Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 92

Morgunblaðið - 24.11.2017, Qupperneq 92
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 328. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. Kornið sem fyllti mælinn 2. Íslensk kona er ósátt eftir lýta … 3. Veittust að barni í bíl 4. Telur Geir í raun ekki hafa tapað »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sara Blandon heiðrar minningu nokkurra af stærstu nöfnum djassins sem hefðu orðið 100 ára í ár á tón- leikum í Gerðubergi í dag kl. 12.15 og á morgun í Spönginni kl. 13.15. Sara fær til liðs við sig Andrés Þór á gítar og Leif Gunnarsson á kontrabassa og flytja þau lög eftir Ellu Fitzgerald, Thelonius Monk, Dizzy Gillespie og Tad Dameron. Aðgangur er ókeypis. Fagna 100 ára afmæli valinna djassstjarna  Sýning á mynd- ljóðum Óskars Árna Óskarssonar verður opnuð í Borgarbókasafn- inu í Kringlunni í dag kl. 16. Sýn- ingin var upp- haflega opnuð í safninu í Grófinni sl. haust og er haldin í tilefni af sér- stakri hátíðarútgáfu ljóðasafnsins Myndljóða sem kom út fyrr á árinu. Sýningin stendur út desember. Myndljóð Óskars Árna í Kringlunni Á laugardag Norðvestan 13-20 m/s og él NA-lands fram eftir degi, hvassast á annesjum, en lægir síðan og rofar til. Á sunnudag Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en skamm- vinn austanátt og dálítil snjókoma eða slydda SV-til um tíma. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur heldur úr vindi og ofankomu NV-til, en hvessir fyrir austan, 20-28 m/s þar seinni partinn. VEÐUR Áður en Íslandsmót karla í körfuknattleik hófst var þremur liðum spáð hvað bestu gengi og flestir voru á því að KR, Tindastóll og Grindavík væru þau lið sem væru líklegust til að berjast um þann stóra. Nú er rétt rúmur þriðjungur deildar- keppninnar að baki. Bene- dikt Guðmundsson, sér- fræðingur Morgunblaðsins, fer yfir stöðu mála á Ís- landsmóti karla. »2 Hafa spádómarnir í körfunni ræst? Undankeppni heimsmeistaramótsins hefst í dag hjá karlalandsliðinu í körfuknattleik þegar Ísland sækir Tékkland heim klukkan 17. Fjögur lið eru í riðli Íslands en það eru Finnland og Búlg- aría auk Tékk- lands. Þrjú lið komast áfram í milliriðla sem hefj- ast síðsumars 2018 eða eftir tæpt ár. »4 Baráttan um sæti á HM Kína er að hefjast „Þetta er búið að vera ótrúlegt ár,“ segir Vésteinn Hafsteinsson sem í fyrrakvöld var valinn frjálsíþrótta- þjálfari ársins í Svíþjóð. Vésteinn, sem þjálfað hefur fólk í kastgreinum um langt skeið, segir árangur hins 25 ára gamla Svía Daniels Ståhls standa upp úr hjá sínum lærlingum á árinu, enda átti Ståhl níunda lengsta kringlukast sögunnar. »1 Ótrúleg ár hjá þjálfara ársins í Svíþjóð ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á  Sinfóníuhljómsveit unga fólksins flytur hljómsveitarverkið Sprett eftir Tryggva M. Baldvinsson á tón- leikum í Langholtskirkju í kvöld kl. 20. Þá leikur Geirþrúður Anna Guð- mundsdóttir konsert fyrir selló og hljómsveit í D- dúr eftir Joseph Haydn og sveitin Sinfóníu nr. 3 eða Rínarsinfóníuna svokölluðu eftir Ro- bert Schumann. Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins á Sprett Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég heillaðist af boðskapnum í lög- um Leonards Cohens fyrir 10 árum. Cohen dó fyrir ári og mér fannst til- valið að heiðra tónlist hans og texta- smíð í sérstakri Cohen-messu,“ seg- ir Keith Reed, starfandi tónlistar- stjóri Ástjarnarkirkju fram á næsta vor Cohen-messan verður haldin í Ástjarnarkirkju á Völlunum í Hafn- arfirði á sunnudag kl. 17. Til stóð að Keith og Greta Salóme flyttu lög Cohens ásamt kór kirkj- unnar og hljómsveit. Greta forfall- aðist og mun Keith því syngja öll lögin með kórnum. Lögin verða öll sungin á ensku. Þorgils Hlynur Þor- bergsson sá um að þýða túlkun Keiths á textum Cohens og Arnar Jónsson leikari mun sjá um að koma þeim til skila á íslensku. Endurspegla leit mannsins „Lög Cohens og ljóð hafa haft áhrif á líf mitt síðastliðin 10 ár. Það er svo mikil andleg speki og dýpt í textum hans. Þeir endurspegla leit mannsins að ást í samböndum,“ seg- ir Keith og bætir við að Cohen hafi verið brotin persóna og hann túlki sannleikann sem hann hafi upplifað. „Það á vel við að spila tónlist Cohens í kirkju því þangað kemur fólk sem er að leita að dýpt og sann- leika. Cohen samdi um togstreitu í samböndum, leitina að sjálfum sér og þörfina fyrir að verða heill. Hann fjallaði líka um það hversu mikilvægt það væri að finna og viðurkenna eigin sök.“ Keith segir það áhugavert og heillandi að skoða texta Cohens út frá guðsorði og eig- in reynslu. „Síðastliðin tíu ár hef ég getað samsamað mig ljóðum Cohens. Þau breyttust eftir því sem hann varð eldri. Í ljóðum sínum var hann að fást við lífið sjálft; samband sitt við konur eða foreldra, fréttir líðandi stundar og hvaða afstöðu hann ætti að taka til samfélags- mála,“ segir Keith og bætir við að ljóð Cohens hafi hjálpað sér per- sónulega að takast á við ýmsar spurningar og skoða hvaða mann hann sjálfur hefði að geyma. Fyrir messu mun félag eldri borg- ara í Ástjarnarkirkju, í samvinnu við kór kirkjunnar, bjóða upp á vöfflur og taka á móti frjálsum framlögum til styrktar tónlistarsjóði Ástjarnar- kirkju. Arnór Bjarki Blomsterberg æskulýðsfulltrúi mun leiða Cohen- messuna. Textar Cohens henta kirkjum  Cohen-messa á sunnudaginn í Ástjarnarkirkju Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Cohen Keith Reed, kórstjóri í Ástjarnarkirkju, og Arnar Jónsson leikari undirbúa sig fyrir Cohen-messu í Ástjarn- arkirkju þar sem kórinn ásamt Keith og hljómsveit flytur lög Cohens. Arnar kynnir innihald laganna í messunni. Leonard Norman Cohen, söngv- ari, lagahöfundur og skáld, fæddist í Kanada 21. september 1934. Hann lést 82 ára hinn 7. nóvember 2016 í Kaliforníu. Cohen var eitt þekkt- asta skáld og tónlistar- maður heims. Textar hans þóttu djúpir líkt og rödd- in. Cohen fjallaði meðal annars um um trúmál, stjórnmál og samskipti. Cohen kom til Íslands og hélt tónleika í Laugardalshöll árið 1988. Plötur hans urðu 14, þar af voru þrjár gefnar út á síðustu fjórum árum lífs hans. Platan You Want it Darker kom út mán- uði fyrir andlát hans. Cohen samdi hið vinsæla lag Hallelujah sem gefið var út 1984, hann gerði 70 uppköst að texta lags- ins og það tók hann þrjú ár að klára lagið. Vinsælasta plata Co- hens var I’m Your man. Textar hans djúpir líkt og röddin HVER VAR LEONARD COHEN? Leonard Cohen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.