney Spears sagði afskipti Dr. Phils af veikindum hennar skaðleg. Seinni eiginkona McGraws, Rob- in Jo Jameson, er áberandi í þáttum Dr. Phils. Hún situr í salnum, horfir aðdáunaraugum á eiginmanninn, leggur stund- um eitthvað til mála, og í lok þáttanna leiðast þau einatt út, lukkan uppmáluð. Þau gengu í hjónaband 1976 og eiga tvo syni. Fyrri eiginkonu sinni, Debbie Higgins McCall, var hann kvæntur í þrjú ár. Hún sak- ar hann um að hafa verið yfir- gangssamur og bannað sér að vinna utan heimilis. Sér hafi jafnframt verið ætlað að lyfta lóðum til að styrkja barm sinn. Hjónabands- sæla Dr. Phils EINKALÍFIÐ AFP Framtíðin ráðin Oprah Winfrey fékk Dr. Phil til að koma reglulega fram í sjónvarpsþáttum sínum. Eru lausnir Dr. Phils, sem millj- ónir manna kok- gleypa, í besta falli eldhús- krókasálfræði?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.