Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 18
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég gæti varla hugsað mér til-
veruna öðruvísi en vera í kór. Söng-
urinn er ákaflega gefandi og svo er
mikil hvíld í því að mæta á æfingar í
kórnum. Í því starfi hef ég líka eign-
ast margar af mínum bestu vinkon-
um,“ segir Ásdís Björnsdóttir for-
maður kvennakórsins Vox Feminae.
Um þessar mundir er kórinn 25 ára.
Frá upphafi hafa íslensk þjóð- og
sönglög verið áberandi á efnisskrá
kórsins svo sem á tónleikum næst-
komandi laugardag 24. febrúar kl.
16. Þeir verða í Veröld – húsi Vig-
dísar og bera yfirskriftina Veginn
man hún.
Af ást og öllu hjarta
Víða er leitað fanga í efnisskrá
tónleikanna á laugardag. Þar má
nefna ljóðið Konur sem er úr bók-
inni Þorpinu eftir Jón úr Vör en
Þorkell Sigurbjörnsson samdi tón-
listina árið 1996. Vox Feminiae hef-
ur oft sungið þetta ljóð og lag sem
er kórkonum afar kært, enda er lag-
ið gáskafullt en um leið krefjandi.
Þá eru á efnisskrá fallegir sálmar
eftir Kolbein Tumason og Hallgrím
Pétursson við tónlist Þorkels Sig-
urbjörnssonar og Tryggva M. Bald-
vinssonar. Í tilefni af afmælisári var
svo leitað til ungrar tónlistarkonu,
Svanfríðar Hlínar Gunnarsdóttur og
hún fengin til að semja þrjú verk
fyrir kórinn. Verður það fyrsta, Af
ást og öllu hjarta, frumflutt á laug-
ardaginn.
Konurnar í Vox Feminae hafa ný-
lokið þátttöku í tónleikaröð Hörpu
Sígildir sunnudagar þar sem flutt
voru meðal annars verk eftir Bach,
Haydn, Fauré, Jórunni Viðar og
fleiri. Eftir tónleikana nú á laugar-
daginn er svo margt áhugavert á
döfinni, enda má segja að í Veröld á
laugardaginn sé gefinn tóninn fyrir
það sem verða skal á afmælisári.
Þann 16. maí verða tónleikar í Há-
teigskirkju þar sem flutt verða
trúarleg og klassísk verk frá ýmsum
tímum og svo verða tónleikar á
Húsavík dagana 19. – 22. júlí undir
heitinu Hásláttur þar sem sungin
verða ýmis lög sem meðal annars
tengjast sumri, sól og sveit. Í haust
mun kórinn taka upp þráðinn að
nýju og minnast tímamótanna með
ýmsum hætti.
Felur öðrum stjórnina
Margrét Pálmadóttir hefur frá
byrjun verið stjórnandi Vox Fem-
inae en í lok þessa árs hverfur hún
úr því hlutverki. „Kórinn og kon-
urnar eiga mikið í mér og eru stór
partur af lífi mínu, en núna finnst
mér tímabært að fela öðrum stjórn-
ina. Bæði kórinn og ég sjálf höfum
gott af slíkri breytingu eftir frábært
samstarf í kvartöld,“ segir Margrét
sem mun áfram stýra kórnum
Cantabile. Er það einmitt einn kór-
anna sem tilheyra Domus vox þar
sem undir einu þaki sameinast
söngskóli og kórastarfsemi sem
Margrét rekur. Hún hefur unnið
mikið starf til eflingar á starfi
stúlkna- og kvennakóra á Íslandi og
hefur fyrir það fengið margvíslegar
viðurkenningar.
Morgunblaðið/Eggert
Söngur Kvennakórinn Vox Feminae á æfingu hjá Margréti Pálmadóttur sem lætur af stjórninni í lok þessa árs.
Kvennasöngur í kvartöld
Vox Feminae syngur í Veröld á laugardag Fallegir
sálmar og íslensk þjóðlög Síðasta starfsár Margrétar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Innlent
Formleg opnun 100 ára afmælis-
hátíðar Háskólans á Bifröst í Borg-
arfirði verður í dag, 22. febrúar með
athöfn í Hriflu, hátíðarsal skólans, og
hefst hún klukkan 14. Þar fara með
framsögu þau Þórir Páll Guðjónsson
fyrir hönd Hollvinasamtaka Bifrast-
ar, Jón Sigurðsson fv. rektor skól-
ans, Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra Vilhjálmur Egilsson,
rektor á Bifröst, og Sigrún
Jóhannesdóttir, lektor við skólann.
