Morgunblaðið - 09.03.2018, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
VINNINGASKRÁ
45. útdráttur 8. mars 2018
179 9312 19930 32629 41695 51328 60460 72593
198 9442 20221 32973 41788 51383 60825 72861
207 9884 20233 33330 41908 51469 61814 73319
520 10277 20321 33699 41910 51620 62014 73864
761 10932 21248 33853 42317 51673 62292 74005
1067 11304 21292 33975 42765 52052 62845 74045
1520 11398 21836 34204 42819 52057 63139 74269
1793 11882 22249 34231 43713 52538 63174 74426
2070 11934 22844 34454 43834 52873 63178 75410
2197 11991 23058 34568 43888 53497 63468 75483
2416 12168 23681 35432 44428 53653 63555 75519
2718 12575 23699 36206 44577 54049 63854 75652
2858 12807 23752 36291 45217 54054 63921 75666
2913 12916 23779 36541 45400 54972 63974 75942
3108 12998 24296 36601 45908 55092 64334 75949
3423 13030 24541 36790 46707 55098 64343 76399
3618 13537 24777 36857 46834 55203 64983 76492
3636 13915 25224 37062 46881 55276 65500 76503
3772 14534 25464 37185 46963 55295 65507 77471
3920 14640 26210 37347 47175 55334 65741 77596
4153 15015 26490 37548 47304 55542 65845 77781
4280 15052 26656 37895 47345 55989 66010 77952
4289 15180 26983 38279 47667 56100 66108 78345
4444 15193 27106 38470 48036 56428 66384 78518
4549 15478 27662 38946 48151 56762 67008 78568
4833 15854 28305 39093 48312 56938 67417 78692
5111 16430 28978 39614 48910 57653 67911 79076
5220 16676 29235 39889 48992 58180 68137 79176
5735 16847 29980 40302 49135 58587 69079 79361
5833 17338 30388 40504 49727 58699 69116 79817
6080 17383 30896 41106 49801 58711 69216 79858
6562 17480 30998 41120 49961 58732 69685
6586 17716 31119 41136 50122 58868 70172
7031 17922 31300 41215 50125 59124 70329
7946 18766 31384 41242 50490 59429 70402
8637 19201 31513 41289 50739 59670 71185
9138 19822 32335 41492 50940 60103 72049
1272 9797 18988 36356 44669 57364 64228 70943
2247 10539 19105 39795 44949 58232 64555 73022
3264 12733 19344 39806 47342 58855 65304 73658
3950 12914 23721 40692 49013 58944 65830 76071
4025 13128 24328 40836 49995 59304 66353 77683
5237 13342 26270 41092 50480 61893 67773 77926
5571 13861 26345 41144 52825 62110 67966 77949
6122 15326 26475 42070 52915 62114 69487 78472
6848 15651 27299 42703 53080 62732 69589 79825
7231 16533 28027 43173 54065 62871 69753
8155 16723 28890 43955 54109 63053 70342
8836 17930 29921 44087 54194 63807 70497
9166 18278 32816 44425 55469 63924 70925
Næstu útdrættir fara fram 15., 22. & 28. mars 2018
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
15423 41930 44062 51245
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1860 8359 14113 25184 56828 73009
3804 9604 15208 38102 58617 75623
6035 10320 17430 46614 58771 78403
7069 12550 17752 53241 64376 78484
Aðalv inningur
Kr. 3.000.000 Kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
7 8 2 4
Nýleg ákvörðun
menntamálaráðherra
um að lýsa yfir þátt-
töku Íslands í fjár-
málalæsishluta PISA-
könnunarinnar árið
2021 er mikið fagn-
aðarefni. Þátttaka ís-
lenskra nemenda í
þessum hluta hefur
verið áherslumál allra
þeirra sem beita sér
fyrir eflingu fjármálalæsis hér á
landi um langt skeið. Með því að
mæla hversu vel læst unga fólkið
okkar er á eigin fjármál og fá sam-
anburð við önnur lönd fæst góð vís-
bending um hvar við stöndum og
styrkir grundvöll allrar ákvarð-
anatöku í málaflokknum.
Fjármálavandi ungs fólks eykst
Umboðsmaður skuldara vakti ný-
lega athygli á umfangi smálána
meðal þeirra sem eru í skuldavanda
og segir að hlutfall smálána af heild-
arskuldum þeirra sem sækja um
ráðgjöf eða greiðsluaðlögun hafi
vaxið töluvert á undanförnum árum.
Þannig er hlutfall smálána orðið
hærra en hlutfall fasteignalána í
fyrsta sinn. Hlutfallið fór úr 18% ár-
ið 2015 í 43% árið 2017. Umboðs-
maður bendir á að mesta aukning
þeirra sem leita til embættisins sé í
yngsta aldurshópnum, 18-29 ára, og
að svo virðist sem þessi hópur leiti
frekar til smálánafyrirtækja.
