Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 83

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 83
Héraðsbúa á Egilsstöðum og naut þess að fara í útreiðartúra með afa- systur sinni, Unni Jónsdóttur. Eftir stúdentspróf stundaði Sig- ríður nám í Boston og síðan í Berl- ín þar sem hún lauk meistara- og doktorsprófi í heimspeki. Í dokt- orsnáminu var hún í rannsóknahópi sem tók þátt í útgáfu verka Frie- drich Nietzsches. Á námsárunun féll Berlínarmúrinn og þýsku ríkin sameinuðust á ný. Hún kynntist sameiningarferlinu af eigin raun er hún kenndi við háskólann í Rostock fyrstu árin eftir að hún lauk námi í upphafi tíunda áratugarins. Nem- endur hennar höfðu verið mótaðir og skólaðir í Austur-Þýskalandi og heimspekideildum háskólanna var umbreytt á örskömmum tíma úr því að vera deildir í marxískri- lenínískri heimspeki í almennar vestrænnar heimspekideildir. Sigríður varð lektor við heim- spekideild HÍ 1996 og flutti ári síð- ar heim. Hún hefur síðan sinnt kennslu og rannsóknum við HÍ, auk þess kennt við háskóla víða um heim og gegndi um skeið hinni virtu Erkko-prófessorstöðu við Há- skólann í Helsinki. Kynjahalli í heimspeki og fem- ínískar byltingar á Íslandi hafa haft mótandi áhrif á störf og við- fangsefni Sigríðar. Hún var fyrsti formaður jafnréttisnefndar HÍ og hefur verið formaður kynjanefndar heimssamtaka heimspekinnar (FISP) undanfarin ár. Heimsþing heimspekinnar sem haldið er fimmta hvert ár er undirbúið af FISP, og verður haldið nú í sumar í Peking. Áhugi Sigríðar á heim- speki og jafnréttismálum í hnatt- rænu samhengi varð henni einnig hvati að því að stofna, ásamt öðr- um, Alþjóðlega jafnréttisskólann, sem nú er starfræktur við HÍ sem Jafnréttisskóli Sameinuðu þjóð- anna, en Sigríður var fyrsti stjórn- arformaður skólans. Sigríður hefur einnig leitt sumarskóla um kyn og heimspeki í samstarfi við þrjár aðr- ar heimspekideildir á Norð- urlöndum, en skólarnir hafa verið styrktir af Erasmus-áætlun ESB og eru fjölsóttir víðsvegar að úr heiminum. Sigríður var virk í baráttunni gegn byggingu Kárahnjúkavirkj- unar, hefur ferðast um hálendið og fer með nemendur í umhverfiss- iðfræði í gönguferðir við jökla til að kynnast áhrifum loftslagsbreyt- inga. Undanfarin tíu ár hefur Sigríður lagt stund á sjósund og hefur tví- vegis orðið Íslandsmeistari í þeirri grein í sínum aldursflokki: „Kulda- kveif eins og ég má vera stolt af því. Þess utan nýt ég þess að ferðast, en dóttir okkar er læknir í Berlín og þangað liggur því leiðin oft. Fyrir þremur vikum, eða á 90. afmælisdegi móður minnar, eign- uðumst við Magnús, okkar fyrsta barnabarn, Heklu Lúísu. Það er vissulega tilefni til að fjölga enn ferðum til fjölskyldu og vina í Berl- ín.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar er Magnús Diðrik Baldursson, f. 21.7. 1959, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu HÍ. Dóttir Sigríðar og Magnúsar Diðriks er Elísabet Sigríðardóttir Magnúsdóttir, f. 23.5. 1986, læknir í Berlín en maður hennar er Chri- stoph Buller læknir og er dóttir þeirra Hekla Lúísa Christop- hsdóttir, f. 29.1. 