Morgunblaðið - 16.03.2018, Page 16

Morgunblaðið - 16.03.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2018 16. mars 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 99.3 99.78 99.54 Sterlingspund 138.62 139.3 138.96 Kanadadalur 76.63 77.07 76.85 Dönsk króna 16.478 16.574 16.526 Norsk króna 12.845 12.921 12.883 Sænsk króna 12.088 12.158 12.123 Svissn. franki 105.0 105.58 105.29 Japanskt jen 0.9316 0.937 0.9343 SDR 144.25 145.11 144.68 Evra 122.76 123.44 123.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.7851 Hrávöruverð Gull 1323.35 ($/únsa) Ál 2095.5 ($/tonn) LME Hráolía 64.73 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Tekjuafkoma hins opinbera var já- kvæð um 38,7 milljarða króna árið 2017 eða 1,5% af landsframleiðslu. Til sam- anburðar var afkoman jákvæð um 308,4 milljarða króna árið 2016 eða 12,6% af landsframleiðslu og neikvæð um 18,2 milljarða króna árið 2015, sam- kvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Tekjur hins opinbera námu um 1.109,6 milljörðum árið 2017 eða 43,4% af landsframleiðslu. Drógust tekjurnar saman um 22% milli ára, sem rekja má til 384,2 milljarða króna stöðugleika- framlags frá slitabúum fallinna fjár- málafyrirtækja árið 2016. Útgjöld hins opinbera voru 1.070,9 milljarðar króna 2017 eða sem nemur 41,9% af landsframleiðslu en til sam- anburðar námu útgjöldin 45,2% af landsframleiðslu árið 2016. Heildarútgjöld til heilbrigðismála árið 2017 eru áætluð 223,7 milljarðar króna eða 8,8% af landsframleiðslu. Tekjuafkoma jákvæð um 39 milljarða króna STUTT Ætlar sér ekki hlutinn Í samtali við Morgunblaðið í maí 2016 staðfesti Jóhann Ingólfsson, stjórnarformaður sparisjóðsins, sem á í dag 0,09% hlut í RB, að ekki stæði til að sjóðurinn eignaðist hlutinn, heldur hefði verið gert samkomulag við utanaðkomandi að- ila um kaup hans í beinu framhaldi. Ekki hefur verið upplýst hver sá aðili sé, en Síminn staðfesti á sínum tíma áhuga á samstarfi við RB, hvort sem fyrirtækið yrði hluthafi eða samstarfsaðili. Eins og fram hefur komið hefur RB verið í eigu fjármálafyrirtækja fram til þessa. Má það rekja til sögulegra ástæðna þar sem í upp- hafi þótti verulegt hagræði því fylgjandi að kjarnakerfi væru byggð upp og rekin sameiginlega. Stærstu hluthafar í RB eru Lands- bankinn með 38,57% hlut, Íslands- banki með 30,06% hlut og Arion banki með 20,02% hlut. Í ljósi sáttar hluthafa RB við Samkeppniseftirlitið frá 2012 skuldbundu bankarnir sig til að minnka hlut sinn, eins og fjallað hefur verið um áður í Morgun- blaðinu. Í því samhengi hafa allir þrír bankarnir sagst vera með hlutabréf í RB til sölu, annaðhvort öll sín bréf, eða hluta þeirra. 4,7 milljarða tekjur Í ársreikningi RB kemur fram að hagnaður af rekstri félagsins árið 2016 hafi verið 104 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 4,7 milljörð- um króna, hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta var 549 milljónir króna. Eignir RB voru í árslok tæpir 4,5 milljarðar króna og eig- infjárhlutfall var 37,6%. Handbært fé frá rekstri nam 545,5 milljónum króna samkvæmt sjóðstreymi. Meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 180. Eignarréttur Mentís á hlut í RB viðurkenndur með dómi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tækni Tekist hefur verið á um eignarhlut í Reiknistofu bankanna hf. sem þjónustar íslenskan fjármálamarkað. Upplýsingatækni » Verðmæti RB í heild sinni miðað við að kaupverð 7,2% hlutar sé 70 milljónir króna, er 972 milljónir króna. » Reiknistofa bankanna er að stærstum hluta í eigu stóru bankanna þriggja. » Hlutir bankanna í RB eru til sölu, að hluta eða öllu leyti » Sparisjóður Höfðhverfinga hafði ekki í hyggju að eiga hlut- inn til frambúðar.  30 daga forkaupsréttartímabil útrunnið  Borgaði 70 milljónir fyrir hlutinn BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði nú í vikunni að eignarrétt- ur Mentis, félags í eigu Gísla K. Heimissonar, að 7,2% hlut í Reikni- stofu bankanna (RB) sem félagið keypti af Kviku banka í apríl árið 2016, væri viðurkenndur. Tekist hefur verið á um þennan hlut frá því kaupin voru gerð, eins og fjallað hefur verið um í Morg- unblaðinu, en fljótlega eftir kaupin lýsti Sparisjóður Höfðhverfinga því yfir að hann hygðist neyta for- kaupsréttar samkvæmt ákvæði í samþykktum RB. Gísli K. Heimisson var áður framkvæmdastjóri bankasviðs Kviku en hluturinn sem Mentis keypti var í eigu Kviku og nokk- urra annarra smærri hluthafa í RB. Forsaga málsins er sú að Spari- sjóður Höfðhverfinga taldi sig hafa nýtt forkaupsrétt sinn að hlutunum rúmum hálftíma áður en frestur til að nýta réttinn rann út. Mentís hefur þegar greitt fyrir hlutina, 70 milljónir króna, eins og fram kemur í dómi Héraðsdóms, en RB hefur ekki skráð Mentís sem eiganda hlutanna í hlutaskrá vegna ágreiningsins. Mentís höfðaði því mál til viðurkenningar á því að fé- lagið njóti eignaréttar á hinu keypta hlutafé í samræmi við ákvæði kaupsamningsins 7. apríl 2016, eins og það er orðað í dómn- um. Frestur fór að líða 11. apríl Mentís vísar til þess að Spari- sjóðurinn hafi ekki neytt forkaups- réttar innan 30 daga tímafrests samkvæmt samþykktum félagsins, en Mentís telur að fresturinn hafi verið liðinn 11. maí 2016 kl. 17.56. Í dómnum segir að engin haldbær rök séu til þess að miða upphaf 30 daga tímafrests við næsta dag á eftir, 12. apríl 2016. Frestur Spari- sjóðsins til að nýta sér forkaupsrétt sinn hafi byrjað að líða 11. apríl 2016. „Af þessari ástæðu gat til- kynning stefnda um nýtingu for- kaupsréttar ekki haft þau áhrif að skapa honum eignarétt að téðum hlutum,“ segir orðrétt í dómnum. Gerið góð kaup! FYRIR HEIMILIN Í LANDINU LágMúLA 8 · sÍMI 530 2800 NÚ TIL HÚS A Í LÁGMÚLA 8 ÁÐUR: 69.900,- NÚ: 55.920,- Veggofn – Stál vrn. HT944 187 865 ÁÐUR: 89.900,- NÚ: 71.920,- HELLUBORÐ vrn. HT949 492 128 20% Talent Pro Gerið góð kaup!30% ÁÐUR: 69.900,- NÚ: 59.415,- HELLUBORÐ vrn. SANZ64M3707AK/UR 15% ÁÐUR: 69.900,- NÚ: 59.415,- BLÁSTURSOFN vrn. SANV70K1340BS/EE ● Hagnaður Landsbréfa, dótturfélags Landsbankans, jókst um 59% á milli ára og var 1.113 milljónir árið 2017. Aukning hagnaðar skýrist fyrst og fremst af árangurstengdum þókn- unum af rekstri framtakssjóða. Í lok árs voru eignir í stýringu 162 milljarðar króna samanborið við 184 milljarða í byrjun árs. Skýrist lækkunin af arðgreiðslum úr framtakssjóðum og sveiflum á stærð fjárfestingarsjóðsins Landsbréf – Veltubréf, sem fjárfestir einkum í innlánum. Hagnaður Landsbréfa nam um 1,1 milljarði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.