Þörfin fyrir fjármálafræðslu
er meiri
Væntanlega má finna ýmsar
skýringar á því af hverju ungt fólk
tekur í auknum mæli smálán. Ein
getur verið sú að ungmenni standa
nánast daglega frammi fyrir
ákvörðunum um fjármál þar sem
snjalltæki, stafræn þróun og net-
væðing verslunar og viðskipta hefur
orðið til þess að mjög auðvelt er að
stofna til einhvers konar fjárhags-
legra skuldbindinga, og eru smál-
ánin þar engin undantekning. Þessi
þróun kallar á meiri fræðslu til
þeirra sem nýta sér
slíka þjónustu, en það
að vera upplýstur um
mögulegar afleiðingar
sem ákvörðun getur
haft í för með sér er
undirstaða góðs
fjármálalæsis. Fræðsla
til ungs fólks varðandi
þeirra eigin fjármál er
jafnframt grunnur
þess að vera viðbúinn
áskorunum framtíð-
arinnar.
Fjármálalæsi innan
veggja skólanna
Þegar 15 ára nemendur eru
spurðir hvar þeir fái fræðslu um
fjármál er svarið oftast að það komi
að mestu með spjalli við foreldra
eða forráðamenn, en einnig í skól-
unum. Kennarar eru flestir sam-
mála mikilvægi þess að kenna fjár-
málalæsi í skólum og þannig veita
öllum nemendum jafnan rétt og að-
gang að fræðslu í grundvallar-
þáttum fjármálalæsis. Í flestum
þátttökulöndunum í PISA-
könnuninni er fjármálalæsi með ein-
hverju móti í námskrá. Á Íslandi
kemur fjármálalæsi fyrir í ýmsum
námsgreinum samkvæmt aðal-
námskrá grunnskóla. Framkvæmd
fjármálafræðslunnar er síðan undir
hverjum og einum grunnskóla kom-
in, en algengast er að hún sé kennd
innan stærðfræðinnar, í lífsleikni/
samfélagsfræði eða sem sérvalfag.
Hvað af þessu telst heillavænlegast
þegar upp er staðið er svo sem ekki
aðalatriðið, heldur það að fjár-
málalæsi sé kennt með skipulögðum
og markvissum hætti innan veggja
skólans. Það er ljóst að þátttaka Ís-
lands í fjármálalæsiskafla PISA
2021 mun skapa meiri þekking-
argrundvöll fyrir ákvarðanatöku um
það hvernig best sé að koma fjár-
málafræðslu fyrir í skólakerfinu.
Fjármálavit
Til að leggja sitt af mörkum hafa
Samtök fjármálafyrirtækja í sam-
vinnu við Landssamtök lífeyrissjóða
útbúið námsefni um fjármál fyrir
efstu bekki grunnskóla með áherslu
á 15 ára aldurinn sem mældur er í
PISA. Námsefnið nefnist Fjármála-
vit og er ætlað að veita kennurum
innblástur í kennslu í fjármálalæsi.
Nú standa yfir kynningar Fjármála-
vits í grunnskólum landsins fjórða
árið í röð þar sem starfsmenn aðild-
arfélaga SFF og LL heimsækja
skólana með námsefnið, vinna verk-
efni með nemendum og deila þar
með reynslu sinni, en yfir 200
starfsmenn hafa heimsótt yfir
12.000 nemendur í allflestum grunn-
skólum landsins. Viðtökur nemenda
og kennara við þessum heimsóknum
hafa verið framar öllum vonum og
er mikil eftirspurn eftir námsefninu.
Lögð er áherla á þætti í fjármálum
sem mikilvægt er að hver og einn
unglingur tileinki sér og leitast er
við að höfða til almennrar skynsemi
krakkanna og leiða þá í allan sann-
leik um hvaða ábyrgð þeir þurfi að
sýna þegar kemur að eigin fjár-
málum.
Fögnum fjármálalæsi
Framundan er alþjóðleg
fjármálalæsisvika dagana 12.-18.
mars þar sem mikilvægi fjár-
málalæsis verður flaggað víða um
heim og er Ísland þar engin und-
antekning. Að Ísland hafi ákveðið að
vera með í fjármálalæsishluta PISA
2021 er fagnaðarefni út af fyrir sig,
en það eitt og sér er skref í átt að
því að byggja upp flottar og vel fjár-
málalæsar framtíðarkynslóðir.
Fögnum fjármálalæsi
Eftir Kristínu
Lúðvíksdóttur » Þátttaka Íslands í
fjármálalæsiskafla
PISA 2021 mun skapa
meiri þekkingargrund-
völl fyrir ákvarðanatöku
um það hvernig best sé
að koma fjármála-
fræðslu fyrir í skóla-
kerfinu.
