Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 100
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 53. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Bílar drápu á sér í vatnsflaumnum
2. Stórhöfði breyttist í stöðuvatn
3. Bílar farnir að kastast til
4. Lokað við Smáralind …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sönghópurinn Elfur heldur tónleika
í röðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni
í Reykjavík í dag kl. kl. 12 og bera þeir
yfirskriftina Endurómar. Sönghóp-
urinn mun flytja Jónasarlög Atla
Heimis Sveinssonar, þ.e. lög tón-
skáldsins við ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar, í nýjum útsetningum Hrafn-
kels Orra Egilssonar. Elfur syngur
lögin án undirleiks og skipa sönghóp-
inn þær Auður Guðjohnsen, Hulda
Dögg Proppé, Hildigunnur Einars-
dóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Rak-
el Edda Guðmundsdóttir og Svan-
fríður Hlín Gunnarsdóttir.
Elfur flytur Jónasar-
lög Atla Heimis
Myndlistarkonurnar Rakel McMa-
hon, Eva Ísleifs og Katrín Inga Jóns-
dóttir Hjördísardóttir opna sýningu á
verkum sínum í dag kl. 17 í galleríinu
Gamma, Garðastræti 37 í Reykjavík.
Sýningin ber titilinn ABOUT looking
og á henni má sjá verk sem listakon-
urnar unnu í Aþenu í fyrra. Samstarf
þeirra gengur út á að rýna í gjörn-
ingalistformið og áhrif þess á aðra
listmiðla sem og sitt eigið vinnuferli,
eins og þær lýsa því í tilkynningu.
Verkefnið byggist á því að skoða að-
ferðafræði gjörninga þ.e. gjörninga
sem leitaraðferð, rannsóknaraðferð
og miðlunaraðferð. Aðferðafræðin
felist þannig í því að
skoða hvaða áhrif
gjörningar hafi á nálg-
un umsækjanda á við-
fangsefni sín, vinnu-
ferlið, miðlun og út-
færslu.
Verkin á sýningunni
eru kolateikningar og
ljósaskúlptúrar.
Rakel, Eva og Katrín
sýna saman í Gamma
Á föstudag Suðaustan 8-15 og él, en úrkomulítið norðan heiða.
Gengur í suðaustan 18-25 með slyddu og síðar rigningu seinni
partinn, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hlýnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 8-15 m/s og heldur hvassara síð-
degis. Rigning í fyrstu á SA-landi, annars snjókoma eða él, en úr-
komulítið norðaustanlands. Kólnandi, frost 0 til 5 stig í kvöld.
VEÐUR
Áhugaverð tilraun fer um
þessar mundir fram í Kópa-
vogslauginni. Þar er um að
ræða samstarf hjá knatt-
spyrnudeild Breiðabliks,
Háskólanum í Reykjavík og
Jyväskylä-háskólanum í
Finnlandi. Ingi Þór Ein-
arsson og Ben Waller kanna
hvort hægt sé að byggja
upp sambærilegt úthald hjá
knattspyrnufólki með æf-
ingum í vatni eins og á
landi. »2-3
Áhugaverð tilraun
í Kópavogi
Marit Bjørgen frá Noregi er nú orðin
sá íþróttamaður sem unnið hefur
flesta verðlaunapeninga í sögu
Vetrarólympíuleikanna. Bjørgen og
Maiken Caspersen Falla unnu til
bronsverðlauna í sprettboðgöngu í
gær. Þar með hefur Bjørgen unnið til
alls 14 verðlauna á Vetrarólymp-
íuleikum. Hún sló með þessu met
landa síns, skíðaskotfimikappans Ole
Einar Björndalen, sem unnið hefur til
13 verðlauna. »1
Marit Bjørgen sigldi
fram úr Björndalen
„Ég hef verið í stífri endurhæfingu
sem hefur gengið vel. Stefnan er sett
á að geta leikið aftur handbolta um
miðjan eða í lok mars,“ sagði Guð-
mundur Hólmar Helgason, hand-
knattleiksmaður hjá franska liðinu
Cesson-Rennes. Hann hefur meira og
minna verið frá keppni síðasta árið,
fyrst vegna meiðsla í ökkla og frá í
haust vegna brjóskloss í baki. »4
Guðmundur Hólmar á
batavegi í Rennes
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Gönguskíðafélagið Ullur stendur fyrir viðamikilli
starfsemi í Bláfjöllum og er mestallt starf unnið í
sjálfboðavinnu. Magnús Konráðsson er einn sjálf-
boðaliðanna og er gjarnan á vaktinni í skála fé-
lagsins. „Þegar vel viðrar,“ áréttar kappinn, sem
verður 85 ára í haust.
