Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 73
útskrifaðist úr skúlptúrdeild 1995: „Þá var eg byrjuð að vinna við að smíða og mála leikmyndir hjá Sviðs- myndum ehf. sem var ótrúlega skemmtilegur vinnustaður.“ Unnur flutti í Fellabæ á Héraði rétt fyrir aldamótin og kenndi þar í afleysingum. Hún vann sjálfstætt við hönnun í nokkur ár og við það að gera upp húsgögn, setti upp sýningu Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði, Náttúrugripasafnið í Neskaupstað, Safn Jósafats Hinrikssonar í Nes- kaupstað, kom að fleiri söfnum, sýn- ingum og leikmyndum fyrir áhuga- leikhús og málaði leikmyndir fyrir bíómyndir, s.s. Beowulf and Gren- del, Kaldaljós og Köld slóð. Unnur kynntist eiginmanninum 2007 og flutti á Fáskrúðsfjörð 2008. Hún kenndi listir í Grunnskóla Reyðarfjarðar, hóf þá kennslurétt- indanám við HA og útskrifaðist 2010 með kennsluréttindi í listgreinum, kennir enn við Grunnskóla Reyðar- fjarðar og kennir á námskeiðum. Eiginmaðurinn kynnti Unni fyrir mótorhjólaheiminum: „Saman höf- um við ferðast til 30-40 landa í fjór- um heimsálfum. Lengsta ferðalagið stóð í fimm mánuði árið 2014, um lönd eins og Mongólíu, Tajikistan, Kyrgistan og Úsbekistan. Um þessa ferð gerðum við bókina Vegabréf, vísakort og lyklar að hjólinu sem kom út árið 2015. Unnur hefur verið heilluð af áhugaleikhúsi í sinni fjölbreyttu mynd frá því í barnaskóla: „Þar hef ég leikið, leikstýrt, skrifað leikrit, farðað, hannað, smíðað og málað leikmyndir, teiknað leikskrár og búið til leikmuni. Ég hef einnig verið bókaormur frá því ég lærði að lesa, náttúruunnandi og útivistarmanneskja, elska að skapa nýja rétti í eldhúsinu mínu, klappa kettinum og ganga með hundinn. Nýt þess að ferðast og skoða nýja staði á mótorhjólinu, hús- bílnum eða á reiðhjólinu, eða vinna í garðinum og hanna nýtt landslag.“ Fjölskylda Eiginmaður Unnar er Högni Páll Harðarson, f. 22.12. 1964, vél- og við- skiptafræðingur, lífskúnstner og mótorhjólaferðalangur og starfar hjá Alcoa Fjarðaáli. Foreldrar hans: Stefanía María Hávarðsdóttir, f. 22.4. 1943 húsfreyja, og Hörður Helgi Gilsberg, f. 22.5. 1945, fyrrv. bóndi og verkamaður. Þau búa í Reykholti í Biskupstungum. Fyrri menn Unnar: Ármann Ein- arsson, f. 28.8. 1965, tónlistarmaður, tónlistarkennari og atvinnudansari, og Þráinn Sigvaldason, f. 21.6. 1970, kennari. Synir Unnar eru Pétur Ármanns- son, f. 20.6. 1987, leikari og leikstjóri, búsettur í Amsterdam, kvæntur Brogan Jayne Davison, dansara, danshöfundi og sviðslistakonu, í MA- námi í sviðslistum; Jónatan Leó Þrá- insson, f. 8.8. 2000, menntaskóla- nemi, og Ísak Högnason, f. 17.11. 1999, menntaskólanemi. Systkini Unnar: Petra Sveins- dóttir, f. 3.9. 1970, starfar hjá Fjarðabyggð og býr í Helgustaða- hreppi í Eskifirði, og Þorvaldur Haf- þór Sigurjónsson, f. 20.12. 1976, býr í Noregi með fjölskyldu sinni. Foreldrar Unnar eru Sveinn Lár- us Jónsson, f. 28.11. 1949, fyrrv. sjó- maður, og Þórunn Björg Péturs- dóttir, f. 22.1. 