Morgunblaðið - 09.03.2018, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.03.2018, Blaðsíða 7
Miðasala í Hörpu sinfonia.is harpa.is 528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó 19:3018. MARS Richard Strauss Svíta úr Rósarriddaranum Ludwig van Beethoven Píanókonsert nr. 4 Jean Sibelius Sinfónía nr. 1 Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar Santtu-Matias Rouvali hljómsveitarstjóri Hélène Grimaud einleikari Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleika í tónleikahúsinu í Gautaborg í apríl síðastliðnum við frábærar undirtektir og nú er komið að Gautaborgarsinfóníunni að endurgjalda heimsóknina. Einleikari á tónleikunum er hin franska Hélène Grimaud sem hefur um áratuga skeið verið í hópi fremstu píanista heims. Hún hefur hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og hlotið öll helstu verðlaun klassíska tónlistarheimsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Grimaud leikur á Íslandi og er það mikið tilhlökkunarefni. Hljómsveitarstjóri er hinn finnski Santtu- Matias Rouvali, einn eftirsóttasti ungi stjórnandi heims um þessar mundir en hann tók við stöðu aðalstjórnanda í Gautaborg haustið 2017.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.