Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018 Hafnarfjörður Hvutti var glaður yfir að fá að fara í gönguferð um Hellisgerði í gær. Hundar eru skemmtilegir göngufélagar og kætast flestir í hvert sinn sem til stendur að fara í gönguferð. Eggert Ákæruskjal banda- ríska dómsmálaráðu- neytisins gegn Rúss- unum 13 og netstof- unum þremur sem stóðu að baki aðför þeirra að bandarísku stjórnmálalífi á árunum 2014 til 2016 vekur undrun vegna bíræfn- innar sem þar er lýst: Að svo skipulega skyldi unnið gegn Hillary Clinton, fyrst í prófskjörsbaráttu innan Demókrataflokksins við Bernie Sanders og síðan í forsetakosninga- baráttunni sjálfri við Donald Trump. Hver er skýringin? Einfalda svarið er að Vladimír Pútín Rússlands- forseti hafi einsett sér að hindra að Hillary næði kjöri vegna stuðnings hennar við mótmæli í Rússlandi árin 2011og 2012. Þá var hart sótt að Pút- ín á mótmælafundum með ásökunum um svik í þingkosningum árið 2011 og forsetakosningum 2012. Rod J. Rosenstein varadómsmála- ráðherra kynnti 37 bls. ákæruskjalið á stuttum blaðamannafundi í Wash- ington föstudaginn 16. febrúar. Þar má finna dæmi um auglýsingar sem Rússar kostuðu og birtust í banda- rískum samfélagsmiðlum frá apríl til október 2016. Þær eru gegn Hillary Clinton og til stuðnings Donald Trump. Þar eru textar eins og þessir: „Donald vill sigra hryðjuverkamenn ... Hillary vill styðja þá.“ „Hillary á ekki skilið að blökkumenn kjósi hana.“ „Trump er eina von okkar um betri framtíð.“ „Donald Trump er sá aleini meðal allra frambjóðenda sem getur varið lögregluna gegn hryðjuverka- mönnum“ og „Hillary er Satan og glæpir hennar og lygar hafa sannað hvílíkt illmenni hún er.“ Stjórnað frá St. Pétursborg Í ákæruskjalinu seg- ir að aðgerðum hafi ver- ið stjórnað frá skrif- stofu í St. Pétursborg í Rússlandi sem heitir Internet Research Agency, Netrannsóknastofan. Rétt- nefni er þó Nettröllastofan. Nettröll eru þeir sem sigla undir fölsku flaggi í netheimum og blanda sér í umræð- ur á samfélagsmiðlum eins og Face- book til að valda uppnámi, koma illu af stað eða einfaldlega til að flytja áróður undir dulnefni. Tröllin eru skaðræðisgripir. Í þessu tilviki komu þau frá útlöndum til að vega að lýð- ræðislegum stjórnarháttum. Það er refsivert í Bandaríkjunum. Stofan í St. Pétursborg réð yfir milljónum dollara. Hún sendi ekki aðeins nettröll á vettvang heldur einnig ekta Bandaríkjamenn sem borgað var fyrir að efna til mótmæla eða ganga fram fyrir skjöldu á mannamótum. Einn þessara Banda- ríkjamanna fékk það einkennilega verkefni að standa með spjald fyrir framan Hvíta húsið 29. maí 2016, á því stóð: „Til hamingju með 55 ára af- mælið, kæri forstjóri.“ Var mann- inum sagt að spjaldið væri fyrir mann sem væri „leiðtogi hér, for- stjóri okkar ... stofnandi okkar“. Jevgjeníj Viktorovitsj Prigozhin stjórnaði stofunni í St. Pétursborg. Hann varð 55 ára 1. júní 2016. Pri- gozhin er gjarnan kallaður „kokkur Pútíns“ vegna þess hve oft Pútín nýt- ir veitingastaði hans fyrir opinbera kvöldverði. Á rússnesku fréttasíð- unni Meduza er sagt að hann hafi set- ið níu ár í fangelsi fyrir tilraun til ráns og vændissölu. Þegar hann opn- aði veitingastaðinn Staraja Tamoz- hnja í St. Pétursborg árið 1996, einn þeirra bestu í borginni, skapaði hann tengsl við elítuna þar. Pútín bauð árið 2001 Jacques Chirac Frakklands- forseta til kvöldverðar á veitingastað í eigu Prigozhins og þjónaði eigand- inn forsetunum til borðs. Prigozhin varð síðar vellríkur á að elda ofan í rússneska herinn. Þeim viðskiptum lauk með lögum gegn út- vistun árið 2013. Sama ár kom Net- tröllastofan til sögunnar. Rússneskir