Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Nýverið ákvað sjúkrasjóður Verk-
fræðingafélags Íslands að greiða 2/3
hluta kostnaðar við offituaðgerðir
tveggja félagsmanna í félaginu sem
gerðar voru á einkastofu. Ekki er
vitað til þess að stéttarfélag hér á
landi hafi tekið svo mikinn þátt í
kostnaði við slíka aðgerð áður. For-
svarsmenn sjúkrasjóða nokkurra
stéttarfélaga sem rætt var við segja
félögin ekki taka þátt í þessum
kostnaði. Læknir sem framkvæmir
aðgerðir sem þessar segir að
Sjúkratryggingar hafni kostnaðar-
þátttöku á þeirri forsendu að fjár-
veitingu skorti. Forstjóri Sjúkra-
trygginga Íslands segir að greiðslu-
þáttttaka SÍ í þessum aðgerðum
gæti verið réttlætanleg með tilliti til
þess kostnaðar sem af geti hlotist
fari fólk ekki í aðgerðina. En það sé
stjórnvalda að ákveða hvað sé niður-
greitt og hvað ekki. Farið hafi verið
fram á þátttöku í kostnaði við eftir-
meðferð slíkrar aðgerðar, en þar
sem heilbrigðisráðuneytið hafi tekið
þá afstöðu að SÍ greiði ekki slíkar
aðgerðir, hafi þeirri beiðni verið
hafnað.
Árni Björn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Verkfræðingafélags-
ins, segir að nokkrir félagsmenn hafi
sótt um að sjúkrasjóðurinn taki þátt
í kostnaði við þessar aðgerðir. „En
eftir því sem ég best veit hafa tvær
umsóknir verið samþykktar,“ segir
Árni. Hann segir að stjórn sjóðsins
hafi kallað eftir mati læknis á því
hvort um væri að ræða aðgerð, sem
myndi bæta heilsufar viðkomandi.
„Út úr því mati kom að þetta væri
sannarlega heilsufarsvandamál, að
aðgerðin myndi bæta heilsu viðkom-
andi félagsmanna verulega og að
þetta væri ekki fegrunaraðgerð,“
segir Árni.
Borgar sig upp á tveimur árum
Aðalsteinn Arnarson skurðlæknir
gerir offituaðgerðir, sem einnig eru
kallaðar efnaskiptaaðgerðir, á Land-
spítala og á heilsumiðstöðinni Klín-
íkinni. „Flestir sem fara í þessar að-
gerðir eru með efnaskiptasjúkdóma
sem læknast við að fara í aðgerð sem
þessa,“ segir Aðalsteinn. Þar á hann
við sjúkdóma eins og sykursýki 2, en
hann segir að ávinningurinn af að-
gerðinni sé m.a. sá að líkaminn fari
strax eftir aðgerð að starfa öðruvísi
og að þá þurfi fólk oft ekki að taka
lyf lengur.
Hann segir að ekki hafi verið
gerðar rannsóknir hér á landi á þjóð-
hagslegum ávinningi offitu- eða
efnaskiptaaðgerða, en segir að er-
lendar rannsóknir sýni að aðgerð-
irnar borgi sig upp á tveimur árum
þegar litið sé til kostnaðar vegna
niðurgreiðslna lyfja- og læknis-
kostnaðar. „Því til viðbótar kemur
allur sá ávinningur sem fólk nýtur af
því að fara í svona aðgerð. Til dæmis
lifir fólk í yfirþyngd að meðaltali átta
árum skemur en aðrir og vinnur þau
ár til baka eftir þessa aðgerð. Þann-
ig að það er til mikils að vinna,“ segir
Aðalsteinn.
