Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmennta-fræði í Háskóla Íslands og deildarforseti Íslensku- og menn-ingardeildar, á 50 ára afmæli í dag. „Ég er því með yfirumsjón
með deildinni þessa dagana svo ég kenni minna en vanalega.“
Gunnþórunn er að ritstýra bók um norrænar glæpasögur sem kem-
ur út hjá bókaútgáfunni Bloomsbury seinna á árinu. „Þetta er
yfirgripsmikið ritgerðasafn um norrænar glæpasögur og sjónvarps-
þætti og hvaða áhrif þessar norrænu glæpasögur hafa haft á glæpa-
sögur almennt, en „nordic noir“ hefur verið nokkuð ráðandi upp á
síðkastið og áhrifin má sjá víða um heim. Alþjóðlegir fræðimenn víðs
vegar að skrifa í ritið og einnig eru pistlar eftir rithöfunda.“
Undanfarin ár hefur Gunnþórunn verið í miklu samstarfi við írska
fræðimenn og mun næsta haust verða gestaprófessor við University
College Dublin. „Ég mun vinna að rannsóknarverkefni um ýmiss kon-
ar tengsl Íslands og Írlands í bókmenntum og huga að öðrum alþjóð-
legum rannsóknarverkefnum.“
Gunnþórunn hefur þegar haldið vel upp á stórafmælið en mun einn-
ig fagna í dag með góðum vinum.
Eiginmaður Gunnþórunnar er Dagur Gunnarsson útvarpsmaður og
sonur þeirra er Flóki, 12 ára gamall.
Bókmenntafræðingurinn Gunnþórunn er prófessor við Háskóla Ís-
lands og verður gestaprófessor við University College Dublin í haust.
Ritstýrir bók um nor-
rænar glæpasögur
Gunnþórunn Guðmundsdóttir er fimmtug
A
rnór Lárus Pálsson fædd-
ist á Skinnastað í Öxar-
firði og ólst þar upp.
Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Laugum í
Reykjadal 1959 og nam tungumál og
verslunarfræði í Danmörku og Eng-
landi 1962-64.
Arnór var gjaldkeri hjá Útvegs-
banka Íslands 1964-66, deildarstjóri
hjá Almennum tryggingum 1966-82 og
aðstoðarframkvæmdastjóri Bygging-
arþjónustunnar 1982-84.
Arnór stofnaði ALP bílaleiguna árið
1980 og átti hún upphaflega að verða
hliðargrein með annarri vinnu. Árið
1984 höfðu umsvif bílaeigunnar aukist
mikið og ákvað Arnór að snúa sér að
fullum krafti að rekstri hennar og
starfaði sem forstjóri til ársins 2000, er
hann seldi bílaleiguna. Eftir það starf-
aði hann sem framkvæmdastjóri
Útfararstofu kirkjugarðanna ehf. til
1.5.2014 er hann lét af störfum vegna
aldurs.
Arnór var einn af stofnendum Kiw-
anisklúbbsins Eldeyjar í Kópavogi í
febrúar 1972. Hann var forseti klúbbs-
ins 1976-77 og umdæmisstjóri Kiw-
anisumdæmisins Ísland – Færeyjar
1986-87. Auk þess hefur hann gegnt
nánast öllum störfum innan Kiwanis-
hreyfingarinnar þessi 46 ár.
Arnór var formaður Sjálfstæðis-
félags Kópavogs 1980-84, sat í bæjar-
stjórn Kópavogs 1982-98, í félagsmála-
ráði og barnavernd Kópavogs
1990-2002, vinabæjarnefnd 1990-94 og
var forseti bæjarstjórnar Kópavogs
Arnór L. Pálsson, fv. forstjóri og bæjarfulltrúi í Kópavogi – 75 ára
Með barnabörnunum Arnór og Betsý í jólaboði heima í Kórsölum ásamt barnabörnunum níu árið 2013.
Ötull þjónn kirkjunnar
Hjónin Arnór og Betsý á góðri stund á Benidorm árið 2017.
Akureyri Eldey Björt
Óskarsdóttir fæddist
2. mars 2017 kl. 4.45.
Hún vó 3.622 g og var
53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Halla Soffía
Tulinius og Óskar
Jónasson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
ÍSLANDSMÓTIÐ
íPepsí-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2018
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir mánudaginn 23. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
27. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is