Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 28
Arnar Þór Ingólfsson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Davíð Þór Björgvinsson er eldklár
og harðduglegur, svo við skulum vona
að hann fari með þetta allt rétt,“ segir
Guðjón Skarphéðinsson, einn þeirra
sex sem dæmd voru fyrir aðild sína að
Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í
Hæstarétti árið 1980 um settan ríkis-
saksóknara, sem lagði í gær fram
greinargerð til Hæstaréttar vegna
málsins.
Í greinargerðinni er þess krafist að
mennirnir fimm sem voru dæmdir fyr-
ir aðild sína að hvarfi Geirfinns Ein-
arssonar og Guðmundar Einarssonar
árið 1974 verði sýknaðir af öllum sök-
um. Mennirnir eru Sævar Marinó Cie-
sielski, Tryggvi Rúnar Leifsson, Guð-
jón Skarphéðinsson og Kristján Viðar
Viðarsson. Erla Bolladóttir var einnig
dæmd í málinu, en ekki var fallist á
kröfu hennar um endurupptöku.
Þau voru á aldrinum 20-32 ára þeg-
ar þau voru handtekin og sátu samtals
í 6.146 daga, tæp 17 ár, í gæsluvarð-
haldi á meðan rannsókn málanna
tveggja stóð á áttunda áratugnum.
Davíð Þór byggir sýknukröfuna á
mati endurupptökunefndar, sem braut
til mergjar sönnunarmat Hæstaréttar
í þeim dómi sem féll fyrir sléttum 38
árum. Sú greining sýndi að verulegar
líkur væru á því að sönnunarmat í mál-
inu hefði ekki verið í samræmi við þá
meginreglu sakamálaréttarfars að
fram hefði verið komin sönnun um
sekt dómfelldu, sem ekki yrði véfengd
með skynsamlegum rökum.
Það er, sekt þeirra hefði ekki verið
hafin yfir skynsamlegan vafa.
Kemur verjendum ekki á óvart
„Hann krefst sýknu og það í sjálfu
sér kemur ekki á óvart, miðað við til-
urðarsögu þessa máls og hvernig
þetta mál hefur þróast. Einhvern tím-
ann hlutu menn nú að sjá ljósið í sam-
bandi við þetta,“ segir Jón Magnús-
son, verjandi Tryggja Rúnars
Leifssonar heitins.
Hann segir að nú muni Hæstiréttur
væntanlega skammta verjendum
ákveðinn tíma til þess að skila sínum
greinargerðum vegna málsins. Að
hans mati er eðlilegt að ákæruvaldið
hafi ákveðið að fara þessa leið og að við
því hafi verið búist.
Sýknudómur rétti þeirra hlut
„Miðað við kannanir sem gerðar
hafa verið og niðurstöðu endurupp-
tökunefndar og annað hefði manni nú
fundist það svolítið ankannalegt ef
ákæruvaldið hefði farið að krefjast
sakfellingar á nýjan leik í þessum mál-
um,“ segir Jón.
Ef niðurstaða Hæstaréttar verður á
þá vegu sem ákæruvaldið fer fram á
og fimmmenningarnir verða sýknaðir
af öllum sökum segir Jón að búið verði
að rétta hlut þeirra vegna málsins.
Ekki sé ástæða til þess að fara í gegn-
um málið með ítarlegri hætti, eins og
einhverjir hafi kallað eftir, „þegar
hlutirnir blasa við“.
Stór hópur beðið skaða
Jón segir of snemmt að fara að
ræða mögulegar skaðabætur til handa
fimmmenningunum sem fengu mál sín
tekin upp á ný, þótt það sé alveg ljóst
að þarna hafi mjög stór hópur fólks
beðið mikið tjón af.