2018. Systkini Sigríðar eru Herdís Þorgeirsdóttir, f. 18.2. 1954, lög- maður í Reykjavík; Þorsteinn Þor- geirsson, f. 17.9. 1955, ráðgjafi seðlabankastjóra, og Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, f. 17.7. 1960, heilsugæslulæknir í Reykjavík. Systir Sigríðar, samfeðra, er Katla Margrét Þorgeirsdóttir, f. 15.12. 1970, leikkona. Foreldrar Sigríðar: Herdís Tryggvadóttir, f. 29.1. 1928, hús- freyja sem sinnt hefur ýmsum mannúðarmálum, og Þorgeir Þor- steinsson, f. 28.8. 1929, d. 27.11. 2013, sýslumaður á Keflavík- urflugvelli. Sigríður Þorgeirsdóttir Margrét Pétursdóttir húsfreyja á Egilsstöðum Jón Bergsson bóndi á Egilsstöðum Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði Sigríður Kjerúlf Þorvarðardóttir húsfreyja í Hermes á Reyðarfirði Þorgeir Þorsteinsson lögreglustjóri og sýslumaður á Keflavíkurflugvelli Þorvarður Kjerúlf læknir á Ormarsstöðum í Fellum Guðríður Hjaltested húsfreyja í Vallanesi í S-Múl. Ófeigur Ófeigsson bóndi í Leiru Jóhanna Frímannsdóttir húsfreyja í Leiru og í Reykjavík Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður í Reykjavík Herdís Ásgeirsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ásgeir Þorsteinsson skipstjóri í Reykjavík Rannveig Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Úr frændgarði Sigríðar Þorgeirsdóttur Herdís Tryggvadóttir húsfreyja í Reykjavík og starfaði að mannúðarmálum ÍSLENDINGAR 83 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 VOR 2018 Jón Stefánsson fæddist á Sauð-árkróki 22.2. 1881. Hann varsonur Stefáns Jónssonar, verslunarstjóra á Sauðárkróki, og f.k.h., Ólafar Hallgrímsdóttur hús- freyju, dóttur Hallgríms, gullsmiðs á Akureyri Kristjánssonar. Jón var tvíkvæntur en átti börn með hvorugri konu sinni. Dóttir hans og Sigríðar Zoëga ljósmynd- ara: Bryndís, ekkja eftir Snæbjörn Jónasson vegamálastjóra. Jón lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1900, hóf verkfræðinám við Há- skólann í Kaupmannahöfn, lauk cand. phil.-prófi þar 1901 og las verkfræði í þrjú ár en sneri þá við blaðinu og einbeitti sér að málara- listinni. Hann stundaði myndlistar- nám við Teknisk Selskabs Skole 1903-1905, við einkaskóla Kristians Zahrtmann til 1908 og fór síðan til Parísar þar sem hann stundaði nám við einkaskóla Henri Matisse 1908- 1910. Jón var lengi búsettur erlendis, lengst af í Kaupmannahöfn, eða til 1937 og aftur 1937-46 er hann flutti alkominn heim. Jón tók þátt í fjölda samsýninga á Norðurlöndum en þó oftast í Charlottenborg. Hann hélt fyrst einkasýningu á Íslandi í sal KFUM í Reykjavík 1920 og hélt síð- an sjö einkasýningar hér á landi. En frá því hann lést hafa verið haldnar átta einka- og yfirlitssýningar á verkum hans hér á landi, flestar á vegum Listasafns Íslands. Mikið hefur verið skrifað um Jón, af höfundum á borð við Aðalstein Ingólfsson, Braga Ásgeirsson, Selmu Jónsdóttur og fleiri. Meg- inviðfangsefni Jóns var íslenskt landslag en hann málaði auk þess portrettmyndir og uppstillingar. Hann var undir sterkum áhrifum frá Cézanne og Matisse en stíll hans einkennist af strangri, rökrænni formfestu og samræmdri, hófsamri litameðferð. Jón var í hópi braut- ryðjenda íslenskrar myndlistar á 20. öld og helsti frumkvöðull módern- ismans í myndlist hér á landi. Jón lést 19.11. 