Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 20

Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Starfshópur um skipulags- og upp- byggingarmál á íþróttasvæði Þróttar og Ármanns á Þróttarsvæðinu í Laugardal hefur lagt fram áfanga- skýrslu. Er það niðurstaða hópsins að heppilegasti staður fyrir nýtt íþrótta- hús í Laugardal sé á bílastæði fyrir vestan félagsheimili Þróttar. Nægj- anlegt rými sé fyrir hendi og hægt að grafa húsið niður til að draga úr áhrifum þess á nágrennið. Starfshóp- inn skipuðu fulltrúar beggja félaga og embættismenn frá borginni. Staðsetning við Laugarnesskóla var einnig skoðuð en starfshópurinn telur hana ekki koma til greina. Hús- ið myndi að óbreyttu gnæfa hátt í umhverfinu, taka yfir stóran hluta skólalóðarinnar og skuggavarp yrði mikið. Nýtt hús þjóni einnig skólum Fram kemur í skýrslunni að hóp- urinn hafi í upphafi einbeitt sér að því að svara því hvort koma mætti fyrir nýju íþróttahúsi fyrir Þrótt sem þjónað gæti íþróttastarfi félagsins og einnig íþróttakennslu fyrir Laugar- nes- og Laugalækjarskóla. Húsið væri einnig ætlað fyrir körfuboltaæf- ingar barna og unglinga á vegum Ár- manns sem nú eru í íþróttahúsi Laugarnesskóla. Starfshópurinn hefur einnig horft til þess að verið er að skoða aðstöðu- mál og samþættingu skóla-, íþrótta-, menningar- og frístundastarfs fyrir stærra svæði í tengslum við þéttingu byggðar í nágrenni við Laugardalinn og nýrra hverfa í Vogabyggð og Ell- iðavogi. Knattspyrnufélagið Þróttur og Glímufélagið Ármann reka öfluga starfsemi í Laugardalnum. Þróttur að öllu leyti, Ármann að miklu leyti. Þróttur rekur knattspyrnudeild, blakdeild og handknattleiksdeild Þróttur hefur yfir að ráða knatt- spyrnuvöllum og félagsheimili en engu íþróttahúsi. Félagið hefur að- gang að Laugardalshöll en æfingar falla oft niður vegna þess að húsið er í annarri notkun. Þannig féllu niður um 30% af tímum félagsins í Laugar- dalshöll veturinn 2016-17. Ástandið hefur verið svipað í vetur. Knatt- spyrnudeildin hefur betri aðstöðu að sumri en vetraraðstaðan er ófull- nægjandi. Einn gervigrasvöllur ann- ar ekki öllu starfi félagsins, en hann er nú nýttur um 2.000 klukkustundir á ári. Ármann er fjölgreinaíþróttafélag með 10 íþróttagreinar. Ármann hefur yfir að ráða fimleikahúsi, sem er löngu sprungið, en önnur aðstaða er bágborin. Erfitt er að halda úti fé- lagsstarfi deilda vegna aðstöðuleysis og halda þarf stærri fundi og nám- skeið í Laugardalshöll eða hjá ÍSÍ. Laugardalurinn er eitt fjölmenn- asta hverfi Reykjavíkur. Fyrirhuguð uppbygging í hverfinu og áform um þéttingu byggðar mun fjölga íbúum á félagssvæði Þróttar og Ármanns á næstu 10-15 árum um allt að 7.000 manns, t.d. á svæðum eins og Voga- hverfi, Laugarnesi, Blómavalsreit, Fenjareit, Íslandsbanka- og strætó- lóð o.fl. Skyldur Þróttar og Ármanns við íbúa muni aukast verulega með þess- ari fjölgun, segir í skýrslu starfs- hópsins. Félögin telja knýjandi að þegar verði hafist handa við upp- byggingu til að mæta fyrirsjáanlegri þörf fyrir þjónustu af hálfu félag- anna. Íþróttahús rísi á bílastæði í Laugardal  Starfshópur leggur til að nýtt íþróttahús verði byggt nálægt félagsheimili Þróttar  Mikil þörf á bættri aðstöðu Ármanns og Þróttar  Þétting byggðar áformuð og ný hverfi eru á teikniborðinu Morgunblaðið/Styrmir Kári Þróttur Aðstæður til knattspyrnuiðkunar eru góðar á sumrin en ófullnægj- andi á veturna. Gervigrasvöllur