„Þeir eru nú þónokkrir sem eru
ekki lengur í þessari jarðvist til að
heimta þær skaðabætur, en það er
eins og það er.“
Hafþór Sævarsson, sonur Sævars
Marinós Ciesielski heitins, hefur kall-
að eftir heildarendurskoðun málsins
og gerði það enn á ný í samtali við
mbl.is í gær. „Það eina sem dugar er
heildaruppgjör, heildaruppgjör er það
og heildaruppgjör skal það heita,“
sagði Hafþór. Hann sagði jafnframt
sárt að faðir sinn hefði ekki fengið að
lifa þann dag er ákæruvaldið fór fram
á sýknu yfir honum.
Málsmeðferðin óafsakanleg
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
Guðjón Skarphéðinssonar, hefur verið
leiðandi í baráttunni fyrir endurupp-
töku málsins fyrir Hæstarétti. Hann
sagði við mbl.is í gær að það kæmi
honum ekki mjög á óvart að krafist
væri sýknu af hálfu setts ríkissak-
sóknara.
„Þetta skiptir miklu máli fyrir al-
menning í landinu sem hefur aldrei
gleymt þessu máli. Þetta skiptir líka
máli fyrir dómstólana þó að það sé
aldrei hægt að leið-
rétta slíkt mistök
en það er þó hægt
að gera þá bragar-
bót sem myndi fel-
ast í því að kveða
upp sýknudóma,“
sagði Ragnar.
Jón segir það
rannsóknar- og
réttarkerfinu hér-
lendis til „töluvert
mikils vansa“
hversu mikinn
tíma það hefur tekið að komast á
þennan stað í málinu.
„Það hefði verið æskilegt ef það
hefði verið hægt að brjóta þetta upp
fyrir mörgum áratugum, en það því
miður gerðist ekki. Það er meðal ann-
ars vegna þess að það hafa ýmsir að-
ilar átt heiður að verja, sem jafnvel
gegndu háum stöðum í réttarkerfinu,“
segir Jón.
Málsmeðferð sakborninga í þessum
málum hafi verið fyrir neðan allar
hellur – óafsakanleg.
„Ég hef verið í sambandi við Sævar í
gegnum tíðina, alltaf öðru hvoru, og
hafði aldrei nokkra trú á því að þær
ávirðingar sem voru bornar á hann eða
þessa helstu vini hans ættu við nokkur
rök að styðjast,“ segir Jón. Hópurinn
sem sakfelldur var hafi verið „krim-
inaliseraður“ af þjóðfélaginu.
Hann segist alltaf hafa haft mikla
samúð með Sævari.
Ranglátir dómar leiðréttir
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmað-
ur Kristjáns Viðars, lýsti í gær yfir
ánægju með sýknukröfu setts ríkis-
saksóknara í samtali við mbl.is. Hann
segir að Hæstarétti sé ekki heimilt að
gera annað en það sem saksóknarinn
krefst.
„Þetta er stór áfangi í að leiðrétta
þessa ranglátu dóma sem gengu á
þessum tíma, sagði Jón Steinar.
Guðjón Skarphéðinsson segir að al-
menningur vilji geta treyst því að
dómarnir sem felldir séu í sakamálum
séu réttir. Raunar hafi hann mátt upp-
lifa það, í gegnum tíðina, að menn hafi
hringt heim til hans í misjöfnu ástandi
og lýst þeirri skoðun að dómur Hæsta-
réttar frá 1980 hafi verið réttur.
„Það hafa verið uppi raddir um að
þetta væri hinn rétti dómur og ætti að
standa og það ætti að þegja. En þær
raddir eru ekki margar og ekki í fjöl-
miðlum. Menn hafa þá frekar hringt
að kvöldi til, misjafnlega á sig komnir
og haldið ræður,“ segir Guðjón.
Sýknudómur rétti
hlut fimmenninga
Sekt þeirra sögð ekki vera hafin yfir skynsamlegan vafa
Dómur Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu féll þann 22. febrúar árið 1980, fyrir sléttum 38 árum síðan.
Jón
Magnússon
Davíð Þór
Björgvinsson
Ragnar
Aðalsteinsson
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018