Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Styrmir Gunnarsson bendir á „aðsamfélag okkar hefur breytzt
mikið á hálfri öld.
Margt til hinsbetra en ann-
að til hins verra.
Fyrir nokkrumvikum birtust
fréttir um að þjófa-
gengi kæmu hingað
tímabundið frá útlöndum til þess að
fremja innbrot á heimili fólks.
Almannarómur telur að fíkni-efnaneyzla hafi aukizt veru-
lega og í kjölfar hennar gamal-
kunnar aðferðir sem við þekkjum
úr bíómyndum til þess að tryggja
að viðskiptin gangi greiðlega fyrir
sig.
Almennir borgarar hafa orðiðfyrir eignaspjöllum, þegar
handrukkarar láta til sín taka og
hótunum um að lengra verði gengið
ef …
Hér hafa mjög sennilega orðiðtil undirheimar, sem smátt og
smátt hafa bæði neikvæð og skað-
leg áhrif á samfélagið.
Í baráttu lögreglunnar gegnfíkniefnum hafa höfuðpaurar
sjaldan eða aldrei náðst.
Það er merkilegt í svona fá-mennu samfélagi.
Það má vel vera að það sé kom-inn tími á að stórauka fjár-
framlög til lögreglunnar, fjölga
liðsmönnum hennar og hefjast
handa“.
Eitthvað þarf að gera.
Styrmir
Gunnarsson
Tapaður slagur?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.5., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 8 súld
Ósló 26 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 26 heiðskírt
Helsinki 27 heiðskírt
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 14 rigning
Glasgow 14 skúrir
London 20 heiðskírt
París 19 léttskýjað
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 13 þrumuveður
Vín 12 rigning
Moskva 18 léttskýjað
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 19 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 14 skúrir
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 14 alskýjað
Montreal 15 skúrir
New York 17 þoka
Chicago 19 skýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:09 22:40
ÍSAFJÖRÐUR 3:48 23:11
SIGLUFJÖRÐUR 3:30 22:55
DJÚPIVOGUR 3:32 22:16
Sigurður Krist-
insson, fyrrver-
andi eigandi verk-
takafyrirtækisins
SS húsa, neitaði
sök að hluta við
fyrirtöku máls
gegn honum
vegna meintra
meiri háttar
skattalagabrota
við Héraðsdóm
Reykjaness í gær, en gekkst þó við
hluta þeirra brota sem honum voru
gefin að sök samkvæmt ákæru. Í
þeim hluta ákærunnar er Sigurður
neitar, eru honum gefin að sök skil á
röngum virðisaukaskattsskýrslum
þar sem innskattur af þjónustu-
kaupum var offramtalinn á grundvelli
tilhæfulausra sölureikninga og um
leið vanframtalinn virðisaukaskattur.
Sá hluti ákærunnar sem Sigurður
gekkst við varðar annars vegar van-
skil á virðisaukaskatti á árinu 2015.
Hins vegar að hafa ekki á lögmæltum
tíma staðið skil á skilagrein félagsins
vegna staðgreiðslu opinberra gjalda
og ekki staðið skil á staðgreiðslu op-
inberra gjalda sem haldið var eftir af
launum starfsmanna á tilteknu tíma-
bili. Sigurður er eiginmaður Sunnu
Elviru Þorkelsdóttur sem lamaðist á
heimili þeirra á Spáni fyrr á þessu ári.
Játaði sök
að hluta
Var ákærður fyrir
skattalagabrot
Sigurður
Kristinsson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Einkaleyfum í gildi hér landi hefur
fjölgað mikið að undanförnu og eru
þau nú orðin tífalt fleiri en árið
2007. Þetta kemur fram í nýút-
komnu tölublaði ELS-tíðinda sem
Einkaleyfastofan gefur út.
Þar er tilkynnt um skráningu 250
vörumerkja og hafa þá samtals ver-
ið skráð 938 vörumerki það sem af
er árinu. Í blaðinu er jafnframt til-
kynnt um endurnýjun 265 vöru-
merkja. Þar með talin eru 61.290
vörumerki skráð hér á landi og
hafa þau aldrei verið fleiri, að því
er fram kemur í ELS-tíðindum.
Einkaleyfi á aðferð til
að þætta kápufléttað reipi
Í blaðinu eru alls 15 hönnunar-
skráningar auglýstar. „Þeirra á
meðal er nýr landsliðsbúningur ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu. Á
sama tíma er auglýst endurnýjun
14 hönnunarskráninga,“ segir þar.
Eitt landsbundið einkaleyfi er
auglýst veitt að þessu sinni. Það er
í eigu Hampiðjunnar og lýsir nýrri
aðferð til að þætta kápufléttað
reipi. Samtals er svo tilkynnt um
veitingu 106 evrópskra einkaleyfa í
blaðinu og þriggja útgefinna við-
bótarvottorða, að því er segir
blaðinu.
Einkaleyfi orðin tífalt fleiri en 2017
Aldrei verið fleiri vörumerki á skrá Hönnun landsliðsbúningsins auglýst
Morgunblaðið/Eggert
Kynning Hulunni var svipt af nýja
landsliðsbúningnum í mars.