Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 6. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 114. tölublað 106. árgangur
SÖGUR VILBORGAR
UM AUÐI KVIK-
MYNDAÐAR
STYGGUR
BRÚNANDAR-
STEGGUR
LEYFI MÉR AÐ
VERA SMÁ EIN-
RÆÐISHERRA
HELDUR SIG VIÐ HÖFÐABÓL 4 INDRIÐI TÓNLISTARMAÐUR 31ALÞJÓÐLEG SJÓNVARPSÞÁTTARÖÐ 30
AFP
Mótmæli Manndrápum Ísraela við landa-
mærin að Gaza-svæðinu mótmælt í París.
Stjórnvöld í Bretlandi, Þýska-
landi og fleiri ríkjum hvöttu í gær
til óháðrar rannsóknar á mann-
drápum Ísraelshers við landamærin
að Gaza-svæðinu eftir að 60 Palest-
ínumenn biðu bana í mótmælum
þar í fyrradag, þeirra á meðal átta
börn. Flestir þeirra sem létu lífið
urðu fyrir skotum frá leyniskyttum
Ísraelshers.
Alls hafa 116 Palestínumenn beð-
ið bana við landamærin frá 30.
mars þegar mótmælin hófust.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, sakaði leiðtoga
íslömsku samtakanna Hamas, sem
stjórna Gaza-svæðinu, um að hafa
stefnt lífi óbreyttra borgara í hættu
í pólitískum tilgangi. „Þeir hafa ýtt
óbreyttum borgurum – konum,
börnum – í eldlínuna með það að
markmiði að valda manntjóni,“
sagði hann. »17
Hvatt til óháðrar
rannsóknar á
manndrápunum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Horfur eru á enn frekari hækkunum
leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu.
Leiguverðið hefur enda ekki fylgt
kaupverði fasteigna að undanförnu.
Þetta segir Ari Skúlason, sérfræð-
ingur hjá Landsbankanum.
Ólafur Heiðar Helgason, hagfræð-
ingur hjá Íbúðalánasjóði, segir sam-
band milli leiguverðs og kaupverðs
fasteigna. Spáð sé 6-9% hækkun á
nafnvirði fasteigna í ár. Hann tekur
undir með Ara að líklega muni leigu-
verðið fara að nálgast kaupverðið.
Hækki tímabundið hraðar
„Við sáum íbúðaverð hækka tals-
vert hraðar en leiguverð í fyrra. Því
þarf ekki að koma á óvart að leigu-
verð hækki nú tímabundið hraðar en
íbúðaverð,“ segir Ólafur Heiðar.
Samhliða þessari þróun segir Ólafur
Heiðar tölur sjóðsins benda til að
íbúðum sem leigðar eru ferðamönn-
um sé hætt að fjölga.
Þrátt fyrir það hækkar leigan.
Ólafur Torfason, stjórnarformað-
ur Íslandshótela, segir hótelíbúðum
að fækka vegna þyngri reksturs.
Spá enn hærri húsaleigu
Sérfræðingar benda á samspil kaupverðs og leiguverðs
Vísbendingar um að hótelíbúðum sé hætt að fjölga í bili
MLeiguverðið … »11
Vísitala leiguverðs á höfuð-
borgarsvæðinu frá janúar 2011
180
160
140
120
100
’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Janúar 2011 = 100
Heimild: Þjóðskrá Íslands
Mars 2018
184,9
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bílhræ Hjá Vöku hafa menn í nógu
að snúast við að hirða óskilabíla.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það hefur færst mjög í vöxt að fólk
skilji bíla sína eftir hér og þar, bæði
á númerum og án. Portið okkar er í
raun kjaftfullt af þessum bílum,“
segir Valdimar Haraldsson,
deildarstjóri rekstrardeildar Vöku,
í samtali við Morgunblaðið og bætir
við að bílarnir sem um ræðir séu allt
frá því að vera verðlitlar og illa
farnar bíldruslur upp í „fokdýra“
bíla.
