Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
borgarstjóra um að stefna að gerð
ylstrandar í Laugarnesi, við
Skarfaklett. Þar er nú manngerð
lítil vík með hvítum skeljasandi.
Ljóst er að þessi staðsetning
þarfnast sérstakrar skoðunar.
Ástæðan er sú að á lóð skammt
vestan við Skarfaklett er skólp-
hreinsistöð Veitna. Stöðin er
stærsta skólphreinsistöð landsins
og tekur við skólpi frá nær helm-
ingi höfuðborgarsvæðisins. Þrjár
lagnir eru frá stöðinni. Tvær yf-
irfallslagnir og ein meginútrás,
sem liggur um 5 kílómetra út í sjó.
Vegna hugmynda um nýjar
landfyllingar í Laugarnesi, sem
sagt var frá í Morgunblaðinu á
fimmtudaginn, leituðu Faxafló-
hafnir til Veitna og kom fram í
svari þeirra að staðsetning yl-
strandar í nálægð við skólp-
hreinsistöðina þarfnaðist sér-
stakrar skoðunar. Til framtíðar
litið þurfi að skoða mögulega
stækkun lóðar hreinsistöðv-
arinnar.
Ylströnd á nýrri landfyllingu?
Fram kemur í minnisblaði Faxa-
flóahafna vegna nýrrar landfyll-
ingar að Veitur þurfi á því að
halda að koma yfirfallslögn hita-
veitu í sjó einhvers staðar á
Sundahafnasvæðinu. Mögulegt
væri að koma slíkri lögn fyrir á
nýrri landfyllingu og nýta það
vatn sem kemur úr lögninni við
framtíðarnot af hluta landfylling-
arinnar sem ylströnd og útivist-
arsvæði.
Með yfirfallslögn hitaveitu
mætti útbúa aðstöðu fyrir útivist
við sjóinn, sem væri um 10-12.000
fermetrar. Ef settur yrði garður
út með grynningum Laugarnes-
tanga yrði til skýlt strandsvæði
innan garðs.
Svæðið við Skarfaklett, sem
horft hefur verið til, sé hins vegar
mjög lítið auk þess sem umferð sé
þar mikil vegna hafnarstarfsem-
innar, einkum að sumarlagi. Því
væri ráð að hafa ylströndina frek-
ar við grynningar út frá Laugar-
nestanga með aðkomu frá nýju
fyllingunni.
Nesjavallavirkjun framleiði mun
meira af heitu vatni á sumrin en
þörf sé fyrir og því sé umframvatn
talsvert á þeim tíma
Fram kemur í tillögu borgar-
stjóra að gert sé ráð fyrir ylströnd
í deiliskipulagi af svæðinu í Laug-
arnesi. Lagt er til að starfshópur
íþrótta- og tómstundasviðs, um-
hverfis- og skipulagssviðs og
Veitna vinni áfram að þróun verk-
efnisins á grundvelli frumathug-
unar sömu aðila sem liggur fyrir.
Fulltrúi Faxaflóahafna taki sæti í
starfshópnum enda svæðið á hafn-
arsvæði. Unnin verði fjárfest-
ingar- og rekstraráætlun, ásamt
tímaáætlun framkvæmda sem
lagðar verði fyrir borgarráð til
samþykktar fyrir 1. október nk.
Gerðar verði nauðsynlegar kann-
anir og rannsóknir á jarðvegi og
umhverfi, ásamt því að leggja mat
á mögulega landfyllingu og land-
mótun á svæðinu.
Miðað verði við að Orkuveita
Reykjavíkur standi undir kostnaði
við að leiða heitt umframvatn á yl-
ströndina, ásamt nauðsynlegri
uppfærslu á fráveitukerfum en
Reykjavíkurborg og eftir atvikum
Faxaflóahafnir annist annan fram-
kvæmdakostnað og framtíðar-
rekstur samkvæmt sérstöku sam-
komulagi.
Áforma ylströnd við hlið
stórrar skolphreinsistöðvar
Veitur reka stöðina og telja að staðsetning ylstrandarinnar þarfnist skoðunar
Morgunblaðið/RAX
Skarfaklettur Manngerð lítil vík með hvítum skeljasandi. Stigi er niður í víkina og nýtur hún mikilla vinsælda.
Matjurtagarðarnir í Reykjavík
verða opnaðir 1. maí næstkomandi
og geta íbúar pantað þá til afnota
eins og undanfarin ár.
Átta hundruð matjurtagarðar
eru leigðir út á vegum borgarinnar
og eru þeir víða um borgina.
Nú þegar hafa margir pantað
sér garð en ennþá eru nokkrir
garðar lausir til umsóknar.
Matjurtagarðar innan Reykja-
víkurborgar eru á eftirtöldum
stöðum: Vesturbær við Þorragötu,
Fossvogur við enda Bjarmalands,
Laugardalur við enda Holtavegar,
Árbær við Rafstöðvarveg og Graf-
arvogur við Logafold.
Leigan er 4.800 krónur
Nánari upplýsingar um mat-
jurtagarðana má finna á vef borg-
arinnar reykjavik.is/matjurtagar-
dar. Með því að smella á tengil er
hægt að sjá hvaða garðar eru laus-
ir. Reykjavíkurborg útdeilir einnig
görðum í Skammadal í Mosfells-
bæ.
Leiga fyrir garða er óbreytt frá
fyrra ári. 5.000 kr. kostar leiga
fyrir garðland í Skammadal og
4.800 kr. fyrir garð í fjölskyldu-
görðunum.
Í frétt frá borginni kemur fram
að garðar við Jaðarsel í Breiðholti
verða ekki á vegum borgarinnar í
sumar heldur hefur félagið Selja-
garður tekið við rekstri á þeim
görðum og getur fólk sótt um garð
í gegnum seljagardur.is.
Garðyrkjufélag Íslands sér um
rekstur matjurtagarða í Stekkjar-
bakka og Grafarvogi samkvæmt
samningi við Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar um þá er að
finna á heimasíðu Garðyrkjufélags
Íslands, www.gardurinn.is, undir
Grenndargarðar. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Uppskera Það er búbót fyrir fjöl-
skyldur að rækta eigið grænmeti.
Ennþá hægt að panta
garð til ræktunar
Borgin leigir út 800 matjurtagarða
Fulltrúar N1 og stjórn ÍBV hafa
undirritað samning sem felur í sér
að N1 verður á ný og næstu þrjú ár-
in helsti bakhjarl ÍBV í meistara-
flokki karla í knattspyrnu.
„N1 hefur verið dyggur bakhjarl
knattspyrnu á Íslandi um langt ára-
bil og það er afar ánægjulegt að
taka þráðinn upp að nýju með ÍBV.
Samstarf félaganna hefur verið far-
sælt og það er alltaf skemmtilegt að
rifja upp gamla tíma,“ segir Hinrik
Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri
hjá N1, í tilkynningu. sbs@mbl.is
N1 bakhjarl ÍBV
Borgarráð hefur einnig sam-
þykkt að stefna að gerð yl-
strandar í Gufunesi. Gera skal
ráð fyrir henni í nýju deiliskipu-
lagi og starfshópur skal áfram
vinna að þróun verkefnisins á
grundvelli frumathugunar sem
liggur fyrir. Unnin verði fjárfest-
ingar- og rekstraráætlun, ásamt
tímaáætlun framkvæmda, sem
lagðar verði fyrir borgarráð til
samþykktar fyrir 1. október nk.
Ylströnd í
Gufunesi
SAMÞYKKT BORGARRÁÐS
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í 580 7000
eða farðu á
heimavorn.is
AR SEM ÞÚ ERTHV