fjölmiðlar vissu um tengsl Prigozhins við hana þótt annar væri skráður for- stjóri. Upphaflega gegndi stofan að- eins einu hlutverki: að senda jákvæð- ar færslur um Pútín og ríkisstjórnina á samfélagsmiðla. Andstæðingar Pútíns fengu það óþvegið. Fjölmiðlar segja að starfsmenn í stofunni hafi orðið allt að 400. Þaulskipulögð afskipti Að rússnesk stjórnvöld fylgdust náið með forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016 kemur engum á óvart. Að afskipti Rússa voru svo viðamikil og þaulskipulögð vekur undrun. Stofan í St. Péturs- borg sendi til dæmis konur í ferð um Bandaríkin til að safna upplýsingum og mynda tengsl við félagslega og pólitíska aðgerðasinna. Á grundvelli upplýsinga sem þannig var aflað ákváðu Rússar að einbeita sér að „rauðfjólubláum“ ríkjum, það er ríkj- um þar sem mjótt yrði á munum milli forsetaframbjóðendanna. Í St. Pétursborg störfuðu menn í deildum innan Nettröllastofunnar sumir sinntu gagnagreiningu, aðrir hámarksnýtingu leitarvéla og enn aðrir gerð myndskeiða og útlits- hönnun. Þar sátu einnig vígreifir menn við lyklaborðin og sóttu fram á vefsíðum og samfélagsmiðlum í Bandaríkjunum. Öllu er þessu lýst í ákæruskjalinu og sagt að 80 starfs- menn hafi ekki gert neitt annað en að sinna samfélagsmiðlum, allir hafi þeir þóst vera Bandaríkjamenn með aðsetur innan Bandaríkjanna. Þeir unnu á vöktum í St. Pétursborg og tók vinnutíminn mið af bandarískum tíma og frídögum. Þeir einbeittu sér að Facebook og mynduðu hópa með nöfnum sem ætlað var ýta undir sundrung í bandarísku þjóðlífi eins og Sameinaðir múslimar Ameríku og Hermenn Jesús. Þetta voru gervi- samtök í þjónustu Rússa. Trump hlífir Rússum Árlega öryggisráðstefnan í München stóð yfir þegar bandaríska dómsmálaráðuneytið birti ákæruna. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, hafnaði henni þar sem „blaðri“ og „hugarburði“ laugardag- inn 17. febrúar. „Á meðan við sjáum ekki staðreyndirnar er allt annað blaður,“ sagði utanríkisráðherrann. HR McMaster, þjóðaröryggis- ráðgjafi Trumps, var einnig í Münch- en. Hann sagði ákæruskjalið taka af allan vafa um að ásakanir í garð Rússa um afskipti af kosningunum væru sannar. Lagðar hefðu verið fram „óhrekjanlegar“ sannanir um athafnir Rússa. Þá hefði rannsóknin sýnt að bandarísk stjórnvöld öðl- uðust sífellt meiri hæfni til að rekja upphaf njósna og undirróðurs. Hann sagði að Rússar ættu að hugsa sinn gang því að þeir hefðu ekki erindi sem erfiði. Donald Trump var í Flórída þessa helgi. Hann minntist fórnarlamba skotárásar í nágrenni við sig og fór ekki á golfvöllinn en lét því meira að sér kveða á Twitter. Forsetinn brást reiður við ákær- unni laugardaginn 17. febrúar og sunnudaginn 18. febrúar. „Þeir hlæja sig máttlausa í Moskvu,“ sagði hann. Forsetinn mótmælti ekki framgöngu Rússa. Hann gagnrýndi hins vegar ræðu öryggisráðgjafa síns í Münch- en, McMaster hershöfðingi hefði gleymt að taka fram að Rússar hefðu ekki haft áhrif á úrslitin í kosning- unum 2016, „eina leynimakkið var milli Rússa og óheiðarlegu H,“ sagði forsetinn. Þarna stendur H fyrir Hillary. Sérstaki saksóknarinn Robert Mu- eller og menn hans hafa lokið einum áfanga Rússarannsóknarinar. Ákæruskjalið snýst um skipulega pólitíska netherferð Rússa í banda- rískri kosningabaráttu. Að Banda- ríkjaforseti hvetji ekki til varðstöðu gegn erlendri íhlutun af þessu tagi er stórundarlegt. Eftir Björn Bjarnason » Að afskipti Rússa af bandarísku kosningabaráttunni voru svo viðamikil og þaulskipulögð vekur undrun. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Rússnesk nettröll gegn Hillary

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.