Óvíst um fjölda aðgerða
Um er að ræða tvenns konar að-
gerðir. Annars vegar hjáveituað-
gerðir, sem gerðar hafa verið hér á
landi í mörg ár en þar fer maturinn
framhjá maganum og beint niður í
smágirnið. Aðalsteinn segist ráð-
leggja þá aðgerð í alvarlegri til-
vikum. Hins vegar er svokölluð ermi
sem er einfaldari í framkvæmd, en
þar er hluti magans fjarlægður. Að
sögn Aðalsteins er ekki vitað um
hversu margir Íslendingar hafa farið
í aðgerðir sem þessar og það sé
vegna þess að þær eru fram-
kvæmdar bæði á Landspítala og
einkareknum stofum eins og Klíník-
inni og að auki viti hann til þess að
nokkrir tugir Íslendinga fari á
hverju ári til Tékklands og Litháens
í þessar aðgerðir því þar séu þær
talsvert ódýrari en hér á landi. „Þeir
sem fara í aðgerðirnar á Landspítala
fá það niðurgreitt frá ríkinu. Ég hef í
tvígang sótt um þátttöku SÍ á að-
gerðum, sem ég hef gert á Klíník-
inni, en verið neitað og fengið þau
svör að ekki sé til fjárveiting fyrir
þessu. Í því ljósi er áhugavert og lýs-
ir framsýni að mínu mati að stétt-
arfélag sé að greiða fyrir aðgerðina
að miklu leyti og ég hef frétt að
nokkur stéttarfélög hafi styrkt fólk
um 150-200.000 krónur til að fara í
svona aðgerðir.“ Aðalsteinn segir að
undanfarin ár hafi verið gerðar um
30 aðgerðir af þessu tagi á Landspít-
alannum. „Þörfin hér á landi hefur
ekki verið metin en ef miðað er við
holdafar Íslendinga og stöðuna í ná-
grannalöndunum þá má áætla að
hún sé um 300 aðgerðir á ári.“
2-3 ára bið á Landspítala
Aðalsteinn segir að þeir sem starfi
að þessum aðgerðum á Landspítala
hafi fullan hug á að fjölga þeim, en
það sé erfitt í framkvæmd því að þar
sé takmarkað aðgengi að bæði
skurðstofum og leguplássum. „Þeg-
ar allt ferlið er tekið með í reikning-
inn, þá er biðtími eftir þessum að-
gerðum á Landspítala 2-3 ár.“
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands, segir að SÍ
taki ekki þátt í kostnaði við aðgerðir
utan sjúkrahúsa. Ekki hafi því kom-
ið inn á borð stofnunarinnar að það
hafi þurft að meta hvort þessar að-
gerðir séu gagnreynd læknis-
meðferð eða ekki en að fagaðilar inn-
an SÍ hafi haft hug á að skoða
þátttöku í þessum aðgerðum. Spurð-
ur hvort þessi ákvörðun sjúkrasjóðs
Verkfræðingafélagsins, um að
greiða að hluta til kostnað við offitu-
aðgerðir félagsmanna félagsins,
muni koma til með að hafa einhver
áhrif á afstöðu SÍ, segir Steingrímur
Ari að það myndi a.m.k. ekki gerast
sjálfkrafa.
Ákvörðun stjórnvalda, ekki SÍ
„Greiðsluþátttaka í þessum að-
gerðum gæti verið réttlætanleg með
tilliti til lækna- og lyfjakostnaðar
sem fólk þarf að bera ef það fer ekki
í aðgerðina. En það er stjórnvalda á
hverjum tíma að ákveða hvað fellur
undir sjúkratryggingar og hvað
ekki. Nú er það afstaða heilbrigðis-
ráðuneytisins að ekki sé svigrúm til
að semja um nýjar aðgerðir m.a.
vegna þess að lækniskostnaður sjálf-
stætt starfandi lækna væri umfram
fjárheimildir. Með hliðsjón af því og
þar sem offituaðgerðir eru fram-
kvæmdar á Landspítalanum hafa SÍ
haldið að sér höndum og hvorki ráð-
ist í kostnaðargreiningu né mat á ár-
angri nýju aðgerðanna.“
Félagið borgaði offituaðgerðir
Verkfræðingafélagið greiddi 2/3 hluta kostnaðar tveggja félagsmanna við offituaðgerðir á einka-
stofu Mat lækna að um væri að ræða mikla heilsufarsbót Sjúkratryggingar greiða ekki niður
Ljósmynd/Klíníkin
Offituaðgerð Talsvert er um að fólk sæki um til stéttarfélaga sinna að taka þátt í kostnaði við offitu- eða efna-
skiptaaðgerðir. Verkfræðingafélagið greiddi nýverið 2/3 hluta kostnaðar tveggja félagsmanna við slíkar aðgerðir.
Talsvert er um að félagsmenn
BSRB sæki um að sjúkrasjóður
félagsins taki þátt í kostnaði við
offituaðgerðir. Þetta segir Ólaf-
ur B. Andrésson, framkvæmda-
stjóri sjóðsins. „Við borgum
ekki magabandsaðgerðir eða
aðrar dýrari læknisaðgerðir,“
segir Ólafur.
Hann segir að undanfarin ár
hafi nokkrir á hverju ári sótt um
greiðsluþátttöku sjóðsins í að-
gerðum sem þessum. „Það er
alls ekki óalgengt að við fáum
beiðnir um þetta og það hefur
verið að aukast undanfarin ár,“
segir Ólafur.
Samkvæmt upplýsingum frá
BHM tekur sjúkrasjóður félags-
ins ekki þátt í greiðslum fé-
lagsmanna sinna fyrir læknis-
kostnað og aðgerðir og það nær
yfir þessa tegund aðgerða.
Nokkuð er um fyrirspurnir og
umsóknir til félagsins vegna
þessa, t.d. hafa tvær slíkar kom-
ið inn á borð sjúkrasjóðsins síð-
an í haust.
Talsvert um
umsóknir
OFFITUAÐGERÐIR
SÖLUAÐILAR
Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 | Gullúrið Mjódd s: 587-410 | Meba Kringlunni s: 553-1199
Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900 | Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320 | Meba Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 | Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333