Morgunblaðið - 23.02.2018, Side 10

Morgunblaðið - 23.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Mikil uppbygging er að hefjast við götuna Flugvelli í Reykjanesbæ. Þar verða meðal annars nokkrar bílaleig- ur með aðstöðu. Uppbyggingin vitnar um mikinn vöxt bílaleiga á Íslandi. Yfir 25 þús- und bílaleigubílar eru nú í umferð yfir hásumarið á Íslandi. Gatan er vestan Reykjanesbraut- ar og nokkur hundruð metra frá flugvellinum í Keflavík. Við götuna eru nú bílaleigurnar Procar, Green Motion og Iceland 4x4 Car Rental. Bílaleigunum mun fjölga með því að Höldur, sem rekur Bílaleigu Akureyrar, hefur fengið úthlutaðar átta lóðir. Brimborg hefur fengið þrjár lóðir fyrir bílaleigur sínar, Dollar Rent a Car og Thrifty Car Rental. Bílaleigurnar Lotus Car Rental og Rent Nordic hafa fengið úthlutaða sína lóðina hvor og Lotus Car Rental jafnframt sótt um aðra lóð. Þá hefur N1 fengið þrjár lóðir. Fyrirtæki með aðra starfsemi hafa líka fengið lóðir. Fyrirtækið Anton ehf. hefur fengið eina lóð en það er meðal annars í plastiðnaði. Byggingarfélagið H34 fékk líka lóð og leigufélögin Verkefni ehf. og Há- dalur ehf. sína lóðina hvort. Fleiri fyrirtæki hafa sótt um lóðir og jafn- vel skilað þeim. Orðið þröngt við flugvöllinn Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, segir fram- kvæmdir á lóðunum ekki hafa verið tímasettar. „Við munum funda um málið í næstu viku. Hönnun er ekki lokið,“ segir Steingrímur. Hann segir höfuðstöðvar félagsins áfram verða á Akureyri. „Við erum með aðstöðu á fjórum stöðum á Reykjanesinu. Hugsunin er að sam- ræma starfsemina betur. Aðstaðan okkar uppi á flugvelli er sprungin.“ Egill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar, segir fyrirtækið hafa sótt um lóðir á Flugvöllum haustið 2016, eða um leið og svæðið var skipulagt. „Þegar við vorum að hanna aðstöðu á lóðunum kom í ljós að við þurftum meira pláss. Þess vegna sóttum við um lóðina Flugvelli 8 og vorum að fá hana úthlutaða,“ segir Egill en Brimborg var með lóðir 2 og 4. Allt sprungið í Reykjavík „Þarna verður þjónusta fyrir bíla- leiguna,“ segir Egill. „Með því að geta þjappað starfseminni á tiltölu- lega lítinn flöt og verið með alla þjónustuna í næsta húsi við flugvöllinn, þar sem bílarnir eru afhentir, má keyra á sömu um- svifum í tekjum en með minni flota. Það er grunnhugsunin. Þegar bilaður bíll kemur inn er hægt að skutla honum í næsta hús, gera við hann og þrífa. Við höfum pantað fullkomna bílaþvottastöð til að geta þrifið bílana hraðar. Þá fáum við fleiri bílastæði. Það er allt sprungið hjá okkur í Reykjavík, Keflavík og í kringum flugstöðina. Þar hefur ekki orðið nein þróun. Við sjáum ekki fram á að Isavia geri neitt í þeim málum,“ segir Egill. Hann segir uppbygginguna hluta af hagræðingu hjá bílaleigum Brim- borgar. Vegna hás gengis krónu og kostnaðarhækkana sé nauðsynlegt að draga úr kostnaði. Til dæmis með því að gera bókunarferla sjálfvirka. Þjónusta bílafyrirtækin Eggert Þór Kristófersson, for- stjóri N1, segir fyrirtækið fyrst og fremst munu þjónusta önnur bíla- fyrirtæki á Flugvöllum. „Við sjáum tækifæri á svæðinu og í ferðamennskunni. Við höfum lengi leitað að nýrri staðsetningu, sérstak- lega fyrir dekkjaverkstæði. Hug- myndin er að setja upp dekkjaverk- stæði annars vegar og bensínstöð hins vegar til að þjónusta bílaleigur. Við sjáum mest tækifæri í þeirri um- ferð. Stærsti hlutinn [á Flugvöllum] verður bílaverkstæði, sem okkur vantar í Keflavík. Við erum með verkstæði á gamla vallarsvæðinu.“ Hann segir hugmyndina þá að á svæðinu verði hægt að sækja og skila bílaleigubílum. Fulltrúar bíla- leiganna hafi rætt um að sameinast um rútur til að flytja viðskiptavini til og frá flugstöðinni og á svæðið. Leigunum ýtt út úr Reykjavík Eggert Þór segir aðspurður farið að þrengja að bílaleigum við Kefla- víkurflugvöll og í Reykjavík. „Það er verið að ýta bílaleigum út úr bílaborginni Reykjavík. Það er ekki ólíklegt að höfuðstöðvar bíla- leiga muni færast nær flugvellinum.