Morgunblaðið - 24.11.2017, Síða 72
72 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2017
Bryndís Nielsen, ráðgjafi hjá Athygli og einn af eigendum fé-lagsins, á 40 ára afmæli í dag. „Ég sinni fjölbreyttum verk-efnum sem snúa að samskiptaráðgjöf, svo sem fjölmiðla-
samskiptum, samfélagsmiðlaráðgjöf, krísustjórnun og alls kyns
greina- og skýrsluskrifum, svo fátt eitt sé nefnt.“
Bryndís er með BA-próf í sálfræði og kynjafræði og MA-próf í sjón-
rænni mannfræði frá Goldsmiths College í Lundúnum. Hún gekk til
liðs við Athygli árið 2007 en var áður kynningarstjóri Íslenska dans-
flokksins í tvö ár. Frá 2011-2014 starfaði Bryndís hjá Evrópustofu,
sem rekin var af Athygli á þeim tíma, sem upplýsingafulltrúi og síðar
framkvæmdastýra.
Áhugamál Bryndísar eru meðal annars lestur góðra bóka og að
hitta vini. „Ég er nýbyrjuð að lesa bókina Norse Mythology eftir Neil
Gaiman, en ég hef meðal annars gaman af vísindaskáldskap og
fantasíum.“ Þess má geta að þessi bók Gaimans er nýkomin út í
íslenskri þýðingu og nefnist Norrænar goðsagnir þar sem hann
endursegir goðsögur okkar og bætir við þær.
Bryndís er í sambúð með Viðari Inga Péturssyni, markaðsfulltrúa
hjá Fréttablaðinu, börn þeirra eru Sóley Hulda þriggja ára, Kristján
eins árs og Steinn Andri, stjúpsonur hennar, fæddur 1997.
Bryndís ætlar að njóta dagsins í faðmi vina og ættingja en efnir
ekki til stórrar veislu. „Ég tek fertugsafmælisfrí í vinnunni og býð
gestum heim í kaffi um helgina.“
Með börnunum Sóley, Kristján og Bryndís á góðri stundu í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum síðastliðið sumar.
Les nýja bók um
norrænar goðsagnir
Bryndís Nielsen er fertug í dag
U
Unnur Sveinsdóttir
fæddist á Egils-
stöðum 24.11. 1967 og
ólst upp í náttúrufeg-
urðinni á Stöðvarfirði:
„Móðurafi og amma bjuggu í Tóar-
seli í Breiðdal og þar var ég öllum
þeim stundum sem ég komst upp
með, náði í skottið á sveitasímanum
og fylgdist með þegar rafmagn var
lagt í dalinn. Föðurafi, Nenni, dó 52
ára en Petra, föðuramma mín, bjó
áfram í næsta nágrenni við okkur.
Steinasafn hennar er landsþekkt og
var hluti af mínum heimi.
Við, krakkarnir á Stöðvarfirði,
vorum hálfgerð villibörn: úti allan
daginn, niðri í fjöru, úti á sjó, uppi í
fjalli, í blóðugum bardögum milli
innbæinga og útbæinga, þeystumst
á vélsleða upp um allar brekkur eða
grófum heilu kastalana úr snjó að
vetrinum. Þá var ekkert sjónvarp á
fimmtudögum, eða í júlímánuði, eng-
ar tölvur, ekki heldur snjallsímar, en
fyrsti heimasíminn var með sveif
sem maður snéri og náði þá sam-
bandi við símstöðina, bað um
„mömmu“ og fékk samband við
réttu mömmuna í vinnunni“.
Frá því fyrir fermingu vann Unn-
ur við saltfiskverkun í Hraðfrysti-
húsi Stöðvarfjarðar og mátaði sig
aðeins við sjómennsku á togurum.
Hún var tvo vetur við Eiðaskóla,
lauk bóknámi í húsgagnasmíði við
Verkmenntaskóla Austurlands,
stundaði nám við Menntaskólann á
Egilsstöðum, hóf nám í Myndlista-
og handíðaskóla Íslands 1991 og
Unnur Sveinsdóttir, kennari, hönnuður og rithöfundur – 50 ára
Afmælisbarnið Unnur gælir við broddgölt í Tékklandi í einni af sínum fjölmörgu mótorhjólaferðum um heiminn.
Mótorhjólaflakkari og
áhugaleikhúskona
Hjónin Unnur og Högni Páll stödd í Ak-Baital skarði í Tajikistan.
Reykjavík Emilíana Dís fæddist 24. nóvember 2016 og á því eins árs afmæli í
dag. Hún vó 3.490 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Gunnar Einarsson
og Ásdís Þorgilsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
!
"#$-
! "%$ !&$
Kolibri penslar
'("&$ )* +&
/# "#$3 /" #$ !&$
4) & !
!
7 :
Strigar frá kr. 195
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is