Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 79

Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 79
MINNINGAR 79 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Æskuvinkona mín og fermingar- systir, Guðmunda Anna Eyjólfsdóttir, fædd í Ólafsvík, var kvödd frá Lindakirkju í Kópavogi mánu- daginn 19. febrúar. Á kveðju- stundu er margs að minnast þeg- ar litið er yfir farsælt lífshlaup Guðmundu. Foreldrar Guðmundu, þau Anna og Eyjólfur, stofnuðu heim- ili í gamla læknishúsinu Borg í Ólafsvík um 1940 og bjuggu í því húsi ásamt foreldrum mínum og okkur systkinunum. Þar unnu fjölskyldurnar tvær samhentar við að endurgera húsið og koma upp fallegum heimilum í því reisulega húsi sem gnæfði að okkur fannst yfir byggðina og setti svip á staðinn. Í landi Borg- ar og á túnunum undir Tvísteina- hlíðinni voru bæði fjárhús og fjós þar sem báðar fjölskyldurnar stunduðu búskap. Við börnin vor- um þátttakendur í því daglega amstri sem fylgdi því að sinna bæði sauðfjárbúskap og kúabú- Guðmunda Anna Eyjólfsdóttir ✝ GuðmundaAnna Eyjólfs- dóttir fæddist 1. maí 1945. Hún lést 11. febrúar 2018. Útför Guðmundu fór fram 19. febr- úar 2018. skap í miðju þorpinu við hlið trésmíða- verkstæðis föður míns sem var einnig vettvangur leikja og samveru okkar barnanna í nágrenn- inu. Við Guðmunda nutum barnæsku okkar á Borg og tókum út þroska við góðar aðstæður í nánu sambýli fjöl- skyldnanna og gengum saman hvern dag til skóla þorpsins allt fram yfir fermingu. Guðmunda var námfús og hélt undirrituðum vini sínum við efnið hvað skóla- göngu og lærdóm varðar og átti létt með að tileinka sér allt sem skólagöngunni fylgdi. Snemma kom í ljós að hún var einstaklega samviskusöm gagnvart þeim verkefnum og störfum sem hún tókst á við á sinn hljóðláta hátt og hún var vinur vina sinna. Eftir að Guðmunda settist að í Reykjavík og stofnaði fjölskyldu héldum við ætíð sambandi og miðluðum af reynslu okkar og það gilti í raun um allan barna- hópinn frá Borg. Það var ekki ónýtt að eiga hana að. Ég vil með þessum línum minnast Guð- mundu með virðingu og miklu þakklæti og senda fjölskyldunni samúðarkveðjur. Sturla Böðvarsson. ✝ Jóna Sigurlás-dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 11. júlí 1940. Hún lést á heimili sínu 10. febrúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Sigurlás Þorleifsson verka- maður í Vest- mannaeyjum, f. á Miðhúsum í Hvol- hreppi 13.8. 1893, d. 27.11. 1986, og Þuríður Vil- helmína Sigurðardóttir hús- móðir, f. 31.10. 1907 í Garðabæ í Vestmannaeyjum, d. 27.11. 1992. Þau bjuggu lengst af á Reynistað í Vestmannaeyjum. Jóna var tíunda í röð 15 alsystk- ina frá Reynistað. Systkini Jónu eru: Sigurlaug (látin), Eggert (látinn), Þorleifur, Kristín, Ásta (látin), Anna (látin) Ólöf, Gúst- af, Helgi, Reynir (látinn), Erna (látin), Margrét, Geir og Linda. Einnig átti hún þrjú hálfsystk- ini samfeðra: Margréti Freyju, Huldu og Baldur, en þau er öll látin. Jóna giftist hinn 5.6. 1960 Haraldi Gestssyni, f. 8.8. 1938, d. 25.11. 2014. Þau áttu fjögur börn, þau eru: 1) Gestur, f. 9.2. 