Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Í byrjun þessarar viku höfðu verið
tilkynnt 145 innbrot á höfuð-
borgarsvæðinu frá áramótum, þar af
90 í janúar og 55 það sem af er febr-
úar. Þetta er lítilsháttar aukning
miðað við fyrstu tvo mánuðina í fyrra
og verður hlutfallslega enn meiri þar
sem þessi febrúarmánuður er ekki
liðinn. Allan febrúar 2017 voru 49
innbrot tilkynnt.
Tölurnar ná yfir innbrot í heimili,
fyrirtæki, stofnanir og ökutæki. Þó
að tölfræði lögreglunnar bendi til
fjölgunar innbrota á síðustu vikum
er fjöldi innbrota enn töluvert langt
frá því sem tíðkaðist á árunum eftir
hrun. Þá náði árið 2009 algjörum
toppi, eða 2.883 innbrotum á höf-
uðborgarsvæðinu. Eftir það fækkaði
þessum afbrotum jafnt og þétt og
sama tala á síðasta ári var 895. Ef
þetta ár heldur hins vegar áfram
eins og janúar og febrúar þá stefnir í
talsverða aukningu miðað við síðasta
ár.
Fæst á Seltjarnarnesi
Á meðfylgjandi korti sést hvernig
þróunin hefur verið í einstaka hverf-
um og sveitarfélögum höfuðborgar-
svæðisins. Þróunin er í flestum til-
vikum nokkuð svipuð en þó sést að
tíðni innbrota er mun minni á Sel-
tjarnarnesi en öðrum svæðum. Inn-
brotum virðist vera að fjölga í Vest-
urbænum, Háaleitishverfi, Grafar-
vogi og Kópavogi en að fækka í
miðborg Reykjavíkur, Árbæ,
Grafarholti, Breiðholti og Hafn-
arfirði. Á öðrum svæðum hefur fjöldi
tilkynntra innbrota haldist svipaður.
Skipt eftir hverfisstöðvum lög-
reglunnar benda tölur þessa árs til
þess að byrjunin hafi verið kröftug í
Kópavogi, Grafarvogi og Hlíðum ef
mið er tekið af innbrotum síðasta árs
(sbr. súluritið).
Fylgir efnahagsástandinu
Rannveig Þórisdóttir, félags-
fræðingur og deildarstjóri hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu, seg-
ir þróun síðustu ára vissulega
athyglisverða. Fyrst og fremst sýni
hún að innbrot fylgi jafnan efnahags-
ástandinu hverju sinni og eftirspurn
eftir varningi. Það sé stóri hluti skýr-
ingarinnar en ekki sá eini.
„Á fyrstu árunum eftir hrun
hækkaði verðlag, markaður með not-
aða muni jókst og einnig hækkaði
hlutfall þeirra sem tilkynntu innbrot.
Það þótti meiri hagur af því að til-
kynna innbrot og þjófnað og fá
munina bætta. Fyrir hrun var það
hlutfall lægra. Í góðærinu tilkynntu
færri innbrot og það virtist ekki eins
mikill söknuður eftir hlutum sem
teknir voru. Sjálfsábyrgðin var há og
það kostaði til dæmis ekki mikið að
endurfjármagna reiðhjól ef það
hvarf af heimilinu,“ segir Rannveig.
Hún segir vísbendingar uppi um
að innbrotum sé að fjölga á ný, til
skamms tíma litið. Aukningin sé þó
óveruleg miðað við lengra tímabil,
enda hafi fjöldi innbrota sveiflast
töluvert á undanförnum árum. Þann-
ig hafi ríflega 2.000 innbrot verið til-
kynnt á höfuðborgarsvæðinu árið
2004, svipað og árið 2010.
Rannveig bendir einnig á að á
undanförnum árum hafi ferðamönn-
um fjölgað verulega, þeir verði einn-
ig fyrir innbrotum á hótelherbergi
og í bílaleigubíla.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu að undanförnu hefur lög-
reglan varað íbúa við skipulögðum
þjófagengjum sem hafa verið á ferli í
vissum hverfum. Þar hafa skart-
gripir og peningar aðallega horfið úr
svefnherbergjum fólks og minna
tekið af stærri raftækjum eins og
tölvum og sjónvörpum.
Rannveig segir þetta sýna að eftir-
spurn sé eftir gulli og silfri í undir-
heimum, sem og beinhörðum pen-
ingum. Eftir hrunið hafi svipuð staða
verið uppi varðandi peninga, þá hafi
margir geymt fjármuni sína heima
og ekki treyst bönkunum fyrir þeim.
