Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 111. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fannst látinn í sjónum
2. Leigubílstjórinn gaf sig fram
3. Svikinn um 1,4 milljónir á Tenerife
4. Fjölskyldufaðir á flótta
Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og
Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari slá
botninn í fimmta starfsár tónleika-
raðarinnar Hljóðön í Hafnarborg á
morgun kl. 20 með tónleikum sínum
tileinkuðum andþemum og örsögum.
Frumflutt verður nýtt verk Karólínu
Eiríksdóttur Örsögur að vori, sem
samið er sérstaklega í tilefni tón-
leikanna og einnig verk eftir Pierre
Boulez, Karlheinz Stockhausen, Giac-
into Scelsi og Bryns Harrison.
Ljósmynd/Kristín Pétursdóttir
Hulda og Tinna frum-
flytja verk Karólínu
Íslenski flautu-
kórinn kemur
fram í 15:15-
tónleikasyrpunni í
Norræna húsinu á
morgun kl. 15.15,
að þessu sinni
skipaður 13
flautuleikurum
sem leika úrval
verka Þorkels Sigurbjörnssonar, bæði
einleiksverk, dúetta, kammerverk og
verk fyrir flautukór.
13 flautuleikarar
leika verk Þorkels
Útskriftarhátíð Listaháskóla Ís-
lands hefst í dag og stendur yfir til
24. maí. Fyrsti viðburður hátíð-
arinnar eru tónleikar Ingunnar Huld-
ar Sævarsdóttur, meistaranema í
sköpun, miðlun og
frumkvöðlastarfi í
tónlist, sem fara
fram í dag kl. 15 í
Safnahúsinu. Á þeim
verða flutt lög og
textar sem Ing-
unn hefur unnið
að í námi sínu.
Útskriftarhátíð LHÍ
hefst með tónleikum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðaustanátt 8-15 m/s upp úr hádegi og rigning suð-
austanlands, rigning eða slydda norðan- og austanlands síðdegis, en úrkomulítið annars
staðar. Hiti 3 til 10 stig að deginum, hlýjast sunnantil.
Á sunnudag Norðaustan 5-13 m/s, skýjað og rigning eða slydda austantil á landinu, úr-
komulítið fyrir norðan og hiti 0 til 5 stig. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt suðvestan-
og vestanlands og hiti 5 til 10 stig.
Íslandsmeistarar KR léku á als oddi í
fyrsta úrslitaleiknum við Tindastól á
Íslandsmóti karla í körfuknattleik í
gærkvöldi en leikið var á Sauðár-
króki. KR-liðið réð lögum og lofum í
leiknum og vann með 21 stigs mun,
75:54, að viðstöddum ríflega 900
áhorfendum sem flestir höfðu vonast
eftir betri leik hjá heimamönnum.
Næsti leikur verður annað kvöld. »3
KR-ingar léku á als
oddi á Sauðárkróki
Þróttur frá Neskaupstað er
Íslandsmeistari kvenna í
blaki eftir 3:0-sigur á Aftur-
eldingu á heimavelli sínum í
kvöld. Þróttur vann alla þrjá
leiki einvígisins og er því
verðugur Íslandsmeistari.
Þetta var í níunda sinn
sem Þróttur Neskaupstað
vinnur Íslandsmeistaratit-
ilinn í blaki kvenna en síðast
stóð liðið uppi sem sigurveg-
ari fyrir fimm árum. »1
Þróttarar fögn-
uðu á heimavelli
Í annað sinn á einu ári eru leikmenn
rúmenska liðsins Potaissa Turda
komnir til Íslands til þess að mæta ís-
lensku félagsliði í undanúrslitum
Áskorendakeppni Evrópu í hand-
knattleik. Að þessu sinni eru leik-
menn Turda komnir til
Vestmannaeyja hvar
þeir mæta ÍBV í dag
klukkan 15 í
íþróttamiðstöð-
inni. Rúmenska
liðið er sagt betra
nú en fyrir ári. »2
Leikmenn Turda eru
mættir til Eyja
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við opnuðum 22. júlí á síðasta ári
en einhvers staðar er talað um í
þessum veitingafræðum að það taki
alveg tvö ár að koma veitingastað á
kortið. Það má því segja að fæðing-
arhríðirnar standi enn yfir,“ segja
þau Emma Ragnheiður Marinós-
dóttir og Georg Ottósson, eigendur
Farmers Bistro.
Veitingastaðurinn Farmers
Bistro er rekinn í sama húsnæði og
Flúðasveppir á Flúðum og í nánu
sambandi við ræktunina. Þannig eru
notaðar á veitingastaðnum allar teg-
undir af hráefni sem Flúðasveppir
og gróðrarstöðin Jörfi rækta.
Lambakjöt og fleira er svo sótt í
sveitirnar í kring.
„Þetta er ekki bara veitingastaður
heldur erum við líka að kynna fyrir
viðskiptavinum fyrir hvað við stönd-
um. Hvernig við notum heita vatnið
í ræktuninni og svo framvegis. Við
getum sagt að þetta sé mótvægi við
skyndibitastaði,“ segja þau.
Mikil vinna fer í markaðssetningu
á veitingastað sem þessum fyrir er-
lenda ferðamenn. Vinsældir Gömlu
laugarinnar, eða Secret Lagoon eins
og hún heitir upp á ensku, hafa auk-
ið umferð ferðamanna til muna á
Flúðum og því eftir miklu að slægj-
ast.
„Við erum að vinna markaðs-
áætlun fyrir næsta ár, vinna í því að
fá kúnnana til okkar. En við höfum
svo sem ekki tilefni til annars en
bjartsýni. Við erum þegar búin að
bóka gesti á hverjum einasta
degi í sumar og ef eitthvað er
er ég hrædd um að það verði of
mikið að gera í sumar. Við
erum gríðarlega bjartsýn,
við höfum fengið ótrú-
lega góða dóma á þess-
um ferðasíðum,“ segir
Emma og bætir við að
þótt erlendir ferða-
menn séu mjög hrifnir af
staðnum komi einnig margir ís-
lenskir gestir. „Við fáum mjög mikið
af fjölskyldufólki um helgar. Eins
kemur líka mikið af hópum, sauma-
klúbbar og starfsmannafélög. Það
var til dæmis mjög mikið að gera
um páskana enda er mikil sumar-
bústaðabyggð hér.“
Tíu milljóna króna rotþró
Georg segir að vandað hafi verið
til verka við uppbyggingu veitinga-
staðarins enda telur hann að hlúa
þurfi að ferðamönnum til að gera
upplifun þeirra hér ánægjulega.
„Bara rotþróin hérna á veitinga-
staðnum kostaði tíu milljónir króna.
Hún verður að geta tekið á móti
miklum fjölda á stuttum tíma, hún
verður að þola hámarkið.“
Ferðamenn sólgnir í sveppina
Farmers Bistro
á Flúðum nýtur
vaxandi vinsælda
Morgunblaðið/Hari
Farmers Bistro Emma Ragnheiður Marinósdóttir, önnur frá hægri, ásamt samstarfskonum sínum á Farmers Bistro.
Georg Ottósson, eigandi Flúða-
sveppa, kveðst lengi hafa gengið
með þá hugmynd í maganum að
opna veitingastað í tengslum við
ræktunina.
„Hugmyndin hjá mér er orð-
in svona 15 ára gömul. Frið-
heimar voru bara á undan
að framkvæma hana. En
þess vegna þorðum við að
ráðast í þetta núna, fyrst
það gekk svona vel hjá
þeim. Það er þó augljóst að við er-
um huglausari en þau!
Veitingastaðurinn er allur hinn
glæsilegasti og maturinn girnileg-
ur. Segir Georg að ekki hafi þurft
að ráðast í nýbyggingu. „Nei, við
breyttum gömlum móttökusal sem
var orðinn þreyttur. Við erum nátt-
úrlega búin að vera að taka á móti
hópum hér undanfarin ár en höf-
um ekki boðið þeim upp á neitt –
þar til núna.“
15 ára gömul hugmynd
FRIÐHEIMAR RUDDU BRAUTINA FYRIR FARMERS BISTRO
Georg
Ottósson