Morgunblaðið - 09.03.2018, Side 26

Morgunblaðið - 09.03.2018, Side 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018 Eftir því sem bezt verður séð setur rík- isstjórn Katrínar Jakobsdóttur í fyrsta sinn í íslenzkri stjórn- málasögu skýrt og sterkt ákvæði um dýra- og nátt- úruvernd inn í stjórnarsáttmálann. Þau Sigurður Ingi, Bjarni Benediktsson og hún eiga heiður skilinn fyrir þennan skilning, þetta framtak og þetta þýðingarmikla skref í átt að nútímalegri og mannúðlegri dýra- og náttúruvernd. Væntanlega er frumkvæðið komið frá Katrínu, sem er sannur dýra-, náttúru- og umhverfisvinur. Þetta ákvæði hljóðar svo: „Dýralíf á Íslandi er hluti af ís- lenskri náttúru sem ber að vernda. Náttúran er auk þess stærsta að- dráttarafl Íslands fyrir ferðamenn. Endurskoða þarf löggjöf um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum.“ Það er sjálfgefið, að þessi „end- urskoðun“ hlýtur að þýða aukna vernd og friðun, aukna velferð dýranna, ekki frekara dráp og auknar ofsóknir gegn saklausum og varnarlausum dýrum. Nýr umhverfisráðherra er Guð- mundur Ingi Guðbrandsson, sem var framkvæmdastjóri Land- verndar. Fer vel á því. Í nýlegu viðtali á Hringbraut staðfestir hann að hann sé dýravinur. Þetta allt er mikið gleðiefni fyrir dýra-, náttúru- og umhverfis- verndarsinna, og horfa menn til betri tíma fyrir dýr, náttúru og líf- ríki landsins. Það kom því hastarlega við ýmsa, þegar nýr umhverfis- ráðherra tilkynnti „hreindýrakvót- ann 2018“. Drepin skyldu nú fleiri hreindýr en nokkru sinni fyrr; 1.450 dýr, en í fyrra var fjöldinn 1.315. Fyrst um sinn var tíma- ramminn fyrir drápið líka látinn haldast; frá 15. júlí eða 1. ágúst til 20. september. Í tilkynningunni er þó óljós fyrirvari um veiðitíma, en sagt er að hann kunni að breytast á grundvelli athugunar um áhrif og álag kúadráps á kálfa þeirra, en 1. ágúst, þegar veiðar hafa hafizt hingað til eru þessi skinn aðeins 8 vikna gömul og enn með fulla mjólkurþörf og þörf fyrir móð- urumhyggju og -vernd til margra mánaða eins og annað ungviði. Vísindalegar rann- sóknir frá Noregi sýna, að 8 vikna hreindýrakálfur drekkur enn 8 sinnum í hálfa mínútu á dag, þegar hann er orðinn 11 vikna, 6 sinnum í hálfa mínútu og 16 vikna drekkur hann enn 5 sinnum í hálfa mínútu á dag, en þetta sannar auðvitað, að það er algjör óhæfa og hreint dýraníð að drepa kýrnar frá kálfunum 8 vikna gömlum. Er þá tilfinningalegt áfall og sorg, streita, ótti, óvissa og kvíði umkomulausra 8 vikna kálfa ótalið. Það eru 600.000 fjár á fjalli á sumrin. Hestar eru 80.000, margir villtir og á beit á hálendinu. Naut- gripir munu vera um 70.000 og teljast þeir til 750.000 grasbíta landsins. Hreindýrin eru aðeins 6.500 talsins, eða innan við 1% af grasbítum landsins. Veiðimenn og stjórnvöld halda því fram að takmarka verði út- breiðslu hreindýra vegna hættu á ofbeit og útbreiðslu sauðfjársmit- sjúkdóma!? Þetta er fyrir undirrituðum kerlingabækur til að réttlæta drápið á hreindýrum, en hin rétta ástæða er, að hreindýradrápið færir Umhverfisstofnun, Nátt- úrustofu Austurlands og landeig- endum gífurlegar tekjur. Senni- lega 150 milljónir króna í ár. Þetta er því miskunnarlaust blóðbað í fjáröflunarskyni. Ekki er hægt að skilja rök- hyggju þeirra ráðamanna sem settu upp það kerfi, að Umhverf- isstofnun og Náttúrustofa Austur- lands skyldu, annars vegar gæta hagsmuna, verndar og velferðar hreindýra og hins vegar eiga veru- legan hluta tekna sinna, jafnvel eiga afkomu sína undir því, að sem allra flest hreindýr væru drepin. Þessu mætti líkja við það að læknir fengi bónus og auka- greiðslu fyrir hvern sjúkling sem létist í meðferð hans. Um hættu af útbreiðslu er þetta að segja: Á sínum tíma héldu hreindýr sig eingöngu við norðausturhluta Vatnajökuls. Í millitíðinni hafa dýrin smám sam- an dreift sér þvert yfir landið, frá Raufarhöfn í norðri niður til Jök- ulsárlóns, sunnan Vatnajökuls, í suðri. Þetta er fjórðungur eða fimmtungur landsins, og eru þýð- ingarmikil landbúnaðarhéruð á þessu svæði. Þessi útbreiðsla dýr- anna hefur engum teljandi vand- ræðum valdið, enda eru hreindýr friðsöm, spök og vandræðalaus. Íslenzki hreindýrastofninn er stærsti villti hreindýrastofninn í Evrópu, en það er búið að útrýma villtum hreindýrum í flestum lönd- um öðrum, eins og mörgum öðrum villtum dýrategundum. Tillaga undirritaðs er, að full friðun hrein- dýra verði látin gilda skv. lögum 64/1994, en veiðar byggjast á und- anþágum frá þeim. Gæti Ísland með því orðið „Land hreindýranna“, en margir – ungir sem aldnir – tengja hreindýr við jólaævintýrið, jólasveininn og önnur skemmtileg mál og láta sér mjög annt um hreindýr. Gætu dýr- in þá breiðst út frá Norðaust- urlandi til vesturs, eftir beitarþörf, og auðgað og prýtt frekari svæði á Norðurlandi, seinna allt að Vest- fjörðum og Vesturlandi, með feg- urð sinni og tign. Náttúra og dýralíf landsins er eitt mesta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn. Í fyrra fóru um 500.000 manns í friðsamar hvala- skoðanir, og voru af því milljarða tekjur. Hreindýr gætu orðið annað og nýtt aðdráttarafl fyrir ferða- menn, einkum á sumrin, þegar kálfar eru litlir og fram á haust og vetur. Meðan hreindýr eru innan við 1% af grasbítum landsins, þarf vart að hyggja mikið að offjölgun. Í raun er það svo með dýrin og náttúruna að þau stilla viðkomuna af sjálf eftir fæðuframboði og lífs- skilyrðum og raskast jafnvægi náttúrunnar oft þá fyrst þegar maðurinn grípur inn í og fer að leika Guð. Við treystum því að nýr um- hverfisráðherra fylgi í verki stjórnarsáttmála og lögum og sýni að hann sé sannur dýravinur. Ætti læknir að fá bónus fyrir hvern látinn sjúkling? Eftir Ole Anton Bieltvedt » Þetta miskunn- arlausa blóðbað færir Umhverfisstofn- un, Náttúrustofu Austurlands og land- eigendum gífurlegar tekjur. Sennilega 150 milljónir króna í ár. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Er umskurður á kynfærum drengja leyfilegur samkvæmt núgildandi lögum? Lagt hefur verið fram frumvarp til laga um að banna umskurð á kynfærum drengja. Umdeilt hefur verið hvort ástæða sé til að leggja slíkt frumvarp fram. Hvort um- skurður drengja sé nú ekki þegar bannaður. Ill meðferð á börnum er bönnuð hér á landi, þar á meðal líkamlegt ofbeldi gagnvart börnum samkvæmt barnavernd- arlögum. En þá má spyrja hvort um- skurður drengja falli undir líkamlegt ofbeldi. Líkamlegt ofbeldi hefur verið skilgreint sem óþörf athöfn sem leiðir til skaða eða sem geti leitt til skaða. Hér er vissulega um óþarfa athöfn að ræða. Ekki er hægt að halda því fram að umskurður kynfæra sé læknis- fræðilega nauðsynlegur, þar sem margir karlmenn komast vel af án hans. Getur athöfnin leitt til skaða? Já, aðgerðin sjálf getur valdið sárs- auka. Auk þess mætti ætla að barnið finni fyrir óþægindum fyrstu dagana eftir aðgerð þar sem þvag leikur um svæðið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það að vera með umskorin kynfæri geti jafnvel leitt til vissra óþæginda það sem eftir er ævinnar. Því má ætla að umskurður á kynfær- um drengja sé óþörf athöfn sem leiði til skaða eða geti leitt til skaða. Hér mætti jafnvel segja að um limlestingu sé að ræða í bókstaflegri merkingu. En það er kannski vissara að það sé tíundað í almennum hegningarlögum líka. Trúfrelsi hvers? Umskurður á kynfærum drengja tíðkast í sumum menningarheimum og hefur verið tengdur við tiltekin trúarbrögð. En það má spyrja sig hvort réttlætanlegt sé að afmynda líkama barns vegna trúarbragða for- eldra þess eða vegna þess að það tíðk- ast í tiltekinni menningu. Skiptir trú- frelsi foreldra barnsins meira máli fyrir barnið en trúfrelsi þess sjálfs? Foreldrar eru með forsjárskyldur gagnvart barni sínu fram að fullorð- insaldri þess. Þeim ber að gæta barns síns, rækta það og elska. Foreldrar gefa börnum sínum nafn og hafa mik- il áhrif á líf og líðan barna sinna þar sem þeir eru í nánum tengslum við börn sín allt frá fæðingu þeirra og þar til þau flytja að heiman. En þeim ber einnig að gæta að mann- réttindum barna sinna. Börn ættu skilyrðislaust að hafa umráðarétt yfir líkama sínum og því ætti ekki að gera ónauðsyn- legar óafturkræfar að- gerðir á líkömum þeirra að þeim forspurðum. Meint „trúfrelsi“ for- eldra þeirra eða menn- ingarleg hefð er einfald- lega ekki réttlætanleg skýring fyrir slíkum óafturkræfum aðgerð- um á líkömum þeirra. Ef hægt er að réttlæta umskurð á kynfærum drengja út frá trúarbrögðum foreldra þeirra, hvað þá um aðrar alvarlegri athafnir sem tengjast trúarbrögðum eða menningu? Má þar nefna svoköll- uð heiðursmorð eða að kvenkyns fóstrum sé markvisst eytt, en hvoru tveggja tíðkast á vissum svæðum í heiminum. Ætlum við að samþykkja slíkar athafnir líka? Eða að stúlkur fái einungis takmarkaða menntun vegna hefða á vissum menning- arsvæðum? Öfgatrú og menningarþættir Það að trúa á Guð getur haft já- kvæð áhrif á fólk. Til dæmis hefur það sýnt sig að það að trúa á Guð get- ur dregið úr afleiðingum ofbeldis og haft jákvæð félagsleg áhrif. Það hefur hins vegar sýnt sig að öfgatrúarbrögð og vissir menningarþættir geta aukið líkur á misbresti í aðbúnaði barna. Ef ætti að réttlæta eina tegund slíks misbrests í aðbúnaði barna, eins og t.d. umskurð á kynfærum drengja út frá einum tilteknum áhættuþætti eins og öfgatrúarbrögðum foreldra, hvað þá um aðrar tegundir og aðra áhættuþætti? Ætti að réttlæta van- rækslu barns vegna þunglyndis móð- ur eða vegna vímuefnaneyslu föður? Erum við þá ekki komin á hálan ís? Er ekki heppilegra að horfa á þessi mál frá sjónarhorni barnsins og gæta réttar þess? Limlestingar í skjóli trúfrelsis Eftir Freydísi Jónu Freysteinsdóttur Freydís Jóna Freysteinsdóttir »Ætla má að um- skurður á kynfærum drengja sé óþörf athöfn sem geti verið skaðleg og flokkist því undir lík- amlegt ofbeldi sem ekki er leyfilegt á Íslandi. Höfundur er dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. fjf@hi.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.