Magnús kynntist gönguskíðum á unga aldri.
„Ég er fæddur og uppalinn á Grímslæk í Ölfusinu
og það kom fyrir að það vantaði kindur á haustin.
Þá fórum við á gönguskíðum að leita þeirra.“
Hann minnist þess að hafa gengið yfir holt og
hæðir á skíðum og stundum hafi skyggnið verið
minna en ekki neitt en samt hafi aldrei verið
hætta á ferðum. „Það var alltaf maður með mér og
við fórum varlega,“ segir hann. „Svo fór ég gjarn-
an á skíðunum í kringum bæinn mér til skemmt-
unar þegar veður var gott og gott snjólag.“
Um tvítugt flutti Magnús í Hafnarfjörð, kvænt-
ist, ól upp fjögur börn og vann ýmsa vinnu, fyrst
til sjós, síðan í byggingarvinnu, svo hjá trésmíða-
verkstæði og loks ók hann fóðurflutningabíl hjá
Mjólkurfélagi Reykjavíkur í um tvo áratugi. „Ég
lenti stundum í ófærð á Suðurlandi en rokið við
Hafnarfjallið var verra. Þá þurfti ég oft að bíða af
mér veðrið í Borgarnesi. Svo kom fyrir að ég var
innlyksa í Dölunum. Ég vonaði gjarnan að veðrið
yrði gott um næstu helgi svo hægt væri að fara á
skíði en sú von brást ansi oft. Og það hefur ekkert
breyst. Maður veit aldrei hvernig morgundag-
urinn verður.“
Áður á svigskíðum
Magnús fór fyrst með eiginkonu og yngsta
barninu í skíðaferð til útlanda 1986 og átti síðan
reglulega eftir að fara á erlend skíðasvæði, oftast í
ítölsku Alpana, en varð að hætta á svigskíðum
vegna slits í baki og sneri sér þá aftur að göngu-
skíðunum.
„Sjálfboðastarfið fyrir gönguskíðafélagið varð
að veruleika fyrir tilviljun,“ segir hann og bætir
við að þetta sé þriðji veturinn sem hann leggi sitt
af mörkum með þessum hætti. „Ég vandi komur
mínar í Bláfjöll, smátt og smátt kynntist ég fólki í
skálanum og svo fór að þáverandi formaður Ullar
spurði mig hvort ég væri ekki til í að taka vakt og
vakt. Ég féllst á það, vaktirnar urðu stöðugt fleiri
og nú reyni ég að fara þegar færi gefst.“
Gönguskíðafélagið Ullur var stofnað 2007 og er
eitt fjölmennasta skíðafélag landsins. Skáli félags-
ins stendur við skíðabrautina á Neðri-Sléttu, rétt
hjá Suðurgilslyftu. Félagið heldur námskeið fyrir
byrjendur og lengra komna á hverjum vetri og
stendur fyrir keppni í skíðagöngu, þar sem árlega
Bláfjallagöngu ber hæst, en hún er hluti Íslands-
göngunnar. Félagar eru um 350 og núverandi for-
maður er Hugrún Hannesdóttir. Þegar Magnús
starfar í skála félagsins er hann venjulega mættur
um klukkan tíu á morgnana og stendur vaktina í
um fjóra tíma í senn, hellir upp á kaffi og deilir út
skíðum til þeirra sem þau þurfa.
„Skíðanámskeiðin byrja gjarnan klukkan 11 og
því þarf ég að vera kominn áður,“ segir hann.
„Síðan nota ég tækifærið og geng á skíðum eftir
vaktina. Hinsvegar er ég svo slæmur í bakinu að
ég get ekki verið lengi á skíðum í einu, geng bara
nokkra hringi án þess að fara um fjöll og firn-
indi. Ég fer bara í heilsubótargöngu. Ganga
eftir getu er mín heilsurækt.“
Heilsurækt á gönguskíðum
Magnús Konráðsson
nær 85 ára skálavörður
í sjálfboðavinnu
Sjálfboði Magnús Konráðsson við skála Gönguskíðafélagsins Ullar í Bláfjöllum.
Ljósmynd/Málfríður Guðmundsdóttir
Bláfjallagangan 2017 Ullungar frá vinstri:
Guðný Katrín Kristinsdóttir, Þuríður Yngvadótt-
ir, Guðrún Kristín Kristinsdóttir, Eva Rakel Ósk-
arsdóttir og María Kristín Ólafsdóttir.