Að sögn Rannveigar gengur lög-
reglunni ágætlega að upplýsa inn-
brotin og hlutfall upplýstra innbrota
sé mjög svipað hér á landi og í öðrum
löndum Evrópu.
Enn langt frá toppnum eftir hrun
Vísbendingar um að innbrotum á höfuðborgarsvæðinu sé að fjölga á ný Fjöldi innbrota þó langt
frá árunum eftir hrun Mismunandi þróun í einstökum hverfum Eftirspurn eftir gulli og silfri
Innbrot á höfuðborgarsvæðinu frá 2008 til 2017*
Höfuðborgarsvæðið
Árbær og
Grafarholt
Breiðholt Garðabær
og Álftanes
Grafarvogur Hafnar-
fjörður
Háaleiti Hlíðar Kópavogur Laugardalur Miðborg Mosfellsb.,
Kjalarn., Kjós
Sel-
tjarnarnes
Vesturbær
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
13 10
20
13 9 14
31
9
62
81
38
58 54 54
64
37
9
51
2017* Það sem af er 2018*
*Bráðabirgðatölur
Önnur svæði: 2017=2, 2018=1
6
110
169
106
7 5 3 4
Árbær og Grafarholt
300
250
200
150
100
50
0
2008 2011 2014 2017
160 62
Breiðholt
300
250
200
150
100
50
0
2008 2011 2014 2017
217
81
Garðabær og Álftanes
150
125
100
75
50
25
0
2008 2011 2014 2017
107
38
Grafarvogur
200
150
100
50
0
2008 2011 2014 2017
162
58
Hafnarfjörður
350
280
210
140
70
0
2008 2011 2014 2017
199 54
Háaleiti
150
125
100
75
50
25
0
2008 2011 2014 2017
96
110
Hlíðar
200
150
100
50
0
2008 2011 2014 2017
158
54
Kópavogur
400
300
200
100
0
2008 2011 2014 2017
234
169
Laugardalur
300
250
200
150
100
50
0
2008 2011 2014 2017
249 106
Miðborg
400
300
200
100
0
2008 2011 2014 2017
64
340
Mosfellsbær,
Kjalarnes og Kjós
150
125
100
75
50
25
0
2008 2011 2014 2017
103
37
Seltjarnarnes
20
15
10
5
0
2008 2011 2014 2017
9
20
Vesturbær
200
150
100
50
0
2008 2011 2014 2017
51
140
*Lokatölur fyrir öll ár nema
2017 og 2018 sem eru bráða-
birgðatölur. Heimild: Lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu.
Önnur svæði
100
75
50
25
0
2008 2011 2014 2017
10 2
Höfuðborgarsvæðið samtals
3000
2500
2000
1500
1000
500
0
2008 2011 2014 2017
895
2.185
2017 samtals: 895
Það sem af er 2018: 145
Morgunblaðið/Eggert
Innbrot Tölur lögreglunnar sýna að innbrotum er að fjölga á ný í vissum
hverfum. Fjöldinn er þó enn óverulegur miðað við fyrstu árin eftir hrun.
Nýr kjarasamningur var undirrit-
aður milli Flugfreyjufélags Íslands
og WOW air ehf. í fyrrinótt.
Kjarasamingurinn gildir til 29.
febrúar 2020. Atkvæðagreiðsla um
samninginn mun hefjast á næstu
dögum.
Flugfreyjur hjá flugfélaginu
WOW air hafa nú þegar fellt tvo
kjarasamninga. Orri Þrastarson,
varaformaður Flugfreyjufélags Ís-
lands, gat lítið tjáð sig um efni
samninganna á meðan atkvæða-
greiðsla stendur yfir en að sögn
hans í samtali við Morgunblaðið í
gær snerist ágreiningurinn sem
leystist með samkomulaginu í fyrri-
nótt að mestu leyti um yfirmenn um
borð.
Haft var eftir Orra á mbl.is í gær
að helsti munurinn á þessum samn-
ingi og hinum tveimur væri sá að
kjör yfirmanna um borð í flug-
vélum bötnuðu umtalsvert.
FFÍ og WOW air und-
irrita kjarasamning
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Ný sending af flottum yfirhöfnum Str.
38-58
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16
Tökum upp nýjar vörur
daglega
Kr. 6.990
Kr. 4.990