Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við höfum alltaf gefist uppá að finna skýringu á þvíhvers vegna svona mörggömul hús hér á Eyrar-
bakka eru enn uppistandandi í
upprunalegri mynd. Ég hef stund-
um sagt að líklegast höfðu Eyr-
bekkingar ekki efni á öðru en að
búa í þessum húsum, sem er þakk-
arvert, því fyrir vikið hafa þessi
hús varðveist,“ segir Magnús Kar-
el Hannesson sem opnaði sl.
fimmtudag í Listagjánni í Bóka-
safni Árborgar á Selfossi sýn-
inguna Miðbærinn – söguleg
byggð, en hún inniheldur ljós-
myndir hans af gömlum húsum á
Eyrarbakka. Magnús segir að á
Eyrarbakka sé best varðveitta
eldri götumynd á öllu Suðurlandi
og að hún sé helsta sérkenni
þorpsins.
„Hér er ekta söguleg heild-
stæð byggð með húsum, sem flest
eru byggð frá 1890 til 1915. Þetta
eru að langmestu leyti alþýðuhús
þar sem bjuggu verkamenn og sjó-
menn, ásamt fjölskyldum sínum.
Líka í eigu utansveitarfólks
Í gegnum tíðina hefur verið
menningarlegur áhugi í samfélag-
inu hér á Eyrarbakka fyrir því
gamla, sem byggist á okkar gömlu
sögu. Eyrarbakki var höfuðstaður
Suðurlands, bæði verslunar- og
menningarmiðstöð. Einn liður í
varðveislu gamalla húsa á Eyr-
arbakka er sá að í kringum 1980
fara Reykvíkingar að kaupa hér
gömul hús og upp úr 1985 fóru
Við búum að því að
eiga einstaka smiði
Magnús Karel Hannesson segir að Eyrarbakki eigi sér framtíð sem hann byggi á
fortíðinni og að gamla götumyndin sé stór þáttur í því. „Nú þegar þjónusta við
ferðamenn er að verða einn helsti atvinnuvegur þjóðarinnar, þá eru mikil verð-
mæti sem við eigum hér og eru fólgin í þessari gömlu byggð,“ segir Magnús sem
opnaði ljósmyndasýningu á Selfossi með myndum af gömlum Eyrarbakkahúsum.
Heima Magnús Karel við heimili sitt, Garðhús og Sjónarhól, bæði hús í eigu
hans og Ingu Láru konu hans sem þau hafa gert upp. Þau Inga Lára hafa
gert upp húsin saman með góðri aðstoð fjölskyldu og vina.
Ljósmyndir/Magnús Karel
Við Húsið Elsta húsið er frá 1765. Hér má sjá rauða Kirkjuhúsið í baksýn.
Fyrir þá krakka sem eru á aldrinum 9
til 15 ára og langar að fá leiðsögn í að
rappa, þá er um að gera að skella sér
í Gerðuberg í Breiðholti í dag laugar-
dag 21. apríl klukkan 13.30-14.30, því
þá ætlar Atli Sigþórsson, sem flestir
kannast við undir listamannsnafninu
Kött Grá Pje, að aðstoða krakka við
að læra að rappa. Að rappa er
skemmtilegt og skapandi, þá þarf að
semja texta sem síðan er fluttur með
þeim hætti sem rappið gerir, og ekki
amalegt að fá sjálfan Kött Gré Pje til
að vera sér innanhandar við þá vinnu.
Rappsmiðjan er haldin í tilefni af
Barnamenningarhátíð og vert er að
taka fram að sætaframboð er tak-
markað, fyrstur kemur, fyrstur fær!
Rappsmiðja í dag í Gerðubergi í Breiðholti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mætir í dag Skáldið Kött Grá Pje, hér með kisuna sína, hina kenjóttu Kali.
Kött Grá Pje, kennir krökkum
á aldrinum 9-15 ára að rappa
Búast má við dásamlegu dirrindíi í
Árnesi í Gnúpverjahreppi í dag, laug-
ardag, kl. 16, en þá ætla kórar úr
þremur áttum að mætast þar og
flytja heilan Fuglakabarett.
Kirkjukórar Ólafsvalla, Stóra-Núps
og Laugalandsprestakalls í Eyjafirði
ásamt Söngfjelaginu í Reykjavík og
hljómsveit munu flytja Fuglakabar-
ettinn, sem er fjörugt verk eftir Daní-
el Þorsteinsson og Hjörleif Hjartar-
son. Sögumaður og kynnir verður
Hjörleifur sjálfur Hjartarson sem
margir kannast við sem annan með-
lim Hunds í óskilum.
Miðasala við innganginn.
Endilega …
… njótið Fugla-
kabaretts
Morgunblaðið/Ómar
Söngfugl Fuglar himinsins syngja.
Fátt vita krakkar skemmtilegra en að
fara í fjársjóðsleit og nú verður ein-
mitt boðið upp á slíkt á morgun,
sunnudag 22. apríl, kl. 13:30-15:00
í Borgarbókasafninu í Árbæ,
Hraunbæ 119. „Fjársjóðsleitin er
sjálfstyrkingarnámskeið fyrir krakka
á aldrinum 8-10 ára. Það er sett í æv-
intýralegan sjóræningjabúning þar
sem börnin leita að sínum innri fjár-
sjóði og styrkleikum. Námskeiðinu er
ætlað að styrkja sjálfsmynd barna,
bæta líðan þeirra og velferð með
skemmtilegum leikjum og verkefnum
sem byggjast á aðferðum hugrænnar
atferlismeðferðar.“ Svo segir í til-
kynningu og tekið er fram að mik-
ilvægt sé að skrá sig á heimasíðu
Borgarbókasafns, borgarbokasafn.is.
Námskeiðið þróuðu Elva Björk
Ágústsdóttir og Þóra Óskarsdóttir í
samvinnu við Klifið. Kennari er Soffía
Fransiska Rafnsdóttir, hljóðfæra-
kennari og músíkmeðferðarfræð-
ingur, sem hefur margra ára reynslu
af starfi með börnum, bæði sem tón-
menntakennari, hljóðfærakennari og
músíkmeðferðarfræðingur.
Á Borgarbókasafninu í Árbæ í tilefni Barnamenningarhátíðar
Fjársjóðsleit til sjálfstyrkingar
Gaman Ævintýri líkast er að fara í fjársjóðsleit, líka inn á við.
Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er
þrifinn að innan sem utan,
allt eftir þínum þörfum.
Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Bónstöð opin virka daga frá 8-19,
Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll)
Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700