Morgunblaðið - 09.03.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.03.2018, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018 Vífilsstaðir eða Keldur/Keldnaholt? Stefna Miðflokksins er að byggja nýjan spítala á nýjum stað og hafa bæði Vífils- staðir og Keldur/ Keldnaholt verið nefnd í því samhengi. Upphaflegri stað- arvalsgreiningu sem gerð var af erlendum sérfræðingum og stungið var undir stól, miðaðist við Fossvog og Keld- ur/Keldnaholt. Síðan þá hefur önn- ur uppbygging og lóðaúthlutun í Fossvogi komið í veg fyrir þá stað- setningu til framtíðar. Besta mögulega staðsetning fyr- ir spítalann er við Keldur/ Keldnaholt með gatnakerfi til allra átta. Hægt væri að byggja hratt og vel upp og spítalinn og tengd starfsemi gæti þróast til framtíðar ásamt því sem auðvelt yrði að byggja upp aðstöðu fyrir þyrluflug til og frá svæðinu. Í næsta ná- grenni spítalans yrðu svo skipu- lagðar lóðir fyrir hjúkrunar- og dvalarheimili ásamt hentugum íbúðum og þjónustuíbúðum fyrir 60+ með lyftu og bílskýli. Falleg náttúra er í kringum svæðið og stutt í golf, sund og fallegar gönguleiðir ásamt verslun og þjón- ustu. Þjónusta við íbúa kæmist þarna vel fyrir ásamt heilsugæslu og fleiru. Mikilvægi þess að byggja hratt og vel upp hjúkrunar- og dvalar- heimili er tvíþætt. Annars vegar vinnur það með fráflæðivanda spít- alans þar sem fólk sem ekki kemst inn á viðeigandi stofnanir er fast á spítalanum. Hins vegar þegar þessi hópur er kominn í skjól á hjúkrunar- eða dvalarheimili losn- ar fjöldi íbúða inn á markaðinn fyrir yngri kynslóðina en eðlilegt er að endurnýjun verði í hverfum borgarinnar. Grafarvogur er eitt stærsta hverfi borgarinnar en hverfið er tekið að eldast. Mjög lítið er af húsnæði með lyftu og bílskýli ,sem hentar fyrir eldri kynslóðina, hefur verið byggt í hverfinu miðað við íbúafjölda, en það hamlar því að þar losni eldra húsnæði eins og raðhús, parhús og einbýli. Einungis hefur verið byggt upp húsnæði með lyftu og bílskýli við Sól- eyjarima en síðan er eitt fjölbýli við Breiðuvík með lyftu og annað við Veghús og þrjú í Staðarhverfi með lyftu og bíl- skýli. Þetta er hvergi nærri nóg. Hverfið í Grafarholti og Úlfars- árdal er enn mjög ungt hverfi og enn í uppbyggingu en þar fer bráðlega að fjölga íbúum af eldri kynslóðinni. Þar er nægt húsnæði með lyftu og bílskýli en þar eru til að mynda engar þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Mikilvægt er að byggja nýjan spítala á nýjum stað en allar helstu forsendur fyrir staðarvali við Hringraut eru nú brostnar eft- ir þrengingar að umferð á undan- förnum árum og ekki hefur komið til þess að byggð hafi verið mislæg gatnamót í austurátt sem og göng fyrir umferð að svæðinu. Nú er svo komið að veruleg hætta stafar af umferðarþunga á umferðar- æðum að spítalanum sem gerir það að verkum að erfitt er fyrir fólk að komast með hraði á spítalann úr austurborginni sem og nærliggj- andi sveitarfélögum á höfuðborg- arsvæðin. Spítalinn þjónar ekki bara vesturborginni heldur öllu höfuðborgarsvæðinu sem og lands- byggðinni. Staðsetning við Keldur/ Keldnaholt er ákjósanleg ekki bara vegna umhverfisins og land- svæðisins sem þar er laust, heldur einnig vegna umferðarmannvirkja og aðkomu sem þar er og að- stæðna. Segja má að auðvelt að- gengi sé að svæðinu hvaðan sem komið er að því. Það mundi einnig minnka mikið umferðarþungann í borginni að staðsetja spítalann við Keldur/Keldnaholt og í raun snúa við miklum hluta hennar og minnka þannig álag. Núverandi hugmynd við Hringbraut gerir ráð fyrir að nýta núverandi byggingar sem eru sýktar myglu og bakt- eríum og það er ekki boðlegt fyrir þjóð sem hefur ekkert annað val. Hugmyndir um borgarlínu setja einnig strik í reikninginn en ljóst er að umferðarþungi að spítalanum verður enn meiri með þeirri upp- byggingu ef af verður. Áætlað er nú að sameina Fossvog við Hring- braut en þá verða starfsmenn tæp- lega 3.000 sem vinna á daginn frá kl. 8-16 en aðeins er gert ráð fyrir 1.700 bílastæðum við hinn nýja spítala við Hringbraut. Það er hvergi nærri nóg hvort sem litið er til þess hvernig starfsmenn koma til vinnu eða þegar litið er til allra þeirra sem koma á spítalann í alls- kyns rannsóknir og meðferðir á degi hverjum sem og gestir og að- standendur sjúklinga. Miðflokkurinn í Reykjavík legg- ur höfuðáherslu á að skipulaggja nýja staðsetningu fyrir spítalann við Keldur/Keldnaholt og upp- byggingu hjúkrunar- og elliheimila ásamt hverfi fyrir eldri borgara ef hann fær til þess umboð í borg- arstjórnarkosningunum í vor. Keldur hafa fyrir löngu sannað gildi sitt fyrir heilbrigðisþjónustu en Sjúkrahúsið Vogur hefur verið staðsett við voginn í Keldnaland- inu um langt árabil með mjög góð- um árangri. Þau óskiljanlegu rök, sem eru notuð í umræðunni að nýtt staðarval fyrir nýjan spítala fresti uppbyggingu hans um 10-15 ár, eru markleysa. Það tók innan við ár að byggja nýja álmu við Sjúkrahúsið Vog enda landrými þar nægt og aðgengi fyrir upp- byggingu gott. Miðflokkurinn í Reykjavík leggur þunga áherslu á að nýr spítali verði áfram í Reykjavík og hvetur önnur sveit- arfélög í nágrenni Reykjavíkur að koma með sínar tillögur og rök um uppbyggingu nýs spítala innan þeirra sveitarfélaga s.s. á Vífils- stöðum. Nýr spítali á nýjum stað – Stefna Miðflokksins í Reykjavík Eftir Vilborgu G. Hansen Vilborg G Hansen » Besta mögulega staðsetning fyrir spítalann er við Keldur/ Keldnaholt í bland við íbúðabyggð fyrir eldri borgara ásamt hjúkrunar- og dvalarheimilum. Höfundur er íbúi í Grafarholti og skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í næstu borgarstjórnar- kosningum. vilborg@midflokkurinn.is Tölvumynd/Viðar Freyr Guðmundsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ? VISTVÆNAR BARNAVÖRUR Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.