Kristín Lúðvíksdóttir
Höfundur er verkefnastjóri
fjármálafræðslu hjá Samtökum
fjármálafyrirtækja.
kristin@sff.is
Akureyringar eiga
Matthías Jochumsson,
Davíð Stefánsson og
Nonna og halda minn-
ingu þeirra á lofti.
Reykjanesbær á
Hljóma og Ellý Vil-
hjálms, Mosfellsbær
Halldór Laxness
o.s.frv.
Sveitarfélagið Vogar
á Jón Dan rithöfund
sem gaf út fjölda skáldsagna á 20. öld
(minnst var aldarafmælis hans 2015 í
Vogum) og séra Stefán Thorarensen
sem ritstýrði tveimur sálmabókum
og þýddi og orti fjölda sálma á 19. öld.
Minningu Stefáns hefur lítið verið
haldið á lofti, en nú skal úr því bætt
um næstu helgi, sem er Safnahelgi á
Suðurnesjum. Samkoma verður á
Kálfatjörn sunnudaginn 11. mars kl.
13 þar sem fjallað verður um störf
hans og sungnir fáeinir af sálmum
hans. Þar mun Haukur Aðalsteinsson
flytja erindi um Stefán, uppbyggingu
hans á Kálfatjörn og um stofnun
skólans. Una Margrét Jónsdóttir,
tónlistardagskrárgerðarmaður á
RÚV, flytur erindi um sálmaskáldið
og sálma hans og kór Kálfatjarnar-
kirkju flytur nokkra af sálmunum. Að
loknu kaffihléi mun prófessor Hjalti
Hugason flytja erindi um prestinn
Stefán Thorarensen.
Á Kálfatjörn hefur lítið skólahús,
sem reist var í Norð-
urkoti 1903, verið end-
urbyggt sem skólasafn.
Það verður opið þennan
dag og athyglinni beint
að upphafi skólastarfs í
Vatnsleysustrandar-
hreppi 1872 og aðkomu
Stefáns Thorarensen
að því.
Stefán Thorarensen
fæddist 10. júlí 1831,
sonur síra Sigurðar G.
Thorarensen í Hraun-
gerði og Guðrúnar Vig-
fúsdóttur, sýslumanns á Hlíðarenda.
Stefán var prestur á Kálfatjörn í
Vatnsleysustrrandarhreppi 1857-
1886 og bjó eftir það í Reykjavík, í
húsi því sem nú er Humarhúsið, og
lést þar 1892.
Stefán var farsæll prestur, stund-
aði búskap og árabátaútgerð á Kálfa-
tjörn og byggði upp staðinn. Hann
gekkst fyrir því að stofnaður var
barnaskóli á Vatnsleysuströnd árið
1872 sem er þriðji elsti skólinn sem
starfað hefur samfleytt. Hann hét í
upphafi Thorkillii-barnaskólinn í
Vatnsleysustrandarhreppi. Skólinn
var fyrir alla, jafnt börn ríkra sem
snauðra. Vel stæð heimili greiddu
skólagjöld en Thorkillii-sjóður kost-
aði börn af verr stöddum heimilum.
Skólinn var ætlaður börnum frá sjö
ára aldri fram að fermingu, en einnig
var kennsla fyrir fermd börn og
stundum handavinna fyrir fólk á
ýmsum aldri. Söngur var á námskrá
frá upphafi. Nafnið langa breyttist
fljótt í Suðurkotsskóli, löngu síðar í
Brunnastaðaskóli og loks í Stóru-
Vogaskóli er hann var fluttur í Voga
1979.
Líklega er Stefán þekktastur fyrir
framlag sitt til sálmabóka lands-
manna. Hann var skáldmæltur, sat í
sálmabókarnefndunum er settar
voru 1867 og 1878, lagfærði eða frum-
orti 95 sálma í sálmabók sem kom út
1871 og 44 sálma í sálmabók sem kom
út 1886. Hann var sagður manna
söngfróðastur, tónaði vel og sókn-
arbörn hans báru honum mjög vel
söguna.
Athöfnin á sunnudaginn hefst kl.
13:00 í Kálfatjarnarkirkju og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Skólasafnið verður opnað kl. 12:00.
Nánari upplýsingar um Safnahelgi
á Suðurnesjum 2018 eru á vefnum
safnahelgi.is
Sálma- og skólafrumkvöðull
á Kálfatjörn á 19. öld
Eftir Þorvald Örn
Árnason
Þorvaldur Örn Árnason
»Dagskrá um Stefán
Thorarensen (1831--
1892) verður á Kálfa-
tjörn á Vatnsleysuströnd
sunnudaginn 11. mars.
Stefán var sálmaskáld
og skólafrömuður m.a.
Höfundur er formaður frístunda- og
menningarnefndar Sveitarfélagsins
Voga. valdurorn@simnet.is
Atvinnublað
alla laugardaga
mbl.is