Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra og verja
koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra og rafmagnsvara.
Fyrir bílinn – verkfæri – skotvopn – reiðhjól
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nýtt veitingahús, LOF, hefur verið
opnað á Mýrargötu 31 í Reykjavík.
Staðurinn sérhæfir sig í spænskri
matargerð. Þar er rými fyrir 55 gesti
innandyra og á garðpalli sem snýr til
suðurs á baklóð. Staðurinn er opinn í
hádeginu og á kvöldin alla daga.
Eigendur staðarins eru Enzo Rin-
aldi, José Garcia, Jakob Helgi
Bjarnason og Birgir Örn Arnarson.
Rinaldi og Garcia sjá um matseld,
ásamt tveimur öðrum kokkum frá
Spáni. Danski arkitektinn Tine K.
kom að innanhússhönnun. Húsgögn
og húsbúnaður koma frá versluninni
Magnoliu á Skólavörðustíg 38. Birgir
Örn er einn eigenda verslunarinnar.
Skipta má matseðlinum í fjóra
flokka. Í fyrsta lagi er boðið upp á
blöndu 12 rétta af matseðli ásamt
víni. Sex eru kaldir og sex heitir. Í
öðru lagi paellu fyrir tvo eða fleiri. Sá
réttur kostar 2.500 krónur á mann ef
fjórir panta. Í þriðja lagi tapasrétti
og í fjórða lagi aðalrétti. Verð tapas-
rétta er frá 900 krónum og verð aðal-
rétta frá 4.000 krónum.
Alinn upp á veitingahúsi
Við anddyrið er setustofa þar sem
boðið er upp á smærri rétti og vín.
Eldhúsið er opið og má fylgjast
með kokkunum að störfum.
Veitingamaðurinn José Garcia hef-
ur langa reynslu af íslenskum veit-
ingageira. Hann hefur meðal annars
starfað á Vegamótum og sem yf-
irkokkur á Hótel Höfn, auk fyrri
starfa sem kokkur á Spáni.
„Ég er alinn upp á veitingahúsi.
Fjölskylda mín átti veitingahús á
Spáni,“ segir Garcia sem flutti til Ís-
lands fyrir rúmum 20 árum.
Hann segir það stefnu staðarins að
bjóða rétti frá öllum sautján héruðum
Spánar. „Spánverjar eru ekki með al-
þjóðlegan rétt. Hvert hérað er með
sína eigin rétti,“ segir hann.
Á vínseðlinum eru meðal annars
Rioja-vín frá Spáni og vín frá Argent-
ínu. Meðal tapasrétta er Croquetas
de bacalao, sem er gert úr djúp-
steiktum söltuðum þorski. Saltfiskur
er einnig meðal aðalrétta. Sá réttur
heitir Bacalao a la Vizcaína.
Með túnfisk frá Spáni
Meðeigandi Garcia, Enzo Rinaldi,
segir matseðilinn sígildan.
„Hugmyndafræðin er að bjóða sí-
gilt spænskt eldhús. Staðurinn heitir
fullu nafni LOF Cocina y Vino, eða
LOF matur og vín. Við tökum bestu
réttina frá Spáni, eldum þá úr góðu
hráefni og berum fram á sígildan
hátt. Við bjóðum m.a. upp á túnfisk
sem er einkennandi fyrir matreiðslu
á Norður-Spáni,“ segir Rinaldi.
Staðsetningin mjög góð
Birgir Örn og félag honum tengt
byggðu húsnæði staðarins. Félagið er
nú að selja íbúðir á efri hæðum.
Meirihluti þeirra er þegar seldur.
Birgir Örn segir staðsetninguna
afar góða. LOF sé steinsnar frá höfn-
inni og framhjá staðnum gangi til
dæmis mikill fjöldi farþega sem komi
með skemmtiferðaskipum.
Morgunblaðið/RAX
Veislumatur Veitingamaðurinn Pedro Lopez Moreno reiðir fram paellu að hætti Spánverja. Kokkar Enzo Rinaldi, Pedro Lopez Moreno og Manuel Camacho með úrval af tapasréttum.
Spænskt veitingahús á Mýrargötunni
Veitingahúsið LOF hefur verið opnað Maturinn endurspeglar matarhefðir spænsku héraðanna
Portið Hlýtt var og skjólgott í
portinu um hádegisbilið í gær.