Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Borðhald má kalla farandveitinga-
hús eða pop-up veitingahús. Menn-
irnir á bak við borðhald eru þeir
Kjartan Óli Guðmundsson, mat-
reiðslumaður og vöruhönn-
unarnemi, og Freyr Karel Bran-
olte, matreiðslumaður í Hörpu.
„Borðhald virkar þannig að við
semjum matseðla og útbúum við-
burði sem við auglýsum svo á
Facebook og fólk getur bókað sig
á. Það sem er öðruvísi við þetta
fyrirkomulag er að við getum haft
kvöldin okkar allskonar og verið
allstaðar. Við höfum verið með allt
frá streetfood mat upp í ellefu
rétta háklassa matseðla,“ segja
þeir félagar aðspurðir hvað Borð-
hald sé.
„Hugmyndafræðin sem Borðhald
heldur sig við er nýting hráefnis úr
nærumhverfinu sem og árstíð-
arbundin matreiðsla. Við sækjum
okkur hráefnið mikið í náttúru Ís-
lands og erum oft mjög tilrauna-
kenndir í því sem við berum á
borð. Oftar en ekki fer mikil þróun-
arvinna í hvern rétt og við reynum
að framreiða matinn á nýstárlegan
hátt. Þar vinnum við með náttúr-
una og hefðir sem innblástur.
Náttúruvínin eru skemmtileg
„Við einbeitum okkur einnig að
því að vinna með náttúruvín sem
eru vín sem njóta síaukinna vin-
sælda meðal vínáhugafólks. Mun-
urinn á þeim og hefðbundum vínum
er að þau eru lífræn og án við-
bætra sulfíta og gerjunarferlinu er
ekki stýrt. Þannig geta komið mjög
áhugaverðir og öðruvísi tónar í vín-
in. Þetta er í rauninni afturhvarf til
þess hvernig vín voru gerð upp-
runalega.
„Það sem við reynum að ná fram
á viðburðunum er að tengja saman
vín, mat og fólk. Við vinnum þann-
ig að við smökkum vínin fyrst og
svo hugsum við upp mat sem pass-
ar vel með. Þannig reynum við að
ná fram fullkomnu samspili milli
víns og matar. Við höfum svo haft
það þannig að fólk getur átt von á
að setjast með allskonar fólki því
fátt er skemmtilegra en að kynnast
nýju fólki og eiga góða stund yfir
góðum mat. Því hefur slagorðið
sem við vinnum eftir verið að við
tengjum saman vín, mat og fólk.
„Fyrir okkur er borðhald ákveð-
in leið til að hittast og gera eitt-
hvað skemmtilegt og skapandi í
góðra vina hópi. Þess vegna höfum
við reynt að taka sem flesta með
okkur í partíið, segja þeir félagar
sem segjast hafa fengið ómetanlega
hjálp frá vinum og félögum við að
láta viðburði Borðhalds verða að
veruleika.
Ostur verður allsráðandi
„Kveikjan að samstarfinu við
Búrið var að Eirný sem á og rekur
Búrið hafði komið á einn viðburð
sem við héldum og var bara nokk-
uð hrifin af því sem við vorum að
gera. Hún hafði á efri hæðinni í
búðinni laust pláss sem var tilvalið
fyrir skemmtilegan viðburð. Nán-
ast sama dag og við Eirný fengum
þessa hugmynd hafði Arnar, sem
rekur vínfyrirtækið Vínbóndann,
samband og spurði hvort við vær-
um til í samstarf þannig okkur
fannst tilvalið að leiða þessa þrjá
aðila saman í að gera eitthvað snið-
ugt og skemmtilegt.
Næsti viðburður strax á
sunnudaginn
Síðan var ákveðið að hafa kvöldið
þann 22. febrúar og þar sem þetta
er í Búrinu var við hæfi að vera
með ostaþema þannig að við mun-
um troða osti einhvers staðar í alla
rétti.
Aðspurðir hvort matgæðingar
geti búist við fleiri svona við-
burðum eða hvort þessi tiltekni við-
burður verði gerður reglulegur
segjast þeir ekki vita það en næsti
viðburður þeirra sé strax á sunnu-
daginn 25. febrúar þar sem boðið
verði upp á sunnudags-miðdeg-
ismat þar sem fólk geti nærst fram
eftir degi á dýrindis mat og nátt-
úruvínum í framúrskarandi fé-
lagsskap. thora@mbl.is
Eitt óvenjulegasta og
skemmtilegasta veit-
ingahús landsins heitir
því viðeigandi nafni
Borðhald. Það hefur
ekkert heimilisfang,
enga fasta matseðla og
fylgir engum sérstökum
reglum.
Hressandi þríeyki Kjartan og Freyr ásamt Arnari vínbónda.
Morgunblaðið/Hari
Markmiðið að tengja saman vín, mat og fólk
Frumkvöðlar Freyr Karel Branolte og
Kjartan Óli Guðmundsson