Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 GMC Sierra Z71
Litur: Stone Blue Metallic, svartur að
innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga,
BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld
sæti og heithúðaður pallur, Z71 pakki,
kúla í palli og fleira.
VERÐ
9.990.000
2017 Ram Limited
Litur: Dökk rauður/svartur að innan.
6,7L Cummins,loftpúðafjöðrun, Aisin
sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld
sæti, hiti í stýri, sóllúga, RAM-box,
toppljós, heithúðaður pallur.
Ath. Aukahlutir á mynd: LED-bar.
Einnig til hvítur og svartur!
VERÐ
10.290.000
2016 Suburban LTZ
Keyrður 2000 km.
7 manna bíll, 4 kapteinsstólar. Með
sóllúgu, hiti í styri, loftkæld og hituð
sæti.
22” felgur. 5,3L V8, 355 hö.
VERÐ
13.870.000
2017 Chevrolet High Country
Litur: Graphite metal. 6.6L Duramax
Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
upphituð og loftkæld sæti og
heithúðaður pallur.
VERÐ
10.390.000
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Ég er í fjarnámi við Menntaskólann
á Ísafirði og stunda köfun inn á milli á
Hjalteyri sem er rétt fyrir utan Akur-
eyri,“ segir Anton spurður um hvað
hann fæst við dags daglega. „Ég fór
til Egyptalands og lærði að kafa og
hef verið í því síðan,“ bætir Anton við
sem er á námskeiði þessa dagana þar
sem hann lærir að kenna öðrum köf-
un. „Draumurinn er að verða köf-
unarþjálfari og atvinnukafari,“ segir
Anton sem segir að það geti orðið
ansi kalt að kafa við Ísland á þessum
árstíma.
Með tónlistina í eyrunum alla tíð
„Tónlistin hefur verið í eyrunum á
mér síðan ég fæddist. Reyndar aðal-
lega svona eldri tónlist, harmonikku-
tónlist,“ segir Anton kíminn. Hann
hefur undanfarið verið í samstarfi við
Vestfirðinginn Þormóð Einarsson
sem vakti athygli fyrr á árinu fyrir að
semja og framleiða lagið B.O.B.A.
sem er eitt vinsælasta lag ársins. Ant-
on semur textana og Þormóður lögin.
„Þetta er allt milli himins og jarðar,
nýja lagið mitt, One, er samið um ást-
arsorg þegar þú ert ungur,“ segir
Anton spurður um yrkisefnið en hann
verður pínu feiminn þegar hann er
spurður hvort textarnir séu byggðir á
eigin reynslu. Anton semur textana á
ensku og gerir það vegna þess að
hann vill horfa til útlanda með tónlist-
ina sína.
Hægt er að fylgjast þessum unga
og upprennandi tónlistarmanni á Fa-
cebook undir nafninu Anton og hlusta
nýja lagið hans á Spotify og YouTube.
Söngelskur Þingeyr-
ingur vekur athygli
Anton Líni Hreiðarsson er 19 ára gamall Þingeyringur sem er búsettur á Akureyri. Anton
hefur verið viðloðandi tónlist frá unga aldri. Hann hefur vakið athygli fyrir sönghæfileika
og lenti meðal annars í öðru sæti í söngkeppni Verkmenntaskólans á Akureyri í fyrra. Ant-
on semur lög og texta sjálfur og var að senda frá sér nýtt lag, One, á dögunum.
Efnilegur Anton Líni
Hreiðarsson er efnilegur
söngvarpi sem sendi frá
sér lagið One á dögunum.
Díva Söngdívan Regína Ósk mætti í íslenskri hönnun í jólaboðið.
Jólaboð á K100 alla aðventuna
Siggi Gunnars býður tónlistarfólki í jólaboð
í K100 Live Lounge alla aðventuna. Gestirnir
koma vopnaðir hljóðfærum, telja í nokkur
jólalög og ræða um heima og geima.
Þættirnir verða sendir út alla fimmtudaga fram að jólum kl. 11:30 í hljóði og
mynd á K100 og svo aðgengilegir á k100.is eftir á, þegar áhorfendum hentar.
Gestirnir verða úr öllum áttum en Eyþór Ingi verður fyrsti gesturinn nk.
fimmtudag. Einnig munu Svavar Knútur og Kristjana Stefáns koma fram,
hinn ungi og efnilegi Chase kemur í heimsókn með nýtt frumsamið jólalag og
júróvision- og jóladívan Regína Ósk lítur einnig inn. Aðventan er yfirleitt
mjög annasöm hjá tónlistarfólki sem spilar á tónleikum og jólaskemmtunum
um allt land. Því eru hátíðisdagarnir kærkomið frí eftir miklar annir. Fylgstu
með jólaboði K100 Live Lounge alla aðventuna.
Stjórnandi Siggi Gunnars
kemur fólki í jólaskap.