Hefur Vaka fjarlægt þessa bíla af
bílastæðum í borginni eða víðavangi
og flutt í geymsluport fyrirtækisins í
Reykjavík. Þar eru bílarnir geymdir
á meðan reynt er að hafa uppi á eig-
endunum. Takist það ekki bíður
bílanna uppboð eða förgun.
„Við erum til að mynda með
Range Rover, Porsche og stóra
Benza. Í raun allt milli himins og
jarðar – frá rusli í fokdýra bíla,“ seg-
ir Valdimar og bendir á að í
geymsluporti Vöku megi nú finna vel
yfir 50 ökutæki sem enginn vill
kannast við að eiga. „Oft tekst ekki
að ná í eigendur, þeir eru ekki með
skráða síma eða bréf frá okkur eru
endursend,“ segir Valdimar.
Kostnaður safnast upp
Bílar sem teknir eru númers-
lausir, svokallaðir hreinsunarbílar, í
borginni eru geymdir í Vöku í tvo
mánuði áður en þeir eru boðnir upp
eða þeim fargað. Fram að þeim tíma
safna bílarnir m.a. upp geymslu-
gjaldi hvern sólarhring, þ.e. 1.931 kr.
fyrir fólksbíl og 2.302 kr. fyrir jeppa,
auk þess sem greiða þarf flutnings-
gjald, lágmark 12.900 kr., og inn-
skriftar- og afgreiðslugjald, 3.907 kr.
Getur áfallinn kostnaður því numið
vel yfir 100 þúsund kr. áður en bílar
eru seldir á uppboði eða þeim fargað.
Ökutæki skilin eftir um alla borg
Geymsluport Vöku „kjaftfullt“ af bílum sem enginn kærir sig um að eiga
Íslensku forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson
og Eliza Reid fengu góðar móttökur í Helsinki í
gær á fyrsta degi opinberrar heimsóknar sinnar
til Finnlands. Þau hittu m.a. Sauli Niinistö, for-
seta Finnlands, og Jenni Haukio, konu hans, og á
förnum vegi spjölluðu þau við börn sem veifuðu
íslenskum fánum. Heimsóknin heldur áfram í
dag og á morgun og verður sjónum þá beint að
vísindum og efldum viðskiptum milli landa. »6
Börnin fögnuðu og veifuðu íslenska fánanum
Ljósm/Karl Vilhjálmsson
Íslensku forsetahjónin í opinberri heimsókn í Finnlandi
Bjór sem mun
kallast húh! er nú
bruggaður í
Rússlandi í til-
efni af þátttöku
Íslands á HM í
knattspyrnu. Um
samstarfsverk-
efni er að ræða
milli Borgar
brugghúss og
rússneska brugg-
hússins Bottle Share sem þykir með
þeim eftirtektarverðari þar í landi.
HM-bjórinn verður til sölu í
Moskvu og trúlega víðar. »14
Húh!-bjór bruggaður
fyrir HM í Rússlandi
Húh! Víkinga-
klappið fræga.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra ræddi meðal annars
um stöðuna á Gaza-svæðinu á
fundi sínum með James Mattis,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, í gær. „Þetta er bara mál
sem ég tók upp á fundinum og við
fórum yfir þá stöðu. Við höfum
haft áhyggjur af þessum málum,
m.a. vegna þess að Bandaríkin
ákváðu að viðurkenna Jerúsalem
sem höfuðborg Ísraels,“ segir Guð-
laugur. Ræddu ráðherrarnir einn-
ig málefni norðurslóða og Atlants-
hafsbandalagið. Guðlaugur fund-
aði svo með báðum öldunga-
deildarþingmönnum Alaska-ríkis
um möguleikann á fríverslun og
milli Alaska og Íslands. »6
Guðlaugur ræddi
stöðuna á Gaza