Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
„Undanfarnar vikur hefur fjölmiðill-
inn Stundin fjallað á vef og prenti á
óvæginn og ómálefnalegan hátt um
tiltekið umgengnismál með þátttöku
annars málsaðila þess.“ Svona hefst
tilkynning sem birt var á syslumenn-
.is í gær, undirrituð af sýslumannin-
um á höfuðborgarsvæðinu, Þórólfi
Halldórssyni.
Stundin hefur undanfarið fjallað
ítrekað um mál barnaverndarnefnda
og Barnaverndarstofu. Líklegt er að
hér sé vísað til máls þar sem forstjóri
Barnaverndarstofu beitti sér í máli
barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar
um föður sem ásakaður er um að hafa
brotið kynferðislega gegn tveimur
börnum sínum. Í umfjöllun í nýjasta
tölublaði Stundarinnar er fjallað um
réttarframkvæmd sýslumannsins á
höfuðborgarsvæðinu í umgengnis- og
dagsektarmálum. Þar er sýslumaður
sakaður um að horfa kerfisbundið
framhjá gögnum um kynferðisbrot og
heimilisofbeldi og börn sögð þvinguð
til umgengni við ofbeldismenn.
Í tilkynningu sýslumannsins segir
að hann geti ekki fjallað opinberlega
um tiltekin mál, en að 585 umgengnis-
og dagsektarmál hafi verið til með-
ferðar hjá embættinu árið 2017. „Ein-
ungis þurfti að úrskurða í 56 ágrein-
ingsmálum og þar af voru aðeins 15
úrskurðir kærðir til dómsmálaráðu-
neytisins.“
Þá segir að málsmeðferð og úr-
skurðir séu afrakstur samvinnu
starfsmanna, og að sýslumaður sé
hreykinn af sínu starfsfólki og beri til
þess fullt traust.
„Það er umhugsunarvert að fjöl-
miðill skuli fjalla á jafn ógætilegan
hátt um persónuleg málefni einstak-
linga og Stundin gerir í þessu máli,
m.a. með tilliti til persónuverndarlög-
gjafarinnar og 3. greinar siðareglna
Blaðamannafélags Íslands.“
Umfjöllun Stundar-
innar ómálefnaleg
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæð-
inu sendi frá sér tilkynningu í gær
Morgunblaðið/Hanna
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra segir Bandaríkin sjá Ís-
land sem trúverðugt og áreiðanlegt
bandalagsríki en hann átti fund með
James Mattis, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, í gær. Hann segir
það sérstaklega mikilvægt að vest-
ræn ríki sem deila sömu gildum
standi saman. „Í ljósi breyttra að-
stæðna í heiminum þá teljum við af-
skaplega mikilvægt að þau vestrænu
ríki sem byggð eru á þessum sömu
gildum um mannréttindi og lýðræði,
standi og vinni saman á þessum tím-
um. Það hefur alltaf verið mikilvægt
en sérstaklega mikilvægt núna. Því
það þarf að berjast fyrir þessum
gildum sem við teljum sjálfsögð,“
segir Guðlaugur. Hann segir að
fundurinn með Mattis hafi verið góð-
ur og upplýsandi en ráðherrarnir
tveir ræddu samskipti þjóðanna,
Atlantshafsbandalagið og stöðuna í
heimsmálum.
Lýsti yfir áhyggjum um Gaza
Guðlaugur kom áhyggjum Íslands
á framfæri varðandi stöðu mála á
Gaza-svæðinu en átök hafa staðið
þar yfir síðan Bandaríkin færðu
sendiráð sitt til Jerúsalem. „Þetta er
mál sem ég tók upp á fundinum og
við fórum yfir þá stöðu. Við höfum
haft áhyggjur af þessum málum m.a.
vegna þess að Bandaríkin ákváðu að
viðurkenna Jerúsalem sem höfuð-
borg Ísraels,“ segir Guðlaugur. Mál-
efni Mið-Austurlanda voru einnig
rædd og þá sérstaklega málefni Sýr-
lands. Spurður hvort málefni Hauks
Hilmarssonar sem er talinn hafa
fallið í Sýrlandi hafi komið upp segir
Guðlaugur það ekki hafi verið rætt
sérstaklega. „Við höfum verið í sam-
bandi við Bandaríkin um það mál en
það var ekki rætt sérstaklega.“
Viðvera hersins ekki rædd
Í fyrra var greint frá því í fjöl-
miðlum að Bandaríkin hygðust
koma með her sinn tímabundið aftur
til Íslands, til þess að fylgjast með
rússneskum kafbátum í Norður-
Atlantshafi, spurður segir Guð-
laugur slíkt ekki hafa verið rætt.
