Morgunblaðið - 09.03.2018, Side 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Vífilsstaðir eða
Keldur/Keldnaholt?
Stefna Miðflokksins
er að byggja nýjan
spítala á nýjum stað
og hafa bæði Vífils-
staðir og Keldur/
Keldnaholt verið
nefnd í því samhengi.
Upphaflegri stað-
arvalsgreiningu sem
gerð var af erlendum
sérfræðingum og stungið var undir
stól, miðaðist við Fossvog og Keld-
ur/Keldnaholt. Síðan þá hefur önn-
ur uppbygging og lóðaúthlutun í
Fossvogi komið í veg fyrir þá stað-
setningu til framtíðar.
Besta mögulega staðsetning fyr-
ir spítalann er við Keldur/
Keldnaholt með gatnakerfi til allra
átta. Hægt væri að byggja hratt
og vel upp og spítalinn og tengd
starfsemi gæti þróast til framtíðar
ásamt því sem auðvelt yrði að
byggja upp aðstöðu fyrir þyrluflug
til og frá svæðinu. Í næsta ná-
grenni spítalans yrðu svo skipu-
lagðar lóðir fyrir hjúkrunar- og
dvalarheimili ásamt hentugum
íbúðum og þjónustuíbúðum fyrir
60+ með lyftu og bílskýli. Falleg
náttúra er í kringum svæðið og
stutt í golf, sund og fallegar
gönguleiðir ásamt verslun og þjón-
ustu. Þjónusta við íbúa kæmist
þarna vel fyrir ásamt heilsugæslu
og fleiru.
Mikilvægi þess að byggja hratt
og vel upp hjúkrunar- og dvalar-
heimili er tvíþætt. Annars vegar
vinnur það með fráflæðivanda spít-
alans þar sem fólk sem ekki kemst
inn á viðeigandi stofnanir er fast á
spítalanum. Hins vegar þegar
þessi hópur er kominn í skjól á
hjúkrunar- eða dvalarheimili losn-
ar fjöldi íbúða inn á markaðinn
fyrir yngri kynslóðina en eðlilegt
er að endurnýjun verði í hverfum
borgarinnar.
Grafarvogur er eitt stærsta
hverfi borgarinnar en hverfið er
tekið að eldast. Mjög lítið er af
húsnæði með lyftu og
bílskýli ,sem hentar
fyrir eldri kynslóðina,
hefur verið byggt í
hverfinu miðað við
íbúafjölda, en það
hamlar því að þar
losni eldra húsnæði
eins og raðhús, parhús
og einbýli. Einungis
hefur verið byggt upp
húsnæði með lyftu og
bílskýli við Sól-
eyjarima en síðan er
eitt fjölbýli við Breiðuvík með
lyftu og annað við Veghús og þrjú
í Staðarhverfi með lyftu og bíl-
skýli. Þetta er hvergi nærri nóg.
Hverfið í Grafarholti og Úlfars-
árdal er enn mjög ungt hverfi og
enn í uppbyggingu en þar fer
bráðlega að fjölga íbúum af eldri
kynslóðinni. Þar er nægt húsnæði
með lyftu og bílskýli en þar eru til
að mynda engar þjónustuíbúðir
fyrir aldraða.
Mikilvægt er að byggja nýjan
spítala á nýjum stað en allar
helstu forsendur fyrir staðarvali
við Hringraut eru nú brostnar eft-
ir þrengingar að umferð á undan-
förnum árum og ekki hefur komið
til þess að byggð hafi verið mislæg
gatnamót í austurátt sem og göng
fyrir umferð að svæðinu. Nú er
svo komið að veruleg hætta stafar
af umferðarþunga á umferðar-
æðum að spítalanum sem gerir það
að verkum að erfitt er fyrir fólk að
komast með hraði á spítalann úr
austurborginni sem og nærliggj-
andi sveitarfélögum á höfuðborg-
arsvæðin. Spítalinn þjónar ekki
bara vesturborginni heldur öllu
höfuðborgarsvæðinu sem og lands-
byggðinni. Staðsetning við Keldur/
Keldnaholt er ákjósanleg ekki
bara vegna umhverfisins og land-
svæðisins sem þar er laust, heldur
einnig vegna umferðarmannvirkja
og aðkomu sem þar er og að-
stæðna. Segja má að auðvelt að-
gengi sé að svæðinu hvaðan sem
komið er að því. Það mundi einnig
minnka mikið umferðarþungann í
borginni að staðsetja spítalann við
Keldur/Keldnaholt og í raun snúa
við miklum hluta hennar og
minnka þannig álag. Núverandi
hugmynd við Hringbraut gerir ráð
fyrir að nýta núverandi byggingar
sem eru sýktar myglu og bakt-
eríum og það er ekki boðlegt fyrir
þjóð sem hefur ekkert annað val.
Hugmyndir um borgarlínu setja
einnig strik í reikninginn en ljóst
er að umferðarþungi að spítalanum
verður enn meiri með þeirri upp-
byggingu ef af verður. Áætlað er
nú að sameina Fossvog við Hring-
braut en þá verða starfsmenn tæp-
lega 3.000 sem vinna á daginn frá
kl. 8-16 en aðeins er gert ráð fyrir
1.700 bílastæðum við hinn nýja
spítala við Hringbraut. Það er
hvergi nærri nóg hvort sem litið er
til þess hvernig starfsmenn koma
til vinnu eða þegar litið er til allra
þeirra sem koma á spítalann í alls-
kyns rannsóknir og meðferðir á
degi hverjum sem og gestir og að-
standendur sjúklinga.
Miðflokkurinn í Reykjavík legg-
ur höfuðáherslu á að skipulaggja
nýja staðsetningu fyrir spítalann
við Keldur/Keldnaholt og upp-
byggingu hjúkrunar- og elliheimila
ásamt hverfi fyrir eldri borgara ef
hann fær til þess umboð í borg-
arstjórnarkosningunum í vor.
Keldur hafa fyrir löngu sannað
gildi sitt fyrir heilbrigðisþjónustu
en Sjúkrahúsið Vogur hefur verið
staðsett við voginn í Keldnaland-
inu um langt árabil með mjög góð-
um árangri. Þau óskiljanlegu rök,
sem eru notuð í umræðunni að
nýtt staðarval fyrir nýjan spítala
fresti uppbyggingu hans um 10-15
ár, eru markleysa. Það tók innan
við ár að byggja nýja álmu við
Sjúkrahúsið Vog enda landrými
þar nægt og aðgengi fyrir upp-
byggingu gott. Miðflokkurinn í
Reykjavík leggur þunga áherslu á
að nýr spítali verði áfram í
Reykjavík og hvetur önnur sveit-
arfélög í nágrenni Reykjavíkur að
koma með sínar tillögur og rök um
uppbyggingu nýs spítala innan
þeirra sveitarfélaga s.s. á Vífils-
stöðum.
Nýr spítali á nýjum stað –
Stefna Miðflokksins í Reykjavík
Eftir Vilborgu G.
Hansen
Vilborg G Hansen
» Besta mögulega
staðsetning fyrir
spítalann er við Keldur/
Keldnaholt í bland
við íbúðabyggð fyrir
eldri borgara ásamt
hjúkrunar- og
dvalarheimilum.
Höfundur er íbúi í Grafarholti og
skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í
Reykjavík í næstu borgarstjórnar-
kosningum.
vilborg@midflokkurinn.is
Tölvumynd/Viðar Freyr Guðmundsson
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?
VISTVÆNAR
BARNAVÖRUR
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14