1962. Merkir Íslendingar Jón Stefánsson 100 ára Snæbjörn Gíslason 90 ára Svava Berg Þorsteinsdóttir 85 ára Anna Guðleifsdóttir Friðbjörg Ragnarsdóttir Helgi Hallgrímsson Margrét Jónsdóttir Marsibil Guðrún A. Gunnarsdóttir 80 ára Sigríður Bjarnadóttir Sjöfn Ásbjörnsdóttir Sonja Ásbjarnardóttir 75 ára Ásbjörn Sigurgeirsson Jón Þórir Óskarsson Þórarinn Smári Steingrímsson 70 ára Elísabet Sigvaldadóttir Guðfinna Björk Helgadóttir Guðmundur S. Ingimarsson Guðný M. Magnúsdóttir Heiðdís Guðmundsdóttir Pétur R. Guðmundsson Sigrún Jóhannsdóttir Valdemar Olsen 60 ára Elín Bjarnadóttir Kristín Valsdóttir Pétur Jónsson Saifon Baophila Sigríður Þorgeirsdóttir 50 ára Birkir Pétursson Eygló B. Kristjánsdóttir Grzegorz Kurzatkowski Hildur Ruth Markúsdóttir Ingibjörg Elíasdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Jón Rúnar Arilíusson Justyna Skawinska Lilja Ingólfsdóttir Lolita Trinidad Advincula Magnús Guðjónsson Stefán Gunnar Svavarsson 40 ára Aðalsteinn Pétur Bjarkason Egill Þórðarson Finnur Eiríksson Guðjón Emilsson Guðlín Steinsdóttir Haraldur Yngvi Pétursson Ingimar Þór Theódórsson Joseph Stephen Compton Maciej Artur Nowicki Malgorzata Danuta Szopa Pimpernel Wernars Ronald Surban Fatalla Signý Magnúsdóttir Unndór Egill Jónsson 30 ára Agnes Þóra Árnadóttir Almar Dagur Arnarsson Arvydas Kyzikas Bára Bragadóttir Darlene Villareal Eggert Þorsteinsson Erlendur Halldór Durante Hildur Dís J. Scheving Hrafnhildur Magnúsdóttir Ingólfur Þórðarson Julio Esono Mba Katrína H. Þorvaldsdóttir Margrét Rós Einarsdóttir Ólafur Sigurðsson Sandra Baldursdóttir Sandra Tryggvadóttir Sigríður Erna Kristinsdóttir Smári Pálmarsson Stefán Þór Ákason Reykdal Zuzana Vondra Krupkova Til hamingju með daginn 30 ára Sigríður býr á Sel- fossi, útskrifaðist frá Fjöl- brautaskóla Suðurlands árið 2008 og starfar hjá Fræðslunetinu á Selfossi. Systkini: Óttar Geir Kristinsson, f. 1978, og Birna Kristinsdóttir, f. 1983. Foreldrar: Bryndís Sum- arliðadóttir, f. 1955, starf- ar við Ráðhús Árborgar, og Kristinn Ásmundsson, f. 1955, rafvirki og skrif- stofumaður hjá Rarik. Sigríður Erna Kristinsdóttir 30 ára Hrafnhildur býr á Selfossi, lauk BA-prófi í arkitektúr og MA-prófi í heimspeki við HÍ og er í fæðingarorlofi. Maki: Jóhann Ólafur Sig- urðsson, f. 1986, mark- aðs- og fjölmiðlafulltrúi hjá KSÍ. Synir: Ingimar Bjartur, f. 2011, og Unnar Þeyr, f. 2017. Foreldrar: Magnús Sig- urðsson, f. 1959, og Brynja Ingadóttir, f. 1962. Hrafnhildur Magnúsdóttir 30 ára Hildur Dís býr í Mosfellsbæ, lauk BEd- prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ og er heimavinnandi sem stendur. Maki: Sturla Snær Magn- ússon, f. 1987, kerfisstjóri á Kex Hostel. Synir: Fáfnir Styr, og Fenrir Styr, f. 2014. Foreldrar: Jón Kristinn Gíslason, f. 1963, og Ing- unn Lára Hannesdóttir Scheving, f. 1966. Hildur Dís Jóns- dóttir Scheving
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.