1959, eiginkona Kristbjörg Óla- dóttir, þau eiga þrjár dætur, þær eru a) Agnes Kristín, sam- býlismaður Alfreð Pálsson, börn Agnesar eru Júlíana, Kjartan Þór og Elva Natalie b) Karen, eiginmaður Gunnar Steinþórsson, sonur Karenar er Eiríkur Freyr c) Elín, sambýlis- maður hennar er Magnús Már Ólafs- son, sonur Elínar er Gestur Helgi 2) Erla, f. 9.2. 1962, eiginmaður Krist- inn Bjarnason, börn þeirra eru a) Jóna Guðrún, gift Guðjóni Júlíussyni, börn þeirra eru Kristinn Snær, Svavar Steinn og Alexandra Erla, b) Hjálmar Már, sambýliskona Sara Hrönn Rúnarsdóttir, sonur Hjálmars er Tristan Elí. 3) Sigþór, f. 12.3. 1964, börn hans eru Sigmar og Sylvía Ósk. 4) Birgir, f. 11.10. 1965 eiginkona Margrét Auð- unsdóttir, börn þeirra eru a) Haraldur, sambýliskona hans er Katrín Sigurðardóttir, b) Bryn- dís Helga, sambýlismaður henn- ar er Axel Björn Clausen og eiga þau Kolbrúnu Ósk, c) Konný Lára. Jóna og Halli byrjuðu búskap sinn í Vestmannaeyjum þar sem Jóna ólst upp í stórum systk- inahópi en þau fluttust fljótt á Selfoss, þar sem þau bjuggu alla tíð eftir það. Fyrst um sinn vann Jóna í Straumnesi á Sel- fossi, þá tók húsmóður- hlutverkið við. Síðar vann hún í mörg ár í Kjötvinnslunni Höfn á Selfossi. Útför Jónu fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 22. febrúar 2018, klukkan 14. Mín fyrstu kynni af Jónu voru þegar Birgir sonur hennar og Margrét dóttir mín rugluðu saman reytum. Jóna var ljúf og yndisleg kona, ég vil þakka henni samfylgdina gegnum árin. Elsku börn, fjölskylda og aðrir ástvinir Jónu, innilegar samúðarkveðjur. Hennar er sárt saknað. Blessuð sé minning hennar. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Helga Halldórsdóttir. Jóna Sigurlásdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍSU GUÐLAUGAR JÓNSDÓTTUR. Jón Hannesson Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir Guðrún Iðunn Jónsdóttir Ólafur Axelsson barnabörn og barnabarnabörn ✝ Páll Sigurðs-son fæddist á Ísafirði 11. október 1927. Hann lést 24. janúar 2018. Foreldrar hans voru Ragna Pét- ursdóttir húsmóðir, f. 1904 í Þúfum í Vatnsfirði, d. 1955, og Sigurður Krist- jánsson frá Ófeigs- stöðum í Kinn, f. 1885, d. 1968, skólastjóri, kennari, alþingismaður og framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksins og forstjóri Sam- ábyrgðar Íslands á fiskiskip- um. Systkini Páls eru Arndís, f. 1924, Kristján, f. 1930, lést í æsku, Kristján, f. 1933, Krist- ín, f. 1934, Sigurður, f. 1935, látinn, Sigríður, f. 1937, Geir, Börn þeirra eru Ragna, f. 1958, gift Páli Þorsteinssyni og eiga þau tvö börn. Unni Rögnu, f. 1984, í sambúð með Halldóri Ása Stefánssyni og eiga þau eina dóttur, Júlíu, f. 2013, og Sverrir Örn, f. 1992. Sigurður, f. 1966, kvæntur Erlu Þorsteinsdóttur. Börn Sigurðar úr fyrra hjónabandi eru Andri Páll, f. 1986, Alex- ander, f. 1992, og Aron Emil, f. 1995. Einnig á Sigurður Alexöndru, f. 1988, í sambúð með Boga Hrafni Guðjónssyni og eiga þau Ísak Mána, f. 2010, og Viktoríu Sif, f. 2014. Dóttir Erlu er Gabriella, f. 2001, og saman eiga Sigurður og Erla Arnar Loga, f. 2007. Páll starfaði allan sinn starfsaldur hjá Samábyrgð Ís- lands á fiskiskipum og var for- stjóri félagsins frá 1956 og þar til hann lét af störfum fyr- ir aldurs sakir 1997. Útför Páls fór fram í kyrr- þey. f. 1939, Ragna, f. 1941, Pétur, f. 1943, og Auður, f. 1945. Páll bjó á Ísa- firði til þriggja ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan á Öldugötu 59 í Reykjavík. Páll gekk í Landakots- skóla og síðar í Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi. Einnig var hann í Gagnfræðaskólanum í Reykjavík, Ingimarsskóla. Fjölskyldan bjó lengst af í Vonarstræti 2 eða allt þar til húsið brann árið 1967 í stór- bruna sem kallaður hefur ver- ið Lækjargötubruninn. Hinn 7. júlí 1956 kvæntist Páll Júlíönu Sigurðardóttur, f. 1936. Þá hefur Páll tengdafaðir minn kvatt. Hann var á besta aldri þegar ég kynntist honum og hann kom mér strax fyrir sjónir sem virðulegur, hljóðlát- ur og traustur maður og sú mynd sem ég fékk af honum í upphafi hefur ekkert breyst í gegnum tíðina. Samleiðin með Palla hefur verið einstaklega ánægjuleg. Á sinn hljóðlega hátt var Palli alltaf til staðar. Hann hugsaði einstaklega vel um sína nánustu, konu, börn, tengda- börn, barnabörn og börnin þeirra. Það er þó varla hægt að nefna Palla án þess að nefna tengdamóður mína Júlíönu um leið. Þau voru glæsileg hjón og þeir sem til þekkja vita að það var sérstakur ljómi yfir Júllu og Palla. Saman hafa þau auðg- að líf fólksins í kringum sig, hún á sinn opna og sjarmerandi hátt, hann með sterkri og traustri nærveru. Hann var alltaf tilbúinn að létta undir með sínum nánustu og virtist aldrei sjá á eftir þeim kröftum og tíma sem hann varði til að hjálpa fjölskyldu sinni. Hann var gjafmildur og örlátur. Það er auðvelt að nota öll fallegu orðin um Palla. Hann var auðmjúkur og tók lífinu af mikilli ró og yfirvegun. Hann sýndi alltaf þakklæti því sem lífið gaf honum þó að hann væri einnig fylginn sér og bæri hagsmuni sinna nánustu ávallt fyrir brjósti. Hann var alltaf sáttur með sitt og kvartaði ekki undan því sem ekki fékkst. Palli fór vel með það sem hann átti, hugsaði vel um húsið sitt og hreinni bíla hef ég ekki séð. Heilsunni hrakaði töluvert hin síðari ár og undanfarið hef- ur hann búið á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni. Það var sérstök reynsla að fylgja Palla síðasta spölinn á meðan hann bjó á Sóltúni. Þrátt fyrir að veikindin settu honum verulegar skorður kvartaði hann aldrei og reyndi alltaf að gera það besta úr að- stæðum sínum. Í stað þess að lesa bækur hlustaði hann á hljóðbækur og hann naut þess að fá heimsóknir og fannst gaman að fara í stutta bíltúra á meðan heilsan leyfði. Á Sóltúni náði hann vel til starfsfólksins og var því æv- inlega þakklátur fyrir um- hyggjuna. Starfsfólki Sóltúns er þakkað fyrir að hugsa vel um Palla og alla þá hlýju sem það sýndi honum á meðan hann bjó þar. Páll Þorsteinsson. Við andlát Páls bróður míns rifjast upp fjölmargar minning- ar frá æskuárum okkar. Við Palli vorum elst af ellefu börn- um foreldra okkar, Sigurðar Kristjánssonar kennara, rit- stjóra, alþingismanns og for- stjóra, og konu hans, Rögnu Pétursdóttur húsfreyju. For- eldrar okkar kynntust á Ísa- firði, þar sem faðir okkar starf- aði sem kennari við barnaskólann, og þau giftust þegar hún var aðeins nítján ára en hann nítján árum eldri eða 38 ára. Þau bjuggu fyrstu sjö ár hjúskapar síns á Ísafirði og þar fæddumst við Palli og Kristján bróðir okkar, sem lést aðeins 18 mánaða gamall. Móð- ir okkar var ekki heilsuhraust og þurfti að dveljast langdvöl- um sér til lækninga á Vífils- staðaspítala en okkur Palla var komið fyrir hjá vinahjónum for- eldra okkar, Lofti Gunnarssyni og Ragnhildi Guðmundsdóttur frá Æðey. Árið 1930 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og bjuggum við fyrst á Öldugötu 59 í Reykja- vík. Við áttum frábæra æsku á Öldugötunni, neðst í götunni var sjórinn og þar í fjörunni vorum við að leika okkur öllum stundum. Við gengum með mjólkurbrúsa og keyptum mjólk hjá Sveini bakara og sníktum volga vínarbrauðsenda hjá Jóni Sím bakara. Þegar skóla lauk á vorin vorum við send með skipi vestur á Ísa- fjörð og þaðan inn í Djúp þar sem við dvöldum yfir sumarið, Palli í Þúfum hjá Páli afabróð- ur okkar. Árið sem Palli fermdist 1941 var óttast að nasistar myndu gera loftárás á Reykjavíkur- höfn. Við fjölskyldan vorum þá flutt í Vonarstræti 2 sem var ekki langt frá höfninni. Faðir okkar ákvað því að senda móð- ur okkar með yngstu börnin úr bænum til öryggis. Faðir okkar var í Þingvallanefnd ásamt Haraldi Guðmundssyni og fengu þeir leyfi til að eiginkon- ur þeirra ásamt yngstu börnum beggja fengju að eyða hluta sumarsins í gestaíbúð í Þing- vallabænum. Palli átti að ferm- ast þetta vor en svo bar við að allir vegir til Þingvalla lokuðust í apríl og faðir okkar fór þá á bíl eins langt og hann komst en fékk svo lánaða tvo hesta á bæ einum, reið yfir heiðina til að sækja móður okkar en hún treysti sér ekki á hestbak og að ríða í söðli þessa leið og því vorum það bara við pabbi sem vorum viðstödd í Dómkirkjunni þegar sr. Bjarni fermdi Palla. Við systkinin tíu vorum svo lánsöm að eiga yndislega æsku alveg fram á fullorðinsár í Von- arstræti 2. Foreldrar okkar voru einstök ljúfmenni og heimilið okkar var ávallt opið öllum, bæði ættingjum og vin- um, enda var alla daga fjöl- menni bæði í mat, kaffi og jafn- vel gistingu. Það voru rædd stjórnmál við matarborðið og faðir okkar kenndi flestum okk- ar að lesa. Móðir okkar var ljúf kona, feimin og lítillát en féll frá fyrir aldur fram aðeins 51 árs og var okkur öllum harm- dauði. Það voru forréttindi að fá að alast upp á heimili okkar og ég held að við systkinin öll séum þakklát fyrir þessi ár, við eigum dýrmætar minningar frá þessum árum. Palli bróðir minn var ein- staklega geðgóður og blíður alla tíð. Hann var svo heppinn að kynnast og giftast frábærum lífsförunaut, henni Júllu, og saman hafa þau átt hamingju- ríkt líf og mikið barnalán. Það hefur ekki síst sýnt sig með einstakri umönnun barna þeirra undanfarin ár. Fyrir hönd systkina minna kveð ég bróður minn með sökn- uði, þakka fyrir samfylgdina í þessu lífi og votta Júllu, börn- um þeirra, tengdabörnum og barnabörnum innilega samúð mína. Blessuð sé minning Palla bróður. Arndís (Addý systir). Páll Sigurðsson Enn er höggvið skarð í frændgarð- inn á Grímsstaða- torfunni, nú er það Erlingur okkar sem laut í lægra haldi fyrir krabbameininu. Eftir sitja ótal minningar, allt frá litlum ljóshærðum dreng sem kom með foreldrum sínum fyrst á sumrin og síðan eftir að fjöl- skyldan flutti í sitt eigið hús á Grímsstöðum og til síðasta dags. Erlingur var yngstur og minnstur af okkur krökkunum á torfunni og fékk alveg að vita af því en það lét hann ekki á sig fá og skákaði okkur í mörgu, t.d. kunni hann að spinna á rokk og það var nú eitthvað sem við hin kunnum ekki. Á þessum tíma var alltaf sólskin í minningunni og fullt af krökkum úti að leika því allmörg börn voru fyrir utan okkur í sveit á Grímsstöðum. En Erlingur Ragnarsson ✝ Erlingur Ragn-arsson fæddist 11. febrúar 1964. Hann lést 2. nóv- ember 2017. Útför Erlings fór fram 11. nóvember 2017. stundum kom það fyrir að Erlingur reiddist við okkur krakkana og þá heyrðist gjarnan þessi gullvæga setning „það er aldrei hægt að leika við ykkur krakkana þarna vestur frá“. Hann var átta og níu ára gamall þeg- ar hann eignaðist systur sínar, Þórunni Birnu og Sigríði Lilju, og þá kom strax í ljós kletturinn sem hann var þeim alla tíð. Margar ferðirnar fór hann með fjölskyldu sinni í Laxárdalinn (en þar ólst hann upp fyrstu árin) til móðurfólks síns bæði í Birningsstaði og Auðnir og þar naut hann sín vel. Eftir skólagönguna fluttist hann til Reykjavíkur og keypti sér íbúð að Kóngsbakka 7 ásamt sambýliskonu sinni, Hólmfríði, og eignuðust þau eina dóttur, Guðrúnu Ösp 1993. Þau slitu seinna samvistum og síðar keypti hann í Krummahóla 2. Erlingur keypti jörðina og íbúð- arhúsið á Grímsstöðum af móður sinni. Erlingur vann um tíma í Reykjavík áður en leið hans lá á sjóinn og þegar hann átti frítúra kom hann alltaf norður til móður sinnar sem var þá orðin ein eftir að faðir hans dó árið 2000. Maður fann það glöggt hvað hann naut þess að koma heim og taka þátt í öllu sem var að gerast á Gríms- stöðum, hjálpa til í sauðburði, heyskap, gera við tól og tæki, vitja um net, hann og Biggi að dunda í „dótakassanum“ (í Rana- húsum), einnig var hann mjög hjálplegur á verkstæðinu hjá okkur Kalla og vildi allt fyrir alla gera. Hann var foreldrum sínum og systrum stoð og stytta alla tíð, traustur og góður vinur og fékk í arf þétta og hlýja faðmlagið frá móður sinni sem sýndi svo sann- arlega væntumþykju hans og því gleymum við aldrei. Erlingur var einstakur faðir og augasteinninn hans hún Guðrún Ösp var honum allt. Öðrum stærra áttir hjarta, æ þín stjarna á himni skín. Myndin geymir brosið bjarta, blessuð veri minning þín. (Friðrik Steingrímsson Grímsstöðum) Elsku Guðrún, Teddi, Þórunn, Sigga og fjölskyldur, minnumst góðs vinar með þakklæti og gleði. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Herdís og Elín Steingríms- dætur (Dísa og Ella).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.