1948, fyrrv. verslunar- kona. Þau eru hamingjusamlega gift og búa á Stöðvarfirði. Unnur Sveinsdóttir Jónína Sigurbjörg Eiríksdóttir húsfr. í Tóarseli Guðjón Jónsson b. í Tóarseli Borghildur Guðjónsdóttir húsfr. í Tóarseli Pétur Arnbjörn Guðmundsson b. í Tóarseli í Breiðdal Þórunn Björg Pétursdóttir sveitastelpa og fyrrv. verslunark. á Stöðvarfirði Þórunn Ragnheiður Jónsdóttir húsfr. á Streiti Guðmundur Pétursson b., vitav. og landpóstur á Streiti í Breiðdal Guðmundur Guðjónsson hárskeri í Rvík Sigurjón Geir Pétursson b. í Tóarseli Björgólfur Sveinsson verkstjóri og sveitarstjm. á Stöðvarfirði Kolbrún Björgólfsdóttir (Kogga) leirlistakona Rannveig Ingimundardóttir húsfr. í Rvík Ingimundur Sigfússon lögfr. og fyrrv. sendiherra Sigfús R. Sigfússon fyrrv. forstj. Heklu Ingimar Jónsson kennari á Stöðvarfirði Ívar Ingimarsson fyrrv. atvinnum. í knattspyrnu og starfar við ferðaþjónustu Halldór Óskar Pétursson b. í Engihlíð í Breiðdal Svanhvít Pétursdóttir húsfr. á Bæjarstöðum Sveinn Björgólfsson útvegsb. á Bæjarstöðum, af ætt Einars Sigurðssonar pr. og skálds í Heydölum Petra María Sveinsdóttir fiskverkak. og steinasafnari á Stöðvarfirði Jón L. Ingimundarson sjóm. á Stöðvarfirði Anna María Lúðvíksdóttir húsfr. á Karlsstöðum, af ætt Hans Jónatans, frá Jómfrúareyjaklasanum, sonar landshöfðingjans þar, Heinrich L. Ernst von Schimmelmans, af dönskum aðalsættum Ingimundur Sveinsson húsgagnasmiður á Karlsstöðum og við Djúpavog Úr frændgarði Unnar Sveinsdóttur Sveinn Lárus Jónsson veiðim., náttúrubarn og fyrrv. sjóm. á Stöðvarfirði ÍSLENDINGAR 73 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 SVEFNFLÖTUR 140x200 cm - kr. 119.900 SKEMILL 70x70 cm - kr. 34.900 TILBOÐ kr. 99.900 RECAST SVEFNSÓFI Þorvarður Kjerúlf Þorsteinssonfæddist á Egilsstöðum 24.11.1917. Foreldrar hans voru Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa í Hermes á Reyðarfirði, og Sigríður Þorvarðar- dóttir Kjerúlf, húsfreyja í Hermes. Þorsteinn var sonur Jóns Bergs- sonar, bónda, kaupmanns, pósts- og símstöðvarstjóra og loks kaupfélags- stjóra á Egilsstöðum, og k.h., Mar- grétar Pétursdóttur húsfreyju. Sigríður var dóttir Þorvarðar Andréssonar Kjerúlf, læknis og alþingismanns á Ormarsstöðum í Fellum, og s.k.h., Guðríðar Ólafs- dóttur Hjaltested húsfreyju. Seinni maður hennar og stjúpfaðir Sigríðar var Magnús Blöndal Jónsson, prestur í Vallanesi. Þorvarður var bróðir Þorgeirs, lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli, föður Herdísar fyrrverandi forseta- frambjóðanda, og bróðir Jóns, föður Eiríks Jónssonar fjölmiðlamanns. Fyrri kona Þorvarðar var Anna Einarsdóttir og eignuðust þau Ein- ar, Sigríði, Margréti, Guðbjörgu Önnu og Þorstein. Seinni kona Þor- varðar var Magdalena Ólafsdóttir Thoroddsen, blaðamaður og rit- stjóri, og eignuðust þau Ólínu og Halldóru Jóhönnu. Dóttir Þorvarðar og Ólafíu Þorvaldsdóttur er Dag- björt Þyri. Þorvarður lauk stúdentsprófi frá MA 1938, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1944 og fékk hdl-réttindi 1950. Hann hóf störf í atvinnu- og samgöngumálaráðuneytinu 1944, varð fulltrúi þar 1946 og deildar- stjóri 1971 og starfrækti lögmanns- stofu í Reykjavík um skeið samhliða störfum í ráðuneytinu. Þorvarður var bæjarfógeti og sýslumaður á Ísafirði 1973-83 er hann baðst lausn- ar af heilsufarsástæðum. Um Þor- varð segir Ármann Snævarr í minn- ingargrein: „Hann var að eðlisfari og öllu geðslagi friðsamur maður, ró- lyndur og æðrulaus, þótt á móti blési, maður með ríka réttlætis- kennd, tryggur og góður félagi, hreinlyndur og hreinskiptinn.