Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Sendiráðum Íslands í Mapútó í Mós-
ambík og Vín í Austurríki verður lok-
að. Nýtt sendiráð verður opnað í Genf
í Sviss, þar sem áður var fastanefnd
og sendiráðin í Brussel, Genf, Kam-
pala, London og París gegna hlut-
verki fastanefnda gagnvart tilteknum
alþjóðastofnunum.
Þetta er meðal þess sem felst í for-
setaúrskurði um sendiráð, fasta-
nefndir hjá alþjóðastofnunum og ræð-
isskrifstofur sem tók gildi í fyrradag.
Breytingarnar eiga að auka skilvirkni
og sveigjanleika, stuðla að sparnaði
og nýta betur mannauð. Þær má
rekja til skýrslu um utanríkisþjón-
ustu til framtíðar sem kom út í sept-
ember síðastliðnum og inniheldur
rúmlega 150 tillögur um „bætta hags-
munagæslu í síbreytilegum heimi,“
eins og komist er að orði í skýrslunni.
Í breytingunum felst m.a. að um-
dæmi sendiráða breytast nokkuð. Til
dæmis bætast Afríkuríkin Djibútí,
Eþíópía, Kenía, Malaví og Namibía
við umdæmi sendiráðsins í Kampala í
Úganda. Þá fækkar þeim löndum sem
eru í umdæmi sendiráðsins í London
um tvö og þeim sem eru í umdæmi
sendiráðsins í Nýju-Delhi fækkar um
sex.
Utanríkisráðuneytið mun, eftir
breytingarnar, fara með fyrirsvar ríf-
lega þrjátíu ríkja og hefur verið stofn-
uð sérstök deild sendiherra í ráðu-
neytinu með búsetu á Íslandi.
Loka tveimur sendiráðum og stofna deild hér
Utanríkisráðuneytið vill lækka kostnað og auka skilvirkni
Umdæmi sendiráðanna breytast Lokað í Mapútó og Vín
Morgunblaðið/Einar Falur
Sendiráð Talsverðar breytingar verða nú á íslensku utanríkisþjónustunni.
42% Íslendinga
sem hyggjast
kaupa sér nýjan
bíl innan þriggja
ára vilja helst að
bíllinn sé knúinn
rafmagni sem að-
alorkugjafa.
Fjöldi þeirra
sem kjósa helst
að eignast raf-
magnsbíl hefur
ríflega tvöfaldast frá árinu 2015,
þegar 20% þeirra sem íhuguðu að
kaupa nýjan bíl sögðust helst vilja að
hann væri aðallega knúinn rafmagni.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri bílakaupakönnun
MMR.
Nokkur munur er á svörum eftir
búsetu. Áhugi fyrir rafknúnum bíl-
um mældist 46% meðal íbúa höfuð-
borgarsvæðisins en á landsbyggð-
inni var hann 34%. Þá reyndust þeir
sem eldri eru, með hærri tekjur og
lengri skólagöngu að baki hafa meiri
áhuga fyrir rafbílum en yngra,
tekjulægra fólk með minni menntun.
Breytileikinn reyndist hins vegar
einna mestur þegar litið var til
stjórnmálaskoðana fólks. 15% stuðn-
ingsmanna Flokks fólksins sögðust
helst kjósa rafknúinn bíl, en yfir 60%
þeirra sem sögðust styðja Pírata,
Samfylkingu eða VG sögðust helst
kjósa rafmagn sem aðalorkugjafa
fyrir nýjan bíl. Þarna var hlutfall
stuðningsmanna Pírata hæst, 66%.
Könnunin var gerð dagana 9.-17.
janúar og svöruðu 1.594 henni.
Ríkir og
rosknir
vilja rafbíla
Rafbílar Sífellt
fleiri kjósa þá.
42% vilja að nýi
bíllinn sinn sé rafbíll
Úlfar Bragason, rannsóknar-
prófessor hjá Árnastofnun, og Gunn-
laug Birta Þorgrímsdóttir, háskóla-
nemi og fyrrverandi þátttakandi í
Snorra West verkefninu, flytja er-
indi á næsta fræðslufundi Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga, ÞFÍ. Fundurinn
verður í utanríkisráðuneytinu,
Rauðarárstíg 25, og hefst klukkan
16.30 í dag.
Árnastofnun gaf út í fyrra bókina
Frelsi, menning, framför: Um bréf
og greinar Jóns Halldórssonar eftir
Úlfar og fjallar hann um hana í er-
indi sínu. Jón flutti til Bandaríkj-
anna 1872 og bjó lengstum í Nebr-
aska.
„Forsetninganotkun vestur-
íslenskra erfðarmálshafa, af-
brigðileg eða eðlileg?“ er yfirskrift
erindis Gunnlaugar Birtu, en hún
skrifaði lokaritgerð í íslensku til BA-
prófs við Háskóla Íslands um málið,
eins og fram kom í viðtali við hana í
Morgunblaðinu fyrir skömmu.
Tvö erindi
flutt á fræðslu-
fundi ÞFÍ
E R T U Á L E I Ð
T I L Ú T L A N D A ?
Það er alltaf ódýrara að bóka
bílastæði við Keflavíkurflugvöll
fyrir fram á kefairport.is.
Einfaldaðu lífið, tryggðu þér stæðið
og borgaðu minna í leiðinni.
W W W . K E FA I R P O R T. I S