Morgunblaðið - 24.11.2017, Side 38
38 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Einfaldlega
hollt og gott
snakk 24. nóvember 2017Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 103.31 103.81 103.56
Sterlingspund 136.85 137.51 137.18
Kanadadalur 80.87 81.35 81.11
Dönsk króna 16.306 16.402 16.354
Norsk króna 12.587 12.661 12.624
Sænsk króna 12.277 12.349 12.313
Svissn. franki 104.37 104.95 104.66
Japanskt jen 0.9214 0.9268 0.9241
SDR 145.67 146.53 146.1
Evra 121.36 122.04 121.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.0715
Hrávöruverð
Gull 1283.95 ($/únsa)
Ál 2084.5 ($/tonn) LME
Hráolía 62.78 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Eins og ViðskiptaMogginn greindi
frá í gær þá mun nýtt evrópskt
regluverk um markaði fyrir fjár-
málagerninga,
MiFID 2, (e.
Markets in Fin-
ancial Instru-
ments Directive)
taka gildi í lönd-
um Evrópusam-
bandsins 3. jan-
úar næstkomandi
eftir sex ára und-
irbúning. Hér á
landi er þó ekki
von á löggjöf um málið fyrir en vor-
ið 2019, en um haustið það ár er
stefnt að gildistöku reglnanna.
Skýrsluskil og gegnsæi
Margrét Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri eignastýringar Arion
banka, segir að þó að enn sé nokkuð
í að reglurnar taki gildi hér á landi,
þá sé bankanum, eins og öðrum
fjármálafyrirtækjum, skylt, sam-
kvæmt fyrirmælum Fjármálaeftir-
litsins, að taka hluta af reglugerð-
inni í gildi strax 3. janúar nk.
„Þessar reglur varða skýrsluskil til
eftirlitsaðila og snúa að gegnsæi í
viðskiptum með fjármálagerninga,“
segir Margrét í samtali við Morg-
unblaðið.
Meðal þeirra upplýsinga sem
gerð verður krafa um nú eru upp-
lýsingar um mótaðila í viðskiptun-
um, hverjir eigi viðskiptin og frá
hvaða landi aðilar í viðskiptum eru.
„Það er sem sagt verið að óska eftir
mun meiri upplýsingum um hver og
ein viðskipti til að bæta hegðun á
markaði og auka rekjanleika.“
Hún segir að meðal þess sem
breytist sé að tekið verði í gagnið
einkvæmt númer fyrir alla fjárfesta
sem séu lögaðilar, en númerið verð-
ur samræmt um alla Evrópu.
„Þannig verður auðveldara að rekja
viðskipti á milli landa. Þetta er
nokkuð sem almenningur verður
samt lítið var við.“
Mikill undirbúningur
Margrét segir að mikil undirbún-
ingsvinna hafi nú þegar farið fram
innan Arion banka. „Við erum búin
að kortleggja hvaða áhrif þetta hef-
ur, og hvaða kröfur eru gerðar á
okkur og viðskiptavini okkar. Við
viljum líta jákvætt á þetta, og leggj-
um áherslu á að skoða hvernig þetta
aukna regluverk geti bætt þjón-
ustuna við viðskiptavinina, og
hvernig hægt sé að hjálpa þeim að
taka enn betri ákvarðanir varðandi
fjárfestingar í verðbréfum.“
Spurð að því hvort reglurnar hafi
ekki í för með sér aukinn kostnað
fyrir bankann, segir Margrét að það
sé fyrirséð, enda séu kröfurnar sem
þurfi að uppfylla ekkert minni hér á
landi en erlendis á stærri mörkuð-
um. „Við reynum að gera þetta eins
hagkvæmt og við getum. Almennt
er talið að þetta sé með mestu
breytingum í löggjöf á evrópskum
verðbréfamarkaði í 20 ár. Jafnvel
lengur.“
Greint á síðustu tveimur árum
Í svari Landsbankans við spurn-
ingunni um hvernig bankinn hefði
hagað sínum undirbúningi fyrir inn-
leiðingu nýja regluverksins, segir að
bankinn hafi á undanförnum tveim-
ur árum unnið að greiningu á vænt-
anlegum áhrifum nýja MiFID II
regluverksins á þjónustu og starf-
semi bankans á sviði verðbréfavið-
skipta. „Í þeirri vinnu hefur meg-
ináhersla verið lögð á auknar kröfur
um fjárfestavernd, þ.m.t. flokkun
viðskiptavina, hæfismat, upplýs-
ingagjöf til viðskiptavina og afurða-
stjórnun. Þá hefur verið lagt mat á
áhrif nýju reglnanna á skipulags-
kröfur, gagnsæi og markaðsinn-
viði,“ segir í svari bankans.