er nýttur um 2.000 klukkustundir á ári. Morgunblaðið/Ómar Ármann Fimleikastarf er afar öflugt en fimleikahúsið er löngu sprungið. Aðstæður til félagsstarfs eru afar ófullkomnar og bitna á starfseminni. Samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipa samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðila og er framkvæmdastjórn SA falin tilnefning stjórnarmanna. Samtök atvinnulífsins óska ár hvert eftir því að hæfir einstaklingar, sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA eða hagsmunasamtökum þeirra, gefi kost á sér til starfa í stjórnum lífeyrissjóða. Leitað er eftir einstaklingum með fjölbreytta reynslu og þekkingu m.a. á lífeyrismálum, stjórnun, stefnumótun, áætlanagerð og reikningshaldi, lögfræðilegum málefnum og fjármálamarkaði. Úr þeim hópi sem gefur kost á sér til stjórnarstarfa verða tilnefndir þeir sem metnir eru hæfastir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn. Sérstök hæfisnefnd fjallar um einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. Nefndin leggur mat á þekkingu og reynslu umsækjenda með hliðsjón af þeim eiginleikum sem nauðsynlegt er að viðkomandi stjórn sem heild búi yfir. Að mati loknu leggur hæfisnefndin tillögu fyrir framkvæmdastjórn SA. Um er að ræða eftirfarandi lífeyrissjóði: Birta lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Gildi - lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Rangæinga, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Stapi lífeyrissjóður Samtök atvinnulífsins óska eftir hæfu fólki til að taka að sér stjórnarstörf í lífeyrissjóðum. Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | 105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | sa.is Umsóknir sendist í tölvupósti á stjornarseta@sa.is Athugið að umsóknir frá fyrra ári gilda áfram og þarf ekki að endurnýja. Samtök atvinnulífsins hvetja konur jafnt sem karla til að sækja um. Álfheimar 74, Glæsibær | 104 Reykjavík | ynja.is læsilegar vörur frá anity Fair Níu hafa verið handteknir og tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsókn- ar lögreglu á Suðurnesjum á þremur innbrotum í gagnaver, meðal annars á Fitjum í Reykjanesbæ og í Borgar- firði – þar sem samtals 600 tölvum var stolið. Nokkrir menn brutust inn í hálfbyggða álmu í gagnaveri Advania á Fitjum og höfðu á brott verðmætan tækjabúnað. Sami háttur var hafður á í hinum málunum. Ekki var stolið búnaði sem hýsir gögn. Tjónið er því fyrst og fremst fjárhagslegt en verðmæti þýfisins er talið vera rösklega 200 milljónir króna. Einn hinna handteknu var starfs- maður Öryggismiðstöðvarinnar. Honum hefur nú verið sagt upp störf- um, samkvæmt upplýsingum frá fyr- irtækinu. Um innbrotið hjá Advania segir í fréttatilkynningu að atvikið hafi náðst á öryggismyndavélar og sé ljóst að verknaðurinn sé þaulskipulagður og tengist skipulagðri glæpastarfsemi. Margþætt öryggi er á gagnaverum fyrirtækisins í Reykjanesbæ og Hafnarfirði og hafi það verið aukið enn frekar eftir innbrotið á Fitjum. Fram kemur í tilkynningu frá lög- reglu að innbrotin hafi verið framin á tímabilinu frá 5. desember til 16. jan- úar síðastliðinn. Í samtali við mbl.is í gærkvöldi sagði Ólafur Helgi Kjart- ansson, lögreglustjóri á Suðurnesj- um, grun leika á að rán þessi tengdust greftri eftir svokölluðum rafmyntum. Grunur um að innbrot tengist rafmyntagreftri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.