Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 47
fann að þessi hátíð – og þetta form
– hefur eitthvað alveg sérstakt við
sig. Segi það og skrifa að Between
Mountains er einkar efnileg sveit,
nýju lagasmíðarnar þeirra sýna
mikil og örugg þroskaskref og ár-
angur innan seilingar, sé rétt hald-
ið á spöðum. Ég rölti því næst til
Hebu og Ægis á Austurgötunni
hvar Dr. Spock léku fyrir troðfullu
húsi. Ég rétt sá glitta í gula hansk-
ann og nokkuð steikta og vel
Spock-lega útgáfu af „Strawberry
Fields Forever“. Þvínæst var það
Hverfisgatan þar sem meistari Val-
geir Guðjónsson lék við hvurn sinn
fingur. Valgeir er sjarmerandi
mjög, þegar hann brosir þá brosir
hann allur og fólk hrífst auðveld-
lega með í glettninni. Goðsögn,
ekkert minna. Þessi rúntur Reyk-
víkingsins um miðbæ Hafnar-
fjarðar, á hlýju síðvetrarkvöldi
(smá úði þó) var mikill bónus. Gam-
an að virða fyrir sér hús og götur,
nett færeysk stemning í húsasund-
unum, nema ég hafi bara haft eyj-
arnar fögru og tengingu þeirra við
hátíðina ögn of hugfasta. Kæri
Hafnfirðingur, auðvitað á bærinn
þinn engan sinn líka í veröldinni,
höfum það alveg á hreinu!
Ég fann mig svo aftur hjá
þeim Gunnþóru og Michael þar
sem Jói P og Króli voru að spila
(og önnur goðsögn, Bjartmar, í
næsta húsi!). Eitt af því sem „gerir“
þetta knáa tvíeyki er hversu ólíkir
þeir eru. Króli á útopnu, masandi
af einlægni jafnt sem ástríðu á
meðan það dettur hvorki né drýpur
af Jóa P. Hann er á hinum endan-
um á sjarmanum, svellkaldur og
svalur, fimmti Kraftwerk-meðlim-
urinn.
Að lokum þetta: Ég hef aldrei
náð að taka þessa hátíð almenni-
lega út, grunaði að þetta væri
snilld en stemningin öll kom mér í
opna skjöldu verð ég að viður-
kenna. Þetta með að opna hús sín
fyrir ókunnugum bjó til mjög heil-
næma og „mennska“ stemningu
sem var gefandi. Þetta var innilegt,
fallegt og tært, ég veit að ég er
kominn í hæstu tilfinningahæðir en
svona var þetta bara. Ég fór sæll
og sáttur í rúmið. Glaður. Til mik-
illar fyrirmyndar.
» Þar sem maðurgæddi sér á salt-
stöng í stofunni stóð
Króli í 20 sentimetra
fjarlægð frá mér á með-
an húsbóndi og -freyja
sátu uppi í sófa með
barnaskaranum.
Þroskaskref Dúettinn Between Mountains lék heima hjá Gunnþóru og
Michael. Einkar efnileg sveit, nýju lagasmíðarnar þeirra sýna mikil og
örugg þroskaskref og árangur innan seilingar, segir í pistli.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
AF TÓNLIST
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Að kvöldi síðasta vetrardags bauð
Bubbi Morthens til sannkallaðrar
tónlistarveislu í Eldborgarsal
Hörpu. Fyrir troðfullu húsi þakk-
látra gesta lék hann ásamt sann-
kölluðu landsliði tónlistarmanna í
heild lögin af tveimur af sínum vin-
sælustu hljómplötum, Konu frá
1985 og Sögum af landi sem kom út
fimm árum seinna, árið 1990.
Bubbi hélt aldrei útgáfutón-
leika þegar plöturnar komu út og
má segja að tími hafi verið kominn
til að ráðast í verkið. Og hann kaus
að sýna útsetningum og hljómheimi
platnanna tryggð; að mæta aðdá-
endunum með lifandi flutningi á
lögunum því næst í upprunalegum
búningi, að viðbættri þeirri gleði og
neistaflugi sem vel lukkaður lifandi
flutningur býður upp á.
Landsliðsmenn á sviðinu
Gamlir og margreyndir sam-
starfsmenn Bubba mynduðu kjarna
hljómsveitarinnar; Jakob S. Magn-
ússon á bassa, Kristinn Agnarsson
trommur, Eyþór Gunnarsson
hljómborð og Guðmundur Péturs-
son á ýmsa gítara eins og honum
einum er lagið. Og Bubbi fór sjálfur
fimum fingrum um kassagítarinn
sem er framarlega á báðum þessum
plötum. Þá lék Haukur Gröndal á
saxófóna og flautur og meistara-
hlauparinn Ari Bragi Kárason á
trompet og hljómborð, og fleiri
voru kallaðir til eins og þurfti, þar á
meðal Bryndís Halla Gylfadóttir á
sellóið í „Systir minna auðmýktu
bræðra“. Þá má ekki gleyma þætti
Ómars Guðjónssonar gítarleikara
sem slóst í hópinn þegar kom að
seinni plötunni og barði hrynkassa-
gítar af miklum móð og blés að auki
í fagursveigða túbu í „Gula flam-
ingónum“, einum af hápunkti tón-
leikanna þar sem Bubbi söng bálk-
inn um það þegar neonljósin kvikna
og „strákar verða menn“.
Ánægjuleg upprifjun
Fallegt var að sjá hvernig upp-
tökustjórum beggja platna var vott-
uð virðing með myndasýningu sem
varpað var á tjaldið aftan við flytj-
endurna. Báðir voru þeir slyngir
bassaleikarar, Tómas M. Tómasson
upptökustjóri Konu og Christian
Falk sem stjórnaði upptökum á
Sögum af landi, og báðir unnu mik-
ið og lengi með Bubba og áttu
margt og mikið í þessum plötum og
útgáfum laganna sem hljómuðu í
Hörpu á miðvikudag.
Og tónleikanir voru líka hyll-
ing á plötunum og ánægjuleg upp-
rifjun á vel lukkuðum og mótuðum
lagaflokkum. Á tónleikum gegnum
árin hefur Bubbi margoft flutt eft-
irlætislög aðdáendanna af báðum
plötum, eins og „Talað við
gluggann“, „Rómeó og Júlía“,
„Syneta“ og „Stúlkan sem starir á
hafið“, og vissulega hafa fleiri af
plötunum iðulega hljómað, en
þarna mátti vel heyra að þau eru
mun fleiri góðu lögin, þau sem
sjaldan heyrast mörg virkilega góð,
enda var flutningurinn á þeim öll-
um framúrskarandi og einlægur.
Bæði í hléi og eftir tónleikana
mátti heyra að fólk á sér eftirlæt-
islög og heldur mismikið upp á plöt-
urnar tvær; einn sagðist kunna best
við fjörmeiri lögin, annar hreifst í
lifandi flutningnum mest af sagna-
bálkunum eða þulunum eins og
„Gula flamingónum“ og „Seinasta
augnablikinu“. Og það mátti heyra
að margir höfðu tárast yfir fal-
legum flutningnum á „Synetu“, þar
sem Bubbi og Jakob léku dúettinn
með hjartnæmum hætti.
Árleg veisla fram undan
Það var afar vel til fundið hjá
Bubba að bjóða til þessarar veislu,
og ekki slæmt að vita að það verður
framhald á. Við lok tónleikanna var
tilkynnt að 24. apríl á næsta ári
muni Bubbi aftur stíga á svið ásamt
félögum og leika lögin af næstu
tveimur plötum, Frelsi til sölu og
Dögun. Og þetta hyggst hann gera
næstu tíu ár; leika tvær plötur á ári.
Það er merkilegt framtak hjá lista-
manni sem sífellt skapar ný verk og
horfir ákveðið fram á veginn – en
við erum mörg sem viljum gjarnan
líka líta til baka með honum. Enda
var þetta gaman.
Síðbúnir útgáfutónleikar
Ljósmynd/Spessi
Hljómsveitin Bubbi og meðleikarar hans voru trúir upphaflegum út-
gáfum laganna að viðbættum þeim galdri sem verður til við lifandi flutning.
Þakkir Bubbi og þakklátir gestirnir
við tónleikalok síðasta vetrardag.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s
Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s
Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s
Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Fös 4/5 kl. 20:00 26. s
Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Lau 5/5 kl. 20:00 27. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s
Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Sun 6/5 kl. 20:30 14. s
Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s
Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Fim 10/5 kl. 20:30 aukas.
Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn
Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn
Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 26/4 kl. 19:30 aðalæ Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Lau 21/4 kl. 19:30 47.sýn Sun 29/4 kl. 19:30 48.sýn Sun 6/5 kl. 19:30 49.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn
Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 25/4 kl. 20:00 Mið 9/5 kl. 20:00
Mið 2/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 24/4 kl. 11:00
Hveragerði
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00
Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið)
Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og
úlfurinn
Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og
úlfurinn
Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og
Siggi
Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og
Siggi
Barnamenningarhátíð 2018
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?