Morgunblaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Stöndum saman og kaupum álfinn – fyrir unga fólkið
SÁÁ– til betra lífs
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Ég átti enga möguleika á að
slökkva þetta,“ segir Einar Sigfús-
son, bóndi að Skálateigi II í Norð-
fjarðarsveit skammt frá Neskaup-
stað. Eldur kviknaði í feiti í
íbúðarhúsi bæjarins á ellefta tím-
anum í gærmorgun.
Engan sakaði í eldsvoðanum, en
þrír voru í húsinu þegar eldurinn
kom upp, þar af eitt barn. Tókst
þeim að koma sér út úr húsinu af
sjálfsdáðum, en það var alelda
þegar slökkvilið kom á staðinn.
Húsið er mjög illa farið eftir
brunann, jafnvel ónýtt. „Það var
engu hægt að bjarga. Mér er sagt
að húsið sé mjög illa farið, þetta
sé gjörsamlega altjón,“ segir Ein-
ar.
Að sögn Þorbergs Haukssonar,
aðstoðarslökkviliðsstjóra á svæð-
inu, gekk greiðlega að slökkva eld-
inn.
Einari er ekki kunnugt um það
hvernig eldsupptök urðu nákvæm-
lega, en telur að eldur hafi kviknað
út frá feiti af hrossasteik. „Það
skeður á augnabliki að það kvikni í
feiti.“
Hann þakkar reykskynjurum
fyrir að allir hafi komist út úr hús-
inu, en hann lá í rúmi sínu þegar
þeir fóru í gang og þurfti að forða
sér út á sokkaleistunum.
Hann segir enga hættu hafa ver-
ið á ferð fyrir sig eða vinnukonu
hans og barn hennar. Um tjónið á
húsinu segir hann það bara eins og
gengur í lífinu. „Það er ýmist upp
eða niður.“ Aðalmálið segir hann
að enginn hafi slasast.
thorgerdur@mbl.is
Altjón varð í eldsvoða
Eldur kviknaði í feiti á bæ í Norðfjarðarsveit í gær Húsið
alelda þegar slökkvilið mætti á staðinn Barn var í húsinu
Morgunblaðið/Eggert
Eldsvoði Greiðlega gekk að
slökkva eldinn. Myndin er úr safni.
Félagið Ísland-Palestína stóð fyrir samstöðu-
fundi með Palestínumönnum á Austurvelli í gær
til að minnast þess að; „70 ár eru liðin frá upp-
hafi hörmunganna þegar helmingur palestínsku
þjóðarinnar var hrakinn í útlegð,“ eins og segir í
tilkynningu um fundinn.
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Íslands-
Palestínu, flutti ávarp ásamt Ögmundi Jónas-
syni, Salmann Tamimi og Semu Erlu Serdar.
Morgunblaðið/Hari
Sýndu samstöðu með Palestínumönnum
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Jón Birgir Eiríksson
„Við fögnum allri umræðu og okkur
finnst frábært að fólk geti komist að
þessu á auðveldan hátt. Það getur þá
gripið til aðgerða ef það kýs svo, áður
en skaðinn er skeður,“ segir Bjarney
Bjarnadóttir, stjórnarmeðlimur
Brakkasamtakanna sem leitast við að
efla fræðslu og rannsóknir á genun-
um BRCA1 og BRCA2.
Þúsundir Íslendinga hafa þegar
nýtt sér nýja vefsíðu Íslenskrar
erfðagreiningar, arfgerd.is, sem var
opnuð á hádegi í gær. Á síðunni býðst
Íslendingum að óska eftir upplýsing-
um um hvort þeir beri 999del5-erfða-
breytuna í BRCA2-geninu, sem eyk-
ur verulega líkur á krabbameini.
Erfðabreytan eykur sérstaklega
hættu á krabbameini í brjóstum og
eggjastokkum kvenna og krabba-
meini í blöðruhálskirtli hjá körlum.
6.900 höfðu lokið skráningarferli á síð-
unni klukkan 17.30 í gær.
Aðspurð segir Bjarney að sér finn-
ist þetta vera rétta leiðin. „Þeir sem
vilja vita geta nálgast upplýsingarnar
og þeir sem vilja ekki vita sleppa því.