Tíminn vinnur með Bifröst
„Í framtíðinni munu miklar sam-
félagsbreytingar hafa vaxandi áhrif á
starfsskilyrði háskóla sem í auknum
mæli þurfa að þjóna fólki á öllum
aldri vegna þess að störf munu verða
til og hverfa með meiri hraða en áð-
ur,“ segir Vilhjálmur Egilsson í sam-
tali við Morgunblaðið. Það fyrir-
komulag að fólk byrji í skóla 6 ára
gamalt og endi samfellda skólagöngu
á þrítugsaldri, tilbúið undir eitt ævi-
starf, verður úr sögunni. Sífellt fleiri
þurfa að sækja endurnýjaða háskóla-
menntun oftar en einu sinni á starfs-
ævinni. Skólar þurfa með fjarnámi
að þjóna fólki sem er á vinnumark-
aði. Að þessu leyti vinnur tíminn með
skóla eins og er á Bifröst.
„Allar stofn-
anir og fyrirtæki
sem ná 100 ára
aldri hafa þurft að
breytast og að-
lagast kalli tím-
ans. Með öðrum
orðum þýðir þetta
að starfsemi sem
ber sig ekki er
hætt og í staðinn
er fundin starf-
semi sem ber sig. Þetta hljómar ein-
falt og auðvelt en er erfitt enda er
það heilmikið afrek að skólinn skuli
hafa náð að starfa í heila öld,“ segir
Vilhjálmur sem lítur svo á að ár
erfiðleikar í starfi skólans séu að
baki. Fjármálin séu komin í góðan
farveg og þróaðar hafi verið náms-
brautir sem svari kalli tímans.
Alþjóðavæðing
Á haustdögum var stefnumót-
unarfundur á Bifröst þar sem leitað
var eftir sjónarmiðum um framtíð
skólans. Mörg ólík viðhorf komu
fram og í framhaldinu tók stjórn
skólans ákvarðanir. Meðal þeirra er
að skólinn skuli skilgreindur sem
viðskiptaháskóli, sem marki honum
skýra sérstöðu. Þróað verður nýtt
námslíkan fyrir þá nemendur sem
kjósa að búa á Bifröst og lögð
áhersla á að skólinn verði áfram í far-
arbroddi í fjarnámi. Þá vill Bifra-
starfólk eiga frumkvæði að nánari
samskiptum við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands um sameiginleg hags-
munamál og tækifæri. Skólinn verð-
ur áfram á Bifröst, stigin verða skref
til frekari alþjóðavæðingar með
námslínum á ensku – auk alþjóðlega
sumarskólans – og leitað eftir nánu
samstarfi við erlendan háskóla. Sam-
starf við atvinnulífið verður þétt og
sótt fram í símenntun. Eitt mikil-
vægasta verkefnið er svo að ljúka
gerð nýs þjónustusamnings við
menntamálaráðuneytið sem verði
traustur grunnur fyrir starfsemi
skólans. sbs@mbl.is
Aldargamall skóli hafi
áfram skýra sérstöðu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bifröst Háskólinn í hrauninu.
Fjarnám þjóni þörf vinnumarkaðar
Vilhjálmur
Egilsson
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
Laguna Park I
Apartments
Iberostar
Bouganville Playa
SBH Monica Beach
Resort Hotel
Stökktu
Occidental Jandia
Playa Hotel
Bi
rt
m
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th
.a
ðv
er
ðg
etu
rb
re
ys
tá
nf
yri
rva
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
8
6
6
8
9
Frá kr. 99.730
m/hálft fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 149.730
m/morgunmat innif.
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 110.945
m/allt innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 79.995
m/ekkert fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 116.845
m/hálft fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Bókaðu sól
TENERIFE &
FUERTEVENTURA
Frá kr.
79.995
2FYRIR1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
TENERIFE
FUERTEVENTURA