Morgunblaðið - 23.02.2018, Qupperneq 36
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 54. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Tugir bíla skemmdust í sömu holu
2. Svala fékk snert af heilablóðfalli
3. Tossalisti Trumps vekur athygli
4. „Hún var myrt í síðustu viku“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hádegistónleikar Ís-
lenska flautukórsins
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og
Grímur Helgason klarinettuleikari
koma fram á hádegistónleikum
Íslenska flautukórsins í Listasafni
Íslands í dag kl. 12.10. Á efnisskránni
eru verk eftir Alberto Ginastera,
Heitor Villa-Lobos og André Jolivet.
Aðgangur er ókeypis.
Skálholts-
félagið hið nýja
efnir til málþings
um fornleifar í
Skálholti í dag kl.
16-18 í fyrirlestra-
sal Þjóðminja-
safnsins við
Suðurgötu. Fyrir-
lesarar velta upp
ýmsum þáttum sem lúta að minja-
vernd, fornleifarannsóknum, minjum,
framtíðarsýn og nýjum uppgötvunum
í landi Skálholts.
Aðgangur er ókeypis.
Fornleifar í Skálholti
Svavar Knútur söngvaskáld fagnar
42 ára afmæli sínu með tónleikum í
Tjarnarbíói annað kvöld kl. 20.30. Þar
mun einvala lið íslenskra söngvara
syngja lög hans með
sínu nefi. Þeirra á
meðal eru Kristjana
Stefáns, Ragga Grön-
dal, Eyþór Ingi, Hildur
Vala og Jón Ólafsson.
Ágóðinn rennur til
góðs málefnis eftir
hjarta afmælis-
drengsins.
Afmælistónleikar í
Tjarnarbíói á morgun
Á laugardag Suðaustan 10-18, en 18-25 norðaustan- og aust-
anlands í fyrstu. Talsverð rigning framan af degi suðaustan til, en
skúrir eða él um landið vestanvert. Hiti 1 til 8 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt, 18-25 m/s seinni
partinn með slyddu og síðar rigningu, talsverð úrkoma sunnan- og
vestanlands. Hlýnandi veður, hiti 5 til 10 stig í kvöld.
VEÐUR
Íslandsmeistarar Vals eru í
4. sæti, stigi á eftir ÍBV og
Selfossi, eftir góðan sigur á
ÍBV í Vestmannaeyjum í
gærkvöld í Olís-deild karla í
handbolta. Eyjamenn voru
yfir í hálfleik en Valsmenn
sýndu styrk sinn í seinni
hálfleik og unnu 31:28.
Framarar virðast vera á
flugi en þeir unnu stórsigur
á Gróttu og fóru þannig upp
fyrir Seltirninga í 9. sæti
deildarinnar. »2
Meistarar Vals
fögnuðu í Eyjum
„Þetta nærri eina ár í Danmörku
hefur kennt mér mikið. Í Danmörku
er handboltinn miklu betri en heima
á Íslandi auk þess sem umgjörðin í
kringum liðið er mun öflugri en
heima,“ segir Hafdís Renötudóttir,
landsliðsmarkvörður í handbolta,
sem hefur samið við norska úrvals-
deildarliðið Sola um að leika með
því frá og með næsta sumri en hún
hefur í vetur spilað í dönsku B-
deildinni. »4
Hafdís hefur lært mikið
á einu ári í Danmörku
Körfuboltalið með nokkuð svipaðan
leikstíl eigast við í Laugardalshöll í
kvöld þegar Ísland tekur á móti Finn-
landi í undankeppni heimsmeist-
aramóts karla klukkan 19.45. Liðin
eru ekki með marga mjög hávaxna
menn miðað við það sem gengur og
gerist hjá sterkum landsliðum. Bæði
geta þau spilað hratt og skjóta tals-
vert fyrir utan. » 3
Lið með svipaðan leik-
stíl mætast í Höllinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Matreiðslumeistararnir Guillem
Rofes, Jordi Asensio og Francisco
Diago Curto frá Barcelona urðu hlut-
skarpastir í keppninni Islandia al
Plat, sem Íslandsstofa hélt þar í borg
í tengslum við kynningu á íslenskum
saltfiski í haust sem leið. Meistara-
réttir þeirra eru á sérstökum mat-
seðli á saltfiskhátíð á Tapas Barnum
við Vesturgötu í Reykjavík, sem
stendur yfir út mánuðinn.
Þremenningarnir kynntu mat-
reiðslumönnum á Tapas Barnum
uppskriftir sínar í fyrradag og í kjöl-
farið hófst hátíðin, þar sem einnig er
boðið upp á saltfiskrétti hússins.
„Við buðum þeim til landsins til
þess að kynna Íslendingum upp-
skriftir sínar,“ segir Kristinn Björns-
son, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu,
en meistarakokkarnir hafa verið iðnir
við að vekja athygli á íslenskum
þorski og saltfiski á veitingastöðum
sínum í Barcelona og halda því áfram.
Í gær var tekið upp myndband, þar
sem kokkarnir sýndu réttu handtökin
við matreiðsluna. Kristinn segir að
það verði aðgengilegt á vefsíðu og
samfélagssíðum Bacalao de Islandia.
Frábærir réttir
Guillem Rofes sigraði í keppninni.
Hann er yfirkokkur á veitingastaðn-
um Caballa Canalla, sem sérhæfir sig
í sjávarréttum. Hann segist hafa fall-
ið fyrir íslenska þorskinum og salt-
fiskinum á kynningunni í fyrra og
elski að búa til rétti úr hráefninu. „Nú
vinn ég aðeins úr íslenskum fiski, því
gæðin eru mikil og verðið gott,“ segir
hann.
Vinningsréttur hans er svo sannar-
lega bragðgóður, eins og reyndar allir
saltfiskréttir meistarakokkanna.
„Rétturinn er einn sá vinsælasti á
Caballa Canalla,“ segir hann og það
kemur ekki á óvart. Guillem Rofes
bætir við að gaman hafi verið að vinna
með íslensku matreiðslumönnunum
og það sé mikil og skemmtileg reynsla
að fá að taka þátt í kynningarátaki Ís-
landsstofu.
Jordi Asensio er yfirkokkur á veit-
ingastöðunum Quillo og Chico-Bar.
Hann segist hafa kynnst íslensku
sjávarfangi þegar hann vann á þekktu
veitingahúsi í París og hann haldi sig
við íslenskan saltfisk í Barcelona.
„Þetta er frábært hráefni og ég ætla
að koma aftur hingað í sumar til þess
að kynna mér það enn frekar,“ segir
hann.
Francisco Diago Curto er yfirkokk-
ur á L’ostia. Hann segir að íslenskur
þorskur sé vel þekktur í Katalóníu og
þeir leggi áherslu á að nýta allt hrá-
efnið. „Ég læt fiskinn vera í sér-
stökum bjórlegi og úr verður ferskur
réttur, sem hentar vel í sumarhit-
anum,“ segir hann um verðlaunarétt-
inn.
Lífið er íslenskur saltfiskur
Kokkar frá
Barcelona kynna
uppskriftir sínar
á Tapas Barnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Tapas Barnum Francisco Diago Curto og Jordi Asensio með saltfiskrétti sína, Guillem Rofes með rétt hússins.
Sigurvegarinn Matreiðslumeistarinn Guillem Rofes með sigurrétt sinn.