“ Þorvarður lést 31.8. 1983. Merkir Íslendingar Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson 90 ára Jóna Sveinsdóttir 85 ára Guðbjörg Ágústsdóttir Jón Oddur Brynjólfsson Pétur Lúðvík Marteinsson 80 ára Ester Grímsdóttir Hálfdán Helgason Svanhildur Á. Ásgeirsdóttir 75 ára Ásbjörn Sveinsson Gísli Einar Gunnarsson Júníus Pálsson Kristný Pétursdóttir Sveinn Þ. Jónsson 70 ára Guðrún Þóra Halldórsdóttir Jóhanna Gunnlaugsdóttir Jóhanna Ólafsdóttir Sigríður Héðinsdóttir Steinunn Hermannsdóttir Þórhildur S. Valdemarsdóttir Þórólfur Gíslason 60 ára Anna Linda Steinólfsdóttir Birgir Geir Valgeirsson Björn Geir Leifsson Ingunn Bjarnadóttir Jakob Þorsteinsson Jan Sosnicki María G. Halldórsdóttir Sigurjón Sveinbjörnsson 50 ára Ásgrímur Ágústsson Egill Jónsson Evelyn Septimo Patriarca Guðrún K. Björnsdóttir Hafdís Hallgrímsdóttir Helga Bryndís Jónsdóttir Hlynur Halldórsson Hrólfur Eggert Pétursson Malgorzata Ruszkowska Matthildur Ingólfsdóttir Mirna Saliba Ragnar Stefánsson Sverrir Gunnar Pálmason Unnur Sveinsdóttir Viðar Ævarsson 40 ára Agnieszka Hilla Anna Rún Gylfadóttir Baldvin Jón Hallgrímsson Bryndís Nielsen Brynhildur Birgisdóttir Dainis Silins Elísabet Rósa Leifsdóttir Ingunn Vilhjálmsdóttir Linda Kristín Sveinsdóttir Maria G. Varon Espada Monique Vala K. Ólafsson Orri Gunnarsson Sigrún K. Guðrúnardóttir Tryggvi Már Meldal 30 ára Andri Snær Njarðarson Arnar Guðmundsson Áslaug Karlsdóttir Deimantas Zuoza Hafsteinn Magnússon Jóhann Ingi Sævarsson Kamila M. Garczynska Katarzyna Jadwiga Staszek Kristófer S. Einarsson Lukas Vadisius Róbert Ragnarsson Samúel Albert William Ólafsson Sigurdís J. Brynjólfsdóttir Sævar Páll Stefánsson Ulla Kristina Mclean Til hamingju með daginn 30 ára Rakel ólst upp í Reykjavík, býr þar og er stuðningsfulltrúi í Dal- skóla. Maki: Magnús Mar Vign- isson, f. 1989, löggiltur endurskoðandi hjá PWC. Synir: Aron, f. 2006; Jón Tómas, f. 2008, og Mikael Enok, f. 2011. Stjúpdóttir: Birgitta Líf, f. 2009. Foreldrar: Guðrún Egg- ertsdóttir, f. 1964, og Jón Viðar Óskarsson, f. 1961. Þau búa í Reykjavík. Rakel Jónsdóttir 30 ára Anna Gréta ólst upp á Akureyri, býr á Álftanesi og er nagla- og förðunarfræðingur. Maki: Daníel Þór Guð- jónsson, f. 1986, starfar við bílaréttingar og sprautun. Börn: Indíana Mist, f. 2005; Tinna Ýr, f. 2008, og Jökull Leví, f. 2016. Foreldrar: Auður Eiðs- dóttir, f. 1957, og Sveinn Eyjólfur Benediktsson, f. 1958. Anna Gréta Sveinsdóttir 40 ára Sigurður ólst upp á Hvammstanga, lauk sveinsprófi í húsasmíði og MSc-prófi í búvísindum og er bóndi og oddviti í Holti í Þistilfirði. Maki: Hildur Stefánsdóttir, f. 1979, bóndi., Börn: Stefán Pétur, f. 2003; Ólafur Ingvi, f. 2005, og Ása Margrét, f. 2009. Foreldrar: Guðmundur Sigurðss., f. 1955, og Sól- ey Ólafsd, f. 1954, d. 2012. Sigurður Þór Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.