Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 60

Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Borðhald má kalla farandveitinga- hús eða pop-up veitingahús. Menn- irnir á bak við borðhald eru þeir Kjartan Óli Guðmundsson, mat- reiðslumaður og vöruhönn- unarnemi, og Freyr Karel Bran- olte, matreiðslumaður í Hörpu. „Borðhald virkar þannig að við semjum matseðla og útbúum við- burði sem við auglýsum svo á Facebook og fólk getur bókað sig á. Það sem er öðruvísi við þetta fyrirkomulag er að við getum haft kvöldin okkar allskonar og verið allstaðar. Við höfum verið með allt frá streetfood mat upp í ellefu rétta háklassa matseðla,“ segja þeir félagar aðspurðir hvað Borð- hald sé. „Hugmyndafræðin sem Borðhald heldur sig við er nýting hráefnis úr nærumhverfinu sem og árstíð- arbundin matreiðsla. Við sækjum okkur hráefnið mikið í náttúru Ís- lands og erum oft mjög tilrauna- kenndir í því sem við berum á borð. Oftar en ekki fer mikil þróun- arvinna í hvern rétt og við reynum að framreiða matinn á nýstárlegan hátt. Þar vinnum við með náttúr- una og hefðir sem innblástur. Náttúruvínin eru skemmtileg „Við einbeitum okkur einnig að því að vinna með náttúruvín sem eru vín sem njóta síaukinna vin- sælda meðal vínáhugafólks. Mun- urinn á þeim og hefðbundum vínum er að þau eru lífræn og án við- bætra sulfíta og gerjunarferlinu er ekki stýrt. Þannig geta komið mjög áhugaverðir og öðruvísi tónar í vín- in. Þetta er í rauninni afturhvarf til þess hvernig vín voru gerð upp- runalega. „Það sem við reynum að ná fram á viðburðunum er að tengja saman vín, mat og fólk. Við vinnum þann- ig að við smökkum vínin fyrst og svo hugsum við upp mat sem pass- ar vel með. Þannig reynum við að ná fram fullkomnu samspili milli víns og matar. Við höfum svo haft það þannig að fólk getur átt von á að setjast með allskonar fólki því fátt er skemmtilegra en að kynnast nýju fólki og eiga góða stund yfir góðum mat. Því hefur slagorðið sem við vinnum eftir verið að við tengjum saman vín, mat og fólk. „Fyrir okkur er borðhald ákveð- in leið til að hittast og gera eitt- hvað skemmtilegt og skapandi í góðra vina hópi. Þess vegna höfum við reynt að taka sem flesta með okkur í partíið, segja þeir félagar sem segjast hafa fengið ómetanlega hjálp frá vinum og félögum við að láta viðburði Borðhalds verða að veruleika. Ostur verður allsráðandi „Kveikjan að samstarfinu við Búrið var að Eirný sem á og rekur Búrið hafði komið á einn viðburð sem við héldum og var bara nokk- uð hrifin af því sem við vorum að gera. Hún hafði á efri hæðinni í búðinni laust pláss sem var tilvalið fyrir skemmtilegan viðburð. Nán- ast sama dag og við Eirný fengum þessa hugmynd hafði Arnar, sem rekur vínfyrirtækið Vínbóndann, samband og spurði hvort við vær- um til í samstarf þannig okkur fannst tilvalið að leiða þessa þrjá aðila saman í að gera eitthvað snið- ugt og skemmtilegt. Næsti viðburður strax á sunnudaginn Síðan var ákveðið að hafa kvöldið þann 22. febrúar og þar sem þetta er í Búrinu var við hæfi að vera með ostaþema þannig að við mun- um troða osti einhvers staðar í alla rétti. Aðspurðir hvort matgæðingar geti búist við fleiri svona við- burðum eða hvort þessi tiltekni við- burður verði gerður reglulegur segjast þeir ekki vita það en næsti viðburður þeirra sé strax á sunnu- daginn 25. febrúar þar sem boðið verði upp á sunnudags-miðdeg- ismat þar sem fólk geti nærst fram eftir degi á dýrindis mat og nátt- úruvínum í framúrskarandi fé- lagsskap. thora@mbl.is Eitt óvenjulegasta og skemmtilegasta veit- ingahús landsins heitir því viðeigandi nafni Borðhald. Það hefur ekkert heimilisfang, enga fasta matseðla og fylgir engum sérstökum reglum. Hressandi þríeyki Kjartan og Freyr ásamt Arnari vínbónda. Morgunblaðið/Hari Markmiðið að tengja saman vín, mat og fólk Frumkvöðlar Freyr Karel Branolte og Kjartan Óli Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.