Vonandi verður þetta til þess að ein-
hverjum mannslífum verður bjargað.“
Áhyggjur af lítilli umferð
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr-
ar erfðagreiningar, lýsir hins vegar
áhyggjum sínum af því að vefupplýs-
ingar um síðuna nái ekki eyrum allra
þeirra sem þörf hafa á.
Í samtali við mbl.is segir Kári að
hann hafi lýst þeim áhyggjum sínum
fyrir starfshópi á vegum heilbrigðis-
ráðuneytisins sem hann sat í en sagði
sig úr. „Ég sagði þeim að ég hefði
áhyggjur af því að stökkbreytingin
ylli krabbameini hjá tiltölulega ungu
fólki. Ungt fólk hefur tilhneigingu til
að ganga með þá grillu í hausnum að
vondir hlutir hendi eingöngu aðra en
ekki það sjálft. Það er tiltölulega lítill
hluti þeirra, sem ættu að kanna arf-
gerð sína, sem gerir það. Ég hef
mestar áhyggjur af því að það verði of
lítil umferð um þessa síðu okkar.“
Gætu skoðað BRCA1 líka
Starfshópurinn sem um ræðir lagði
til í skýrslu að sambærileg vefgátt
yrði opnuð daginn áður en vefsíða Ís-
lenskrar erfðagreiningar var opnuð í
gær. „Ég sat í þessum vinnuhópi heil-
brigðisráðherra og sagði mig síðar úr
honum. Ég sagði þeim að ef hópurinn
kæmist að þeirri niðurstöðu að það
mætti ekki nálgast arfberana, þá
myndum við setja upp svona heima-
síðu.“
Aðspurður segir Kári að ástæða
þess að á vefsíðunni sé einblínt á
BRCA2-genið en ekki BRCA1 sé sú
að meira sé vitað um það og að það sé
algengara á Íslandi. „BRCA2 er þessi
íslenska stökkbreyting sem er í 0,8%
af þjóðinni og er auðvelt að finna og
fylgja. Ég reikna hinsvegar með því
að við komum til með að kíkja á
BRCA1 í öllum þeim sem leita til okk-
ar líka. Það er ekki meiriháttar
vandamál fyrir okkur.“
Kári segir að þótt það væri ekki
nema ein kona sem dæi fyrir aldur
fram vegna krabbameins væri það of
mikil fórn. „Við vitum að það eru
hundruð einstaklinga í íslensku sam-
félagi sem eru í lífshættu vegna þess-
arar stökkbreytingar. Við vitum að
við getum fundið þetta fólk ef það er
vilji fyrir hendi og það er hægt að tak-
ast á við stærstan hluta af hættunni
með fyrirbyggjandi aðgerðum. Ef við
gerum það ekki er ekki til nein fjar-
vistarsönnun.“
Þúsundir vilja vita af BRCA2
Vefgátt Íslenskrar erfðagreiningar opnuð í gær Brakkasamtökin fagna vefsíðunni Kári Stef-
ánsson hefur áhyggjur af lítilli umferð Segir ungt fólk halda að ekkert slæmt komi fyrir það sjálft
Bjarney
Bjarnadóttir
Kári
Stefánsson
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörns-
dóttir, oddviti
Borgarinnar
okkar – Reykja-
víkur, lagði fram
tillögu um að
Reykjavíkurborg
afturkallaði
ákvörðun um að
úthluta Félagi
múslima á Ís-
landi lóð undir mosku í Sogamýri á
fundi borgarstjórnar í gær.
Taldi hún forsendur fyrir lóðaút-
hlutun brostnar vegna þess að
framkvæmdir verða að hefjast inn-
an þriggja ára annars ætti lóðaút-
hlutun að vera afturkölluð en fimm
ár eru síðan lóðinni var úthlutað.
Endurvakning á gömlu loforði
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri lagði til að tillögunni yrði vís-
að frá og sagði Sveinbjörgu hafa
látið allt kjörtímabilið líða til þess
að uppfylla þetta gamla kosninga-
loforð sitt um að láta lóðarúthlut-
unina ekki standa. Sagði Dagur
Sveinbjörgu hafa lofað því að
leggja þetta mál fram á fyrsta fundi
eftir síðustu kosningar en hefði
ekkert gert í málinu fyrr en nú 11
dögum fyrir kosningar. Óskað var
eftir nafnakalli við frávísunar-
tillögu Dags og fór svo að tillögu
Sveinbjargar var vísað frá.
Tillögu um aftur-
köllun lóðar fyrir
mosku vísað frá
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir