Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 85

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 85
DÆGRADVÖL 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Ljós og lampar Opið virka daga frá 10-18, laugardag 11-15. Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Rasaðu ekki um ráð fram og skoð- aðu málin frá öllum hliðum áður en þú tekur ákvörðun sem varðar framtíðina. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu engan hafa svo mikil áhrif á þig að þú gerir eitthvað sem stangast á við rétt- lætiskennd þína. Haltu ró þinni, brjóttu mál- in til mergjar og framkvæmdu svo. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Verkefni dagsins ganga eins og vel æft dansatriði á sviði. Láttu ekki aðra stjórna ferðinni heldur fylgdu eigin sannfær- ingu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt auðvelt með að laða fram það besta í öðrum sem og að miðla málum þegar menn eru ekki á eitt sáttir. Hrósaðu þér vel fyrir framsýnina. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hvers vegna að eyða öllum skipulags- hæfileikunum í vinnuna? Einkalífið hefði gott af því að njóta þeirra hæfileika. Leystu málin og þá líður þér betur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hvernig væri að gerast félagi ein- hvers sem hefur aðra hæfileika en þú? Sam- vinna ykkar verður meiriháttar. Hvernig þú setur mál þitt fram ræður úrslitum um ár- angurinn. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hugsanlegt er að þú verðir með hug- mynd tengda tekjum og fjármálum á heil- anum í dag. Ekki lofa meiru en þú getur staðið við. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Árangur þinn í starfi fer nú ekki lengur framhjá yfirmönnum þínum svo þú mátt eiga von á umbun í einhverri mynd. Nú er komið að því að þú uppskerir laun erfiðis þíns. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Passaðu vel upp á leyndarmálin þín. Nú er mikilvægt að innsigla samninga og viðurkenna virðingu þína fyrir öðrum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Rómantíkin ræður ríkjum þessa dagana og þú ert í sjöunda himni því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Dekraðu við sjálfan þig í kvöld. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það fer afskaplega mikill tími í alls konar vangaveltur hjá þér. Reyndu að ná heildarsýn til þess að þú getir vegið og met- ið aðstæður. 19. feb. - 20. mars Fiskar Næsta mánuð munu samskipti við aðra kenna þér margt um þig. Kynntu þér fólk frá framandi menningarsvæðum, þú laðar að þér fólk sem bætir viðskiptin og gerir líf þitt enn fegurra. Helgi R. Einarsson yrkir: Ég gleðst yfir góðum mægðum og geðjast að normal hægðum, en fengið hef nóg af frosti og snjó og fjöldanum öllum af lægðum. Rokinúum nasir er núið, frá næðingnum ekki er flúið er lægðirnar stríðar streyma um hlíðar. Að snúa þeim við er, jú, snúið. Á þriðjudagsmorgun varð það óhapp á Sæbraut að gámur féll af flutningabíl með þeim afleiðingum að 120 svínaskrokkar dreifðust um götuna. Þetta olli miklum umferð- artöfum. Til marks um það er, að það tók lögregluna 90 mínútur að aka ofan úr Mosfellssveit niður á lögreglustöðina við Hlemm. Hösk- uldur Búi orti á Leir: Meyr er fæðan, mjúk og völtuð og mött með ögn af ryki. Puran reykta, pækilsöltuð með prýðiskeim af biki. Hallmundur Kristinsson sagði á Boðnarmiði: Geysast um og götur teppa gömlu brýnin; býsna mörg til borgar skreppa bölvuð svínin. Fía á Sandi opnaði fésbókina til að gá að fréttum: Sitthvað er í fésbók fært af fréttum brýnum. Nú er hvergi ferðafært fyrir svínum. Og Sigmundur Benediktsson bætti við: Í Reykjavík er rosa mikið ríkidæmi, fyrst að gálaust fólkið þar fleygir mat á göturnar. Jón Atli Játvarðarson orti: Engan svínin fengu frið, fylgdu skipunum að handan. Náðu að stoppa vagninn við valdbjóðandi moskufjandann. Í fyrradag orti Magnús Hall- dórsson og ekki að ástæðulausu: Nú er stutt í næstu skil, nóg af lægðafóðri, enda von á einni til, ótrúlega góðri. Helgi Björnsson sver sig í ætt við aðra hagyrðinga: Til að hægist hugarkvöl og hryggð í sálu dvíni gott er að súpa áfengt öl og ögn af brennivíni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Veðralimrur og svín á götum „HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ Í HVERT SINN SEM ÞÚ FERÐ Í HUNGURVERKFALL ÞYNGIST ÉG UM 10 KÍLÓ?“ „HVAÐ FINNST ÞÉR? LÍTA VÍÐU HORNIN BETUR ÚT Á MÉR?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sjá framtíð þína alveg kristaltæra. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MYNDIRÐU ENN ELSKA MIG EF ÉG VÆRI VARÚLFUR? ÉG BÝST VIÐ ÞVÍ… FÆRI EFTIR ÞVÍ HVERSU MIKIÐ ÞÚ FÆRIR ÚR HÁRUM ÞÁ BJÓÐUM VIÐ UPP Á FULLA ENDURGREIÐSLU! ÞESSI TÖFRASKJÖLDUR MUN BJARGA LÍFI ÞÍNU 98% TÍMANS! HVAÐ MEÐ HIN 2 PRÓ- SENTIN? VELKOMINN Í VERÖLD MÍNA Vatnselgurinn mikli var eflaustmörgum lesendum hugleikinn í gær. Sjálfur velti Víkverji því fyrir sér hvers vegna hann hefði ekki farið í vöðlur frekar en venjulegu skóna sína þegar hann gekk út úr húsi í gærmorgun og sá að Saxelfur sjálf var komin með útibú í götunni hans. x x x Víkverji náði þó að komast til-tölulega þurrum fótum í bílinn sinn, en þá tók við næsta þolraun, að koma honum alla leið út í Móa. Lík- lega hefði Víkverji ekki verið lengur á leiðinni til vinnu sinnar í gær, hefði hann ákveðið að fara á kanó fremur en bílnum. Víkverji gerðist þó ekki svo kræfur að reyna að sökkva bíln- um sínum í sæ, líkt og einhverjir öku- menn gerðu víst við Smáralind, enda veit Víkverji sem er, að bílar sem geta líka siglt í kafi sjást eiginlega bara í bíómyndunum um njósnara hennar hátignar, 007, og ekki í Lindahverfinu í Kópavogi. x x x Víkverji játar að hann væri eig-inlega alveg til í að losna við þetta vatnsveður, en það er svo sem ekki mikið sem hægt er að gera við legu landsins eða árstíðunum. Hann skilur þó betur og betur þá sem á endanum fá nóg og fljúga suður heið- ar með fjaðraþyt, söng og yfirdrætti á kortinu bara til þess að losna undan þessu veðurfari í skamma stund. x x x Verður Víkverji líklega kominnsjálfur í þeirra tölu áður en um langt líður, þar sem miðaldurinn skríður sífellt nær, en það er helst á honum sem það helst í hendur, pirr- ingurinn á veðurfarinu og svo bol- magn til þess að koma sér af landi brott til suðrænna eyja, þó ekki sé nema eina helgi. x x x Verst er, að Víkverja þykja slíkareyjar og strendur eiginlega hálf- leiðinlegir áfangastaðir. Það skiptir því litlu hvort hann er á Fróni eða Tenerife, allt virkar þetta álíka leið- inlegt á hann. Eini munurinn er að á öðrum staðnum er honum of kalt og hinum of hlýtt. Þess vegna eru víst ofnar gerðir. vikverji@mbl.is Víkverji Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Krist- ur. (Fyrra Korintubréf 3.11)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.