Þá segir að ekki liggi fyrir hve-
nær eða hvernig nýju reglurnar
muni verða innleiddar í íslensk lög.
„Því er ljóst að innleiðing nýju
reglnanna hér á landi mun eiga sér
stað síðar en í flestum öðrum EES-
ríkjum.“
Fjármálafyrirtæki þurfa
að upplýsa mun meira
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gegnsæi Krafist verður m.a. upplýsinga um mótaðila í viðskiptum.
Evrópskt fjármálaregluverk tekur gildi um áramót Undirbúningur hafinn
MiFID 1
» Fyrsta kynslóð MiFID tók
gildi árið 2007 í Evrópusam-
bandinu og var MiFID I tilskip-
unin ásamt undirgerðum inn-
leidd í íslenskan rétt sama ár.
Margrét
Sveinsdóttir
STUTT
● Flugfélagið
Primera Air, sem er
í eigu Andra Más
Ingólfssonar,
hyggst hefja dag-
legt flug frá Birm-
ingham og London
til þriggja áfanga-
staða á Spáni í vor.
Þeir eru Mallorca,
Alicante og Malaga.
Áður hafði verið til-
kynnt að Primera Air mundi hefja flug til
New York og Boston frá nýjum bæki-
stöðvum sínum í Birmingham, London
og París frá byrjun apríl 2018, að því
fram kemur í tilkynningu frá félaginu.
Primera Air er áætlunarflugfélag sem
flýgur til yfir 70 flugvalla í Evrópu.
Félagið, sem er þekkt á sviði orlofsferða
á Norðurlöndunum, er með höfuð-
stöðvar í Danmörku og Lettlandi og er
hluti af Primera Travel Group.
helgivifill@mbl.is
Primera flýgur daglega
til Spánar frá Bretlandi
Andri Már
Ingólfsson
● Guðmundur Magnason, fram-
kvæmdastjóri netverslunarinnar Heim-
kaupa, lofar Íslandsmeti í vefverslun á
mánudaginn kemur en þá er svokall-
aður „Cyber Monday“.
Heimkaup.is eru komin í hóp 8.800
verslana í Euronics innkaupasamband-
inu, sem fær betra innkaupsverð hjá öll-
um stærstu framleiðendum raftækja í
heiminum, eins og segir í tilkynningu.
Guðmundur segir í samtali við Morgun-
blaðið að samstarfið auki samkeppni á
íslenskum raftækjamarkaði og lækki
vöruverð. „Fyrstu gámarnir eru komnir
til landsins og svo halda þeir áfram að
streyma. Við stefnum að því að vera
með á annað þúsund vörunúmer á lag-
er og bjóðum fría heimsendingu á öllum
pöntunum yfir 4.000 krónum, beint
heim að dyrum að kvöldi.“ tobj@mbl.is
Lofar Íslandsmeti í vefverslun á mánudaginn
Minnihluti íbúða, sem leigðar eru út
á Airbnb lengur en í 90 daga eða fyrir
meira en tvær milljónir króna á
þessu ári, er með tilskilin leyfi og
skráningu í samræmi við lög og regl-
ur. Þetta kemur fram í greiningu
hagdeildar Íbúðalánasjóðs. Þar segir
að minnst 1.400 Airbnb-íbúðir séu
rangt skráðar.
Fasteignagjöld vegna atvinnu-
húsnæðis eru mun hærri en fast-
eignagjöld af íbúðarhúsnæði í flest-
um sveitarfélögum. „Í Reykjavík
gætu tapaðar tekjur numið hátt í
milljarði króna á þessu ári ef miðað
við meðalfasteignamat,“ segir í
greiningunni.
Helga Árnadóttir, framkvæmd-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir við Morgunblaðið að ef nýting-
artölur Airbnb séu skoðaðar komi í
ljós að tekjurnar nemi um 16,7 millj-
örðum það sem af sé ári. „Erfitt að
átta sig á hvað þessi tala þýðir í sam-
hengi hlutanna, meirihluti þeirra
sem leigja út hefur ekki skráð sig og
skilar því væntanlega hvorki skött-
um né skyldum. Hér er ég að tala um
virðisaukaskatt af tekjum, gistinátta-
skatt, launakostnað sem ekki er gerð
grein fyrir, tryggingargjald og stað-
greiðsla. Svo má heldur ekki gleyma
ógreiddum iðgjöldum í lífeyrissjóði,“
segir hún. helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Airbnb Fjöldi íbúða er rangt skráður.
Reykjavík
verður af
milljarði
Tekjur af Airbnb
nema 17 milljörðum