“ Bílaleigan Rent Nordic er með heimilisfangið Malarhöfði 2a í Reykjavík. Þar er líka Hjól.is. Hjá Lotus Car Rental fengust þær upplýsingar að félagið hyggist hafa verkstæði og afhendingu og skil á bílum á einum stað á Flugvöllum. Það er nú með afhendingu á Blika- völlum og verkstæði á Njarðarbraut suður með sjó. Nýtt hverfi fyrir bílaleigubíla  Bílaleigur sameinast á nýju athafnasvæði skammt frá Keflavíkurflugvelli  Þar verða líka dekkja- verkstæði og bílaþvottastöðvar  Orðið er þröngt um bílaleigurnar við flugvöllinn og í höfuðborginni Úthlutun lóða við götuna Flugvelli í Reykjanesbæ* Samkvæmt fundargerðum umhverfis- og skipulagsráðs STÆKKAÐ SVÆÐI Keflavík Reykjanesbraut Reykjanesbraut FlugvellirAð alg ata Keflavíkur- flugvöllur Njarðvík 29 25 21 17 13 15 23 7 9 5 1 2 4 6 8 10 12 16 20 18 14 3 11 19 27 Umsækjandi Lóð númer Brunavarnir Suðurnesja** 29 Brimborg 2, 4 og 8 Höldur 5, 7, 9, 11, 13, 15, 17 og 19 N1 1, 3 og 27 Verkefni ehf. 20 Rent Nordic ehf. 10 Umsækjandi Lóð númer Anton ehf. 25 Lotus Car Rental 21 Lotus Car Rental / ATH eignir ehf. Verður úthlutað síðar með hlutkesti 23 H34 ehf. 14 Hádalur ehf. Sækir um leyfi til að stækka lóð – samþykkt 13. febrúar 18 *Deiliskipulag Flugvalla var auglýst frá 18. ágúst 2016, með athugasemdafresti til 29. september 2016. **Með fyrirvara um samþykki deiliskipulags. Hafi félag sótt um lóð og aðra til vara er varalóð hér sleppt til einföldunar. Þá er frestuðum afgreiðslum sleppt. Á lóðum 12 og 16 er nú æfingavöllur fyrir knattspyrnu. Úthlutun er frestað í eitt til tvö ár þar til nýtt æfinga- svæði er tilbúið. Lóð 6 er byggð. Þar eru bílaleigurnar Procar, Green Motion og Iceland 4x4 Car Rental. Steingrímur Birgisson Egill Jóhannsson Eggert Þór Kristófersson Sveinn Númi Vilhjálmsson, bæjarverkfræðingur Reykjanes- bæjar, segir hundruðum bíla- leigubíla, ef ekki þúsundum, lagt á iðnaðarsvæði í Helguvík. Það sé bráðabirgðalausn. Samkvæmt deiliskipulagi sé Helguvík iðnaðarhverfi með 0,3 til 0,5 í nýtingarhlutfall. Bíla- leigur hafi jafnan lægra hlutfall. Sveinn Númi segir hugmyndir um að hafa stæði fyrir bílaleig- ur á svonefndu Patterson-svæði nærri flugvellinum. Hann segir að í nýju aðalskipulagi bæjarins sé ekki að finna svæði sem eru eyrnamerkt bílaleigum. Sveinn Númi kveðst að- spurður aldrei hafa séð slíkan fjölda bíla í Reykjanesbæ. „Þetta hefur stigmagnast síð- ustu þrjú árin,“ segir hann. Í Helguvík BÍLAFLOTINN Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Tveir menn af erlendum uppruna voru dæmdir í Héraðsdómi Reykja- víkur sl. þriðjudag fyrir að hafa tekið á móti póstsendingu sem þeir töldu innihalda fölsuð grísk vegabréf. Tollayfirvöld á Íslandi höfðu þá hald- lagt bréfin og komið fyrir gervi- pakka í stað þeirra. Vegabréfin reyndust breytifölsuð þ.e. fölsuð að hluta á þann hátt að skipt hafði verið um persónuupplýs- ingar. Mennirnir tveir voru dæmdir í 30 daga fangelsi en þetta mun vera annað dómsmálið á árinu þar sem lögreglan hafði handsamað aðila við að sækja fölsuð persónuskilríki á pósthúsið. Skilríki fölsuð frá grunni Þann 31. janúar var maður af er- lendum uppruna dæmdur fyrir að sækja fölsuð slóvakísk persónuskil- ríki, tvö ökuskírteini og tvö kenni- vottorð á pósthús á Íslandi. Var ann- ar maður með í för sem bíður dóms sérstaklega, en sá var einnig ákærð- ur fyrir þjófnað m.a. í verslunni Costco. Öll fjögur persónuskilríkin reyndust vera grunnfölsuð, þ.e. frá rótum, samkvæmt dómi Héraðs- dóms. Var maðurinn dæmdur í 30 daga fangelsi. Grímur Grímsson, yfirlögreglu- þjónn, segir að ekki hafi verið hægt að staðfesta það við rannsókn máls- ins í hvað nota átti fölsuðu persónu- skilríkin, en grunur leikur á að málin tengist skipulagðri glæpastarfsemi. „Auðvitað grunar okkur það að svona framleiðsla tengist því og hennar sé aflað frá skipulögðum brotasamtökum sem stunda falsan- irnar,“ segir Grímur. Spurður um gæðin á haldlögðu fölsuðu skilríkj- unum segir hann þau vel gerð, ef svo megi að orði komast. Bæði málin komu upp í tengslum við rannsókn lögreglu á víðtækari brotastarfsemi. Fölsuð vegabréf send með pósti  Grunur um skipulagða glæpastarfsemi Morgunblaðið/Golli Póstur Vegabréfin voru grísk með fölsuðum persónuupplýsingum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.