Aukin áhersla Atlantshafs-
bandalagsins á Norður-Atlantshaf
kom hins vegar upp í tengslum við
lofthelgisgæslu og kafbátaleit. Þá
ræddu ráðherrarnir einnig hern-
aðaræfinguna Trident Juncture sem
mun fara fram á Íslandi og í Noregi í
haust. Spurður hvort Bandaríkin
vilji auka hlutverk Íslands í varnar-
málum vegna landfræðilegrar stöðu
sinnar segir Guðlaugur engan hafa
farið fram á slíkt. „Það þekkja allir
sérstöðu Íslands innan Atlantshafs-
bandalagsins sem herlausrar þjóðar
en borgaralegt framlag okkar til
bandalagsins hefur farið vaxandi á
undanförnum árum allt frá innlimun
Krímskagans. Frá þeim tíma hafa
aðildarríkin lagt meiri áherslu á svið
varnarmála, m.a. í Norður-
Atlantshafi. Framlag okkar hefur
verið mjög vel metið beggja vegna
Atlantshafsins.“
Samstarf Íslands og Alaska
Guðlaugur fundaði einnig með
Dan Sullivan og Lisa Murkowski,
öldungadeildarþingmönnum Alaska
í Bandaríkjunum, um frekara sam-
starf milli Alaska og Íslands. „Það er
góður grundvöllur fyrir samstarfi
milli Íslands og Alaska og það eru
góðar tengingar þar á milli enda eig-
um við mjög mikið sameiginlegt með
Alaska-ríki. Við ræddum þar málefni
norðurslóða, fríverslun og fjárfest-
ingar milli Íslands og Alaska.“
Guðlaugur mun síðan funda með
Ed Royce, formanni utanríkismála-
nefndar fulltrúadeildar bandaríska
þingsins, ásamt því að hitta Laura
Tuck, aðstoðarbankastjóra alþjóða-
bankans og undirrita samning fyrir
Íslands hönd.
Ljósmynd/Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna
Bandalagsþjóðir Guðlaugur Þór og Mattis við hátíðlega athöfn fyrir utan varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Telja Ísland vera áreið-
anlegt bandalagsríki
Mikilvægt að vestræn ríki standi saman, segir ráðherra
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Finnar eru höfðingjar heim að
sækja og í þessari heimsókn finnum
við hjónin svo vel þann hlýhug og
velvild sem þeir bera til okkar Ís-
lendinga,“ segir Guðni Th. Jóhann-
esson, forseti Íslands, í samtali við
Morgunblaðið frá Helsinki.
Opinber heimsókn Guðna, Elizu
Reid, konu hans, og fylgdarliðs hófst
í gærmorgun með formlegri mót-
tökuathöfn við forsetahöllina í Hels-
inki. Í kjölfarið áttu forseti Íslands
og Sauli Niinistö, forseti Finnlands,
fund. Þá bauð Jan Vapaavuori, borg-
arstjóri Helsinki, forsetahjónunum
til hádegisverðar, markverðir staðir
voru heimsóttir og síðdegis átti for-
seti Íslands fund með finnska for-
sætisráðherranum, Juha Sipilä.
Dagskrá í gær lauk með hátíðar-
kvöldverði sem finnsku forsetahjón-
in buðu til.
Í dag, miðvikudag, verður fundað
um líf- og heilbrigðistæknifyrirtæki
og viðskiptatækifæri þar að lútandi.
Þá verður efnt til samræðna um
málefni norðurslóða. Þá munu
Eliza Reid og Jenni Haukio, for-
setafrú Finnlands, heimsækja mat-
reiðsluskóla þar sem Íslandsstofa
hefur skipulagt hádegisverð og
samræðufund um ferðamál, menn-
ingu og mat. Einnig verður sjónum
beint að læsi og lestri. Á lokadegi
heimsóknarinnar á morgun liggur
leið forsetahjóna og fylgdarliðs til
Turku-borgar. Þar hefst dagskráin í
vísindagörðum, samstarfsvettvangi
háskóla, borgar og fyrirtækja, en
síðan er haldið í Turku-háskóla þar
sem Vanda Sigurgeirsdóttir, kenn-
ari við menntavísindasvið Háskóla
Íslands, og finnskir samstarfsmenn
hennar gera grein fyrir baráttu
gegn einelti í skólum.
Í ræðu sem Guðni Th. Jóhannsson
flutti í kvöldverðaboði finnska for-
setans í gær gerði hann að umtals-
efni þau bönd sem tengdu Ísland og
Finnland saman og þjóðirnar sem
löndin byggja. Í fyrra hefðu Finnar
minnst hundrað ára sjálfstæðis-
afmælis og í ár héldu Íslendingar
upp á það að öld er liðin frá því að Ís-
land varð frjálst og fullvalda ríki. Í
báðum löndum hefði tekist að skapa
velferðarsamfélag með samspili ein-
staklingsfrelsis og samhjálpar. Flest
hefði verið í framfaraátt. „Og svo er
það landið sjálft, vatnið og skógarn-
ir, sem eru uppspretta og efniviður
traustrar hagsældar og munu gera
það áfram sé rétt á málum haldið.
En allra mikilvægastur er mannauð-
urinn, sú mikla virðing sem þið sýnið
þekkingu og menntun, vísindum og
nýsköpun,“ sagði forseti Íslands.
Finnum vel velvild Finna til Íslendinga
Hátíð í Helsinki
í Finnlandsheim-
sókn forsetans
Ljósmynd/Karl Vilhjámsson
Börn Íslenski fáninn sást víða eins og hæfir í þjóðhöfðingjaheimsóknum.
AFP
Fundur Guðni Th. Jóhannesson og Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands.